Helgarpósturinn - 02.06.1988, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 02.06.1988, Blaðsíða 30
SEX O G DRÖGGS OG BROSTNAR VONIR átti aö verða aö nýjum og betri heimi. Hvort þaö hefur tekist, og þá hvernig, er spurning sem þátttak- endur í þessu mikla umróti velta mikið fyrir sér um þessar mundir. Á íslandi hefur komið út bók um 68-kynslóðina íslensku. í Frakk- landi hafa að undanförnu komið út nítján bækur um stúdentaupp- reisnina í París í mai 1968, auk þess sem heimildarmyndaflokkur í fimmtán þáttum hefur verið gerður eftir einni þeirra. Og vestur í Bandaríkjunum lét tímaritið Roll- ing Stone gera ítarlega könnun um viðhorf ungs fólks þar i landi, fólks á aldrinum 18—44 ára, sem margt hvert upplifði blómaskeið hippatimabilsins, og andófið gegn stríðsrekstrinum í Víetnam. Þar á meðal er fólk úr hinni svokölluðu „barnasprengingarkynslóð", fólk sem fætt er á árunum eftir heims- styrjöldina síðari. Það er sú könn- un sem greint verður frá hér á eftir. MERKIMIÐA- KYNSLÓÐIN Hvaða hópur er þetta? Á hvað trúir hann? Hvað vill hann? Alls kyns skilgreiningum og merkimið- um hefur verið klínt á fólk af þess- ari kynslóð. Á umbrotaskeiðinu á 7. áratuginum og í upphafi þess 8. var það kallað uppreisnar- og hugsjónamenn. Síðar á 8. áratug- inum var það kallað Ég-kynslóðin, og loks uppar á þeim 9. Á hverjum tíma var eitthvert sannleikskorn í uppnefninu, en langt í frá að það segði alla söguna. Þegar kynslóð þessi óx úr grasi, bauð hún byrginn svo til öllu gild- ismati sem ríkti í samfélaginu, hvort heldur það var félagslegt eða pólitískt. Fram komu nýjar rót- tækar tónlistarstefnur, nýjar hug- myndir um hlutverk kvenna, kyn- lífsbylting, og vímuefnanotkun sem ekki átti sér neitt fordæmi, svo eitthvað sé nefnt. Gömlu leik- reglunum var varpað fyrir róða. Velsæld og að því er virtust óend- anlegir möguleikar fylltu kynslóð þessa sjálfstrausti og jafnvel sjálf- birgingshætti um leið og hún hélt inn á ótroðnar slóðir. En þótt uppreisnarandi sé það sem einkenni þessa kynslóð í aug- um flestra þeirra sem eldri eru, er þó langt frá því að sú lýsing sé tæmandi. Satt er það, að 18 af hundraði þeirra sem tóku þátt í könnuninni sögðust hafa verið virkir í neðanjarðarmenningunni á 7. áratuginum og í upphafi þess 8., eða um 16 milljónir einstaklinga. Flest ungt fólk gerði þó ekki upp- reisn gegn kerfinu. Þrjátíu af hundraði sögðust jafnvel hafa ver- ið andvígir uppreisnarseggjum eigin kynslóðar. KING OG KENNEDY Það er meira en aldurinn einn sem skilgreinir kynslóð þessa. Sameiginleg reynsla hefur einnig mótað líf hennar. Tveir atburðir eru þar efstir á blaði. Mannrétt- indabarátta bandarískra blökku- manna á fyrri hluta 7. áratugarins innrætti þeim umburðarlyndi og 30 HELGARPÓSTURINN hugsjón um meira jafnrétti í þjóð- félaginu. Víetnamstríðið varð aft- ur á móti hvati að þeirri einangr- unarstefnu sem einkennir afstöðu margs ungs fólk í Bandaríkjunum í dag. Tveir atburðir öðrum fremur urðu síðan til þess að gera hug- sjónir þessa unga fólks að engu, morðin á Martin Luther King og Robert Kennedy. Könnun