Morgunblaðið - 25.02.1962, Side 10
10
MORCTJNBL AÐIÐ
Sunnudagur 25. febr. 1962
FAGURT og áhrifamikið er, að
sýningin „íslenzk list að fornu
og nýju“, sem nýbúið er að opna
almenningi til sýnis í Louisiana,
skuli hefjast með úrvali alþýðu
listar, einkum frá 17. og 18. öld.
Þessar aldir voru landinu á
mörgum sviðum tímabil hrörn-
unar, en engu að síður reis
einmitt á þessu tímabili upp al-
þýðulist, sem vann bæði frum-
lega og af miklu ímyndunarafli
úr eldri skrautformum. Á sýn-
ingunni eru einfaldir og per-
sónulegir búshlutir skornir í tré,
ofin teppi, útsaumur með marg-
litu ullargarni, silfurskartgripir
af íslenzka þjóðbúningnum og
sýnishorn af fagurlega skreytt-
um, málmslegnum söðlum. Þessi
hluti sýningarinnar er fenginn
að láni frá þjóðminjasöfnunum í
Reykjavík og Kaupmannahöfn.
Hér skal aðeins drepið á, að
álykta má af brotum skreytinga,
kirkjulegra muna og skartgripa,
að hið raunverulega blómaskeið
hinnar gömlu islenzku listar hafi
verið þegar á miðöldum.
Úr Louisiana-safninu
Listin og eldurinn:
„Islenzk list að fornu og nýju“
á Lousiana er bezfa íslenzka sýningin sem lengi hefur sézt í Danmörku
Eftir Jan Zibrandtzen listdómara
Berlingske Tidende
SÍÐASTL. mánudag birti Berlingske Tidende, sem
er stærsta og útbreiddasta blað Danmerkur, ítarlega
grein eftir hinn kunna Iistdómara, Jan Zibrandtzen,
um íslenzku listsýninguna, sem nú stendur yfir í
Kaupmannahöfn. — Fylgja greininni myndir af
listaverkum eftir Jón Stefánsson, Jóhannes Sv. Kjar-
val, Ólöfu Pálsdóttur, Svafar Guðnason og Ásgrím
Jónsson. Fer hún hér á eftjr í heild í íslenzkri þýð-
ingu:
Myndlistin á sér þannig langa
hefð á íslandi og það er næsta
eðlilegt ,að skoða íslenzka nú-
tímalist, sem er aðalhluti þess-
arar sýningar, með þetta í huga.
f lok nítjándu aldar, þegar
þjóðernistilfinningin fer að hafa
aukin áhrif á mörgum sviðum,
tóku málaramir að fá meiri á-
huga á hinni stórbrotnu náttúru
fslands og landslagsmálun. ís-
lenzk málaralist er þó ekki orð-
in fullþroskuð fyrr en á þessari
öld. Hinir eiginlegu frumherjar
hennar eru Ásgrímur Jónsson,
Jón Stefánsson og Jóhannes
Kjarval. Allir hlutu þeir mennt-
un sína á listaskólum í Kaup-
mannahöfn, en innblástur sinn
hafa þeir sótt til íslenzkrar nátt
úru. Ásgrímur Jónsson, sem dó
1958, varð á sínum yngri árum
fjrrir sterkum áhrifum frá
frönsku impressjónistunum og
Cézanne. Menn hefði langað til
að nokkrar af minni olíumynd-
unum og frábærum vatnslitá-
myndum frá æskuátunum hefðu
verið með á Louisiana-sýning-
tmni. Litameðferð hans varð
með árunum ástríðufyllri og rík
ari að tjáningu. Ást hans á ólg-
andi rauðum litum í samhljómi
við postulínsblá blæbrigði og
hæfileiki hans til að töfra fram
gullna birtu landslagsins koma
vel fram í hinni stóru lands-
lagsmynd „Við Mývatn" frá
1953. Myndin er fengin að láni
frá húsi Ásgríms Jónssonar i
Reykjavík, sem hefur verið gert
að safnhúsi undir verk hans,
samkvæmt erfðaskrá hans.
