Morgunblaðið - 04.04.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1979
Flugdeilan:
Verkfalli frestad
með lagasetningu?
— Málið var rætt í ríkis-
stjórninni á fundi hennar í
dag og ég lagði til að sett
yrðu lög sem myndu fresta
öllum verkföllum og
aðgerðum fram yfir næstu
áramót, sagði Magnús H.
Magnússon félagsmála-
ráðherra er hann var innt-
ur eftir stöðunni í flug-
deilunni í gær.
Flugdeilan kom til umræðu á
Sameinuðu þingi í gær utan dag-
skrár vegna fyrirspurnar
Matthíasar Bjarnasonar um hver
yrðu viðbrögð ríkisstjórnarinnar
við verkfallsaðgerðum flugmanna.
í svörum félagsmálaráðherra og
samgönguráðherra kom fram að
deilan væri til meðferðar hjá
ríkisstjórninni, ljóst væri að frek-
ari sáttaumleitanir væru
þýðingarlausar, en samgöngu-
ráðherra lét þess þó getið að
erfitt gæti verið að ákveða kaup
og kjör með lagasetningu.
Björn Guðmundsson, formaður
Félags ísl. atvinnuflugmanna,
kvaðst ekki hafa trú á að hægt
yrði að leysa vandann með laga-
setningu, taldi að það gæti aðeins
skapað nýjan vanda.
Sjá: Frekari sáttaumleitanir
tilgangslausar — Ríkis-
stjórnin in hikandi í
aðgerðum, bls. 18.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar:
Telur æskilegt að
fá úrskurð dómstóla
á vísitölumálinu
Atlantshafe-
bandalagið
— friður
í 30 ár
3Horj)U!ihTsií>ií>
WSfí§
f
í DAG, 4. apríl eru 30 ár liðin
frá stofnun Atlantshafsbanda-
Iagsins. Af því tilefni er Morg-
unblaðið að hluta til helgað
Atlantshafsbandalaginu og að-
ild íslands að því.
STARFSMANNAFÉLAG Reykja-
víkurborgar mótmælti hinn 4.
desember síðastliðinn greiðslu
vísitölubóta á laun, sem það taldi
ekki vera í samræmi við þann
kjarasamning, sem það hefði gert
við Reykjavíkurborg og sam-
þykktir borgarinnar um launa-
mál. Morgunblaðið spurði Þór-
hall Halldórsson, formann félags-
ins, að því, hvort félagið hygðist
gera eitthvað í framhaldi af
þessum mótmælum.
Þórhallur Halldórsson kvað
félaginu nýlega hafa borizt
greinargerð frá Guðmundi Ingva
Sigurðssyni hæstaréttarlögmanni
um réttarstöðu félagsins í máli
þessu. Hefði þessi greinargerð
verið til umfjöllunar á tveimur
stjórnarfundum, en í gær var gerð
eftirfarandi bókun:
„Lögð fram að nýju greinargerð
Guðmundar Ingva Sigurðssonar
hrl. dagsett 9. fyrra mánaðar, þar
sem rætt er um lagalegan rétt
félagsmanna StRv til fullra
verðbóta á kaup frá 1. desember
1978. Meginniðurstaða lög-
fræðingsins er sú, að starfsmenn
Reykjavíkurborgar eigi ekki laga-
H verfisgötum álið:
Skýrslur
teknar í gær
RANNSÓKN morðmálsins á
Hverfisgötu 34 var haldið áfram
hjá Rannsóknarlögrcglu ríkisins
í gær. Að sögn Þóris Oddssonar
vararannsóknarlögreglustjóra
voru teknar skýrslur af f jölmörg-
um aðilum en engar yfirheyrslur
voru yfir þeim tveimur, sem sitja
inni vegna málsins. Er jafn óljóst
og áður hver er ástæða þessa
voðaverks.
legan rétt til verðbóta á laun fyrir
árið 1978 umfram það, sem leiðir
af gildandi lögum. Hins vegar er
vitað að skiptar skoðanir eru
meðal lögfræðinga um réttarstöðu
málsins.
Með vísun til ofanritaðs og
ennfremur til samþykktar
stjórnar félagsins frá 4. desember
síðastliðinn, þar sem mótmælt er
greiðslu 6,12% vísitölubóta á
desemberkaup 1978, sem rangri,
telur stjórn StRv æskilegt að fá
úrskurð dómstóla um réttmæti
kröfu félagsins um greiðslu fullra
verðbóta á laun félagsmanna frá 1.
desember 1978, samkvæmt ákvæði
kjarasamnings Reykjavíkurborgar
og Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar fyrir tímabilið 1. júlí
1977 til 30. júní 1979.“
(Ljósm. Mbl. Emilía)
Magni í slipp í Reykjavík í gær. Fjær sér á strandferðaskipið
Heklu, sem er í viðgerð þar vegna skemmda, sem skipið varð
fyrir í ísnum norður af landinu á dögunum.
Goðinn tekur við
af Magna um tíma
DRÁTTARBÁTURINN Magni
var í fyrradag tekinn upp í
Slipp í Reykjavík, en mikil
viðgerð þarf að fara fram á vél
skipsins. Meðan gert verður við
Magna verður björgunarskipið
Goðinn tiltækur fyrir Reykja-
víkurhöfn og þá einkum til að
aðstoða olíuskip, sem hingað
koma. Ilafnsögubáturinn Jöt-
unn, sem er stærstur hafnsögu-
bátanna þriggja, er í vélaskipt-
um um þessar mundir.
