Helgarpósturinn - 07.04.1988, Page 5

Helgarpósturinn - 07.04.1988, Page 5
Aðalfundur Útvegsbankans hf. í næstu viku: SKIPT UM BANKARÁÐ Aðalfundur Útvegsbankans hf. verður haldinn á þriöjudaginn í noestu viku. Þar verður skipað í nýtt bankaráö og er það í höndum Jóns Sigurðssonar við- skiptaráðherra að skipa fjóra menn affimm. Stjórn fisk- veiðasjóðs skipar fimmta mann. Reikna má fastlega með að Jón noti tækifœrið og breyti þeirri flokkaskiptingu sem fyrirrennari hans í starfi, Matthías Bjarnason, kom á, en þrír affimm bankaráðsmönnum eru yfirlýstir sjálf- stæðismenn. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í viðtali við HP að slíkur meirihluti eins flokks vœri óeðlilegur og breyting hlyti að koma til. Samkvœmt áreiðanlegum heimildum HP er hagnaður af rekstri Útvegsbankans fyrstu átta mánuðina 220—230 milljónir króna og batnar eiginfjár- staðan sem því nemur. Aœtlað tekjuskattsígildi er rúm- lega 100 milljónir króna, en kemur ekki til greiðslu þar sem „skattalegt hagræði" sem gamli bankinn gafkemur þar til frádráttar. EFTIR PÁL HANNESSON MYND JIM SMART Það er nú í höndum Jóns Sigurðs- sonar viðskiptaráðherra að skipa fjóra menn af fimm í bankaráð Ut- vegsbankans, en nýtt bankaráð verður skipað á aðalfundi bankans nú á þriðjudag. Matthías Bjarnason skipaði á sínum tíma þá Gísla Ólafs- son og Baldur Guðlaugsson, flokks- félaga sína, í bankaráðið og Kristján Ragnarsson kom inn í gegnum fisk- veiðasjóð. Björgvin Jónsson hefur verið fulltrúi Framsóknar og Jón Dýrfjörð fulltrúi Alþýðuflokks. BREYTINGAR Á BANKA- RÁÐINU Það er vitað að Jón Sigurðsson hef- ur áhuga á að breyta þessari liðskip- an og hefur í framhaldi af því ráð- fært sig við fulltrúa a.m.k. annars stjórnarflokkanna ef ekki beggja. Steingrímur Hermannsson, formað- ur Framsóknarflokks, vildi lítið láta hafa eftir sér þegar HP ræddi við hann, en sagði þó að hann teldi mjög óeðlilegt að einn flokkur hefði meirihluta í einu bankaráði og að breytingar hlytu að koma til. Ákvörðun í þessu máli væri hins vegar alfarið í höndum Jóns Sig- urðssonar. Eigi Jón Sigurðsson að geta verið viss um að hnekkja meirihluta sjálf- stæðismanna þarf annaðhvort nú- verandi formaður bankaráðsins, Gísli Ólafsson, forstjóri Trygginga- miðstöðvarinnar hf., að fara út eða þá Baldur Guðlaugsson, lögfræðing- ur með meiru. Þeir sem vel þekkja til telja ekki mikið fararsnið á Gísla og mætti því álykta að það yrði Baldur sem yrði iátinn víkja. Það gæti líka verið ásættanlegra fyrir sjálfstæðismenn að þeir héldu for- manni bankaráðsins, þyrftu þeir að sjá á eftir einum sinna manna og meirihluta í bankaráðinu. Skarð Baldurs yrði síðan fyllt með Alþýðu- flokksmanni, þó svo enginn augljós valkostur skjóti þar upp kollinum. Jón Dýrfjörð býr á Siglufirði og kemur því tæplega til greina sem formaður á meðan svo háttar til, en annar möguleiki gæti auðvitað ver- ið að krati settist í formannssætið og nýi maðurinn í bankaráðinu yrði framsóknarmaður. Talið er að Björgvin Jónsson muni ekki sækja áframhaldandi setu í ráðinu hart, jafnvel þó hann sitji áfram, verði þess farið á leit við hann. Það er því allt eins líklegur möguleiki að Jón komi til með að tilnefna fjóra nýja menn í bankaráðið, tvo Alþýðu- flokksmenn, einn framsóknarmann og einn sjálfstæðismann. FULLTRÚI FISKVEIÐASJÖÐS Fari svo eykst væntanlega þrýst- ingurinn á stjórn fiskveiðasjóðs að skipa nýjan fulltrúa þar og gerir þeim þann leik jcifnframt