Morgunblaðið - 25.02.1962, Síða 1
24 síður og Lesbók
49. árgangur
47. tbl. — Sunnudagur 25. febrúar 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Serkir felldir
Algeirsborg og Tri'polis,
2Jf. febr. (AP)
MIKIÐ var um árekstra í
Alsír í dag. I Bab-el-Oued-
hverfi Algeirsborgar, • þar
sem bæSi Serkir og evrópskt
ættaðir menn búa, voru að
minnsta kosti tíu Serkir
skotnir til bana í morgun. —
Fimm Serkjanna voru sam-
an í leigubifreið er öfga-
menn hófu skothríð á bifreið
ina. Létust allir, sem í henni
voru. Lögreglan í Algeirs-
borg er á verði víða í borg-
inni í brynvörðum bifreið-
um, búnum hríðskotabyssum.
Víða hafa verið gerð verkföll
í Alsír, en flest þeirra munu
etanda frá 2 til 24 tíma. Meðal
ennarra hafa póstmenn gert verk
fall og krefjast þeir herverndar
við útburð bréfa. Er þetta afleið-
jing þess að OAS öfstækismenn
hafa drepið fjóra póstmenn und-
snfarna daga.
Óeirðirnar stafa af því að OAS
menn óttast að senn verði undir-
ritaður friðarsamningur milli
Serkja Og Frakka og að endir
verði bundinn á styrjöldina í
Alsir, sem staðið hefur í sjö ár.
í samningnum er gert ráð fyrir
gjálfstjórn Serkja í Alsir innan
ákveðins tima. Franska stjórnin
hefur þegar samþykkt samning-
inn og fulltrúaráð útlagastjórnar-
innar í Alsír situr um þessar
Svíar
sigur
sælir
Zakopane, 24. febr. (NTB)
HEIMSMEISTARAKEPPNI í
fimkntíu kílómetra skíðagöngu
lauk í dag í Zakopane með yfir-
burðasigri Svía og áttu Norður-
löndin 7 fyrstu menn í göngunni.
Sviinn Sixten Jernberg, sem
einma mestan þátt átti í sigri Svía
I 4x10 kvn. boðgöngu karla, gekk
vegalengdina á 3 klst. 3 mín. og
48,5 sek. Assar Rönnlund frá
Svíþjóð varð nr 2 á 3.05.39,1,
Hæmælinen, Finnlandi þriðji á
3.05,42,8, Taiainen Finmlandi
fjórði á 3.05,43,5, Grönningen,
Noregi fimmti á 3.05,59,3, Janne
Stefansson, Svíþjóð sjötti á
3.06.12.0 og sjöundi varð Ræni-
gárd, Svíþjóð á 3,09,02,2
Ræmgard, sem varð nr. 7, Iagði
fyrstur af stað og kom fyrstur í
mark. Ruddi hann því brautina
fyrir þá sem á eftir komu.
mundir á ráðstefnu í Tripoli til
að ræða hann. Talið er að full-
trúaráðið ljúki umræðum um
samninginn á sunnudag, en ekki
er búizt við að það gefi út til-
kynningu fyrr en eftir helgi.
☆
Stok'khólmi, 24 febr.
Einkaskeyti til Mbl.
FRÉTTARITARI Morgun-
blaðsins í Stokkhólmi átti í
gærkvöldi viðtal við Friðrik
Ólafsson stórmeistara eftir að
hann hafði hlotið 7% vinning
í 16 skákum á skákmótinu í
Stokkhólmi. Eftir eru nú 6
Búnaðarfring seff i gær:
Endurreisn og efling
sjóða landbúnaðarins
í GÆRMORGUN var bún-
aðarþing sett í Góðtemplara-
húsinu.
Þorsteinn Sigurðsson, bóndi
á Vatnsleysu og formaður
Búnaðarfélags íslands, sett)
þingið með ávarpi.
Minntist hann í upphafi máls
síns látinna merkismanna, er
mjög hefðu haft afskipti af
starfi Búnaðarfélagsins, þeirra
Hafsteins heitins Péturssonar
bónda á Gunnsteinsstöðum og
Ólafs heitins Sigurðssonar bónda
,,Ég hef aldrei
náð mér á strik“
segir Friðrik Ólafsson
umferðir og telur Friðrik litl-
ar líkur fyrir því að hatvn
verði meðal þeirra 6 efstu,
sem komast í úrslit. Líklegasta
til að komast áfram telur Frið
rik vera Fischer, Geller,
Petrosjan, Kortsnoj, Filip og
Uhlmann.
Friðrik hefur þó enn hugs-
anlega tvenna möguleika til
að komast í úrslit; í fyrsta
lagi ef hann vinnur allar
skákir, sem hann á eftir að
tefla á mótinu og í öðru lagi
ef keppinautum hans um 6.
sætið gengur ekki of vel.
— Eg var vel hvíldur fyrir
keppnina og hafði góðar von-
ir um betri árangur, sagði
Friðrik. Mér finnst ég í heild
hafa teflt heldur illa og aldrei
komizt reglulega á skrið. Mér
hefur alltaf reynzt það mikill
ikostur að byrja vel, en í þetta
skipti tapaði ég fyrstu skák-
inni á móti Petrosjan eftir að
hafa leikið niður unninni
stöðu. Bezta skák mín á mót-
inu var hinsvegar á móti
Benkö.
• Gerir sitt bezta
Friðrik kveðst vera búinn
að sætta sig við að komast
ekki i úrslit en hann muni
gera sitt bezta úr því sem
komið er, hann hafi allt að
vinna en engu að tapa.
