Morgunblaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. AGtJST 1975 Sjötugur: Björn Egilsson á Sveinsstöðum Eina sumarstund fyrir löngu sat gestkomandi að snæðingi við eldhúsborðið á Mælifelli í Skaga- firði stór maður og grannur, karl- mannlega vaxinn, fríður í andliti og með hrafnsvart hár sem fór vel. Hann gæddi sér á fagur- hvítum mjólkurvellingi og sýnd- ist nokkuð fáskiptinn. Ég gaf gaum þessum myndarlega manni sem ég hafði aldrei séð fyrr. And- stæðir litir smugu aftur og aftur á víxl gegnum augu mér: hrafn- svart-fagurhvítt, fagurhvítt- hrafnsvart. Eftir að hann fór vissi ég að þetta hafði verið Björn Egilsson á Sveinsstöðum. Sá bær liggur nokkru framar en Mælifell og vestanvert í Tungunni handan Svartár. Björn var vel kunnugur öllu á Mælifellsstað. Þar dvaldist hann í bernsku með foreldrum sinum, Agli Benediktssyni, sem var systursonur Indriða skálds Einarssonar, og Jakobínu Sveins- dóttur, sem var fóstruð upp hjá Birni Þorkelssyni hinum rika á Sveinsstöðum og þáði jörðina síðar að gjöf frá honum. A upp- vaxtarárum var Björn Egilsson einnig á Mælifelli við nám hjá séra Tryggva H. Kvaran, batt mikla tryggð við hann og konu hans, frú önnu Grfmsdóttur Thorarensen, og kvaddi hana fagurlega í ræðu á vinamóti þegar hún hvarf ekkja burt úr sveitinni árið 1941. Þau prestshjón voru ólík, stórbrotin hvort á sinn hátt og ógleymanleg okkur sem kynnt- umst þeim. Björn var riflega þrítugur þegar ég leit hann fyrst á Mæli- felli. Og nú, 7. dag ágústmánaðar 1975, eru liðnir sjö tugir ára frá því að hann sá ljós þessa heims. Hann er enn spengilegur á velli og þreklegur um bol, hefur átt að fagna heilsuhreysti, það ég bezt veit, og notað krafta sína margvís- lega í hollu starfi: búskap, fjár- vörzlu sumar eftir sumar á fjöll- um uppi, sjómennsku á vertíðum syðra fyrr á árum, og eftir miðjan aldur gerðist hann félagsmála- garpur, fór m.a. um tíma með völd oddvita í Lýtingsstaðahreppi og nú skipar hann sæti I öldungaráð- inu, .en svo kallar hann í gamni sýslunefnd Skagfirðinga. Mér skilst hann sé hættur búskap á Sveinsstöðum, og upp á siðkastið er hann með annan fótinn úti á Krók, gott ef hann skrýðir þar ekki prestinn við guðsþjónustur og les bæn I kórdyrum, líkt og hann gerði lengi (og gerir kannski enn) J sóknarkirkju sinni í Goðdölum. Jafnframt fer hann f yfirreiðir um sýsluna til þess að ná saman opinberum gögnum og öðrum skráðum heimildum handa Héraðsskjalasafninu og hefur verið mjög fengsæll. Allt er þetta prýðilegt. Þó er ekki minnst vert um ritstörf Björns sem orðin eru æði mikil að vöxtum. Drjúgur hluti þeirra hefur komið út i blöð- um, tímaritum og á dreif í bókum (safnritum), en mikið liggur óprentað, einkum ræður og ávörp sem hann hefur flutt á mann- þingum. Og dagbók hefur hann haldið samfleytt frá árinu 1946. Þessi ritstörf bera vitni um vök- ulan hug og snúast um marghátt- uð efni: þjóðleg fræði