Helgarpósturinn - 07.04.1988, Page 8

Helgarpósturinn - 07.04.1988, Page 8
VETTVANGUR HELGARPÖSTURINN Ritstjórar: Helgi Már Arthursson og Ólafur Hannibalsson Bladamenn: Prófarkir: Ljósmyndir: Útlit: Framkvœmdastjóri: Anna Kristine Magnúsdóttir, Freyr ÞormóÖsson, Friðrik Þór Guðmundsson, Jón Geir Þormar, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson, Páll Hannesson. Sigríöur H. Gunnarsdóttir Jim Smart Jón Óskar Hákon Hákonarson Dreifingarstjóri: Sölu- og markaðsstjóri: Auglýsingar: Áskrift: Afgreiðsla: Aðsetur blaðsins: Útgefandi: Setning og umbrot: Prentun: Birgir Lárusson Hinrik Gunnar Hilmarsson Sigurrós Kristinsdóttir, Siguröur Baldursson. Guðrún Geirsdóttir Bryndís Hilmarsdóttir er í Ármúla 36, Reykjavík, sími 91-681511. Goögá hf. Leturval sf. Blaöaprent hf. Offors og yfirgangur Fyrir skömmu var sýndur í sjónvarpinu fróölegur þátt- ur um Guðjón Samúelsson, húsameistara ríkisins, og þær opinberu stórbyggingar, sem hann hannaði og sá um smíði á. Glöggt kom í ljós í þessum þætti hversu margar tignarlegustu og stórfenglegustu byggingar þessa mikil- hæfa húsameistara eru fjarri því að njóta sín vegna lág- kúrulegs hundaþúfusjónarmiðs stjórnvalda, sem hafa kúldrað þeim niður í húsasundum, þar sem þær eru næsta óaðgengilegar og næstum ósýnilegar gestum og gangandi. Yfirvöld Reykjavíkurborgar hafa um áratugaskeið ver- ið slegin augnglýju og blindu af líku tagi. Enn hefur borg- in ekki eignast ráðhús, vegna þess að borgarstjórar hafa ekki getað hugsað sér aðra bletti til að reisa á slíka bygg- ingu en Tjörnina í túnfæti Ingólfs landnámsmanns. Jafn- óðum hafa borgararnir risið upp og kveðið þessar hug- myndir í kútinn. Borgaryfirvöld hafa Iátið undan síga en fremur kosið, að ekkert ráðhúsrisi af grunni en að finna því annan stað, þar sem hafa mætti rúmt um það á alla vegu og gera það aðgengilegt og sýnilegt öllum íbúum borgarinnar og gestum hennar. Með hverri nýrri kynslóð hefja þau á ný þennan skæruhernað á hendur borgurun- um, þótt finna megi víða í borgarlandinu víðfeðmar lendur þar sem myndarlegt ráðhús getur blasað við og verið veglegt tákn og stolt okkar ungu höfuðborgar. En málið er í rauninni hætt aðsnúast eingöngu um ráð- húsið og fáránlegt staðarval þess. Það er nú farið að snú- ast um rétt borgarans gegn valdinu, um eðlilegan fram- gang mála innan ramma laga og reglna, sem siðað sam- félag setur sér og allir verða að lúta, hvort sem þeim hef- ur um stundarsakir skolað upp í sæti tignar og valda eða hafa í sínum höndum aðeins atkvæðisréttinn til að kjósa sér valdsmenn, sem þó skulu einungis fremstir meðal jafningja. Lög um skipulag eiga núorðið að tryggja borgurunum rétt til þess að vera með í ráðum og hafa áhrif á nánasta umhverfi sitt. Davíð Oddsson og borgarstjórnarhirð hans hafa farið offari í þessu máli og farið á ská og skjön við ákvæði laga og reglugerða, þar sem þau ekki beinlínis hafa verið brotin. Borgurunum hefur verið gert eins erf- itt fyrir og unnt er að láta álit sitt í Ijós. Byggingarnefnd borgarinnar hefur nú veitt leyfi til graftar fyrir grunni hússins, þótt flest þau atriði, sem