Morgunblaðið - 25.09.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1974
7
Július sýnir Laxamýrarbændum, Birni og Vigfúsi Jónssonum, falleg sumaralin seiði.
„Ætlunin að tvöfalda
seiðaframleiðsluna”
Rætt við Júlíus Pétursson stöðvarstjóra á Laxamýri
Júllus Pétursson
„VIÐ erum nú með um 180 þús-
und sumaralin seiði af stórlaxa-
stofni og vonumst til, að sú tala
eigi ekki eftir að lækka mikið áður
en við getum farið að afgreiða þau
sem 1 árs gönguseiði næsta vor,"
sagði Júlíus Pétursson stöðvar-
stjóri í Fiskeldisstöðinni á Laxa-
mýri í Aðaldal, er við komum við
hjá honum fyrir skömmu.
Júlíus tók við starfi stöðvarstjóra
1 febrúar sl. en hann lauk 4 ára
námi i fiskeldisfræðum í Svíþjóð
vorið 1973 og starfaði eftir það i
Laxeldisstöðinni í Kollafirði áður en
hann fór norður.
Miklar framkvæmdir hafa verið
við Laxamýrarstöðina sl. tvö ár undir
forystu Kristjáns Óskarssonar fram-
kvæmdastjóra stöðvarinnar. Búið er
að gera grunn fyrir annað 400
fermetra eldishús og auk þess
steypa stórt útieldisker að sænskri
fyrirmynd Er ætlunin að tvöfalda
seiðaframleiðsluna a næsta ári
Nú er búið að safna saman fjölda
stórlaxa úr Laxá I Aðaldal til að nota
f klakið í haust og hafa bændur veitt
mest allan laxinn, en auk þess skildu
erlendir veiðimenn i Árnesi eftir tals-
vert af líflaxi handa eldisstöðinni.
Verður væntanlega byrjað að kreista
laxinn síðari hluta októbermánaðar.
Við spyrjum Júlíus hvenær hrognin
klekjist út.
— Hrognin þurfa um 320 sólar-
hringsgráður áður en þau klekjast
út, en til að flýta fyrir þroska þeirra
er vatnið hitað örlítið siðustu 2—3
mánuðina. Ófrjó hrogn verður að
fjarlægja strax og alls ekki síðar en
48 stundum frá frjógvun Síðan má
ekki snerta hrognín fyrr en þau eru
orðin augnuð seinnipart vetrar Þau
eru höfð i myrkri allan veturinn
Seiðan koma síðan almennt úr hýð-
inu með sporðinn fyrst en ef höfuðið
kemur fyrst má búast veið lélegum
seiðum. Laxaseiði er við fæðingu
um 2 cm á lengd og vegur 0.1
gramm Fóðrun seiðanna hefst eftir
3—4 vikur frá fæðingu, allt eftir
hitastigi, en það er vandasamasta
timabilið i fiskeldinu
— Verða ekki mikil afföll í upp-
hafi?
— Jú, stór hluti seiðanna lærir
aldrei að taka fóðrið og þvl verða
stór afföll í startinu Talið er gott að
ná 50—60% af seiðunum gegnum
fyrsta sumarið, en eftir það eru afföll
Iftil, þó að alltaf geti einhverjir kvill-
ar eða sjúkdómar komið upp. Seiðin
eru sérstaklega viðkvæm fyrir alls-
konar kvillum fyrstu mánuðina, svo
sem bakterium og snikjudýrum Þarf
að hafa mjög nákvæmt eftirlit með
þeim og flokka þau og vigta með
jöfnu millibili
— Hvað er til bragðs að taka ef
veiki kemur upp I seiðunum?
— Þá eru seiðin þegar i stað
böðuð upp úr saltvatns- og forma-
linsblöndu.