ýmiss konar, mannaminni, ferðir um byggðir og óbyggðir innanlands (Björn er þaulkunnugur á fjöll- um, einkum norðan jökla, en ég held hann hafi aldrei skoðað sig um I útlöndum), guðspeki og annan kostulegan vísdóm, fram- sóknarpólitík og hin og önnur þrætumál líðandi stundar. Hann hefur einnig ritað nokkrar bóka- umsagnir, skemmtipistla, frétta- bréf og fleira og fleira sem ég tíni hér ekki til. En hvert svo sem efnið er, þá stilar Björn yfirleitt vel og hreinlega, oft með kfmi- legum undirtónum ef þeir eiga við, kemur tilvitnunum i annarra manna orð snoturlega fyrir, en stráir þeim ekki líkt og berjum út í skyr að hætti sumra höfunda sem með því vilja tilkynna hvað þeir hafi gluggað í margar bækur, hefur gott auga fyrir smáatriðum og lífgar frásöguefnið með þeim, heldur með lagni á málstað sínum í deiluskrifum, og í frásöguþátt- um styður hann af smekkvísi og i réttu hófi á gamla strengi tung- unnar. Björn er með öðrum orðum höfundur vel verki farinn. I fræðum hagnýtir hann sagnir sem hann nam eða skráði eftir fólki, en hefur lítið grafið upp á söfnum, enda átt óhægt með það, löngum fjarri slíkum stofnunum. Hins vegar á hann heima á Sveinsstöðum stórt safn bóka sem hann hefur dregið að sér í rás áranna, og honum er stuðningur í þvf; minnið er einnig trútt og eftirtektargáfan í bezta lagi. Hefur mér virzt í þau skipti sem ég fylgdist með ritstörfum Björns (löngum greinum eða þáttum) allt að því sem sjónarvottur, að hann ætti efnið, umfang þess, röð og helztu þyngdarpunkta, nokkurn veginn tilbúið i kollinum áður en hann settist niður, en tfmann sinn þarf hann til að festa það á biað, því hann skrifar mjög hægt og bítandi og mótar setn- ingarnar innra með sér áður en hann stingur pennanum niður. Eftir það breytir hann litluf stundum engu. Aðrir hafa annað verklag og gjörólíkt: skrifa hratt það sem i hugann flýgur, um- turna því svo eftir á í endurritun. Sú aðferð hentar ekki Birni. Hafi mér þótt Björn á Sveins- stöðum fáskiptinn þegar ég sá hann fyrst, þá stafar það liklega af missýn ellegar hann hefur ver- ið eitthvað hugsi þá stundina. Og víst er hann maður hugsandi og lundfastur, en allt að einu léttur í viðmóti, frjálsmannlegur i fasi, upplitsdjarfur og hneigður fyrir gamanmál, að minnsta kosti hef ég ekki kynnzt öðru eftir að leiðir okkar lágu saman fyrir nokkrum árum. En það má merki- legt heita um glaðsinna mann af skáldakyni og með brageyra eins og Björn, að ég hef aldrei heyrt eftir hann heila visu frumkveðna, aðeins einn fyrripart og segir hann sjálfur að þá sé upp talið það sem hann hefur ort. Eins er hitt, að hann er elskur að fall- egum söng, samt hef ég aldrei heyrt hann taka lagið. Hann kann að vera söngmaður án þess ég viti, endá fer því fjarri að ég viti allt um Björn, þótt ég sé að reyna að lýsa honum. Björn minn Egilsson nýtur sín ágætlega f mannfagnaði og þarf ekki að hýrga sig á brennivíni