Morgunblaðið - 11.07.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978
Vinstri stjóm-
ir duga ekki
Ný vinstri stjórn eða ný tegund af vinstri stjórn, þ.e.
minnihlutastjórn Aiþýðuflokks og Alþýðubandalags, dugar ekki til
þess að leysa þann vanda, sem við er að etja í efnahags- og atvinnulífi
okkar. Þess vegna ættu Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag, sem nú ræða
saman, ekki að eyða miklum tíma í að kanna þessa möguleika. Tvisvar
sinnum frá lýðveldisstofnun hefur vinstri stjórn' verið sett á stofn, í
fyrra skiptið með aðild Alþýðuflokks, í síðara skiptið með aðild Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna. Þessum ríkisstjórnum báðum
misheppnaðist við stjórn efnahags- og atvinnumála.
Vert er að leiða hugann að því hvers vegna þeim mistókst. Ástæðan
er fyrst og fremst sú, að í einn þeirra flokka, sem aðild eiga að vinstri
stjórn, Alþýðubandalagið, er innbyggt óraunsæi í afstöðu til vandamála
íslenzks atvinnulífs. Alþýðubandalagið telur, að endalaust sé hægt að
leggja auknar byrðar á íslenzk atvinnufyrirtæki, þau séu mjólkurkýr,
sem endalaust sé hægt að mjólka. Hjá sumum Alþýðubandalagsmönnum
er þetta einfaldlega óraunsæi, aðrir stefna vísvitandi að því að leggja
einkarekstur í rúst og telja, að þá verði auðveldara að koma á sósíalisma
á íslandi. Þessi afstaða Álþýðubandalagsins veldur því, að ríkisstjórnir,
sem það á aðild að, komast alltaf í ógöngur.
Vinstri stjórnin síðasta kom þjóðarbúi okkar út í það fen, sem það
hefur enn ekki komist upp úr. Þegar nú er talað um myndun nýrrar
vinstri stjórnar að þessu sinni með aðild Alþýðuflokks í stað SFV er
um tímaskekkju að ræða. Slíkar stjórnir hafa tvisvar sinnum fengið
tækifæri til að stjórna landinu og í bæði skiptin mistekizt. Ný vinstri
stjórn er dauðadæmd frá byrjun. Hún mun ekkert ráða við aðsteðjandi
vanda. Þeir forystumenn Alþýðubandalagsins, sem ekkert sjá nema
nýja vinstri stjórn, eru steinrunnir í hugsun. Þeir eru ekki líklegir til
að brjóta blað í landsstjórninni.
Minnihlutastjórn Alþýðuflokks og Alþýðubandalags dugar heldur
ekki. Framsóknarflokkurinn hefur gefið í skyn, að hann sé tilbúinn til
þess að veita slíkri stjórn hlutleysi. Ur því að svo er, hafa Alþýðuflokkur
og Alþýðubandalag tækifæri til að setja slíka stjórn á laggirnar. En
stjórn sem sett er á fót vegna þess, að Framsóknarflokkurinn vill fá
tækifæri til að leiða aðildarflokka hennar til slátrunar, er ekki
gæfusamleg. Þá segja sumir Alþýðubandalagsmenn, að þeir vilji koma
slíkri stjórn á laggirnar án hlutleysisyfirlýsingar Framsóknarflokksins
og hugsa sér að hún semji ýmist við Sjálfstæðisflokk eða
Framsóknarflokk til þess að koma málum fram. I fyrsta lagi er það
stjórnskipulega ómögulegt að mynda slíka stjórn fyrr en fullreynt er
að myndun meirihlutastjórnar tekst ekki. í öðru lagi hefur slík stjórn
— og það á raunar við um vinstri stjórn af gömlu gerðinni líka — ekki
yfir að ráða þeirri þjóðfélagslegu aðstöðu, sem geri henni kleyft að
stjórna með árangursríkum hætti. í þriðja lagi mundi slíkt stjórnarfar
hafa í för með sér óþolandi óvissu, sem mundi setja mark sitt á allt
athafnalíf landsmanna og verða því fjötur um fót. I fjórða lagi mundi
slík stjórn vegna eðli þeirra flokka, sem að henni mundu standa, ekki
hafa nokkra möguleika á að koma fram með raunhæf úrræði til lausnar
vandanum.
Vinstri stjórn af gömlu gerðinni eða hinni nýju, sem nú er talað um,
ræður ekki við vandann, sem við blasir. Hann er hins vegar svo
alvarlegur, að stjórnmálamenn hafa lítinn tíma til þess að leika sér að
hugmyndum um mismunandi samsetningu ríkisstjórna eins og þeir
stunda núna. Þjóðin á kröfu á því, að menn, sem hún hefur kosið til
þess að vinna ákveðin verk í hennar þágu, snúi sér að því. Nú er komið
fram í þriðju viku frá kosningum og engin merki þess enn, að starfhæf
ríkisstjórn sé í sjónmáli. Við svo búið má ekki standa. Vinstri stjórnir
duga ekki. Stjórnmálamennirnir þurfa að snúa sér að raunhæfari
verkefnum.
