Morgunblaðið - 25.09.1974, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGÚR 25. SEPTEMBER 1974
Fangaskipt-
in töfðust
Nikósíu 24. september
Reuter — AP
FANGASKIPTIN á Kýpur stöðv-
uðust I tæpa tvo tíma I dag. Á
öðrum degi fangaskiptanna áttu
að eiga sér stað skipti á meir en
500 tyrkneskum og grískum Kýp-
urbúum, en flutningar á 286
Tyrkjum töfðust I dag um tvo
tíma af ótilgreindum ástæðum.
Með fangaskiptunum í dag er tala
þeirra, sem komnir eru til síns
heima, orðin 1442, en skiptin fara
fram undir yfirstjórn Alþjóða
Rauða krossins. Fyrir tveimur
vikum var hafizt handa með þvf
að skiptast á særðum og sjúkum.
Gert er ráð fyrir, að fangaskiptin
haldi áfram á morgun.
Svo virtist I dag sem ásakanir
Kýpurstjórnar um nýja fjöldagröf
í þorpinu Ayos Memnon, skammt
frá Famagusta, hafi verið ýktar.
Lögreglan kveðst aóeins hafa
fundið f jögur lík, en ekki tíu, eins
og stjórnin skýrði frá í gærkvöldi.
Hadjukvann 2:0
JÚGÓSLAVNESKU meistararnir
f knattspyrnu, Hadjuk Split, sigr-
uðu Keflvfkinga f Evrópukeppni
meistaraliða f gærkvöldi 2:0. 1
hálfleik var staðan 1:0. Leikurinn
fór fram f Split, og voru áhorfend-
ur 10 þúsund. Mörk Júgóslavanna
skoruðu Dzoni á 4. mfnútu og
Mijac á 52. mfnútu.
— Grikkland
Framhald af bls. 1
að ganga til kosninga f nóvem-
ber. Kommúnistar ásökuðu
Karamanlis um að undirbúa
atkvæðarán, og leiðtogi
Miðsambandsins sagði, að svo
skyndilegar kosningar myndu
ekki vera frjálsar og leiddu til
einræðis á þingi. Segja heim-
ildirnar, að Karamanlis muni
kunngera kosningadaginn f
þessari viku, og að hann ætli
að boða stofnun nýrrar
stjórnmálahreyfingar, „Nýs
lýðræðis“, þar sem hann sjálf-
ur yrði leiðtogi.
Talsmaður grfsku stjórnar-
innar sagði, að kosið yrði um
300 sæti á þinginu, sem myndi
hafa rétt til stjórnarskrár-
breytinga, en ekki til að taka
ákvörðun um það, hvort Grikk-
land verði lýðveldi eða
konungsrfki f framtfðinni. Sú
ákvörðun yrði’ tekin sfðar af
þjóðinni sjálfri f þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
— Tyrkland
Framhald af bls. 1
og var samþykkt að gera það
þangað til Ford forseti fengi full-
vissu um að „verulegur árangur“
hefði náðst í samkomulagsumleit-
unum um herstyrk á Kýpur. Hins
vegar var felld breytingartillaga
um samskonar aðgerðir gegn
Grikkjum. Þessi ákvörðun full-
trúadeildarinnar fellir því niður
það, sem eftir er af 350 milljón
dollara aðstoð við Tyrkland, sem
þingið samþykkti í fyrra.
— Launajöfnun-
arbætur
Framhald af bls. 32
lágmarkstekjur. Staða lffeyris-
sjóða yrði könnuð svo og aðstaða
bótaþega, unnið yrði að jöfnun
húsnæðiskostnaðar og endur-
skoðun á verðlagningu búvara. Þá
yrði stefnt að þvf að koma fastri
skipan á samráð rfkisstjórnar og
aðila vinnumarkaðarins.
Forsætisráðherra greindi frá
því, að laun hefðu átt að hækka
um 15% samkvæmt kaupgreiðslu-
vísitölu 1. október og um önnur
15% 1. desember. Með grunn-
kaupshækkunum, sem ekki væri
hróflað við nú, hefði launakostn-
aður aukist um 36% fram til ára-
móta til viðbótar 30% hækkun
fyrr á þessu ári, ef ekkert hefði
verið aó gert. Flestum væri ljóst,
að slík þróun hefði stofnað
atvinnuöryggi f hættu og leitt til
atvinnuleysis. I því skyni að fá
svigrúm til varanlegri aðgerða
hefði verið ákveðið að rjúfa
tengsl verðlags og launa um skeið
en tryggja jafnframt kjör þeirra,
sem lakast væru settir.
