Morgunblaðið - 22.12.1966, Qupperneq 8
8
M0RCUN2LAÐIÐ
Fimmtudagur 22. des. 1966
EFT2R - ■
ÁRMA OLA
ÞiAÐ segja vitrir menn, að Geir-
mundur heljarskinn hafi verið
göfgastur allra landnámismanna,
segir Landnáma.
Framan við Sturlungu er sér-
stakur þáttur um Geirmund. Þar
segir áð Hálfur kanungur ’hafi
verið afi hans, og þeir hafi verið
tvílburar Hámundur helajrskinn
og Geirmundur. Er og sagt frá
því hvernig þeir hlutu viður-
nefni sín. En dr. GuSbrandur
Vígfússon taldi, að þetta gæti
tícki verið rétt, Halfur konungur
hefði verið uppi löngu fyrr, aft-
ur í forneskju. Heljarskinns-
nafnið taidi hann og miklu
eldra, hefði það gengið í ætt-
inni og þeir bræður erft það. Þá
tiellur hann litlar líkur til þess,
að þeir Hámundur og Geirmund-
ur hafi verið tvíburar, því að
Hámundur virðist miklu yngri
en Geirmundur, þar sem hann
hafi verfð tengdasonur Helga
magra og komið nýgiftur út með
honum (um 890—95) og muni
varla hafa verið fæddur fyr en
um 860. Á hinn bóginn beri sög-
um saman um að Geirmundur
hafi verið orðinn gamall, er
ihann kom út (um 895); varla
hafi hann þá verið yngri en
fimmtugur, nokkru eldri en þeir
Skal lagrím u r og Ingimundur
gamili, og þó hafi hann sepni-
lega verið eldri en þetta.
(Safn I.).
í Geirmundarlþætti segir: „Og
er þeir (bræður) voru frum-
vaxta, fóru þeir úr landi að herja
og öfluðu brátt bæði fjár og
frægðar og stýrðu lengi miklum
akipstóli, að því er segir í sum-
«m frásögnum". Er svo að sjá
að þeir hafi ekki komið aftur til
Noregs að vitja þess níkis er
þeir áttu á Hör’ðalandi og Roga-
landi, því að svo segir í Grettis
sögu, að Geirmundur hafi verið
fyrir vestan haf þegar Hafurs-
fjarðarorusta var háð. En í or-
ustunni voru þeir félagar Ön-
undur tréfótur, Ormur hinn
auðgi, Balki Blængsson af Sóta-
nesi og Hallvarður súgandi. Þeir
voru víkingar og börðust í móti
Haraldi konungi. „Að orustu lok
inni fóru þeir til móts við Geir-
mund, þvi að hann var þá fræg-
astur af víkingum fyrir vestan
haf, og spurðu hvort hann vildi
ekki leita aftur til ríkis þess, er
hann átti í Noregi og huðu hon-
um fylgd sína. Geirmundur kvað
þá orðinn svo mikinn styrk Har-
alds konungs, að honum þótti
þess litil von, að þeir fengi þar
sæmdir með hernáði, kvaðst eigi
nenna að gerast konungsþræll og
biðja þess er hann átti áður
sjálfur, kvaðst heldur mundu
leita sér annara forráða. Var
hann þá og af æskuskeiði“.
Er svo að sjá sem þeir bræður
hafi þá slitið féiag sitt. Fór Há-
mundur á fund Helga magra og
síðan með honum til íslands. „En
ég hefi það heyrt", segir höfund-
ur Geirmundarþáttar, „að í þann
tíma væri sem mest orð á, að
engi þætti vera frægðarför meiri
en fara til íslands".
Geirmundur brá þá einnig til
íslandsferðar og með honum fé-
lagar hans, Úlfur skjálgi, Stein-
olfur lági og Þrándur mjóbeinn,
og er sagt áð sínu skipi hafi
stýrt hver þeirra.
----0---- /'
Þetta er í fám orðum það
sem vér vitum um sögu Geir-
mundar, áður en hann kom til
fslands. Guðbrandur Vigfússon
telur fráleitt að hann 'hafi verið
sem útlagi fyrir vestan haf, og
varla heldur sem víkingur öll
þau ár sem hann var þar. Senni-
lega hafi hann eignazt þar eign-
ir og ríki. En þá vantar í sög,-
una hvers vegna hann yfirgaf
staðfestu sina þar; ef til vill hef-
ir það verið vegna herferðar
Haralds konungs vestur um haf.
Hafi Geirmundur aftur á móti
talizt sækonungur og legið úti á
herskipum, þá hafa það verið
langskip, en þau töldust óhæf
til þess að fara á þeim yfir út-
höf. Þeir hafa því orðið að flá
sér kaupför eða knörru til þess
að sigla á yfir haffð til íslands.
