Morgunblaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. AGUST 1975 smáauglýslngar Filadelfia Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Farfugladeild Reykjavíkur Ferðir um helgina 8 —10 ágúst 1 Þórsmörk 2 Kerlingafjöll og Karlsdrátt- ur. Uppl. á skrifstofunni, simi 24950. Farfuglar, Laufásveg 41. Föstudagur 8. ág. kl. 20. 1. Þórsmörk. 2. Landmannalaugar 3. Hveravellir—Kerlingarfjöll 4. Fagraskógafjall — Eld- borg. Sumarleyfisferðir: 12. —17. ágúst. Hrafntinnu- sker — Eldgjá, — Breiðbak- ur. 14. —17. ágúst. Ferð til Gæsavatna og á Vatnajökul. Ferðafélag (slands, Öldugötu 3 s. 1 1798 og 19533. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi ÞORBJÖRN JÓNSSON Skipasundi 42 lést af slysförum 5. ágúst. Börn, tengdasynir og barnabörn. + Bróðir okkar, ÁSMUNDUR ÁRNASON, lést í Lake Francis, Manitoba, 20. júlí. Guðrún S. Árnadóttir Gunnar Árnason Þóra Árnadóttir Laufey Árnadóttir t Eiginkona min, móðir okkar, tendgamóðir og amma KRISTJANA PÁLÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR Vörum, GarSi verður jarðsungin frá Útskálakirkju föstudaginn 8. ágúst kl. 3. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Slysavarnafélagið. Halldór Þorsteinsson, böm, tengdabörn og barnabörn. Systir min t KRISTJANA BLONDAL Hringbraut 69, lézt i Borgarspitalanum 1 ágúst. Útför hennar fer fram frá Dómkirkj- unni föstudaginn 8 ág kl. 2. e.h. Sigríður Blöndal. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa. SIGURHANS E. VIGNIR Ijósmyndara, Iris Vignir, GuSmundur Hannesson, Ragnar Vignir. Hafdis Vignir. og barnabörn. — Minning Þórður Framhald af bls. 11 Já marga huggaði hann og styrkti á fíann hátt. Alúð hans og um- hyggja kom frá hjartanu, það fundu allir. Það er ekki á mínu færi að ræða störf hans sem læknis, það munú aðrir gera. Ég er hins vegar að tjá þakklæti mitt fyrir góðan vin og félaga. Fyrir störf hans í stjórn Skógarmanna og í stjórn K.F.U.M. og áhuga hans og fórn- fýsi fyrir kristniboðsstarfið. I öllu þessu, sem og trú sinni, var hann heilshugar og einlægur og gladdist af heilum huga við fram- gang þess málefnis. Viljum við hjónin og börn okkar færa Kristínu kveðjur og óskir um blessun Guðs. Bjarni Ólafsson. Við fráfall Þórðar Möller yfir- læknis mun stór hópur manna sakna vinar I stað. Ég er einn af þeim. Þórður setti sterkan svip á samtlð sfna fyrir margra hluta sakir. Auk þess sem hann gegndi mjög umsvifamiklu læknisem- bætti, gaf hann sér tíma til að sinna félagsmálum I rfkum mæli. I stjórn K.F.U.M. var hann um áraraðir og vann því féiagi heill og óskiptur um 40 ára skeið. Fundum okkar Þórðar bar fyrst saman uppi á Akranesi hjá séra Friðrik Friðrikssyni, er þá gegndi prestsembætti fyrir séra Þorstein Briem, er sat á alþingi. Þórður hafði uppgötváð nokkurn skyld- leika með okkur og upp frá því áttum við mikið saman að sælda. Ég minnist margra bréfa sem hann skrifaði mér, þar sem hann lagði ungum dreng ýmis heilræði. Hann hafði sjálfur markað sér ákveðna lífsstefnu, sem hann aldrei hvikaði frá. Það er oft sagt að fátt sé manninum meira virði en góður félagsskapur. Þórður fór aldrei dult með það, að hann áliti K.F.U.M. vera bezta félagsskap, sem ungir menn gætu valið sér, ég tek undir það. Ég geri ráð fyrir að mörgum muni finnast það undarlegt að sjá sæti hans autt, þvf að aldrei lét hann sig vanta á samkomur