Við spyrjum Júlíus að lokum
hvort hann sé með einhverjar til-
raunir i gangi, en hann segir, að enn
sé ekki komið að þvi. Fyrst verði að
einbeita sér að þvi að byggja stöðina
upp og koma rekstrinum i fastar
skorður en tilraunir eigi síðar von-
andi eftir að verða fastur þáttur enda
aðstæður fyrir norðan mjög ákjósan-
legar til sliks, þar sem Laxá rennur
örskammt frá stöðinni
Séð yfir sal Laxamýrarstöðvarinnar.
Steypta eldiskerið á Laxamýri er nýjung í laxeldi hér á landi.
ftskRaekt
og fekeLöí
Eftir Ingva Hrafn Jónsson
Keflavík Bilskúr óskast til leigu. Uppl. i síma 2721 eftir kl. 6. Óska eftir að kaupa Cortinu árg. '7 1 —'12. Uppl. i sima 52395 eftir kl. 7 á kvöldin.
Keflavik — Njarðvík 2ja til 3ja herb. íbúð óskast til leigu strax. Uppl. í sima 2721 eftir kl. 6. Keflavík Til sölu góðar 3ja og 4ra herb. sérhæðir. Lausar strax. Eigna- og verðbréfasalan, Hringbraut 90. Simi 3222.
4ra tonna trilla til sölu. Uppl. í síma 53137. Atvirma óskast Kona, sem er liðlega fimmtug, óskar eftir hálfs dags starfi. Er vön afgreiðslu. Tilboð sendist Mbl. fyrir föstu- dagskvöld merkt: 9756.
Kona óskar eftir atvinnu t.d. við símavörzlu. Hefir starfað við verzlunarstörf og skrif- stofustörf. Vélritunarkunnátta. Tilboð merkt: 9574 sendist Mbl. sem fyrst. Herb. óskast Piltur óskar eftir að taka herb. á leigu. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Vinsamlegast hringið í síma 92- 2440.
Til ieigu 4ra herb. íbúð á góðum stað. Tilboð sendist til Mbl. merkt „9573". Geymsluhúsnæði Til letgu 1 60 fm. geymsluhúsnæði á jarðhæð. Upplýsingar i sima 1 2362. SÆNSK-ÍSL. FRYSTIHÚSIÐ.
Háskóla íslands vantar litla ibúð handa rússneskum sendi- kennara. Upplýsingar í sima 25088. Bakari óskar eftir vinnu Gott ef íbúð gæti fylgt. Allt kemur til greina. Hef bíl. Kvöldvinna kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. merkt: ..9757'.
Atvinna Laghentan mann eða bólstrara vantar strax. Uppl. í síma 1 2691. Einstaklingsíbúð eða góð stofa með aðgangi að eldhúsi óskast á leigu strax. Skilvísi og góðri umgengni heitið. Upplýsingar í síma 21083.
Djúpfrystir Notaður djúpfrystir fyrir kjörbúð óskast til kaups. Upplýsingar i sima 85445 eftir kl. 7 á kvöldin. ^ttÞEIR nUKR UIÐSKIPTin SEH1 rt nuGLúsni | ] \ jRloruuubtaíiiuu
Milli fjöru og fjalls í
Simca 1100
Simca 1100 GLS.
SIMCA 1100 er einn vinsælasti litli fimm manna bfllinn á Norður-
löndum, enda er hann annálaður fyrir gæði, styrkleika. lipurð.
hagkvæmni, aksturshæfni, spameyzlu, að ógleymdu ótrúlega lágu
verði. — SIMCA 1100 GLS er 4. dyra, en með fimmtu hurðina að
aftan og á fáeinum sekúndum má breyta honum ( einskonar station-
bfl. —SIMCA 1100 GLS er sérstaklega styrktur fyrir fslenzka vegi og
veðurfar.
Geymið ekki þangað til á morgun það sem hægt er að gera í dag:
pantið nýjan SIMCA 1100 — hringið eða komið strax í dag.
Ifökutl hf.
ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK Sími 84366.