Framundan er stöðvun frystihúsa víðs vegar um land. Ástæðan er
sú, að þau standa ekki undir þeim útgjöldum, sem á þau hafa verið
lögð. Þótt verðið á Bandaríkjamarkaði sé hátt dugar það ekki til þess
að uppfylla þær kröfur, sem gerðar eru til frystihúsanna. í allan vetur
hafa þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Lúðvík Jósepsson hamast við
að telja fólki trú um, að atvinnuvegirnir geti borgað hærra kaup. Til
þess að herða á kröfunni um þetta hafa þeir félagar sett á
útflutningsbann til þess að koma í veg fyrir, að frystihúsin geti selt
afurðir sínar fyrir peninga sem þau nota til þess að borga fólki laun
og fiskiskipum hráefnið. Rekstrarerfiðleikar frystihúsanna hafa þegar
haft víðtæk áhrif. Þau geta ekki borgað fiskiskipunum hráefnið,
útgerðirnar geta ekki borgað margvíslega þjónustu, sem skipin þurfa
að fá. þjónustufyrirtækin lenda í vanskilum við sína viðskiptamenn og
þannig heldur keðjan áfram. Með sama áframhaldi kemur til stöðvunar
og atvinnuleysis. Fólkið, sem þá getur misst atvinnuna, sendir þeim
félögum Lúðvík og Guðmundi J. vafalaust hlýjar kveðjur.
Afrek Lúðvíks
ogGuðmundar
Sandro Pertini nýkjörinn forseti Ítalíu sver embættiseið.
81 árs sósíalisti
forseti á Ítalíu
SANDRO Pertini, 81 árs gam-
all sósíalisti, hefur verið kjör-
inn sjöundi forseti ítalfu með
yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða og kosning hans er talin
mikill sigur fyrir stuðnings-
menn áframhaldandi samvinnu
kristilegra demókrata og
kommúnista. Kosning Pertinis
er líklega fyrst og fremst sigur
fyrir Giulio Andreotti forsætis-
ráðherra sem mun áreiðanlega
halda áfram störfum.
Embætti forseta á Ítalíu er
valdamikið að nafninu til, en
fyrirrennarar Pertinis hafa
beitt valdi sínu af mikilli gætni.
Forsetinn getur rofið þing og
efnt til nýrra kosninga. Hann
skipar nýjan forsætisráðherra,
sem verður að fá samþykki
þingsins, og hann getur þannig
haft áhrif á stefnu stjórnarinn-
ar. Hann er yfirmaður heraflans
þannig að landherinn og lög-
reglan heyra undir hann og því
ber hann mikla ábyrgð í málum
sem varða lög og reglu.
Sérstakt kjörmannaþing skip-
að 1.011 þingmönnum úr báðum
deildum þingsins og fulltrúum
fylkja Ítalíu kaus forsetann.
Hann varð öruggur um kosning-
una þegar flokkur kristilegra
demókrata ákvað að lýsa yfir
stuðningi við hann. Þegar leið-
togar flokksins gáfu þessa yfir-
lýsingu voru sex dagar liðnir
síðan forsetakosningin hófst og
kristilegir demókratar höfðu
allan tímann barizt gegn Per-
tini, sem formlega var fram-
bjóðandi Sósíalistaflokksins.
Kommúnistar höfðu þegar lýst
því yfir að þeir væru fúsir til að
greiða atkvæði með Pertini.
Til samans hafa kommúnistar
og kristilegir demókratar 718
fulltrúa á þingi og þar við
bættust stuðningsmenn þeirra
frá fylkjunum á kjörmannasam-
kundunni. Pertini fékk að lokum
833 af 995 greiddum atkvæðum,
en þurfti 506 atkvæði til að ná
kosningu. Aðrir frambjóðendur
fengu aðeins 36 atkvæði og
enginn þeirra var opinberlega í
framboði gegn Pertini. Auð
atkvæði voru 121. Ekkja Aldo
Moros, sem hryðjuverkamenn
Rauðu herdeildanna myrtu, fékk
eitt atkvæði.
Ástæðan til þess að leiðtogar
kristilegra demókrata ákváðu að
lýsa yfir stuðningi við Pertini
var sú, að þeir gerðu sér ljóst að
mikið þóf um val forsetans gæti
haft í för með sér harðar
flokkadeilur á kjörmannasam-
kundunni, bundið endi á raun-
verulegt bandalag kristilegra
demókrata og kommúnista, að
minnsta kosti um stundarsakir,
og orðið til þess að stjórn
Andreottis yrði að segja af sér.
