Morgunblaðið - 11.07.1978, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978
37
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100 KL 10 — 11
FRA MANUDEGI
Refsilöggjöfin og aðbúnaður í
íslenzkum fangelsum er smánar-
blettur á þjóðinni.
Eg skora á nýkjörna alþingis-
menn að fara og kynna sér þetta
allt rækilega og láta ekki blekkja
sig, þegar þeir fara á stjá og
heimsækja „betrunarhúsin". Það
er ekki síður nauðsyn að rannsaka
þessi mál niður í kjölinn, en að
rannsaka hin ýmsu afbrotamál,
sem upp koma.
Áhorfandi.“
• Sjónvarpið enn
Hér fara á eftir kaflar úr bréfi
sem fjallar um sjónvarpið; og er
enn verið að ræða nokkuð um
sumarfrí stofnunarinnar:
„Að sjónvarpið skuli lokað í
heilan mánuð er of langt gengið,
það hlýtur að vera hægt að skipta
sumarfríum eins og hjá öðrum
ríkisfyrirtækjum fyrir utan það að
efnisval sjónvarpsins er of ein-
hæft.“ Bréfritari telur að bæta
þurfi við annarri rás og efni frá
Norðurlöndum þurfi að vera mun
meira en nú er, sportveiðiþættir
þyrftu að vera, er fjölluðu um
„skytterí" og aðrar veiðar og fleiri
kúrekamyndir. Telur bréfritari að
vegna þess hve hér sé lítið við að
vera nema sofa, vinna og borða
verði sjónvarpið að gera sér far
um að hafa ofan af fyrir fólki og
helzt ekki loka í mánuð að
sumrinu, frekar væri það e.t.v.
réttlætanlegt síðar t.d. ágúst eða
september.
Öllu meira var ekki fjallað um
sjónvarpið og verður látið staðar
numið hér að sinni.
• Frímerki til
hjálpar
Hollenskur maður Mettus
Wenteler að nafni skrifaði Mbl. og
biður hann að sér séu send
frímerki sem hann og félagar hans
noti síðan til að verða sjúklingum
og öðrum til hjálpar: Segist hann
starfa í „nafnlausu félagi" er hafi
þetta markmið að hafa ofan af
fyrir sjúklingum. Hann segir:
„Þegar við heimsækjum
sjúklingana að höfðu samráði við
lækni höfum við reynt að færa
þeim einhverja ofurlitla gjöf og
hefur það sannazt að gera má
mikið með því einu að gefa notuð
frímerki. Umslag fullt af notuðum
frímerkjum getur veitt einum eða
fleiri sjúklingum ánægju í einn
eða fleiri daga við að raða
merkjum, leysa þau upp o.s.frv. og
hafa mörg hollenzk fyrirtæki
þegar tekið vel í þessa bón okkar
og senda okkur reglulega frímerki.
Við höfum einnig áhuga á að fá
erlend merki og því leitum við nú
út fyrir land okkar og spyrjum þá
sem þessar línur lesa: Hvað verður
um þau merki sem koma á
skrifstofu þína? Ef þeim er hent,
vinsamlegast reynið að verða við
þessari bón okkar, því hvert merki
er vei þegið, aðalatriðið er að þá
hafa sjúklingarnir eitthvað að
gera og einmanaleikinn gleymist.
Mattus Wenteler.
Driesprong 16,
1688 WB Nibbixvoud,
Netherlands."
20. Hd8+! og svartur gafst upp.
Hann tapar drottningunni hvort
sem hann leikur 20 ... Hxd8, 21.
Hxd8+ — Bxd8, 22- Dxc4 eða 20...
Bxd8, 21. Rd6+
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessir hringdu . . .
• Helgarvinnu-
bannið
Maður í fullri vinnu vildi fá að
lýsa skoðun sinni á því helgar-
vinnubanni sem nú stendur yfir
sums staðar á landinu, þar sem
kveðið er á um að ekki skuli unnið
t.d. í fiskverkunarhúsum um
helgar:
— Mér finnst þetta yfirvinnu-
bann eða helgarvinnubann rétt að
mörgu leyti, en það sem ég er
óánægður með er að menn skuli
ekki samt sem áður getað ráðið því
hvort þeir vinna eða ekki. Því á
verkalýðsfélagið að ráða því? Mjög
margir vilja vinna alla þá auka-
vinnu sem hægt er og því ætti fólki
að vera ieyfilegt að velja um það
sjálft og fyndist mér nægiiegt að
verkalýðsfélögin beindu tilmælum
til félagsmanna sinna um þetta
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákþingi Lettlands í fyrra
kom þessi staða upp í skák þeirra
Arkhipkins, sem hafði hvítt og
átti leik, og Gutmans. Síðasti
leikur svarts var 19 ... Dc2 — c4??
Svarið kom um hæl:
efni en settu ekki nein bönn. sínum á sumrin og vill því vinna
Benda má einnig á að margt mikið og getur þetta stundum haft
námsfólk vinnur fyrir kostnaði slæm áhrif á tekjuöflun þess.
1977
/i.iA ei iji i
' McNaught Synd., Inc.
ANNAÐ stærsta skip. sem komið hefur í höfn í Vestmannaeyjum. fór
þaðan í fyrradag. Skipið. Apple Blossom, er skrásett í Líberíu og siglir
því undir Líberíufána. Það er 7 þúsund brúttórúmlestir og 141 metri
að lengd. Stærsta skip. sem komið hefur í höfn í Vestmannaeyjum,
er Regina Maris sem er 156 metrar að lengd. Apple Blossom lestaði
loðnuhrogn, en í íslandsferðinni tók það ennfremur hvalkjöt. sem á
að fara á Japansmarkað. — Ljósm.i Sigurgeir.
IB-lánin gáfust vel:
25% irmlánsaukning
hjá Iðnaðarbankanum
„ÁRANGURINN af IB-lánunum
er sannast sagna betri en við
bjuggumst við þegar ráðizt var í
þetta,“ sagði Bragi Hannesson,
bankastjóri Iðnaðarbankans,
þegar Mbl. spurðist fyrir um það
hver árangur hefði orðið af
sparilánum þeim er bankinn tók
upp fyrir nokkru.
Bragi vildi ekki gefa nákvæmar
upplýsingar um fjölda reikninga
eða heildarinnstæður, en hann
nefndi sem dæmi að innlánsaukn-
ing bankans nú væri orðin um 27%
eða samtals 1.300 milljónir króna
en á sama tíma í fyrra hefði
aukningin verið 12,5 prósent. Segði
þetta nokkra sögu auk þess sem
Bragi kvað fullvíst að IB-lánin og
þjónusta baknans þeim samfara
hefðu haft óbeina þýðingu fyrir
bankann, þar sem auglýsingar og
athygli þessu samfara hefðu aukið
straum viðskiptavina til bankans.
Börn
frusu
í hel
Teheran
8. júlí Reuter
FJÖGUR börn fundust látin í
frystiklcfa eftir að leitað hafði
verið að þeim í þrjá daga. Þau
höfðu verið í feluleik að sögn
lögreglu. Börnin voru á aldrinum
5—10 ára og höfðu þau í gáska
sínum farið inn í frystigeymslu í
skóla þar sem faðir þeirra var
húsvörður og ekki komizt út.
rafritvél er sú rétta fyrir yöur
— á heimilinu og skrifstofunni.
SKIPHOLTI 21
sfml 23188
Hraunkeramik <p) HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
séríslensk SlMI 85411
gjafavara. cslit