Sennilega þekkjum við Danir
Jón Stefánsson bezt íslenzkra
málara. Hann hefur nefnilega
árum saman sýnt í „Grönning-
en“. Hann varð á unga aldri
nemandi á skóla Zahrtmanns,
og nam síðar á skóla Henri
Matisse í Frakklandi. Einnig
rannsakaði hann verk Cézannes
gaumgæfilega og lærði af skýr-
leika og sjálfsaga hins franska
meistara. Hann hefur lýst tígu-
lega litadýrð og stórfenglegri
mynd hins íslenzka landslags
með litameðferð, sem ljómar af
eins og „emalje.“
í náttúruskynjun Jóns Stef-
ánssonar er leyndardómsfullur
hiti og glóð. Myndir hans af
hestunum í glitrandi Ijósi sum-
arsins og snæviþöktu og hnípnu
vetrarlandslagi má telja tákn-
rænar fyrir ísland. Hvílíkur
sindrandi myndrænn kraftur er
ekki í hinu græna litrófi, sem
ræður ríkjum í mynd hans
„Brimgarður við Stokkseyri".
Djúpstæðar mannlýsingar er að
finna í andlitsmyndum hans,
stórum í sniðum og heilsteypt-
um. íslenzk sveitakona og mynd
in af Halldóri Laxness eru frá-
bær dæmi.
Jóhannes Kjarval hefur lýst
einmanaleik og ljóðrænu hinnar
hrikalegu íslenzku náttúru ræki-
legar en nokkur annar. í mál-
verkum sínum er hann skáld og
draumóramaður. Með fullkom-
inni leikni breytir hann sjónar-
hól sínum og skilningi eftir því
listræna verkefni, sem hann er
að fást við á hverjum tíma.
Einn af hinum stóru sölum
Louisiana er helgaður myndum
Kjarvals. Hugarástand hans og
list hans um leið er jafnbreyti-
legt og -leikur ljóssins, eins og
við þekkjum hann yfir láði og
legi í stormi eða skúraleiðing-
um. Hann er snillingur íslenzkr-
ar nútímamálaralistar. Breidd
skapgerðar hans má lesa úr
landslagsmyndum hans. Hann
hefur skynjað hinn yfirþyrm-
andi breytileika hrjóstrugra,
grýttra fjallahlíða og mosa-
grænna hraundranga, sem hann
oft málar nærmyndir af og taka
á sig mannlega mynd í ímynd-
Un hans. Hin gráfjólubláa og
grænleita mynd, sem er máluð
svipað og mósaík, „Úti og inni“
1943 minnir að blæbrigðaauðgi á
landslagsmyndir eftir Hercules
Seghers.
Yfir mynd hans „Hvassárgil"
er nærri táknrænn flótti og
ljóðræna, þar sem undur vors-
ins lyftist alveg upp að augum
okkar í mynd blómabreiðu, og
sama má segja um „Flugþrá“.
Og hversu furðulegur og per-
sónulegur er Kjarval ekki sem
mannamyndamálari: „Bóndinn á
Þingvöllum“ og „Prófessorinn",
mynd af málfræðingnum dr.
Jóni Stefánssyni, sem búsettur
var í London, eru málaðar af
snillingshendi.
Sýningin „íslenzk list að fórnu
og nýju“ er sett upp af Louisi-
ana í samvinnu við Dansk-Is-
landsk Samfund, en formaður
þess, prófessor E. Meulengracht,
átti hugmyndina að sýningunni.
Sýningin hefur hlotið stuðning
íslenzka ríkisins og danska
menntamálaráðuneytisins. Eng-
inn vafi getur leikið á, að sýn-
ingin veitir dýrmæta fræðslu
um menningu og list íslendinga.
Þetta er bezta sýningin á ís-
lenzkri myndlist, sem lengi hef-
ur verið haldin í Danmörku.
En það er ekki sama og að
segja, að reynt hafi verið að
gefa fullkomið yfirlit yfir alla
lifandi listastarfsemi á íslandi í
dag, en hún er aðdáunarverð.
Menn þurfa heldur ekki að
hugsa skýrslufræðilega og minn
ast íbúafjöldans. Þessi sýning
átti að sýna úrval, nokkra mik-
ilvæga listamenn og ákveðna
hæfileikamikla og einkennandi
fulltrúa hinna breytilegu tíma-
bila í íslenzkri list, allt til síð-
ustu ára.