Það var Andreotti sem átti
mestan þátt i því að Kristilegi
demókrataflokkurinn kúventi og
kom til liðs við Pertini. Hann
naut stuðnings ritara flokksins,
Benigni Zaccagnini, sem er
einnig stuðningsmaður náinnar
og formlegrar samvinnu við
kommúnista. En á fundi með
öllum kjörmönnum kristilegra
demókrata mættu Andreotti og
Zaccagnini töluverðri mót-
spyrnu og gagnrýni. Upphaflega
voru rúmlega 60 kjörmenn úr
hægra armi flokksins andvígir
stuðningi við Pertini og undir-
rituðu jafnvel skjal á fundinum
með yfirlýsingu um að þeir gætu
ekki sætt sig við hann. Að lokum
tók Zaccagnini af skarið og
tiikynnti að foringjar flokksins
mundu segja af sér ef flokkur-
inn stæði ekki við stuðninginn
við Petrini. Mótstaðan fór þá út
um þúfur.
Meðal þeirra sem sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna munu hafa
verið íhaldsmenn úr röðum
kristilegra demókrata. Jafn-
framt fékk Amintore Fanfani
starfandi forseti, virtasti leið-
togi hægrimanna í Kristilega
demókrataflokknum, sjö at-
kvæði. Fulltrúar tveggja flokka
nýfasista munu einnig hafa
setið hjá. Nokkrir kjörmenn
sósíalista munu líka hafa skilað
auðu. Níu sósíalistar kusu Fran-
cesco De Martini, fyrrverandi
leiðtoga flokksins. Klofningur-
inn í röðum sósíalista á rætur að
rekja til þess, að Pertini hefur
tekið sjálfstæða afstöðu í ýms-*
um málum í flokknum og er á
öndverðum meiði við núverandi
leiðtoga flokksins, Benedetto
Craxi.
Pertini var í 14 ár í fangelsi
og útlegð vegna baráttu sinnar
gegn fasistum og nazistum og er
kunnastur fyrir andfasisma
sinn og þátttöku sína í and-
spyrnuhreyfingunni. Hann hef-
ur einnig orð fyrir að vera
strangheiðarlegur — og sá
eiginleiki er vel þeginn á Italíu
um þessar mundir þar sem
fráfarandi forseti, Giovanni
Leone, varð að segja af sér fyrir
rúmum hálfum mánuði vegna
ásakana um fjármálamisferli og
skattsvik.
Vinsældir Pertinis jukust
verulega fyrir skömmu þegar
hann kom fram í framhalds-
myndaþætti í sjónvarpinu er
byggðist á hlutverki því sem
hann lék sem uppreisnarmaður
gegn fasistum. Pertini er fædd-
ur í Savona á ítölsku Rívíerunni
og er lögfræðingur að mennt, en
hefur fengizt talsvert við blaða-
mennsku og var um tíma rit-
stjóri sósíalistamálgagnsins
Avanti.
Afskipti Pertinis af stjórn-
málum hófust á árunum fyrir
fyrri heimsstyrjöldina og hann
var einn af stofnendum Sósíal-
istaflokksins. Hann hefur æ
siðan verið í hópi helztu forystu-
manna ítalskra vinstri manna.
Hann hefur verið þingmaður í
fulltrúadeildinni allt frá stofn-
un lýðveldisins 1946 og var
forseti fulltrúadeildarinnar tvö
kjörtímabil.
Pertini hefur alltaf verið
þekktur fyrir að vera sjálfstæð-
ur í skoðunum og haga sér eftir
því, en þó er kristilegum demó-
krötum og kommúnistum, sem
stjórna landinu, engin hætta
talin stafa frá honum. Sam-
kvæmt málefnasamningi flokk-
anna er stjórnin eingöngu skip-
uð kristilegum demókrötum, en
stefnan er mörkuð að höfðu
samráði við kommúnista og þrjá
aðra flokka, sem styðja stjórn-
ina á þingi. Pertini er fylgjandi
þessu fyrirkomulagi.
Þar við bætist að í Sósíalista-
flokk«um er Pertini ekki náinn
bandamaður Craxis, leiðtoga
flokksins, og það þótti kristileg-
um og kommúnistum skipta
mestu máii í sambandi við
kosningu hans. Craxi vill yngja
upp flokk sósíalista, gera hann
að andstöðuflokki kommúnista í
líkingu við flokk Sósíaldemó-
krata í Vestur-Þýzkalandi og
láta Sósíalistaflokkinn leysa
kommúnistaflokkinn af hólmi
sem helzti samstarfsflokkur
kristilegra demókrata.
Útgefandí hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og afgreiðsla Aöalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, aími 22480.
Áakriftargjald 2000.00 kr. ó mánuði innanlands.
í lausasölu 100 kr. eintakiö.