Helgarpósturinn - 02.06.1988, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 02.06.1988, Blaðsíða 2
Ertu að breyta stöðinni í skákklúbb? Páll Magnússon formaður framkvæmdanefndar heimsbikaramóts Stöðvar 2 „Nei, þaö væri kannski ráð aö gera það! Þaö er hins vegar ekk.i meiningin. Okkur gafst tækifæri til aö halda þetta mót og slógum til. Hér á landi er mikill áhugi á skák og við viljum svala skákáhuga landsmanna." Ráðið þið við svona stórmót? „Já við ráðum við þetta. Við fáum góða aðila til liðs við okkur, og erum nú að binda síðustu hnútana. Með góðri hjálp ráðum við vel við þetta." Hvers vegna að fara út í þetta? „Það er eins og ég sagði áðan, til að svala skákáhuga landsmanna, sérstaklega vegna þess að okkur stóð til boða að fá heimsmeistar.ann til íslands og það er í fyrsta skipti sem ríkjandi heimsmeistari keppir hér. Við stóðumst ekki freistinguna." Verður farið með Kasparov á Gullfoss og Geysi? „Það hugsa ég, já." Jafnvel að sjá apann í Hveragerði? „Það gæti verið!" Á Hjartarson séns á þessu móti? „Já ég held það. Ég hugsa að hann eigi að minnsta kosti mjög góðan séns í eitt af fimm efstu sætunum." Hvað með uppákomur tengdar mótinu? „Við erum að leggja drög að þeim. Við vonumst til að fá Kasparov m.a. í uppákomur á borð við fjöltefli og þess háttar. Þetta verður samfelld skákhátíð í heilan mánuð og allir frídagar sem gefast á mótinu sjálfu verða notaðir í uppákomur í tengslum við það." Hver verður H&ilur Hallsson Stöðvar 2? „Ætli ég reyni ekki bara að fara í peysuna!" Tekur Jón Óttar Kasparov í „kósí" viðtal? „Við reynum alla vega að fá hann í það...!" Ætlið þið að græða á þessu? „Við munum að minnsta kosti reyna að koma út sléttir. Ég hugsa að við getum ekki grætt á þessu en við reynum alla vega að tapa sem minnstu." Heimsbikaramót Stöðvar 2 verður haldið í Borgarleikhúsinu 2— 2& október n.k. Þátttökurétt á þessu móti hafa 24 sterkustu skákmenn heimsins og meðal keppenda verður heimsmeistarinn i skák, Garry Kasparov. Stöð 2 verður með beinar útsendingar frá öllum umferðum mótsins. Formaður framkvæmdanefndar heimsbikaramótsins er Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2. 2 HELGARPÓSTURINN FYRST OG FREMST MORGUNBLAÐIÐ hefur lengi haft mikla samúð með pólskum verkamönnum og baráttu þeirra fyrir sjálfsögðum mannrétt- indum, eins og félagafrelsi, verk- falls- og samningsrétti. Það var því ekki annað en rökrétt að álykta sem svo að blaðið myndi fordæma bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar, þar sem samnlingsréttur íslenskra verkalýðsfélaga er afnuminn. En það var nú öðru nær. Þar á bæ ná menn ekki upp í nef sér af reiði vegna þess að ástandinu hér á landi hefur verið líkt við ástandið í Póllandi. í forystugrein síðastlið- inn föstudag, var svo komist að orði: „Slíkur samanburður er senn út í hött og ósmekkleg viðleitni til að gera lítið úr baráttu Samstöðu og Pólverja. Hér sitja þrír flokkar í ríkisstjórn og jafn afdrifarík ákvörðun og bann við kjarasamn- ingum og verkföllum er ekki tekin nema með samþykki þeirra allra.” Það er greinilega ekki sama hvort ákvörðun um mannréttindabrot sé tekin af herforingjaklíku í Varsjá eða þremur lýðræðisflokkum