Morgunblaðið - 11.07.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978
21
ekki. Atli Eðvaldsson henti sér
fram og náði að skalla eftir góða
fyrirgjöf frá Jóni Einarssyni er
knötturinn sleikti stöngina utan-
verða. Tilraunir Framara til að
sækja voru hálf máttleysislegar,
þó voru þeir óheppnir er Gunnar
Guðmundsson átti skot í stöng á
86. mínútu var það svo til eina
marktaekifaeri Fram sem talandi
er um í síðari hálfleiknum.
Valsliðið lék þennan leik mjög
vel og ekki verður annað sagt en
að þeir hafi unnið verðskuldaðan
sigur. Vörnin virkaði að vísu
svolítið óörugg framan af en
lagaðist og var sterk fyrir með
Dýra Guðmundsson sem besta
mann. Þá var Sigurður Haralds-
son mjög óöruggur í markinu. Á
miðjunni voru þeir Atli Eð-
valdsson og Hörður Hilmarsson
mjög góðir og sívinnandi. Bestu
menn liðsins voru þó tvímælalaust
framlínumennirnir þeir Jón Ein-
arsson og Guðmundur Þorbjörns-
son, ekki aðeins það að þeir
skoruðu mörk Vals heldur gerðu
þeir ávallt mikinn usla í vörn
Fram með hraða sínum og útsjón-
arsemi. Léku þeir báðir þarna sinn
besta leik í sumar.
Framarar sýndu það í fyrri
hálfleiknum að þeir geta leikið
góða knattspyrnu. En það kom líka
í ljós að leikur liðsins getur dottið
niður á frekar lágt plan. Mikið
vopleysi kom í liðið eftir þriðja
mark Vals og baráttan var í
lágmarki eftir það. Bestu menn
liðsins voru þeir Ásgeir Elíasson
og Sigurbergur Sigsteinsson.
Með þessu tapi er Fram senni-
lega búið að missa af strætisvagn-
inum og kemur ekki til með eð
geta veitt ÍA og Val neina keppni
um íslandsmeistaratitilinn. Fram
er nú með sjö stigum minna en
Valur og sex stigum minna en IA.
f stuttu málit
fslandsmótiA 1. deild. LauKardalsvollur 9.
júlí
Valur — Fram 3—0 (2—0)
Mdrk Valst Guðmundur Þorbjörnsson á 35.
mínútu ok i 44. mínútu. Jón Einarsson á 46.
minútu.
ÁminninKt Kristinn Atlason Kula spjaldið.
Áhorfendun 1750.
.
mm
Skagirm marði sig-
ur á elleftu stundu
HÖRKULEIK ÍA og Þróttar í besta hugsanlega fótboltaveðri, lauk með sigri ÍA, 3—2,
og var sigurinn sanngjarn, en aðeins rétt svo, því að Þróttarar voru engin lömb að leika
við og komu reyndar enn á óvart fyrir sterkan leik þrátt fyrir tapið. Með sigri sínum
á Skaganum, lafa ÍA enn í skottinu á Valsmönnum og bíða þess eins að þeir tapi stigum,
svo að spenna geti læst sig í keppnina.
Heimamenn voru varla byrjaðir
að spretta úr spori, er knötturinn
lá í netinu að baki Jóns Þorbjörns-
sonar eftir skot Ágústs Hauksson-
ar. Halldór Arason braust þá
niður vinstri vænginn og sendi
knöttinn fyrir, þar sem vörn
Skagamanna mistókst að hreinsa
frá og hrökk knötturinn til Ágústs
sem var í góðu færi og urðu ekki
á nein mistök. Þetta átti sér stað
á 4. mínútu og aðeins þrem
mínútum síðar fengu Þróttarar
dæmda aukaspyrnu nokkru fyrir
í vítateig Fram og hörkuskalli hans fór rétt yfir þverslána. Kristinn
egja hættunni frá.
Guðmundar
bragðið
ÍA—Þróttur 3:2
Texti og mynd:
Guömundur Guðjónsson
utan vítateig Skagamanna og
skaut þá Páll Ólafsson þrumuskoti
í stöngina og út. Er ógerningur að
spá hvernig farið hefði, hefði skot
þetta hafnað í netamöskvunum.