f sfnu félagi, nema eitthvað óviðráðan- legt kæmi fyrir. Þórður var gæddur óvenju næmu söngeyra og góðri söng- rödd. Þær voru ófáar samkomurn- ar sem hann yljaði samkomugest- um með söng sfnum. Nú er röddin hljóðnuð. En minningin mun lifa í hugum okkar sem þekktum hann björt og fögur. Ég er þakklátur fyrir allar þær ánægjulegu stundir sem við átt- um saman og blessa minninguna um hann.um leið og ég votta Kristfnu konu hans og öðrum að- standendum innilega samúð mfna. Geirlaugur Árnason. Heim, heim, er orð svo signað sætt, það veitir sálu ró. Heim, heim, er orð sem böl fær bætt og blfða skapað fró; í klukknahringing hljómar það f helgra tóna sveim, sem himindagga blessað bað, og býður sálu heim. — Nú, þegar minn kristni bróðir og vinur Þórður Möller, er farinn heim, svo miklu, miklu fyrr, en ég hafði vonað og beðið, þá er sem ég heyri ómþýða rödd hans hljóma fyrir eyrum mér syngjandi Ijóð og lag séra Friðriks um þrána HEIM. Á okkar ungu dögum, er við vor- um um skeið samtímis í Kaup- mannahöfn — hann við fram- haldsnám og ég við viðskiptastörf — þá var þessi angurblíði söngur hans eitt sinn hljóðritaður við orgelundirleik Axel Madsen, góð- vinar okkar og séra Friðriks. Oft hefur þessi söngur skapað blíða fró f huga mínum og hjarta og nú verður þessi hljóðritun mér dýr- mætari, en nokkru sinni fyrr. Vinurinn minn góði er mér nær fyrir bragðið, þótt hann hafi farið á undan heim — til Guðs. Er ég nú lít til baka yfir fjöru- tíu ára samfylgd á veginum og innilega vináttu og sanna um- hyggju þessa trausta bróður, allt frá fyrstu tfð, þá hlýt ég nú að minnast hans f djúpri þökk og virðingu. Leiðir okkar lágu fyrst saman hjá VÆRINGJUM, skátadrengj- um sr. Friðriks. Hann var þá ný- t Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall móður minnar, tengdamóður og ömmu LOVÍSU MARfU PÁLSDÓTTUR, Siglufirði Arnar Herbertsson, Kristjana Aðalsteinsdóttir, Sigrfður Lovísa Arnarsdóttir, Kristjana Arnarsdóttir, Herbert Arnarsson. t Þökkum vinarhug og samúð vegna fráfalls ÞORVALDAR ÞÓRARINSSONAR FriSa Knudsen, Þórarinn Einarsson, og aðrir vandamenn. t Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulega drengsins okkar JÓNASAR BJÖRGVINS ANTONSSONAR Mimisvegi 7, Dalvlk Halla Jónasdóttir Anton Angantýsson, Egill Antonsson. Eiginkona min, móðir og dóttir okkar, systir og mágkona SVANHILDUR ÞORBJÖRNSDÓTTIR, Guðrúnargötu 9, sem lést 3. ágúst verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 8. ágústkl. 15 00 Guðmundur J. Friðriksson, Þorbjörn Jóhannesson, Þorbjörn Guðmundsson, Sigríður H. Einarsdóttir. Elln Þorbjömsdóttir, Einar Þorbjörnsson, Astrid B. Kofoed-Hansen. Othar B. Hansson. Friðrik Guðmundsson Ellas Guðmundsson Jóhann Guðmundsson Sigurður Guðmundsson. t Þökkum hlýhug og samúð við andlát og útför VALBORGAR PÉTURSDÓTTUR Hvalskeri, Patreksfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á gjörgæzludeild Landakotsspit- ala fyrir frábæra hjúkrun og umönnun i veikindum hennar. Pállna Stefánsdóttir Hörður Kristófersson Þórhalla Björgvinsdóttir Pétur Stefánsson Sigurbjörg Sigurbergsdóttir Þórir Stefánsson Arnfrlður Stefánsdóttir Ari fvarsson Guðbjörg Stefánsdóttir og barnabörn. bakaður stúdent, ég nýfermdur. Fyrst ein útilega með fjörmiklum drengjum, sfðan innihaldsrfkir skátafundir, þar sem Þórður, sveitarforinginn, leiðbeindi okk- ur og