á íslandi... HER kemur dagsönn saga frá Baltimore í Bandaríkjunum: Kvöld nokkurt kom maður einn inn á slysadeild sjúkrahúss í borginni. Maðurinn sneri sér að hjúkrunar- konunni í móttökunni og kvartaði undan því að hann kæmist ekki úr jakkanum. Annríki var mikið á slysadeildinni þetta kvöld, og var maðurinn beðinn um að setjast niður, honum yrði sinnt fljótlega. Maðurinn gerði það. Eftir nokkra stund reis hann á fætur og kvartaði enn um hið sama. Og fékk sömu svör. Þegar hann kvartaði í þriðja sinn, var kallað á öryggisgæslu sjúkrahússins. Einn öryggisvarðanna bauðst til að hjálpa manninum úr jakkanum, en það gekk ekki. Maðurinn var þá skoðaður betur og kom í ljós að stór kuti stóð út úr bakinu á honum. Ekki furða að illa hafi gengið... BREYTINGAR á stjórn Helgarpóstsins hafa verið til umfjöllunar hjá nokkrum fjöl- miðlum síðustu dagana. Virðast nokkrir fréttamenn þeirra hafa gleymt þeirri gullvægu reglu að kapp er best með forsjá og flýtt sér einum um of að skrifa fréttir sínar. Þannig kallaði fréttamaður Stjörnunnar Birgi Hermannsson, nýjan stjórnarmann í Goðgá h.f. Birgi Ragnarsson og blaðamaður DV, gse, flýtir sér svo mikið að ná fréttinni í DV í gær, miðvikudag að honum segist svo frá: „Hákon Hákonarson hefur hætt störfum sem framkvæmdastjóri Helgarpóstsins og hafið störf á Alþýðublaðinu... Fyrrum framkvæmdastjóri Alþýðu- blaðsins, Valdimar Jóhannesson hefur tekið við af Hákoni sem framkvæmdastjóri Alþýðu- bladsins..." Að öðru leyti virðist grein gse byggð á heimildum upp úr Alþýdublaðinu... SAMTÖKIN Tjörnin lifi gerðu það að tillögu til borgarráðs að kosið yrði um ráðhúsmálið samhliða forsetakosningunum. Tillagan var hinsvegar felld í borgarráði með þremur atkvæðum gegn tveimur og fer málið fyrir borgarstjórn á morgun. Helstu rök Davíðs gegn tillögunni voru þau að ef kosið yrði um byggingu ráðhúss í tjörninni samhliða forsetakosningum þyrfti að setja allar flokksmaskínur í gang og slíkt samrýmdist ekki forsetakosningunum, væri óviðeigandi. Hinsvegar veit enginn til þess nema þá Davíð, að mál þetta væri flokkspólitískt og líklegast yrði eina flokksmaskínan sem kalla þyrfti út einmitt maskína borgarstjóraflokksins ... EINS OG lesendur íþróttasíðu Moggans hafa gjörla tekið eftir er sjálfur Franz Beckenbauer genginn til liðs við íþrótta- fréttamenn blaðsins. Héldu menn að það yrði mikill fengur að greinum hins fræga manns, en svo undarlega vill til að þessi frægi knattspyrnumaður er afar lélegur penni, öll framsetning klúðursleg og það sem verra er, umræður hans og vangaveltur bæta engu við þekkingu áhugamanna á þeim liðum sem taka þátt í Evrópu- mótinu í sumar. Þar fyrir utan er augljós þýðingarkeimur af öllu, jafnvel fyrirsögnum eins og „Fylgist með Danmörku"! Undarlegt ef það er aðalatriðið í greininni að menn eigi að fylgjast með liðunum í keppninni. Opinberun Jóhannesar Hér veröur aö hugsa kalt „Launalækkun var skynsamleg- og hik' ekki alltof lengi. asti samningskosturinn i kjara- samningum vetrarins." Lækka þyrfti þúsundfalt Víglundur Þorsteinsson formaður þjóðarinnar gengi. Félags íslenskra iðnrekenda. Niðri

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.