— Hjálpin
Framhald af bls. 1
viðskiptamiðstöðinni San Pedro
Sula I suðvestri. Þar með hafa
ekki aðeins a.m.k. 9000 manns
farizt af völdum fellibylsins,
heldur eru einnig örlög þeirra,
sem komuzt undan, I óvissu. Tala
heimilislausra er talin frá 100.000
og upp f 350.000. Allar tölur eru
þó mjög ófullkomnar.
Eduardo Andino, ofursti, sem
er í forystu fyrir hjálparstarfinu,
viðurkenndi f dag, að land hans
skorti nægilegan aðbúnað til
skjótrar dreifingar hjálpargagna,
en þau berast nú frá Bandaríkj-
unum, öðrum ríkjum Latnesku-
Ameríku, Kúbu, Vestur-Þýzka-
landi og Bretlandi.
Enn benti ekkert til þess, að
meiri háttar farsótt hefði brotizt
út eftir hamfarirnar, en malarfa
og blóðsótt fóru þó í vöxt, og
bandarískir embættismenn sögðu,
að hugsanlega þyrfti að hefja
mikla bólusetningarherferð gegn
taugaveiki fljótlega.
— Litla Hraun
Framhald af bls. 19
að vinna hér í frystihúsinu frá
átta að morgni til sjö að
kvöldi eða lengur, þá sé það
búið að fá nóg, og hafi því
ekki áhuga á félagsmálastarf-
seminni."
— Þ.Ó.
— Beinarferðir
Framhald af bls. 4
þremur bæjum, þá þýddi það
ekki að það gæti ekki hitzt, því
ekki væru nema 7 km á milli
staðanna, eða álfka og á milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.
— Enn er Austurríki meðal
ódýrustu ferðamannalanda f
Evrópu og er það atriði, sem
þarf að hafa f huga, ekki sízt nú
á tímurh, þegar fólkið þarf að
hugsa um að fá sem mest fyrir
krónuna, sagði hann.
Eins og fyrr segir, þá verður
fyrsta ferðin 21. febrúar, önnur
ferðin verður 7. marz og sú
þriðja þann 21. marz. Farið
verður frá Keflavík kl. 10 á
föstudagsmorgni og tekur flug-
ið til Múnchen rúmar 3 klukku-
stundir. Þaðan verður svo ekið
niður í Alpana á 1M klukku-
stund. Heimferðin er miðuð við
að komið sé til Keflavíkur kl.
18.30 á föstudegi. Flugvöllur-
inn í Múnchen varð frekar fyrir
valinu en völlurinn í Salsburg
þar sem sá síðarnefndi er oft
lokaður vegna þoku og snjó-
komu á þessum árstíma. Þá má
geta þess, að farþegum veróur
leyfilegt að hafa með sér skíði
umfram leyfilegan flugfar-
angur og verður ekkert auka-
gjald tekið fyrir, en rúm er
fyrir 6 tonn af slíkum farangri i
vélum Air Viking. Sagði Guðni
að lokum, að þegar hefðu þrfr
stórir hópar pantað sæti I þess-
ar ferðir.
— Gaman að lesa
Framhald af bls. 19
t.d. réttuðum við með Borgfirð-
ingum upp við Réttarvatn."
Gaman aö lesa
markaskrár
— Er það ekki rétt, að þú sért
glöggur á mörk?
„Ekki eru það mín orð, og
hygg ég að þar standi mér
margir framar. En hinu neita
ég ekki, að gaman þykir mér að
lesa markaskrár. Annars er
miklu auðveldara að þekkja
mörkin en áður fyrr. Núna þarf
maður ekki annað en þekkja
. mörkin þeirra sem búa í Mið-
firöinum, en þegar girðingarn-
ar voru ekki komnar blandaðist
féð meira eins og ég sagði áðan,
og þá þurfti maður að þekkja
mörk utansveitarmanna, t.d.
Borgfirðinga."
— Og að lokum Gísli, þú ætl-
ar ótrauður að halda áfram að
fara í göngur?
„Ég hef alltaf haft mikla
ánægju af því að fara fram til
heiða á haustin og smala fé. Ég
hef alltaf haft góða samferðar-
menn og indælis gangnastjóra.
Það væri gaman að geta farið f
göngur á meðan heilsan leyfir
og gangnastjórarnir taka mig
með sem fullgildan gangna-
mann.“
Skósel,
Laugavegi 60,
sími 21270.
Loöfóöruö
kuldastígvél
og
kuldaskór
nýkomiö
St. Jósefsspítali
Landakoti
óskar eftir 2ja herb. íbúð fyrir hjúkrunarkonu,
helst í vesturborginni. Upplýsingar veittar hjá
starfsmannahaldi í síma 1 9600 frá kl. 2—-4.