Meðal eldri kyn/silóðarinnar
tekur maður eftir hinum mildu
landslagsmyndum eftir Jón Þor
Ieifsson, sem hefur orðið fyrir
áhrifum frá Cézanne. Þarna eru
fallega hnýtt teppi eftir Júlíönu
Sveinsdóttur, sem bera einkenni
hins lifandi skreytinga- og lita
ímyndarafls þessarar listakonu.
Hinar stóru og kröftugt teikn-
uðu fiskimannamyndir Gunn-
laugs Schevings sýna varla allar
hans fyrirmyndir. Góður kurín-
ingi frá sýningu, sem „Kam-
eraterne" hafa haldið, er Jón
Engilberts, sem hefur farið fram
úr sjálfum sér m'''" myndinni
„Fiskimenn bíða t____• b?t“. Sú
mynd sýnir fyllilega hinar ex-
pressjónistisku tilfinningar. Eng
ilberts. Maður horfir einnig full
ur áhuga á hið fínlega litaskyn
Jóhanns Briem, „Skip hjá Skaga
strönd“ eftir Snorra Arinbjarn-
ar, hina gráu sýn „í gilinu“ eft-
ir Steinþór Sigurðsson og hinar
djúpskynjuðu litasamsetningar
Nínu Tryggvadóttur' í breitt
stroknum uppstillingum hennar.
Þungamiðja nútímadeildarinn-
ar eru verk Svafars Guðnason-
ar. Hann er einn af brautryðj-
endum hinnar „spontant-ab-
ströktu" listar á Norðurlöndum.
Á sínum yngri árum vann hann
í náinni samvinnu við hina leit-
andi dönsku abstrakt-list. í
björtu litasamræmi þvingar
Svafar Guðnason fram tjáning-
armátt litanna. í þessum mynd-
um finnur maður algleymisþrá
listamannasálarinnar, en einnig
þrána eftir heiðríkju. Þorvald-
ur Skúlason hefur einnig unnið
í Kaupmamíahöfn. Hann hefur
lært af Richard Mortensen, en
er einnig bundinn af því. í hinu
lifandi „tachistiska“ litaskyni
Karls Kvaran má sjá samband
við ameríska nútímalist. Svip-
aðra áhrifa gætir í hinni stóru
mynd Kristjáns Davíðssonar, en
hann hefur einnig orðið fyrir
áhrifum hinnar litríku íslenzku
jarðar. Maður gleðst við hinar
einföldu, rólegu og háttbundnu
mósaíkmyndir Yaltýs Pétursson-
ar. —
Sigurjón Ólafsson sýnir mörg
sýnishorn höggmynda sinna,
bæði hinar tröllauknu og sam-
anþjöppuðu abstraktmyndir úr
steini, tilraunir með tré og
málm og raðir nýrra járn-
mynda, sem eiga áhrif sín aðal-
lega undir skreytingakenndri
meðhöndlan flata, sem minnir á
skuggamyndir. Ásmundur Sveins
son, sem er meðal mest áber-
andi myndhöggvara íslendinga,
sýnir abstraktmyndir úr eir og
járni. Bronzstytta Ólafar Páls-
dóttur „Sonur“ er dýrmætt nat-
uralistiskt verk, sem lýsir vel og
fagurlega mannlegu eðli og lát-
lausri reisn ungs manns. Loks er
ástæða til að nefna abstrakt-
höggmyndir Jóhanns K. Eyfells
úr alúminíum og eir eða steini.
Þar er sem maður þekki aft-
ur hraunmyndir íslands og grátt,
veðrað hraunið.
Aftur og aftur er sem maður
finni í verkum íslenzkra lista-
manna, hvernig hugmyndaflug-
ið og hin listræna meðvitund
nærast við hugsunina um hina
ótrúlega margbreytilegu nátt-
úru, þar sem jarðeldurinn, er
aldrei deyr, skín í gegn.
Sendisveinn
Röskur piltur óskast til sendiferða
Lggert Kristjánsson & Co. hf.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á húseigninni Ásbúð við Suðurlands-
braut, hér í bænum, eign Sveins Sveinssonar, fer fram
miðvikudaginn 28. februar 1962, kl. 2Vz síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
.
hrinounum. S