Rolling Stone leiðir í Ijós að þessir tveir menn eru dáðastir allra leiðtoga Bandarikjanna síðustu tuttugu ár- in, en ekki forsetar eða framá- menn í viðskiptalífinu. King og Kennedy héldu á lofti gildismati sem þessi kynslóð trúir enn á, samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar, friði og réttlæti, umburðarlyndi og jafnrétti. Þeir réðust á sjálfsánægju Bandaríkja- manna, hvöttu til breytinga á þjóðfélaginu og tóku upp málstað þeirra sem voru á skjön við ríkj- andi skoðanirog þeirra sem ekkert áttu. Það að King og Kennedy skuli hafa verið myrtir áður en draumar þeirra um frið og réttlæti rættust er eins konar tákn fyrir kynslóðina sem hér um ræðir. Brostnar vonir er eitt af því skýtur upp kollinum aftur og aftur í könn- un Rolling Stone. Þrátt fyrir að hetjur þessa unga fólks séu ímyndir frjálslyndis í Bandaríkjunum, verður hið sama tæplega sagt um þá sem tóku þátt í könnuninni. Þeir eru almennt íhaldssamari en þeir bjuggust við að verða, hugsa meira um starfs- framann og taka mun minni þátt í stjórnmálastarfi en þeir hefðu spáð fyrir um. Tæpur helmingur aðspurðra telur stjórnmálin ekki hafa mikla þýðingu fyrir sig og rétt um helmingurfer reglulega á kjör- stað, sem er minna en gengur og gerist hjá öðrum þjóðfélagshópum. Pólitísk virkni kynslóðarinnar hefur líka verið nokkuð orðum aukin. Þannig kemur í Ijós að 76 af hundraði sögðust lítið hafa skipt sér af mótmælaaðgerðum og öðru sem mest bar á í umfjöllun fjölmiðla. Liðlegur meirihluti sagðist þó hafa trúað því að hægt væri að breyta þjóðfélaginu, hvort sem þeir tóku virkan þátt eða ekki. Sú trú hefur hins vegar farið mjög dvínandi á undanförnum árum. Og mjög lítill hluti þeirra tekur nú virkan þátt í stjórnmálum af ein- hverju tagi, jafnvel þó að um sé að ræða málefni sem þeir styðja að yfirgnæfandi meirihluta, eins og andstaða við styrjaldarrekstur Bandaríkjanna á erlendri grund, og fækkun kjarnorkuvopna. Unga fólkið telur heiðarleika og ráðvendni helstu dyggðirnar sem eigi að prýða forseta landsins. Þar á eftir vill það að forsetinn sé sterkur leiðtogi. Aðrir eiginleikar sem nefndir voru í könnuninni eru umhyggja fyrir þeim sem minna mega sín, vinnusemi og framsýni. Forsetanum er síðan ætlað að hægja á kjarnorkuvopnakapp- hlaupinu, halda verðbólgunni í skefjum, berjast gegn hryðju- verkastarfsemi, minnka atvinnu- leysið, sjá til þess að aldraðir fái umönnun, beita sér fyrir því að lækning finnist við eyðni, svo eitt- hvað sé nefnt. Þessi kynslóð er líka hlynnt því að þjóðarauðnum verði skipt réttlátara niður, en um leið er hún andvíg skattahækkun- um til ná fram því markmiði, eins og mikill þorri bandarísku þjóðar- innar. SKIPBROT HUGSJÓNANNA Tregða unga fólksins til að taka virkan þátt í stjórnmálum á rætur sínar að rekja til morðanna á King og Kennedy, en einkum þó til styrjaldarinnar í Víetnam. Nær helmingur allra þátttakenda þekkti einhvern sem lést í stríðinu, vin, ættingja eða kunningja. Hjá þeim sem voru komnir hátt á fert- ugsaldurinn var samsvarandi tala sjötíu af hundraði. Lærdómurinn sem dreginn var af styrjöldinni