auðveld- ari, en margir hafa litið á setu Krist- jáns Ragnarssonar í bankaráði Út- vegsbankans sem óeðlilega. Stjórn fiskveiðasjóðs, sem á 200 milljónir af hlutafé Útvegsbankans eða 20%, er samansett af þremur bankastjór- um, einum fulltrúa settum af sjávar- útvegsráðherra og þremur fulltrú- um hagsmunaaðila. Það var strax ljóst að bankastjórarnir þrír frá Seðlabanka, Landsbanka og Út- vegsbanka voru ekki gjaldgengir i bankaráð Útvegsbankans hf. Það má því telja undarlega ákvörðun að fulltrúi einna hagsmunasamtaka, í þessu tilfelli LÍU, skuli hafa setið sem fulltrúi fiskveiðasjóðs í banka- ráði Útvegsbanka, sérstaklega þar sem hann tók síðar að sér forgöngu fyrir hópi þeirra 33ja aðila sem vildu kaupa bankann. Telja margir eðlilegra að forstjóra sjóðsins, Má Elíssyni, hefi verið fengið það hlut- verk. Kristján Ragnarsson sagði hins vegar í samtali við HP að stjórn fisk- veiðasjóðs hefði einhuga lagt að sér að taka að sér sæti í bankaráðinu og að hann sæi ekkert óeðlilegt við það. Hann hefði ekki í huga að stíga úr því sæti að fyrra bragði, en í til- efni fyrri skrifa í HP ætlaði hann að fara fram á að málið yrði rætt í stjórn fiskveiðasjóðs, því hann vildi ekki sitja í bankaráðinu í andstöðu við stjórn sjóðsins. En jafnvel þó aðeins sé tæp vika í aðalfund Út- vegsbanka íslands hefur stjórn fisk- veiðasjóðs enn ekki rætt um hvaða fuiltrúa hún muni tilnefna í banka- ráð og fundur með því umræðuefni hefur enn ekki verið boðaður. Þykir þetta andvaraleysi merki um að stjórn fiskveiðasjóðs ætli sér ekki að breyta um fulltrúa í bankaráði Útvegsbankans. Ýmsir hafa leitt að því getum að þar sem fiskveiðasjóður heyri undir sjávarútvegsráðherra sé ekki óeðli- legt að hann beiti áhrifum sínum til þess að stjórnin tilnefni fulltrúa sem sé honum að skapi. Stjórn sjóðsins ætti erfitt með að standa gegn slíkri ósk. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra sagði hins vegar, að- spurður um þetta atriði, að ákvörð- un væri alfarið stjórnar sjóðsins, hann ætlaði ekki að beita sér til að hafa áhrif þar á. Halldór benti enn- fremur á að hann teldi eðlilegt að Jón Sigurðsson gerði einhverja breytingu á samsetningu bankaráðs Útvegsbankans, þar sem annar við- skiptaráðherra hefði skipað núver- andi bankaráð. Aðspurður um hvort Framsókn og Alþýðuflokkur hefðu tekið samcin ráð sín um skip- an í bankaráðið sagði Halldór að það væri eðlilegt að menn ræddu saman um þessa hluti. ,,En það hef- ur ekki verið á mínu borði, það eru frekar formennirnir sem eru í því," sagði Halldór. HAGNAÐUR 220 MILLJÓNIR KRÓNA Á aðalfundinum verður lögð fyrir ársskýrla Útvegsbankans hf. fyrir þá átta mánuði sem hann hefur starfað á þessu ári. Helstu niðurstöð- ur ársskýrslunnar eru þær að hagn- aður af rekstri Útvegsbankans var á þessu tímabili milli 220—230 millj- ónir. Hagnaðurinn er hins vegar að- eins bókfærður sem 110—120 millj- ónir króna, þar sem tekjuskattsígildi að upphæð um 110 milljónir króna er dregið frá 220 milljóna hagnaðin- um í bókunum. Bankinn kemur hins vegar aldrei til með að greiða þenn- an álagða tekjuskatt, þar sem upp- safnað „skattalegt hagræði" sem bankinn keypti af Útvegsbankanum gamla kemur til frádráttar. Raun- verulegur hagnaður bankans er því sem fyrr segir á bilinu 220—230 milljónir króna og eykst eigið fé bankans sem því nemur. Svo sem komið hefur fram keypti Útvegsbankinn hf. hið svokallaða „yfirfæranlega skattalega hagræði", að