Svo sem lesa má, voru Þróttarar
mun sprækari í byrjun, en smám
saman fóru meistararnir að láta
til sín taka. Þeim varð þó lítið
ágengt gegn sterkari vörn Þróttar
og raunar kom jöfnunarmarkið
nokkuð á óvart, þegar það loks
kom á 30. mínútu. Það var á því
heppnisstimpill, þar sem fast skot
Jóns Áskelssonar frá vítateig,
breytti dálítið um stefnu er það
snart varnarmann. Áfram sóttu
Skagamenn og ekki hefði verið
ósanngjarnt að þeir hefðu náð
fórystunni, er Matthías skallaði að
marki úr dauðafæri, en Rúnar
varði mjög vel.
Skagamenn hófu síðari hálfleik-
inn á því að sækja og það voru
aðeins liðnar um 10 mínútur,
þegar þeir höfðu náð forystunni
með fallegu marki Péturs Péturs-
sonar, sem skaut föstu skoti utan
úr vítateig eftir hornspyrnu Karls
Þórðarsonar. Dýrðin stóð aðeins í
fimm mmínútur, en þá bitust
Halldór Arason og Guðjón Þórða-
son um knöttinn við vítateigslín-
una og lauk þeim sviptingum með
því að Halldór lá í valnum og
dómarinn dæmdi umsvifalaust
vítaspyrnu, frekar strangur dómur
að margra áliti. En það tjóar ekki
að deila við dómarann og Páll
Ólafsson skoraði úr vítinu af
öryggi. Skagamenn lögðu nú allt
kapp á sóknina, en lengi vel leit út
fyrir að úrslitin yrðu jafntefli, sem
ekki hefði verið ósanngjarnt í
sjálfu sér. Skagamenn voru nokkr-
um sinnum nærri því að skora,
bæði Pétur og Kristinn fengu færi
og Árni Sveinsson átti skot í
þverslá. Sigurmarkið kom þegar
aðeins 3 mínútur voru til leiksloka,
en þá tók Karl Þórðarson horn-
spyrnu frá vinstri, síðan skoppaði
boltinn af einu höfði á það næsta
inni í vítateignum og að lokum á
kollinn á Jóhannesi Guðjónssyni
sem skallaði hann rakleiðis í netið.
Það var sterkur miðvallar- og
varnarleikur sem skóp ÍA sigur-
inn. Jóhannes og Jón Gunnlaugs-
son voru mjög góðir í vörninni og
Jón Áskelsson og Karl Þórðarson
BBawli
^iI4 41
.. .. * * ■ i:. .
m
. . sy."* j
-v"." ••■:-*■ * -•
’V:^:
á miðjuni. Frammi átti Pétur góða
spretti.
Hjá Þrótti skarar enginn fram
frekar en fyrri daginn, en vert er
þó að hrósa miðvörðunum Jóhanni
og Sverri Einarssyni. Úlfar átti
mjög góðan leik, einnig þeir
Halldór Arason og Páll Ólafsson,
Halldór er leikmaður sem lítið er
í sviðsljósinu, en er engu að síður
maðurinn að baki margra marka
Þróttar, m.a. beggja gegn ÍA. Páll
er sterkur og leikinn, en mætti að
ósekju gefa boltann oftar á
samherja sína. En það eru auka-
spyrnur hans sem athygli hafa
vakið, mikil þrumuskot af 30—35
metra færi. I síðustu þrem leikjum
Þróttar hefur hann tekið þrjár
slíkar, ein rataði eftirminnilega í
netið gegn IBK og hinar tvær
hæfðu stangirnar.
Leikinn dæmdi Arnar Einarsson
og féllu margir dóma hans í
slæman jarðveg meðal áhorfenda,
enda eru dómarar aldrei vinsælir
ef þeir dæma ekki öll vafaatriði
heimaliðinu í hag. Hitt er svo
annað mál og þótti undirrituðum
verra, hvað hann leyfði mikla
hörku án þess aö lyfta gula
spjaldinu svo oft sem einu sinni.
1 stuttu málii
Akranesvöllur. 8. júlí. 1. deild. lA—Þrótt-
ur 3-2(11)
Mörk ÍA. Jón Áskelsson (30), Pétur
Pétursson (55) og Jóhannes Guðjónsson
(87).
Mörk Þróttar. ÁkúsI Hauksson (3) ok
Páll Ólafsson (vfti 60).
ÁminninKar. EnKÍn
Áhorfendur. 682
Dómarí. Arnar Einarsson
••- " ■ . ■ , .
< a***- **
I i -
>•"'•.,% ■ ■•.,
• Sigurmark 1A. 3 mínútum fyrir leikslok. Eftir mikinn hamagang í vitateignum. tekur Jóhannes Guðjónsson (lengst til ha'gri) af skarið
og skallar í netið án þess að þrír Þróttarar á marklinunni komi nokkrum vörnum við.