kemur fram í af- stööu unga fólksins, og sá lær- dómur er eingöngu neikvæður: þetta var glórulaust stríð þar sem Bandaríkjamenn dóu að ástæðu- lausu. Annað hvort á að berjast til sigurs eða ekki, er afstaða þessa fólks. Styrjöldin gerði að engu til- trú manna á ríkisvaldið. Banda- ríkjamenn voru ekki hetjur sem börðust fyrir réttlátum málstað. Skiptum okkur ekki af vandamál- um annarra landa. Víetnamstríðið leiddi til skip- brots hugsjónastefnunnar og vonbrigðin sem það hafði í för með sér voru þau að unga kyn- slóðin hörfaði inn í sjálfa sig. Þar kann að liggja hluti skýringarinnar á vinsældum Ronalds Reagan forseta, einkum meðal yngra fólksins sem hafði ekki persónu- lega reynslu af styrjöldinni í Víetnam. í þeirra augum var Reagan sjálfsöruggur og bjart- sýnn leiðtogi sem lagði áherslu á dyggðir og styrk Bandaríkjanna, en velti sér ekki upp úr smán landsins og mistökum. Álit unga fólksins á honum hefur hins vegar beðið mikla hnekki á síðustu miss- erum vegna þeirra hneykslismála sem stjórn hans hefur verið viðrið- in. Reagan hefur bæst í hóp þeirra leiðtoga sem valdið hafa von- brigðum. Kynslóðin aðhyllist einangr- unarstefnu, í heimi þar sem menn verða sífellt háðari hverjum öðr- um. Grundvallarspurning í heims- mynd hvers og eins er því þessi: undir hvaða kringumstæðum eru menn tilbúnir til að ganga í herinn og fara í stríð? Niðurstöður könn- unar Rolling Stone eru nokkuð óvæntar: 40 af hundraði þessarar kynslóðar, þar af 27 af hundraði karlmannanna, gátu ekki komið auga á neinar kringumstæður sem myndu fá þá til að berjast fyr- ir land sitt. Aðeins þriðjungur karl- mannanna var reiðubúinn til að standa við hlið bandamanna Bandaríkjanna og berjast fyrir vestur Evrópu. Og fimmtungur lýsti sigi reiðubúinn til að berjast fyrir því að ríki í þriðja heiminum yrðu ekki kommúnismanum að bráð. Eina stríðið sem þátttakendur í könnuninni sögðu að væri þess virði að heyja, væri stríð sem ógn- aði beint landamærum ríkisins, þ.e. í Mexíkó eöa Kanada. Þrátt fyr- ir það lýsti rúmur fjórðungur karl- mannanna yfir því að þeir væru ekki reiðubúnir til að berjast í slíku stríði. í fáum orðum sagt, unga kynslóðin treystir stjórnvöldum ekki lengur til að heyja styrjaldir sem eiga rétt á sér. Þessi afstaða er í hrópandi and- stöðu við afstöðu næstu kynslóð- ar á undan, unga fólksins sem mótaðist af heimsstyrjöldinni síð- ari. Úrslit styrjaldarinnar voru ekki einungis sigur fyrir landið, heldur mátti draga af þeim lærdóm um hvers menn gátu vænst af lífinu. Bandaríkin gátu varið réttlátan málstað og ef þjóðin stóð saman, var sigurinn vís. Heimsstyrjöldin síðari skólaði heila kynslóð af nýj- um leiðtogum og kenndi öðrum að fylgja þeim. Lærdómurinn af reynslu sjö- unda áratugarins var annar. Heil kynslóö stóð utan kerfisins, og var í andstöðu við leiðtogana, hvort sem það var grasrótaruppreisnin fyrir mannréttindum blökku- manna, eða almenn andstaða við styrjöldina í Víetnam. Unga fólkið lærði að fylgja eigin siðferðisvit- und og um leið komst það að því að það gat ekki vænst forystu í þeim efnum frá leiðtogum