Helgarpósturinn - 02.06.1988, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 02.06.1988, Blaðsíða 18
Ljósið beinist að kynninum á miðju dansgólfinu. Gestir bíða í spenningi eftir að úrslitin verði til- kynnt. Að vísu ekki lúðrablástur eins og í fegurðarsamkeppni en fyrir þetta fólk eru akkúrat þessi úrslit þýðingarmikil, kannski þýð- ingarmeiri en úrslitin um fegurstu stúlku þjóðarinnar. Hér erþað ekki spurningin um að ganga rétt, brosa rétt, svara rétt. Hér er það spurningin um að likjast frægri persónu nógu mikið til að komast ókeypis til Amsterdam um helg- ina á tónleika Michaels Jacksons. Vinningshafarnir voru tveir — eöa réttara sagt: tvö. Bæöi í gervi Boy George. Samt svo ólík. Fólk í salnum sagöi af innlifun: „Ég vissi það" þegar Ijóst var aö Þorgerður Hlynsdóttir væri í fyrsta sæti. Stúlka sem gæti þess vegna verið tvíburasystir poppstjörnunnar. Hún er 18 ára gömul, fædd og uppalin á Blönduósi en fluttist til Reykjavíkur fyrir þremur árum. Þorgerður er hárgreiðslunemi og starfar á hárgreiðslustofunni Saloon Ritz, og það var einmitt í vinnunni sem henni var bent á að hún væri lík Boy George: HAFÐI EKKERT DÁLÆTI Á BOY GEORGE „Það var kona sem kom hingað til mín á hárgreiðslustofuna sem sagði mér að ég væri lík Boy George" sagði Þorgerður. „Mér fannst nú kenningin ekki flokkast undir gullhamra í fyrstu, dauðbrá reyndar, kannski einkum vegna þess að ég hafði aldrei haft neitt sérstakt dálæti á Boy George! Ég hlusta heldur á Lloyd Cole and the Commotions og Smiths..." Þorgerður ákvað að láta reyna á hvort hún væri í rauninni lík Boy George og tók þátt í „Look alike" keppi, sem Evrópa stóð fyrir í vetur. „Ég hljóp niður Laugaveg- inn til að leita að plakati af Boy George og fann eitt sem mér lík- aði. Það var siðan Hanna Hlif hér á snyrtistofunni á Saloon Ritz sem setti á mig andlitsfarðann og hafði myndina til hliðsjónar. Á úrslita- kvöldinu var það hins vegar Berg- lind Freymóðsdóttir sem málaði mig og bakkaði mig jafnframt upp svo ég á henni mikið að þakka." Þorgerður vann þessa keppni og hlaut í verðlaun aðgöngumiða á tónleika Boy George í Laugar- dalshöllinni. Viðurkennir að þótt hún hafi fram að þeim tíma ekki mikið hlustað á tónlist hans hafi henni fundist Boy George „alveg meiri háttar, alveg þrælgóður" þegar hún sá hann. í framhaldi af þessum sigri ákvað Þorgerður að keppa í Stjörnustælingu '88: „Ég uppgötvaði reyndar ekki fyrr en daginn fyrir keppnina að hún ætti að fara fram, svo ég hafði bara fimmtudagskvöldið til að æfa mig. Reyndar átti ég enga plötu með Boy George og þurfti að fá hana lánaða. Sat svo við og hlust- aði á textann við „Cama Camilion" allt kvöldið og æfði mig í hreyfing- um og að herma eftir Boy George. Þessar æfingar tóku nokkra klukkutíma, ég var að æfa mig fram til klukkan hálf þrjú um nótt- ina, aðallega fyrir framan spegil inni á klósetti svo öruggt væri að enginn sæi mig!" SÖNG SVO LÁGT AÐ ENGINN HEYRÐI Spurningunni hvort hún syngi sjálf svaraði Þorgerður að bragði „Ekki vel! í keppninni nægði að stæla sönginn en reyndar söng ég með, bara svo lágt að enginn heyrði. Ég þurfti að hlusta nokkuð oft á lagið til að ná textanum, því Boy George syngur oft svo óskýrt." Þorgerður segir taka sig um hálftíma að setja á sig gervið: „Ég fékk fötin lánuð í Kjallaranum Jón Stefnir hársnyrtir sá um hárið en andlits- farðinn var reyndar settur á í „smá skömmtum". Ég hljóp inn á snyrtistofu milli þess sem ég var að vinna og farðinn var settur á smátt og smátt. Hins vegar held ég að það taki Boy George alveg gífurlegan tíma að setja á sig andlits- farðann, að minnsta kosti var hann of seinn á sína eigin tónleika!" Sigurlaunin sem Þorgerður fékk var helgarferð til Amsterdam og aðgöngumiöi á tónleika Michaels Jacksons næstkomandi sunnudagskvöld Þangað heldur hún á laugar- daginn ásamt Hafsteini Hafsteinssyni sem einnig var sigurvegari og tveimur starfsmönnum veitinga- hússins Evrópu. Ekki j segist hún vera sér- stakur aðdáandi Micahels Jacksons, en af reynslu sinni af að sjá Boy George syngja í Laugardalshöll segist hún hlakka mikið til. „Ég var síður en svo vongóð um að vinna keppnina eftir að ég hafði séð aöra keppendur" sagði Þorbjörg. „Sjálf veðjaði ég á þann sem stældi Rod Stewart og einnig fannst mér Presley góður. Að sjálfsögðu er ég því ánægð með að hafa sigrað." 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.