5 herb. einbýlishús
með bílskúr til sölu í Bolungarvík. Uppl. gefnar
í síma 94-7 191, Bolungarvík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 37., 41. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1 974 á
Hlaðbrekku 5, þinglýstri eign Haralds Gíslasonar, fer fram á eigninni
sjálfri mánudaginn 30. september 1 974 kl. 11.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Aðalfundur
félags Snæfellinga og Hnappdæla verður hald-
inn í Tjarnarbúð miðvikudaginn 2. okt. n.k kl.
20:30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
- Bráðabirgðalög
Framhald af bls. 2
fram eru. Sama gildir um hjónalíf-
eyrir, eftir því sem við á.
9. gr
Breytingar bóta almannatrygg-
inga skv. 7. og 8. gr. skulu koma i
stað breytinga skv. 1. mgr. 78. gr.
laga nr. 67/1971, sbr 12. gr. laga
nr. 96/ 1 971, af tilefni launajöfnun-
arbóta skv. lögum þessum.
10. gr.
Á tfmabilinu 1 október til 31.
maí 1975 skulu niðurgreiðslur
vöruverðs úr ríkissjóði ekki vera
lægri en þær eru við gildistöku laga
þessara.
1 1. gr.
Fram til 31. maí 1 975 má ekki
hækka verð vöru eða þjónustu eða
endurgjald fyrir afnot af fasteign eða
lausafé frá því, sem var 23. septem-
ber 1974, nema að fengnu sam-
þykki réttra yfirvalda og skulu þau
ekki leyfa neina hækkun nema þau
telji hana óhjákvæmilega. Leyfi til
hækkunar tekur þó ekki gildi fyrr en
það hefur hlotið staðfestingu rlkis-
stjórnarinnar.
Á því tímabili, er greinir I 1. mgr.,
má ekki hækka hundraðshluta
álagningar á vöru I heildsölu, smá-
sölu eða öðrum viðskiptum frá þvi,
sem var 23. september 1 974, nema
að fengnu samþykki réttra yfirvalda
og staðfestingu ríkisstjórnarinnar
sbr. 1. mgr. Gildir þetta einnig um
hvers konar umboðslaun vegna sölu
vöru eða þjónustu og um hvers
konar álagningu, sem ákveðin er
sem hundraðshluti á selda vöru eða
þjónustu, þar með vinnu.
Ákvæði 1. og 2. mgr. taka einnig
til verðs hvers konar vöru og þjón-
ustu, sem ríki, sveitarfélög, stofnan-
ir þeirra aðila eða aðrir opinberir
aðilar láta I té gegn gjaldi.
Ríkisstjórnin getur ákveðið lækk-
un á verði vöru eða þjónustu telji
hún til þess gilda ástæðu eða brýna
nauðsyn
1 2 gr.
Brot gegn ákvæðum laga þessara
varða sektum nema þyngri viðurlög
séu ákveðin með öðrum lögum
Mál út af brotum á lögum þessum
fara að hætti opinberra mála.
1 3 gr
Lög þessi öðlast |3egar gildi.
Gjört að Bessastöðum,
24. september 1 974
Kristján Eldjárn.
(L.S.)
Geir Hallgrímsson.
— Minning
Þórarinn
Framhald af bls. 21
enda eins og áður er sagt skarp-
greindur og víðlesinn. Bókasafn
átti hann gott eins og faðir hans.
Nú er æskuheimili Þórarins og
eignarjörð komin í eyði, eins og
önnur fleiri býli í suðurbyggð
Seyðisfjarðar. Nýlega var byggð-
ur flugvöllur í landi Þórarins-
staða og að miklu leyti í túninu
þar. Þórarinn gaf land undir flug-
völlinn. Sýnir það m.a. rausn hans
og höfðingsskap. Seinustu æviár-
in var Þórarinn skrifstofumaður
hjá Rafveitu Seyðisfjarðarkaup-
staðar og vann þar svo lengi sem
kraftar entust.
Ég kveð minn kæra frænda og
fóstbróður með þakklæti fyrir
samverustundirnar og öll þau
góðu kynni og minningar, sem ég
á um hann. Og eitt er víst, að þótt
hann sé horfinn sjónum okkar
vina sinna um, sinn, þá lifir minn-
ingin um góðan dreng.
Sigurður Magnússon
frá Þórarinsstöðum.
FERÐAFELAG
ISLANDS
Ferðafélagsferðir.
Föstudagskvöld kl. 20.
1. Þórsmörk,
2. Laundamanrtalaugar —
Jökulgil.
Ferðafélag íslands,
Öldugötu 3,
simar: 1 9533 — 1 1 798.