Skáksamband Kúbu býður
Friðrik til skákmóts, sem hald
ið er í apríl til miraningar um
að þá eru liðin 20 ár frá dón-
ardegi heimsmeistarans Casa-
blanca. Hann telur fremur ó-
líklegt að hann þiggi boðið,
en er annars fáorður um fram
tíðaróform sín.
Sem eina þátttakandainum
frá Norðurlöndunum er fylgst
með Friðrik af mifclum áhuga
og ritað og rætt um hann sem
„von Norðurlandanna."
Friðrik líður vel og sendir
beztu kveðjur.
Flugmet
Miami, Florida, 24. febr. (AP)
FLUTNINGAÞOTA af gerðinni
Douglas DC-8 setti f dag hraða-
met á flugleiðinni Tokyo-Miami.
Lenti fíugvélin — eftir alþjóða-
itíma — ó flugvellinum við Miami
tíu mínútum áður en hún lagði
af stað frá Tokyo.
Flugvélin fór frá Tokyo kl. 17,15
eftir staðartíma og var flogið við
komúlaust til Migmi og lent þar
kl. 17.05 eftir staðartíma.
Farið var yfir dagskiptabaug
á leiðinni, sem varð til þess að
vélin lenti áður en hún lagði af
stað.
Bjóða fram harðsoðinn Stalinista
KOMMtlNISTAR láta sér ekkl allt fyrir hrjósti . brenna
Þeir bjóða verksmiðjufólki í Reykjavík upp á að kjósa
Björn Bjarnason, harðsoðinn Stalinista, til formennsku í
félagi sínu. Allir vita að þessi forystumaður kommúnista
•r sanntrúaðasti Moskvumaðurinn í flokki þeirra.
Meðan hann var formaður Iðju snerist áhugi hans um
þa® eitt að nota félagið í þágu hins alþjóðlega kommún-
isma. Hagsmunir verksmiðjufólksins voru honum algert
aukaatriði.
Iðjufélagar vilja hinsvegar hæta kjör sín og efla félag
"itt. Þessvegna munu þeir kjósa áframhaldandi forystu
lýðræðissinna en hafna Stalinistanum á lista kommúnista.
Bobert Kennedy í Bonn
Bonn, 24. febr. (NTB-AP).
ROBERT KENNEDY dómemláila-
ráðhierra Bandaríikjanna og bróð-
ir fcxrsetans kom í dag til Bonn
frá Veetur Berlín þar sem hann
dvaldi í tvo daga. í Bonn ták
Strammiberger dómsmádaráð-
herra á móti Kennedy, en í dag
ganga þeir á fund Adenauers
kanzlara.
Við brottförina frá Berlín
sagði Robert Kennedy að divölin
þar hefði styrkt trú hans að
kommiúnismi og alræðisstjóm
væri diauðadœmd stjórnmáíla-
kerfi og að skipulag framtíðar-
innar hlyti að byggjast á frelsi
einstaklingsins.
Hellulandi. Minntust þingfull-
trúar hinna látnu.
Til búnaðarþings voru allir
fulltrúar mættir utan eiinn, en k
þinginu eiga 25 fulltrúar sæti.
Stærstu málin
f>á gat Þorsteinn helstu mála
er fyrir þinginu liggja og munu
stærst þeirra nýtt frumvarp um
innflutning holdanauta og lög
um afréttarlönd. Fjöldi annarra
móla liggja fyrir þessu þingi.
Formaður lét þess getið að Pét-
ur Ottesen fyrrum alþingismað-
ur og stjórnarnefndarmaður
Búnaðarfélagsins mundi að lík-
um ekki geta setið þetita þing sök
um veikinda og samþykkti þing-
ið að senda honum kveðjuskeytL
Þá flutti Ingólfur Jónsson land
búnaðarráðherra ræðu.
Batnandi afkoma
Hann ræddi um afkomu bænda
og verðlag afurða þeirra svo og
og verðlag afurða þeirra svo og
lánakjör. Kom glöggt fram að
afkoma þeirra er batnandi og
verið er ,vú að vinna að bættum
lánakjörum þeirra. Kvaðst róð-
herrann vonast til að geta á þessu
Ingólfur Jónsson,
„ landbúnaðarráðherra
þingi flutt frumvarp um endur-
reisn og eflingu lánasjóða land-
búnaðarins. Þá benti hann á að
nú hefðu bændur verðtryggða
alla framleiðslu landbúnaðarvara
sem ekki færu til neyzlu innan-
lands. Þá ræddi ráðherrann um
Frh. á bls. 23.
Kosningu í Ið ju lýkur í kvöld
Lýbræbissinnar ! Hrindum áhlaupi
kommúnista og kjósum B-listann!
ALLIR lýðræðissinnar í IÐJU eru minntir á það. að kosning hefst
kl. 10 í dag og lýkur kl. 10 í kvöld. Kosið er í skrifstofu félagsins
í Skipholti 19.
Listi lýðræðissinna er B-Iistinn.
B-LISTINN ER ÞANNIG
SKIPAÐUR:
Aðalstjórn:
Form.: Guðjón Sv. Sigurðsson.
Varaform.: Ásgeir Sigurðsson.
Ritari: Ingimundur Erlendsson.
Gjaldk.: Ingibjörg Arnórsdóttir.
Meðstjórnendur: Jóna Magnús-
dóttir, Steinn Ingi Jóhannes-
son, Guðmundur Jónsson.
Varastjórn:
Jón Björnsson,
Klara Georgsdóttir,
Ingólfur Jónasson.
Endurskoðendur: Sigurður Valdi
marsson. Eyjólfur Davíðsson.
Varaendurskoðandi: Jón Einars-
son.
LÝÐRÆÐISSINNAR!
Tökum höndum saman og
hrindum árás kommúnista á
félagið! Mætum öll á kjör-
stað í dag!