Að sögn Gunnars B. Guð-
mundssonar, hafnarstjóra í
Reykjavík, virðast allar legur í
sveifarás Magna vera ónýtar og
er helzt talið að það sé vegna
eðlilegs slits, en Magni er 23 ára
gamalt skip og átti að fara í
mikla klössun á næsta ári. Ef
allir varahlutir fást og viðgerðin
gengur eins vel og reiknað er
með, má ætla að viðgerð verði
lokið fljótlega eftir páska.
Matthías Á. Mathiesen alþingismaður:
Halli ríkissjóðs 7 milljarðar
þrátt fyrir miklar skattaálögur
„SKÝRSLA sú um afkomu
ríkissjóðs fyrir árið 1978,
sem fjármálaráðherra hef-
ur nú lagt fram, staðfestir
það sem við sjálfstæðis-
menn sögðum á síðastliðnu
hausti,“ sagði Matthías Á.
Mathiesen, alþingismaður
og fyrrum fjármálaráð-
herra, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Skýrslan sýnir, að
greiðsluhalli ríkissjóðs
Kjartan Ólafsson, varaformaður Alþýðubandalagsins:
Mun greiða atkvæði
gegn ák veðnum grem-
um f rumvarpsins
„ÉG MUN í þinginu á morgun,
gera ítarlega grein fyrir af-
stöðu minni til frumvarpsins,“
sagði Kjartan ólafsson
alþingismaður, er Morgunblað-
ið spurði hann í gær um af-
stöðu hans til frumvarpsins um
stjórn efnahagsmála. en í ÞjóA-
viljanum í gær var frá því
skýrt að tveir þingmenn
Alþýðubandalagsins væru and-
vígir frumvarpinu, Kjartan og
Eðvarð Sigurðsson.
Kjartan Ólafsson kvaðst ekki
myndu vilja vera með langar
útskýringar á afstöðu sinni í
blöðum áður en hann skýrði
þinginu frá henni, en hann
kvaðst geta staðfest það, sem
sagt hefði verið í Þjóðviljanum.
„Ég mun greiða atkvæði gegn
ákveðnum greinum frumvarps-
Kjartan ólafsson
ins, ef ekki fást fram á þeim
breytingar og ég mun ekki
greiða frumvarpinu óbreyttu
atkvæði mitt.
Morgunblaðið spurði Kjartan
hverjar væru helztu aðfinnslur
hans við frumvarpið og svaraði
hann þá: „Verðbótakaflinn er
það atriði í frumvarpinu, sem ég
hef alvarlegastar athugasemdir
við.“
„Út af fyrir sig,“ sagði Kjart-
an Ólafsson, „tel ég að þeir
flokksmenn mínir, sem mest
hafa að þessum málum unnið,
hafi lagt sig mjög fram um að fá
fram leiðréttingar í samræmi
við skoðanir mínar og þeirra, en
árangurinn er því miður ekki
meiri en þetta og ég tel hann
ekki fullnægjandi."
1978 reynist vera tæpir 7
milljarðar króna í stað 3,6
milljarða króna, sem ríkis-
stjórnin gerði ráð fyrir
með septemberráðstöfun
unum.“
Þegar frá eru taldar afborganir
við Seðlabanka," sagði Matthías,
„er hallinn 3,4 milljarðar í stað 400
milljóna króna, sem áætlun
ríkistjórnarinnar gerði ráð fyrir.
Þegar fráfarandi ríkisstjórn lét
gera úttekt á stöðu ríkissjóðs á
miðju síðastliðnu ári, voru hins
vegar niðurstöður þeirrar áætlun-
ar að unnt yrði að greiða til
Seðlabankans rúma 3 milljarða
króna. Af þessu má sjá, að þær
miklu skattaálögur, sem ríkis-
stjórnin stóð fyrir við valdatöku
sína og áttu að mæta þeim út-
gjöldum, sem lögð voru á ríkissjóð
með hinum misvitru aðgerðum í
september, hafa ekki náð að brúa
bilið. Þá hefur hlutur ríkisútgjalda
sem hlutfall af þjóðarframleiðslu
aukizt um 1,2% á síðastliðnu ári,
sem er um 6 milljarðar króna.“
Að lokum sagði Matthías Á.
Mathiesen: „Sagan er því að
endurtaka sig, hvað varðar stefnu
og aðgerðir vinstri stjórnar í
efnahagsmálum. Vandanum er
velt yfir á ríkissjóð og mun það
enn frekar koma fram á þessu ári í
miklum halla hjá ríkissjóði."
Kona í Garðabæ
fékk DAS-húsið
KONA í Garðabæ hreppti
DAS-húsið við Breiðvang í
Hafnarfirði, þegar dregið var
í 12. flokki happdrættisins í
gær. Forráðamenn happdrætt-
isins munu afhenda konunni
húsið við háti'ðleg athöfn síð-
degis í dag.
IATA fargjöld
hækka um 5—7%
ALÞaÓÐASAMTÖK
áætlunarflugfélaga IATA
ákváðu á fundi sínum sem
lauk um helgina að hækka
fargjöld og farmgjöld um
7% og tekur hækkunin
©
INJMLENT
gildi 1. maí n.k. Kemur
hækkunin í kjölfar nærri
9% hækkunar olíuverðs
sem OPEC ríkin tilkynntu
síðast í marz og tók gildi
hinn 1. apríl.
Fargjöldin munu hækka mis-
mikið eftir því á hvaða leiðum er
og t.d. hækka fargjöld á Suð-
ur-Atlantshafi um 5%, á
Mið-Atlantshafi og í Mið-Evrópu
um 7%, svo og í flestum öðrum
heimshlutum um 7%. Hækkun
þessi er óháð þeirri hækkun, er tók
gildi hinn 1. apríl sl. hjá
IATA-félögum og nam 3—5%.