Morgunblaðið - 11.07.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978
5
Framkvæmdastjóm SFV:
Samtakafólk geri
samþykktir um
stöðu flokksins
Framkvæmdastjórn Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna
hefur gert eftirfarandi ályktun
um úrsjit alþingiskosninganna>
„I alþingiskosningunum 25. júní
var uppfyllt samþykkt síðasta
landsfundar Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna um framboð í
öllum kjördæmum. Úrslit kosning-
anna urðu, að Samtökin fengu
engan mann kjörinn og falla út af
Alþingi.
Samtökin gengu nú til kosninga
með rækilegar markaða stefnu en
áður, og frambjóðendur og liðs-
menn flokksins gengu vel fram að
kynna málstað hans. Þótt stefnu-
mótun og málflutningur Samtak-
anna hlyti viðurkenningu margra,
nægði það ekki til að tryggja
flokknum kjörfylgi. Sögðu þar til
sín áhrifin á almenningsálitið af
brotthlaupi einstakra forustu-
manna Samtakanna. í aðdraganda
þessara kosninga munaði mestu,
að eini þingmaðurinn sem Sam-
tökin fengu kjördæmiskjörinn
1974 sneri nú við þeim baki og
ákvað að bjóða sig fram utan
flokka.
Brotthvarf forustumanna úr
Samtökunum í raðir annarra
flokka er árangur af viðleitni
forustumanna þessara flokka til
að liða Samtökin sundur og losna
þannig við áhrif þeirra á fram-
vindu stjórnmála. Þegar þessi
viðleitni hefur borið þann árangur,
að Samtökin hverfa af Alþingi,
blasir við sú niðurstaða, að
flokkakerfið í landinu er í höfuð-
dráttum komið í sömu skorður og
ríktu áður en Samtökin komu til
sögunnar. Þótt Sjálfstæðisflokkur-
inn sé eftir síðustu kosningar
fylgisrýrari en nokkru sinni fyrr,
hefur hann við brotthvarf Sam-
takanna af þingi endurheimt þá
lykilstöðu, að geta myndað þing-
meirihluta með hverjum hinna
þingflokkanna þriggja sem vera
skal. Þetta sannar réttmæti þess
sem Samtökin sögðu í kosninga-
baráttunni, að á árangri þeirra
ylti, hvort styrkleikahlutföll flokk-
anna á þingi veittu tækifæri til
meirihlutamyndunar utan við
hefðbundnar leiðir gamla flokka-
kerfisins.
Einnig hefur atburðarásin þann
skamma tíma sem liðinn er frá
kosningum áréttað réttmæti mál-
flutnings Samtakanna um vand-
ann sem við blasir í þýðingar-
mestu þjóðmálum. Samtökin
bentu ein flokka rækilega á
yfirvofandi stöðvun frystiiðnaðar-
ins, sem nú getur hvern dag orðið
að veruleika. Samtökin hömruðu í
kosningabaráttunni á hættunni
Sem efnahagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar stafar af greiðslustöð-
unni gagnvart viðskiptalöndum og
erlendum lánardrottnum. Undir
þessa viðvörun hefur síðan verið
tekið í mati viðurkennds, erlends
efnahagssérfræðings á fjárhags-
stöðu Islands gagnvart umheimin-
um.
Fékk rekaviðar-
drumb í lærið
llúlmavík 10. júli
TÓLF ára gamall piltur, sem var
til sumardvalar í Stór.u-Árvík í
Árneshreppi, varð fyrir því óláni
8.1. laugardag, er hann var að ná
í rekavið ásamt bóndanum á
bænum, að einn rekaviðardrumb-
urinn rakst í læri hans. I fyrstu
var haldið að pilturinn væri
lærbrotinn, og var hann því
sendur til Reykjavíkur með
sjúkraflugvél. Við nánari rann-
sókn þar kom í ljós, að hann hafði
aðeins hlotið slæmt mar.
