Morgunblaðið - 11.07.1978, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978
STAOAN í 2. deild er þessi eftir leiki
helgarinnar:
KR — Reynir 8:1
Haukar — Ármann 2:0
Austri — Þór 1:0
ÍBÍ — Fylkir 2:1
Þróttur — Völsungur 3:2
KR
Austri
Þór
Haukar
Fylkir
Þróttur
Ármann
isafjörður
Reynir
Völsungur
9 6 2 1 21:3
9 4 2 3 7:6
9 4 2 3 8:8
9 3 3 3 11:9
9 4 14 1&9
9 3 3 3 12:15
9 4 0 5 13:14
8 3 2 3 9:10
10 3 1 6 9:16
9 2 2 5 8:16
Markhæstu menn:
Sverrir Herbertsson KR
Þráinn Ásmundsson Árm.
Stefán Örn Sigurösson KR
Bjarni Kristjánss. Þrótti
• Gífurleg faKnaðarlæti brutust út á Eskifjarðarvelli eftir sigur
Austra yfir Þór. Hér sjást leikmenn Austra umkringdir stuðnings-
mönnum. Ljósm. Ævar Auðbjörnsson.
Einstefna hjá KR
KR-LIÐIÐ bætti enn einum sigri
f safnið í 2. deildar keppninni en
það gersigraði Reyni úr Sand-
gerði á Laugardalsvellinum í
gærkveldi með 6 mörkum gegn 1.
Léku KR-ingar oft mjög vel og
nýttu marktækifæri sin svo til að
fullnustu. Þrátt fyrir að Reynis-
menn töpuðu stórt gáfust þeir
aldrei upp og eiga þeir hrós skilið
fyrir góða baráttu í leiknum.
Töluverð harka var í leiknum og
áttu báðir aðilar sök á því. Voru
þrír leikmenn bókaðir.
Leikurinn hafði aðeins staðið í
sex mínútur er Borkur Ingvarsson
iskoraði fyrsta mark KR eftir að
þvaga hafði myndast inni í víta-
teignum, Reynismenn náðu ekki að
hreinsa frá markinu og Börkur
náði til knattarins og skoraði.
Fimm mínútum síðar kemur svo
góð fyrirgjöf fyrir mark Reynis og
Sverrir Herbertsson nær að skjóta
góðu skoti rétt innan vítateigsins
og skora. Var skot Sverris fast og
knötturinn hafnaði alveg úti við
stöngina.
Þannig var staðan í leikhléi.
Strax á fyrstu mínútu síðari
hálfleiksins fá svo Reynismenn á
sig hálfgert klaufamark sem
skrifa verður á markmanninn
Vilhelm Fredrikssen, Sverrir skor-
aði í bláhornið en markmaðurinn
var illa staðsettur, hann náði að
bruna upp kantinn og lét skotið
ríða af vei utan vítateigsins,
skorar svo fjórða markið, mark-
maðurinn kastaði sér en missti
knöttinn klaufalega undir sig og í
markið. Reynismenn héldu áfram
ótrauðir og á 70. mínútu leiksins
uppskáru þeir mark og var þar að
verki Ari Haukur Arason. Kom
markið fyrir hálfgerð mistök í
KR-vörninni og hefði Magnús
markvörður getað bjargað ef hann
hefði lagt sig fram.
A 72. mínútu er dæmd víta-
spyrna á Reyni eftir að KR-ing var
illa brugðið innan vítateigsins.
Ottó Guðmundsson fyrirliði KR
framkvæmdi spyrnuna en mark-
vörður Reynis, Jón Ólafsson, gerði
sér lítið fyrir og varði. Vilhelm er
aftur á ferðinni fyrir KR á 75.
mínútu og skorar laglega. Síðasta
mark leiksins skorar svo Sverrir
Herbertsson og náði þar með að
skora þrennu. Var síðasta mark
leiksins jafnframt það fallegasta.
Skoraði Sverrir með góðu vinstra
fótar skoti rétt innan vítateigs-
hornsins, óverjandi fyrir mark-
vörð Reynis. Bestu menn KR í
þessum leik voru þeir Sverrir
Herbertsson og Ottó Guðmunds-
son í vörninni. Þá átti Stefán Örn
Sigurðsson góða spretti inn á milli.
Hjá Reyni voru þeir Þórður
Jóhannsson og Hjörtur Marelsson
bestir. Liðið í heild barðist vel, en
varnarleikurinn var frekar slakur
á kostnað þess hve sókndjarfir
Reynismenn voru. Við það opn-
aðist vörnin oft illa. þr
-—
...
• Sverrir Herbertsson sést hér skora eitt þriggja marka sinna gegn
Reyni í gærkvöldi. Ljósm. Król.