liggja eiga fyrir við slíka ákvörðun, séu í rauninni óútkljáð og hafi ekki verið lögð fram og rædd á réttum stöðum í stjórnkerfinu. Svo að nokkur dæmi séu nefnd: Húsið hefur þanist út á alla kanta og er nú ekki lengur í neinu samræmi við deili- skipulag. Skipulagsnefnd hefur enga afstöðu tekið til teikninga hins stækkaða húss. Stækkun byggingarreits hefur ekki verið lögformlega birt í stjórnartíðindum. Fyr- ir náttúruverndarráði liggja rökstudd mótmæli sérfræð- inga við fyrirhuguðum vinnubrögðum við byggingu hússins. Fyrir félagsmálaráðherra liggur rökstudd kæra frá íbúum í grennd ráðhússins vegna byggingarinnar. Sjálf borgarstjórn hefur í raun ekki tekið endanlega af- stöðu til þessarar byggingar á þessum stað og mun ekki gera fyrr en eftir mánuð. Það má vera, að á öllum stigum stjórnkerfisins verði þetta mál endanlega afgreitt borgarstjóra og liðsmönn- um hans í vil. En honum ber, sem öðrum borgurum þessa lands, að bíða eftir því að þau úrslit liggi fyrir áður en hann hefst handa um framkvæmdir. Að fara að þessu máli með því offorsi og þeirri djúprættu fyrirlitningu á rétti borgaranna til að sækja og verja málstað sinn til enda fyrir öllum þeim yfirvöldum sem skipulagslög gera ráð fyrir, eins og Davíð hefur gert, er hvorki honum né flokki einstaklingsfrelsisins, Sjálfstæðisflokknum, sæm- andi. Kjörorð þess flokks var löngum: Gjör rétt, þol ei órétt. Og það var í upphafi ekki meint sem háðsglósa. 8 HELGARPÓSTURINN •’pan / o,, ... ’n 'íoyo /. bann cTUr’s^,?Va, . ctt, ' r,u' ^orol/an” ZT' U:r«rtu '®>rgjör.þii Un sc-rðí Wð ' fri , au8l/ósur Sæmilega sönn saga af bréfakaupum og lakkrís Nú segir af Maríu og Sigvalda. Þau áttu bréf sem þau höfðu fengið þeg- ar Sigvaldi hafði aulast tii að vinna Mercedes Benz í happdraetti hjá ein- hverjum samtökum. Sigvaldi seldi bílinn og keypti bréf fyrir andvirðið. Annars var María alltaf svo slæm í bakinu. Sigvaldi orðinn lélegur í hnjánum. Þess vegna skipti það þau litlu máli hvort þau áttu bréf eða ekki. Þeim leið hvort eð er djöful- lega. Svo var yngri sonurinn alki, bjó í Kaupmannahöfn og vann ekki neitt nema einstaka teningaspil á kránni. Það skipti hann heldur ekki sérstaklega miklu máli þó foreldrar hans ættu bréf. Honum leið illa, sér- staklega fyrir brjóstinu, en það var af því hann reykti svo mikið. Öll heimsins bréf gátu ekki bjargað því. Á meðan sögu þeirra Maríu og Sigvalda og yngri sonar þeirra vind- ur fram, reyndar áttu þau María og Sigvaldi fleiri böm sem koma ekki við þessa sögu og eru hér með úr henni, skjótar en auga fær greint, voru tveir eða þrír jakkafataklæddir menn uppi á íslandi sem lifðu á því að telja fólki trú um að peningar yxu á trjám. Þessir menn héldu að ham- ingja fólks væri fólgin í annars vegar bréfum og hins vegar vélknúnum farartækjum. Þetta voru hamingju- samir menn af því þeir lifðu eftir og trúðu á máltækið: Sælir eru einfald- ir. Um það máltæki hafa reyndar verið skrifaðar heilar bækur en það verður ekki frekar rakið hér. Nú segir af því þegar Sigvaldi staulast á skrifstofuna þar sem hann keypti bréfin þremur árum fyrr. Sig- valdi var orðinn