Fréttaritari
En þótt benda megi á, að
Samtökin standi málefnalega á
traustum grunni getur það á
engan hátt dregið úr kosninga-
ósigrinum, sem þau biðu. Það er
nú verkefni samtakafólks um land
allt að bera ráð sín saman, ræða
stöðu flokksins að kosningum
loknum og ákveða hverjar
ályktanir skuli af henni dregnar.
Framkvæmdastjórnin beinir því
til félaga, kjördæmisráða og
annarra virkra hópa samtaka-
fólks, að koma saman til umræðu
um þetta efni. Óskar fram-
kvæmdastjórnin að fá í hendur
samþykktir sem gerðar verða á
slíkum fundum, til að hafa til
hliðsjónar við undirbúning lands-
fundar, þar sem teknar verða
ákvarðanir um framtíð samtak-
anna.
Framkvæmdastjórnin þakkar
frambjóðendum Samtakanna og
öllum liðsmönnum, sem lögðu af
mörkum ötult og fórnfúst starf í
kosningabaráttunni. Sömuleiðis
lætur framkvæmdastjórnin í ljós
þakklæti til þeirra mörgu, sem
lögðu fé af mörkum til að standa
straum af kosningastarfinu, af þvi
örlæti að horfur eru á að flokkur-
inn standi skuldlaus eftir, þegar
reikningsskilum kosningasjóðs er
lokið."
Vísnakvöld
í Norræna
húsinu
FÉLAGIO Vísnavinir efnir til vínsa-
kvölds í Norræna húsinu annað kvöld
kl. 20.30. Þar kemur fram sænski
vísnasöngvarinn Frank Johnsson
sem flytur vísur eftir Evert Taube,
Berge Sjöberg og fleiri. Frank er vel
þekktur í heimalandi sínu fyrir
Ijóöræna túlkun sína á vísum. Hann
leikur undir á gítar.
Einnig munu
koma fram Trítiltoppakvartettinn
tvær ungar stúlkur, Bergþóra Ingólfs-
dóttir og Rannveig Fríða Bragadóttir
en þær munu flytja frumsamin lög
Þá mun Arnaldur Arnarson leika
sígild verk á gítar, en hann lauk prófi
frá Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar síðastliðið vor.
Fleiri til
ftesta.*
Okkur hefur loksins tekist að fá aukið rými í Portoroz í ágúst og september.
Þeir sem þegar hafa látið skrá sig á biðlista, hafi samband við skrifstofuna
strax til að staðfesta pantanir. Tekið á móti nýjum pöntunum, en betra er að
panta núna því það er vitað að færri komast að en vilja.
Heilsuræktin
Við minnum á að okkar farþegar komast einir
íslendinga í meðferð í hinni víðfrægu heilsuræktar-
stöð í Portoroz. Þar er beitt viðurkenndum vísinda-
legum aðferðum undir lækniseftirliti, m.a. nálar-
stunguaðferðinni.
Hóteíbaóströnd
Okkar hótel eru hvað ágætust og best staðsett í
Portoroz. Þaðan er örskotsvegalengd á einkabað-
strönd sem er 13 000 m2. Og á hótelunum og í
tengslum við þau eru verslanir, caféteríur, veit-
ingastaðir, næturklúbbur, útidansstaður, bowling,
apótek, hárgreiðslu- og rakarastofa, pósthús og
hverskyns önnur þjónusta.
Skoðunarferðir
Við skipuleggjum margar skoðunarferðir m.a. 2ja
daga ferð til Bled og Klagenfurth, í Austurríki.
Þá eru einnig skipulagðar ferðir til Feneyja og
Trieste á Italiu.
Brottför:
18. júlí biðlisti
2. ágúst aukaferð
10. ágúst biðlisti
23. ágúst aukaferð
31. ágúst biðlisti
13. sept. aukaferð
20. sept. laus sæti
TSamvinnu
feróír
AUSTURSTRÆT112 SÍMI 27077
H LANDSYN
%ll# SKÓLAVÖRÐUSTÍG16
SIMI 28899