til þess. Þann svaladrykk notar hann fremur stopult! f staðinn er hann afar hallur undir neftóbak! Hann er einnig það sem kallað er mikill fundamaður, en með öllu laus við drembilæti og sýndarmennsku, fylgikvilla sumra mikilla funda- manna, og er skemmtilega ótepr- aður hvar sem hann fer. Hann er góður fulltrúi þeirra manna í sveitum landsins sem ganga til dyra eins og þeir eru klæddir og eru menntaðir án formlegrar skólagöngu. Ég verð ekki var þess að skortur slíkrar skólagöngu hafi Framhald á bls. 27 Hafnarfjörður Til seigu 7 herb. einbýlishús við Fögrukinn. Hrafnkell Ásgeirsson hrl. Austurgötu 4. Hafnarfirði. sími 50318. Skólavörðustíg 3a, 2.hæð Simar 22911 og 19255. í Norðurmýrinni Til sölu þrjár Ibúðir hver um 60 fm. í parhúsi við Mánagötu. Allar lausar 1. okt. n.k. Vel og skemmtilega ræktuð lóð. Höfum einnig 2ja herb. íbúð við Lang- holtsveg. Breiðholt 4ra herb. ný og vönduð ibúðar- hæð við Hrafnhóla að mestu full- frágengin. Um 95 fm skemmti- leg íbúðarhæð við Vesturberg. Sameign fullfrágengin. Árbæjarhverfi til sölu nýtiskuleg 5 herb. íbúð- arhæð við Hraunbæ. Tvennar svalir, sér þvottahús á hæðinni. Kópavogur Sérhæðir Til sölu 6 herb. sérhæð á 1. hæð við Grenigrund. Laus nú þegar. 4ra herb. sérhæð í tvíbýlishúsi við Viðihvamm. Vönduð 5 herb. ibúðarhæð við Lyngbrekku. Sem nýtt um 140 fm parhús á góðum stað i Vesturbæ Kópa- vogs. Góð og ræktuð lóð. Laus nú þegar. Jón Arason hdl., málflutnings og fasteignastofa, símar 22911 og 19255. Kvöldsími 21829 A A A A A iSnS> A A A & & A A <£> A A A A a A 1 A A A A A A A A A A A A A 1 A A A A A A A A A A A A A A A A A A A I $ A A A A A A A A ð A A A A A A A A A A A A A A A A A A A * A A A A A A A A A 180 26933 Flókagata, Hafnarfirði Ágætt einbýlishús um fm að stærð hæð og ris. Flisalagt baðherbergi og svalir. Bilskúr. Vikurbakki — í skipt- um Pallaraðhús um 100 fm. að grunnfleti, Húsið er ekki fullkfrágengið að innan, en bíður upp á mikla möguleika. Húsið er frágengið að utan, bilskúr fylgir. Til greina kemur að skipta á 3—4 herbergja ibúð á góðum stað. Raðhús í Fossvogi — í skiptum Höfum í skiptum fyrir sérhæð eða litið raðhús stórglæsilegt palla-raðhús í Fossvogi um 100 fm. að grunnfleti. Húsið er mjög vel innréttað og full- frágengið eign i sérflokki. Upplýsingar aðeins gefnar á skrifstofu okkar. Snorrabraut 140 fm. sérhæð ásamt 80 fm. risi. 6 svefnherbergi, 2 stofur, sérinngangur og bil- skúr. Skógagerði Hæð og ris í tvibýlishúsi samtals um 1 30 fm. 3 svefn- herbergi og bilskúr. Hrafnhólar 4ra herbergja 11 5 fm. góð íbúð á 3. hæð, bilskúrsréttur. Hraunbær 4ra herbergja 1 1 5 fm. íbúð á 2. hæð mjög góð ibúð. Sörlaskjól 3ja herbergja 80 fm. risibúð i ágætu standi. Harðviðareld- húsinnrétting og flisalagt baðherbergi. HJÁ OKKUR ER MIK- IÐ UM EIGNASKIPTI — ER EIGN YÐAR Á SKRÁ HJÁOKKUR? Sölumenn: Kristján Knútsson Lúðvik Halldórsson markaðurinn Austurstrati 6. Simi 