verri í hnjánum en nokkru sinni fyrr. Gekk við tvo kræklótta tréstafi og reyndi að láta sem mestan þunga hvíla á höndun- um svo fólk héldi ekki að hann væri fyrrverandi bóndi. Þegar Sigvaldi var kominn inn á skrifstofuna var honum óðar boðinn kaffibolli. Sjálf- salakaffi á 50 krónur. Sigvaldi af- þakkaði. Sagði hins vegar farir sínar ekki sléttar af feröalaginu til þeirra á skrifstofunni. Ungur maður í jakkafötum hafði um mikilvægari hluti að hugsa en andlega líðan manns, sem hann hafði ekki áður séð, gamals og ófríðs. Spurði hvort hann ætlaði að kaupa bréf? Nei, sagði Sigvaldi. Það er ekkert með það að gera, við viljum njóta fjárins. Þetta tók ungi maðurinn ekki í mál og rétti Sigvalda þegar lista yfir vexti, verðtryggingu, vísitölu láns- kjara, byggingar og kaupgjalds, al- mennar sérávaxtabækur, helstu út- reikninga á verðlagi og kauptöxt- um, verðþróun í genginni tíð og komandi auk nokkurra srnávægi- legra fylgiskjala sem tekur ekki að nefna. Brosti, lagaði bindið, sýndi myndir af starfsfólkinu og bauð lakkrís. Sigvaldi reyndi að skýra fyr- ir unga manninum sem sat og maul- aði lakkrísinn að þau hjónin ættu son í Kaupmannahöfn sem þyrfti á fé að halda, en á það vildi ungi mað- urinn ekki hlusta, spurði í staðinn hvort hann þyrfti ekki að gefa ferm- ingargjöf. Stakk upp á fjórhjóli. Sig- valda leist ekki illaá það nema hvað hann mundi ekki til þess að hann þyrfti að gefa fermingargjöf. Þáði hins vegar meiri lakkrís. Vantaði þau hjónin ekki fleiri bíla innan ein- hverra ára, væri það ekki tilvalið að kaupa bréf og kaupa svo bíla fyrir bréfin innan einhverra ára. Sigvaldi gat ekki séð að svo væri. Spurði svo í grandaleysi, auðvitað, hvaðan allir þessir viðbótarpeningar kæmu. Þetta er ávöxtun, sagði ungi maður- inn. Já, sagði Sigvaldi. Ég er ekki al- gjör bjáni. En hvaðan koma pening- arnir? Hver á þá núna og lætur mig fá þá eftir einhver ár? Þetta skildi ungi maðurinn ekki, mislíkaði greinilega spurningin, hvessti aug- un á Sigvalda og var greinilega far- inn að tapa þolinmæði. Stakk lakkrísnum í skúffu og spurði hvort Sigvaldi ætlaði að kaupa bréf og þá hversu mörg og fyrir hvaða upp- hæð. Sigvaldi horfði löngunaraug- um á eftir lakkrísnum og viðraði þá hugmynd að kaupa kannski bréf. . . fyrir helminginn af því fé sem hann fengi fyrir þau bréf sem hann ætti fyrir. Já, sagði ungi maðurinn og opnaði skúffuna til hálfs. En það væri hagstæðara að láta okkur fá allt féð til að ávaxta það fyrir yður. Sigvaldi horfði á lakkrísinn í skúff- unni og tók ekki eftir þéruninni. Hugsaði um hvað María myndi segja þegar hann kæmi heim og frétti að hann hefði enga peninga meðferðis heldur bara bréf og þau gætu alls ekki sent syni sínum í Kaupmannahöfn neitt. María, sem hafði verið ákveðin í að senda hon- um a.m.k. nóg fyrir pari af skóm og einhverju matarkyns. Annars var María orðin verri í bakinu og mátti sig vart hræra, varð að liggja í rúm- inu sýknt og heilagt, en hann sjálfur, Sigvaldi, staulaðist um og leið bölv- anlega. En þau áttu þó alltaf bréf.. • Kristján Kristjánsson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.