lands- ins. SEX OG DRÖGGS OG... Einn þátturinn í uppreisn unga fólksins á 7. og 8. áratuginum var hömlulaust kynlíf og meiri fíkni- efnanotkun en áður hafði þekkst, fyrir nú utan alla rokktónlistina sem hlustað var á frá morgni til kvölds. Oftar en ekki fór þetta þrennt líka saman. Meira en 60 af hundraði þátttakenda í könnun- inni höfðu stundað kynlíf fyrir hjónaband. Fjórtán af hundraði urðu eða gerðu einhvern barns- hafandi áður en til hjónabands var stofnað, og fimm af hundraði létu eyða fóstri. Fáir sjá þó eftir nokkru af því sem þeir tóku sér fyrir hend- ur. Engu að síður telja fulltrúar þessar kynslóðar meira lauslæti vera breytingu til hins verra. Þar endurspeglast ótti fólksins við eyðni, enda þekkir tíundi hver þátttakandi einhvern sem hefur mælst með mótefni eyðniveir- unnar í blóðinu, hefur fengið sjúk- dóminn eða látist af völdum hans. En þar kemur líka til að lauslæti stangast á við þrá þessa fólks um að stofna eigin fjölskyldu. Um helmingur fiktaði við fíkni- efni af einhverju tagi á ungdóms- árunum. Þar er marijuhana efst á blaði, en næst koma amfetamín, kókaín, hass og loks LSD. Þetta þýðir að um 40 milljónir ung- menna stunduð vímuefnaneyslu. Um helmingur þeirra hefur enn ekki látið af iðju sinni. Þegar þetta sama fólk er spurt um hvort það vilji að börn þess feti í fótspor foreldranna í þessum efnum, er svarið skýrt. Nærri þrír af hverjum fjórum vilja það ekki. Þessi tvískinnungur skýrist af því að þetta fólk veit af eigin reynslu hverjar afleiðingar fíkniefnanotk- unar geta verið. Það hefur því slegist í lið með Nancy Reagan og segir bara nei. BARNAKARLAR Ungir Bandaríkjamenn á aldrin- um 18—44 ára eiga sér enga ósk heitari en að eignast börn. Níutíu og tveir af hundraði þeirra eru anr.að hvort nú þegar orðnir for- eldrar eða langar til þess. Þetta er eitt af því sem kom hvað mest á óvart í könnuninni. Ástæðurnar fyrir þessari af- stöðu eru kannski margar. Ein kann að vera sú að margar kvenn- anna sem kusu að mennta sig og fara út á vinnumarkaðinn hafa nú stofnað fjölskyldur. Þá erekki talið ólíklegt að fólk líti á foreldrahlut- verkið sem ákjósanlegt tækifæri til að innræta börnum sínum hug- sjónirnar frá yngri árunum. Fjöl- skyldurnar eru aftur á móti minni en hjá næstu kynslóð á undan. Flestir eiga aðeins eitt eða tvö börn. Yfirgnæfandi meirihluti hjónabandanna virðist vera vand- ræðalítill eða vandræðalaus, að eigin sögn þátttakenda. Engu að síður endar um helmingur hjóna- bandanna með skilnaði, ef marka má opinberar tölur. Hamingjusamt heimilislíf, heil- brigð og farsæl börn eru æðstu óskir þessarar kynslóðar. Yfir- gnæfandi meirihluti hennarsegist myndu styðja forsetaframbjóð- anda sem legði áherslu á heilsu- gæslu ungbarna og menntun. Á vinnustöðum vill þetta fólk að at- vinnuveitendur komi á fót dag- vistarheimilum, og að konur fái laun til jafns við karla. Útivinnandi mæður eru al- gengari meðal þessarar kynslóðar en þær sem heima sitja. Slíkt er talið æskilegt, bæði vegna fjár- hagslegrar afkomu fjölskyldnanna

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.