26933. A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A A 1 A A A A A A A & A A 1 A A A A A A A A A A A A A A $ $ A A A A A A A AAAAAAAAAAAAAAAAAA EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Raðhús við Hvassaleiti Glæsilegt 9—10 herb. raðhús á mjög góðum stað við Hvassaleiti. Falleg ræktuð lóð. Bílskúr. Allar nánari uppl. á skrifstofunni. (Ekki í síma. EIGNAMIÐLUNIN Vonarstræti 12 Reykjavík. Sími 27711. Verzlunar- og iðnaðarhús Til sölu er verzlunar- og iðnaðarhúsnæði í byggingu við Hverfisgötu. Húsnæðið er götuhæð rúml. 500 fm auk 500 fm lagers, sem getur verið tvískiptur, þannig að verði tæplega 1 000 fm gólfflötur (Lofthæð ca 51/2 m). Önnur hæð er ca. 600 fm. Upplýsingar aðeins gefnar á skrifstofu undir- ritaðs smíi 24940. Lögmannsskrifstofa Knútur Bruun, hrl. Grettisgötu 8, Reykjavík. FASTEIGN ER FRAMTÍÐ 2-88-88 Við Snorrabraut Hæð og ris, 6—7 herb. ibúð í góðu standi. Nýlegar innréttingar. Verksmiðjugler. Sér þvottaherb. með vélum. Hraunbær 130 fm endaíbúð á 2. hæð 4 svefnherb. Suður- og austur- svalir. Öll sameign fullbúin. Fossvogur 4ra herb. ibúð á 2. hæð. Laus nú þegar. Við Eyjabakka 3ja herb. vönduð ibúð. Sér þvottaherbergi. Við Bólstaðahlíð 3ja herb. ca. 100 fm nýleg ibúð á jarðhæð. Hafnarfjörður 3ja herb. rúmgóð ibúð á jarð- hæð í þribýlishúsi. Sérinn- gangur. Sérhiti. Við Laufvang vönduð 3ja herb íbúð á 2. hæð. Sér þvottahús og búr innaf eld- húsi. Öll sameign fullbúin. Stórar suður svalir. í Kópavogi Vesturbæ 1 30 fm einbýlishús á einni hæð. Bílskúrsréttur. Stór lóð. í Vesturborginni 4ra herb. kjallaraibúð. AÐALFASTEIGNASALAN AUSTURSTRÆTI 14. 4. HÆÐ SÍMI 28888 kvöld og helgarsfmi 82219. í skiptum 2ja herb. íbúð við Karfavog í mjög góðu standi. í skiptum fyrir 3ja—4ra herb. ibúð helst I Heimahverfi. Bragagata litil 2ja herb. risíbúð í allgóðu standi. Útb. 1,5—1,7 millj. Langabrekka 3ja herb. jarðhæð um 80 ferm. ásamt bílskúr i skiptum fyrir 3ja herb. i Reykjavik. Vesturberg 3ja herb. ibúð að mestu fullfrá- gengin í lyftuhúsi. Útb. 3—3,5 millj. Grettisgata 3ja—4ra herb. ibúð í steinhúsi. Útb. 2,5 millj. Við Vesturberg (II. hæð) mjög vönduð 4ra herb. ibúð um 100 ferm. Útb. 3,5—4 millj. Vesturberg jarðhæð 4ra herb. íbúð i toppstandi. Útb. 4 millj. Bergþórugata 5 herb. íbúð um 100 ferm. Útb. 3 millj. Skólagerði 1 30 ferm. sérhæð i tvíbýlishúsi. Útb. 4,5 millj. Kópavogur 6 herb. ibúð um 140 ferm. með bíiskúrsrétti. Æsufell 6 herb. ibúð ásamt bilskúr. Borgarnes 2ja og 3ja herb. íbúðir rúmlega fokheldar. Akranes Einbýlishús um 1 56 ferm. ásamt bilskúr. Fullfrágengin lóð, skipti á ibúð i Reykjavík möguleg. Garðahreppur Raðhús um 250 ferm. ásamt bilskúr. Húsið selst tilbúið undir tréverk. Engjasel Raðhús i smiðum til sölu eða í skiptum fyrir 2ja—3ja herb. ibúð. Óskast keypt Einbýlishús á Flötunum eða i Kópavogi ve-ð um 11,5—12,5 millj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.