Helgarpósturinn - 02.06.1988, Page 8

Helgarpósturinn - 02.06.1988, Page 8
Aðalfundur hjá íslenskum aðalverktökwn HREINN HAGN 400 MILLJÓNI Adalfundur Islenskra aðalverktaka sí.fór fram i kyrr- þey 6. maí síöastliöinn. Þrátt fyrir aðild ríkisins aö þessu umdeilda og leyndardómsfulla fyrirtœki hafa ársreikn- ingar þess ekki uerið opinberaðir og engar upplýsingar er að fá um tekjur, gjöld, skuldir eða eignir þess. Miðað við að meðalhagnaður fyrirtœkisins afueltu (eftir skatta) hafi verið hlutfallslega sá sami í fyrra og árið 1982, á sama tíma og umfangið hefur nœr tvöfaldast, má gera ráð fyrir að hagnaðurinn í fyrra hafi farið yfir 400 millj- ónir króna og þar af drjágur hluti vaxtatekjur. Til sam- anburðar má nefna að hagnaður Landsbankans eftir skatta hljóðaði upp á 190 milljónir króna og hagnaður Eimskipafélagsins upp á 206 milljónir króna. EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYND MAGNÚS REYNIR Höfuðstöðvar aðalverktaka að Höfðabakka. Fyrirtæki með milljarð króna í eigin fé þurfti ekki að taka krónu að láni. Þvert á móti er drjúgur hluti hundruða milljón króna hagnaður fyrirtækisins í formi vaxtatekna af bankainni- stæðum... Þrátt fyrir að aðalfundurinn hafi verið haldinn fyrir nær mánuði síð- an, upplýsti Vilhjálmur Árnason stjórnarformaður fyrirtækisins í samtali við HP, ad enn vœri ekki bú- id ad ganga formlega frá stjórnar- skiptum og hann sjálfur nýkominn erlendis frá og því ekki til frásagnar um málefni fyrirtœkisins enn sem komid vœri. Vilhjálmur Árnason var um árabil stjórnarmaður hjá íslenskum aðal- verktökum, eða frá 1954 og varð stjórnarformaður (fulltrúi ríkisins samkvæmt félagasamningi) 1971. Hann var stjórnarformaður allt þar til Thor Ó. Thors tók við því hlut- verki fyrir fáeinum árum. Nú hefur Vilhjálmur á ný tekið við sem for- maður og fulltrúi ríkisins. RÍKIÐ AFSKIPTALAUST Vilhjálmur hóf lögfræðistörf hjá SIS árið 1946 og starfaði á vegum SÍS allar götur til ársins 1960 er hann stofnaði skrifstofu með Tóm- asi Arnasyni bróður sínum, sem hann nú rekur í húsi íslenskra aðal- verktaka. Sem óbreyttur stjórnar- maður hjá íslenskum aðalverktök- um var hann fulltrúi Regins hf. — með öðrum orðum SÍS. Hann er því síður en svo hlutlaus fulltrúi ríkisins, þ.e.a.s. fólksins í landinu, fremur en að Thor Ó. Thors hafi verið í þeirri stöðu, sjálfur stjórnarformaðurinn hjá Sameinudum verktökum hf. Öll uppbygging íslenskra aðal- verktaka bendir aukin heldur til þess að ríkið, sameignaraðili að ein- um fjórða hluta, hafi í gegnum árin afsalað sér öllum áhrifum á gang mála hjá fyrirtækinu, að öðru leyti arformaðurinn og fulltrúi ríkisins, Thor Ó. Thors, neitaði alfarið að ræða málefni fyrirtækisins við Helg- arpóstinn. Ekki var á honum að heyra að hann teldi sig bera nokkra upplýsingaskyldu sem fulltrúi ríkis- ins, þ.e. fólksins í landinu. Rök Thors fyrir því að hafna þessari upplýs- ingaskyldu voru þau að Helgarpóst- urinn hefði fyrir nær áratug síðan skrifað grein um fjárhagsleg tengsl fyrirtækisins við ákveðna stjórn- málaflokka og ekki hirt um að birta leiðréttingu sem komið var á fram- færi. í þessu sambandi