Enn vinn-
ur Austri
AUSTRI sigraði Þór frá Akureyri 1«0 á
Eskifjarðarvelli á sunnudag. Sigur Austra var
verðskuldaður og hefði getað orðið stærri. Hefði
3*1 markatalan gefið réttari mynd af gangi
leiksins. Austri átti fleiri og hættulegri færi í
leiknum.
Þórsarar byrjuðu leikinn af
krafti án þess þó að skapa sér
veruleg marktækifæri. Smám
saman náðu Austramenn meiri
tökum á leiknum og markfæri
þeirra voru mun opnari. I hálfleik
var staðan 0:0.
Sama var í upphafi seinni
hálfleiks. Þór sótti heldur meira
til að byrja með en sóknin
hjaðnaði fljótt og á 7. mínútu
seinni hálfleiks er Austri var í
sókn fékk Sigurður Gunnarsson
góða sendingu utarlega í vítateig.
Tók hann knöttinn á brjóstið og
niður og skaut þrumuskoti, sem
markvörður Þórs átti ekki mögu-
leika á að verja. Fallegt mark og
vel að því unnið. Austri var svo
nær því að skora aftur heldur en
Þór að jafna. Til dæmis átti
Steinar Tómasson ekki annað eftir
en koma boltanum í tómt mark
Þórs en knötturinn lenti í utan-
verðri stöng. Á lokamínútunum
sótti Þór meira en án árangurs.
Sem sagt verðskuldaður sigur
Austra og menn héldu ánægðir
heim á Eskifirði.
Beztir Austramanna voru Hall-
dór Árnason, Steinar Tómasson og
Sigurður Gunnarsson og Benedikt
markvörður stóð vel fyrir sínu að
vanda. Hjá Þórsurum voru Sigurð-
ur Lárusson og Sigþór Ómarsson
beztir.
Ágætur dómari leiksins var
Einar Helgason frá Akureyri.
Veður var ágætt til knattspyrnu,
hægviðri en skýjað.
— Ævar.
Haukar höfðu bet-
ur í leikleysunni
IIAUKAR unnu góðan sigur yfir
Ármanni á Hvaleyrarholtsvelli í
gærkvcldi með því að skora eitt
mark í hvorum hálfleik. Leikur-
inn var harður og langtímum
saman í háloftunum. einkum þó í
si'ðari hálfleik. en í þeim fyrri brá
af og til fyrir þokkalegum
samleik.
Ármenningar virkuðu sleipari
til að byrja með, en dæmið hjá
þeim gekk ekki upp og Haukar
fóru smám saman að koma meira
inn í myndina og á 22. mínútu átti
Lárus Jónsson gott skot, sem Egill
Steinþórsson varði meistaralega,
og á 32. mínútu fengu Haukar
dæmt vafasamt víti, sem Ólafur
Jóhannesson skoraði örugglega úr.
Ármenningar hefðu átt að skora
mark eða mörk í hálfleiknum,
þannig átti Einar Guðnason þrjú
alger dauðafæri, en alltaf skaut
hann naumlega framhjá.
Síðari hálfleikur var hin ógur-
legasta leikleysa og linnti varla
flautublæstri dómarans vegna
rangstöðudóma á báða bóga. En
það var blásið í flautuna fyrir
fleiri sakir en rangstöðu og á 17.
mínútu var Kristinn Pedersen
rekinn af leikvelli fyrir að brjóta
gróflega á Guðjóni Sveinssyni.
Skömmu áður hafði Lárus Jónsson
skorað annað mark Hauka eftir
grátbrosleg mistök Egils mark-
varðar. Hann hristi þó af sér
slenið með stórkostlegri mark-
vörslu síðar í leiknum, end áttu
Ármenningarnir í vök að verjast
vegna manneklu. Haukar voru þó
lygilega snjallir að koma sér í
klandur og skall hurð nokkrum
sinnum nærri hælum við mark
þeirra, einkum vegna eigin mis-
taka.
En gæfan var ekki með
Ármenningum og lyktaði leikleys-
unni því með dýrmætum sigri
Hauka, 2:0.
— gg-
Markaregn eins og venjulega í 3. deild
MIKIÐ var um leiki í 3.
deild um helgina að
vanda og fara úrslit og
dálítið spjall um þá hér
á eftir«
Óðinn — Skallagrimur 5-1
Óðinn reif sig upp eftir 1-13
tapið fyrir Víkingi um síðustu
helgi og var þar þyngst á metun-
um, að þeir gátu nú stillt upp sínu
sterkasta liði, en margir lágu með
einhverja pest, er þeir fóru til
Ólafsvíkur fyrir viku. Óðinn rass-
skellti Skallagrím, sem náði þó
forystu í leiknum með marki
Ævars Rafnssonar, en Jóhann
Svæarsson jafnaði fyrir hlé. í
síðari hálfleik var um einstefnu að
ræða og þá bættu þeir Valur
Bragason (2), Unnar Valdimarsson
og Ingimundur Magnússon mörk-
um við fyrir Óðinn.