„Þeir tóku Breiðafjörð og
lágu við Elliðaey. Þá spurðu þeir
að fjörðurinn var byggður syðra,
en lítt eða ekki vestra’*. Guð-
brandur Vigfússon telur að þeir
hafi komið út 895, en á undan
þeir voru komnir Þórolfur
Mostrarskegg og Björn austræni
og höfðu numið um Snæfellsnes,
en Auður djúpúðga hafði num-
?ð Dali: „Fór Geirmundur þá vest
ur yfir Hvammsfjörð og nam frá
Fábeinsá til Klofasteina og bjó
fyrst á Geirmundarstöðum undir
skarði“. Klofasteinar ætla menn
að séu bjá Búðardalsá.
Þrándur 'mjóbeinn nam eyar
á Breiðafirði vestan Bjarneyja-
flóa og bjó í Flatey, en sonur
hans í Hergilsey. L'klega hefir
landnám Þrándar náði frá Flat-
eyarlundi og þar vestur úr, því að
svo virðist sem Hallsteinn goði,
sonur Þórolfs Mostrarskeggs,
ihafi áður numið Látralönd,
Svefneyjar og Sviðnur.
Steinolfur lági nam frá Klofa-
steinum til Grjótvallarmúla inn-
an við Holt og þar með allan
Saurbæ. Sagt er að hann hafi
ihaft fjölmenni og brátt þóftt
Iþröngt um sig þarna. Brá hann
(sér því norður í Króksfjörð og
nam þar Bæjardal. í landnámi
hans sunnan fjarðar hafa þó ver
ið um 30 bæir og hefði það átt
að nægja einni skipshöfn,
Úlfur skjálgi var mágur Helga
magra. Hann nam Reykjanes ailt
milli Þorskafjarðar og Berufjarð
Heiniilisrafslöðvar framleiða rafmagn
fyrir bundruð sveifaheimila hér á landi
Rafmagnsra'sir
Fjarstýrð stöðvun fró íbúð
Við afgreiðum vélarnar með
rafmagnsrœsi
öryggisstöðvunarbúnaði
hljóðdeyfiþófum —•
ósamt öðrum nauðsynfegum
búnaði eins og mœlatöflum
höfuðrofa, eldsneytisgeymum,
og fjarstýrðri stöðvun frá íbúð.
Við getum afgreitt 6 kw
stöðvar strax upp úr áramótum
Verð þéirra er um kr. 56.200.00
Lán raforkumálastjórnar er
kr. 52.000.00 til tíu ára —
afborgunarlaust fyrstu 2 árin
S. STEFÁNSSON & CO. HF.
GARÐASTRÆTI 6 - SÍMI 15579 - PÓSTHÓLF 1006
ar, bjó fyrst á Miðjanesi, en síð-
an á Reykhólum. í því landnámi
hafa verið 15—20 jarðir.
í landnámi Geirmundar hafa
verið um 20 jarðir, en auk þess
Akureyjar, Rauðseyjar og Rúf-
eyjar. En honum þótti þó of
þröngt um sig þarna. Þess vegna
brá hann sér norður á Horn-
strandir og nam þar frá Aðal-
vík að Straumnesi fyrir austan
Horn og setti þar saman fjögup
bú, eitt í Aðalvík, annað í Barðs-
vík, þri'ðja í Kjaransvík og hið
fjórða á Almenningum. Auk þesa
er sagt að hann hafi átt bú á
Géirmundarstöðum í Selárdaá
inn af SteingrimsfirðL
Sennilega hefir hann aukið
landnám sitt og sett upp þess*
bú þegar á öðru ári eftir úbkomu
Til minnis fyrir þá er leita
jólagjafa:
Guíl og —
dýrúr steínar
Skartgripir okkar hafa vakið
bæjarathygli.
Kulturperlur — Demantar
bÚRUvur
v
Okkar landsþekktu gerðir.
Siifurplett — Eðalstál.
♦ ♦
hátíðaborðið
Fagrir gripir valdir í ýmsum
löndum á góðu verði.
Skálar — Kertastjakar
♦ ♦
Kinverskir
iistmunir
Ný sending komin.
Smelti — Lakk
♦ ♦
Magnor —
kristall
Norsk framleiðsla —
skemmtileg form.
♦ ♦
Vínglös
Allar stærðir
*
fiJr og
klukkur
Veljið úrin hjá okkur því við
verzlum með helztu svissnesku
gæðamerkin — en önnur ekki.
Heimilisklukkurnar eru í
nútíma formum fyrir nýju
heimilin og heita
Jðn liinmunílGson
Ghorlpripaverzlun