skapaði hið góða, jákvæða andrúmsloft. Á skemmtifundum skorti ekki á grínaktug innlegg hans. Hann réði yfir mörgum, vel- stilltum strengjum til að slá á, eftir þörfum og kringumstæðum. Á æskudögum hafði ég átt margar góðar stundir hjá séra Friðrik og samverkamönnum hans f yngstu deiidinni í Kristi- legu félagi ungra manna. Þangað inn leiddi Þórður mig aftur í unglingadeildina eftir ferm- inguna og sú leiðsögn réði úr- slitum um lffsstefnu mína. „Hve dýrðleg dvöl er æ/I Drott- ins bræðra sveit/Því yndi verður aldrei lýst/Það aðeins reyndur veit“ segir í einum af söngvum sr. Friðriks. Unglingsárin f þeirri sveit, voru góð og innihaldsrfk. Heilög Ritning, Iestur hennar og útlegging, varð þungamiðja sam- veru okkar. Röskir og fjörmiklir söngvar og góðar og uppbyggi- legar sögur og frásagnir. I öllu þessu kom Þórður mjög við sögu með sinni hlýju, sönnu og list- rænu meðferð á öllu efni, sem hann „söng, sagði og téði“. Og ávexti til heilla hlutu þessar samverustundir að bera f lffi okkar unglinganna. Og það gerðu þær svo sannarlega í lífi okkar margra, sem þeirra nutu — og þeirra sem enn njóta blessunar af þessu sama starfi meðal ungling- anna á höfuðborgarsvæðinu. Og hin Ijúfu unglingsár liðu með ótal glöðum og góðum sam- verustundum, einnig í Kaldárseli, Vatnaskógi og vfðar. Þórður var læknirinn góði f okkar hópi, sem batt um margar skeinur og sár eftir orrahrfðir íþróttanna f sumarbúðunum. Hann kunni einnig skil á öðrum sárum í hug- um og hjörtum hinna ungu vina sinna, sém grétu yfir ósigrum sínum í hinni kristnu lífsbaráttu. Sálusorgari af Guðs náð var hann. Svo kom „alvara lffsins", starf- ið, ábyrgðin, skyldurnar, sem hver heilbrigður þjóðfélagsþegn hlýtur að taka sér á herðar f þágu sfns samfélags. Á þeirri leið var ekki sfðra að eiga Þórð að vini og félaga. En „hvernig sem strfðið þá og þá var blandið", þá gleymdi hann aldrei „hinu eina nauðsyn- lega“, að leita fyrst rfkis Guðs ... Þar sem menn leituðu Guðs og lofsungu Hans nafn — þar var hann, og söng betur en flestir aðrir. Sá söngur mun ekki gleymast okkur sem nutu hans. Tónlistin, hin æðri tónlist, var ríkur þáttur f lffi Þórðar frá fyrstu tfð. Það var unaðslegt að koma á heimili hans og hans góðu eiginkonu, Kristínar, og njóta tónaflóðsins og samfélagsins við þau ... Þar áttu svo sannarlega við orðin: „Og þér munuð með fögnuði vatn (og ljúfa tóna) ausa úr lindum hjálpræðisins". Það voru blessaðar stundir ógleymanlegar. Boðskapur BIBLlUNNAR mót- aði allt líf vinar mfns Þórðar svo mjög, að þegar maður heyrir orð Ritningarinnar: „Verið ávallt glaðir vegna samfélagsins við Drottin ...“ „Verið karlmann- Iegir, verið styrkir, allt hjá yður sé í kærleika gjört ...“ „Verið fastir, óbifanlegir, sfauðugir f verki Drottins ...“ .. til þess að trúarstaðfesta yðar ... geti orðið yður til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists" — þá kemur hans mynd í hugann ... og það er mynd sem geymist og mun verða hvatning, uppörvun og áminning okkur vinunum sem eftir stöndum f því verki sem ekki má niður falla „meðan Guðs náð, + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför ÁRNA B. ÁSMUNDSSONAR, bónda Ásbúðum, Sérstakar þakkir til nágranna hans og sveitunga fyrir þeirra ómetanlegu hjálp og alúð Pállna Ásmundsdóttir Helga Árnadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.