Snadell — Afturelding 1-1
Það kom mjög á óvart, að
Snæfell átti mun meira í leiknum
gegn Aftureldingu, sem voru
heppnir að sleppa með eitt stig úr
leiknum. Jóhann P. Sturluson náði
forystunni fyrir Aftureldingu um
miðjan síðari hálfleik, en Snæfell
jafnaði verðskuldað á lokamínút-
unni með marki Lárusar
Svanlaugssonar.
Svarfdælir — Höfðstrendingar
5-2
Svarfdælir sóttu mun meira og
sigurinn því sanngjarn. Jóhann
Bjarnason náði forystunni fyrir
heimamenn og síðan skoraði Al-
bert Gunnlaugsson, áður en að
Þröstur Gunnarsson minnkaði
muninn fyrir Höfðstrendinga úr
vafasamri vítaspyrnu. Svarfdælir
svöruðu fyrir hlé með marki
Óskars Kristópherssonar, einnig
úr vafasömu víti. í síðari hálfleik
skoruðu Gestur Matthíasson og
Björn Friðþjófsson fyrir heimalið-
ið, en Bjarni Konráðsson fyrir
gestina með skoti af 30 metra færi.
Víðir - Hekla 7-1
Það blés byrlega fyrir Heklu, er
Kjartan Magnússon skoraði fyrir
liðið í byrjun leiksins. En áður en
yfir lauk, var leikurinn orðin
hreinasta martröð fyrir liðið, því
að Víðismenn hefndu fyrir markið
með því að svara sjö sinnirm.
Guðmundur Knútsson skoraði
þrennu í leiknum, en Guðjón
Guðmundsson skoraði tvö. Þeir
Daníel Einarsson og Jónatan
Ingimarsson skoruðu hin mörkin
tvö.
Bolungarvík — Stjarnan 3-2
Enn tapar Stjarnan, nú fyrir
Bolungarvík. Meðal þeirra sem
skoruðu voru Hermann Þórisson
og Hjörleifur Guðfinnsson fyrir
heimaliðið og fyrra mark Stjörn-
unnar skoraði Ingólfur Ingólfsson.
USVS — Þór 0-1
Leikur þessi skiptist milli hálf-
leikja, heimamenn sóttu meira í
fyrri hálfleik, en í þeim síðari voru
Þórsarar harðskeyttari og skoruðu
þeir þá eina mark leiksins. Það
gerði Eyþór Björgvinsson með
fallegum skalla um miðjan
hálfleikinn.
Grindavík — Selfoss 3-2
Grindvíkingar voru heldur
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, en
engu að síður voru það Selfyssing-
ar. sem skoruðu tvívegis eftir
mistök í vörn Grindavíkur. Það
voru Eiríkur og Heimir Bergsson
sem skoruðu mörk Selfoss. í síðari
hálfleik æstist leikurinn til muna
og skoraði fyrst Sigurgeir
Guðjónsson úr víti fyrir heimalið-
ið og aðeins fimm mínútum síðar,
eða á -25. mínútu, jafnaði Einar
Jón Ólafsson metin með skalla-
marki. Þegar 7 mínútur voru til
leiksloka, skoraði Guðmundur
Ármannsson það sem reyndist
vera sigurmark Grindvíkinga. En
það munaði mjóu, því að fimm
mínútum fyrir lok leiksins, fengu
Selfyssingar dæmda vítaspyrnu,
en illa fóru þeir með hana óg hún
hafnaði fjarri markinu.
Léttir — Njarðvík 0-2
Leikur þessi var í jafnvægi að
nokkru leyti, en Njarðvíkingar
voru þó, ef nokkuð, ívið sterkari og
sigurinn því ekki óverðskuldaður,
þó hann hafi verið í stærra lagi.
Mörkin skoraði Haukur Jóhanns-
son með skyndiupphlaupum um
miðjan síðari hálfleik.
Leiftur — Tindastóll 2-1
Frekar slakur þótti leikur þessi
vera og jafntefli hefði gefið réttari
mynd af gangi leiksins. En það
voru heimamenn, sem skoruðu úr
færum sínum og frá þeim sjónar-
hóli var sigurinn sanngjarn. Öll
mörk leiksins voru skoruð snemma
í síðari hálfleik, en þá skoruðu
Kolbeinn Ágústsson (víti) og
Guðmundur Sigurðsson fyrir
Leiftur, en Karl Ólafsson svaraði
fyrir Tindastól.
Leiknir — Vfkingur 1-5
Þessi leikur var alger einstefna
á mark Leiknis og sigurinn hefði
getað orðið mun stærri með
nokkurri heppni. Það voru þeir
Jónas Kristóphersson (2), Sigurð-
ur Þórólfsson, Atli Alexandersson
og Logi Ulfljótsson sem skoruðu
mörk Víkings, en Leikni tókst
aðeins einu sinni að svara fyrir
sig.
“ gg-