upphæð 913 milljónir króna, fyr- ir einar 190 milljónir. Þetta tapverð var ákveðið af matsnefndinni marg- frægu, en niðurstöður hennar voru gerðar opinberar fyrir aðeins hálf- um mánuði. í röksemdafærslu mats- nefndar fyrir þessari verðlagningu var m.a. tekið fram að miklu skipti hversu fljótt „tapið" gæti nýst nýja bankanum til frádráttar í sköttum. Þeim mun hraðar, þeim mun verð- mætara væri það Útvegsbankinn hf„ sem gaf 190 milljónir fyrir 913 milljónirnar, hefur nú á tveimur vik- um sparað sér rúmlega 100 milljónir á kaupunum og á þó enn eftir rúm- lega 800 milljónir af „skattalegu hagræði" — tapi, sem hann getur í framtíðinni notað til skattafrádrátt- ar. VERÐUR AF BÚTASÖLUNNI? Jón Sigurðsson hefur sagt að bíða verði eftir niðurstöðum ársskýrslu áður en hægt verði að ganga frá út- boðum í bankann að nýju. Nú liggur niðurstaða fyrir og hagnaður er af rekstri bankans eins og fyrirsjáan- legt var. Því má búast við að vinna við nánari útfærslu á því hvernig útboðinu verði hagað hefjist mjög fljótlega í viðskiptaráðuneytinu. Jón hefur reyndar þegar lýst í grófum dráttum síðustu hugmyndum sínum við að koma hlutabréfum á markað, en þar verða þau að seljast á u.þ.b. þreföldu nafnverði eigi ríkið ekki að bera fjárhagslegt tap af öllu saman. Ætlun Jóns er að selja hlutabréfin í þremur hlutum: Fyrst eiga fjár- magnsfyrirtæki og aðrir aðilar að kaupa, svokallaður „hlutafjármuna- markaður”, en ekki hefur enn kom- ið fram hversu stóran hlut hann fær til skiptanna. Síðan er ætlunin að bjóða erlendum bankastofnunum hlutabréf, en samkvæmt núgildandi lögum mega erlendir bankar eiga allt að 25% hlutafjár í íslenskum bönkum. Að lokum, þegar „fjár- hagslegur grundvöllur bankans hef- ur þannig verið tryggður", svo vitn- að sé til orða Jóns Sigurðssonar, verða almenningi boðin þau hluta- bréf sem eftir kunna að verða. Með þessu móti vill Jón tryggja að enginn einn aðili öðlist meirihluta- eign í bankanum. Á það hefur hins vegar verið bent að áhugi þeirra fjársterku aðila innnanlands sem hugsanlega hafa áhuga á Útvegs- bankanum helgist fyrst og fremst af því að ná þar meirihluta og þar með völdum. Sé girt fyrir þann mögu- leika dvíni áhugi innlendra fjár- magnseigenda stórlega. í annan stað hefur áður verði bent á það hér í HP að erfitt sé að koma auga á af hverju erlendir bankar ættu að hafa áhuga á bankaviðskiptum hérlend- is. Fari hins vegar svo að þeir kaupi 25% hlutafjár, þá ræður stjórn fisk- veiðasjóðs yfir öðrum 20%, og hún er óháð vilja viðskiptaráðherra um það hvort og hvenær hún selur. Að viðbættri núverandi hlutafjáreign fyrirtækja og einstakiinga er hlutur þessara aðila um 49%. „Hlutafjár- munamarkaði” innanlands er því boðið upp á um 51% hlutafjár og virðist þannig kirfilega tekið fyrir að nokkrum einum aðila takist að komast yfir meirihlutaeign í bank- anum. Þessi staða, að viðbættu hækk- uðu verði hlutabréfa bankans, leiðir því til þess, sem fyrri daginn, að þunglega horfir um að hlutabréf Útvegsbankans hf. gangi út. HELGARPÓSTURINN 5 Steingrímur Hermannsson: „Óeðli- legt að einn stjórnmálaflokkur eigi meirihluta í bankaráði. Það hlýtur að breytast." Útvegsbankinn hf.: Hagnaður var milli220—230 milljónir þá áttamán- uði sem bankinn starfaði á síðasta ári. Bankanum hefur þegar tekist að nýta sér rúmlega 100 milljónir af „skattalega haaræðinu" sem hann fékk frá gamla bankanum.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.