má nefna að nýverið hélt formaður Verktaka- sambands íslands því fram í Helgar- póstinum og Morgunbiaðinu, að fjárframlög fyrirtækisins til flokka og félaga væri staðreynd, en ekki er að sjá að þessum ummælum hafi verið mótmælt á einn eða annan hátt. Ef til vill er skýringin sú að slík mótmæli myndu kalla á áframhald- andi umræðu, sem virðist eitur í beinum forráðamanna fyrirtækis- ins. Þegar loks tókst að ná tali af Thor, neitaði hann alfarið að ræða þessi mál við Helgarpóstinn, en lét þess getið að aðalfundur fyrirtækisins hefði þegar farið fram, þann 6. maí. ,,Það er ekki í reglunum að auglýsa aðalfundinn neitt og það stendur ekkert til. Hann er bara haldinn. Það eru það fáir aðilar að engra aug- lýsinga er þörf“ sagði Thor og þegar hann hafði útlistað enn á ný sína áratugagömlu afsökun skellti hann á. KOMIÐ AÐ TÓMUM KOFANUM Hjá hinu opinbera var fátt um svör. Vísað var á skýrslu utanríkis- ráðherra ár hvert um rekstrarlegar upplýsingar. Þar er hins vegar að- eins að finna fáein orð um helstu framkvæmdir og heildarupphæð þeirra. Ráðuneytisstjóri utanríkis- ráðuneytisins sagði að málefni þessi heyrðu undir varnarmáladeild ráðuneytisins og vísaði þangað. Þor- steinn Ingólfsson „ambassador", deildarstjóri varnarmáladeildar sagðist vita til þess að fundurinn hefði verið haldinn en að hann héldi að fundurinn hefði ekki verið aug- lýstur. „Þú kemur að tómum kofan- um, ég veit þetta ekki“ sagði hann aðspurður um hverjir hefðu setið þann fund. „í fráfarandi stjórn var fulltrúi ríkisins Thor Thors, en utan- en því, að taka á móti sínum hluta ágóðans. Þetta sýndi sig áþreifanlega þegar HP spurðist fyrir um aðalfundinn í maíbyrjun og reyndi að nálgast upp- lýsingar um hvenær fundurinn yrði haldinn og hvort aöild ríkisins að fyrirtækinu tryggði, að fólkið í land- inu, sem á fyrirtækið að einum fjórða hluta, fengi að berja augum ársreikninga fyrirtækisins. Engin sérstök lög gilda um sameignarfé- lög, en samkvæmt 8. grein félags- samnings ríkisins, Regins og Sam- einaðra verktaka er „hverjum fé- laga um sig heimilt að fylgjast með rekstri félagsins og bókum á hvaða tíma sem er“. Tekið er fram að árs- reikningur, ásamt athugasemdum endurskoðenda, skuli „liggja frammi félögum til sýnis á skrifstofu félagsins síðustu vikuna fyrir aðal- fund“, sem á samkvæmt sama fé- lagasamningi að halda fyrir mars- lok hvers árs. AÐALFUNDUR í KYRRAÞEY Aðalfundinn situr hópur útval- inna manna, stjórnendur hlutafé- laganna sem að fyrirtækinu standa, stjórnendur Islenskra aðalverktaka og fulltrúar ríkisins. Miðað við að fulltrúi ríkisins í stjórn fyrirtækisins hefur í raun ýmist verið hagsmuna- aðili frá Regin hf. eða Sameinuðum verktökum hf. er ekki að sjá að ríkið ætli sér stóra hluti á þessum aðal- fundum! Aðalfundur íslenskra aðalverk- taka er aldrei auglýstur opinber- lega. í ár var fundurinn ekki haldinn fyrir marslok. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Helgarpóstsins undanfarn- ar vikur tókst aldrei að fá upplýst hvenær fundurinn yrði og munaði þar mestu um að forstjórinn, stjórn- 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.