Morgunblaðið - 04.04.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1979
13
30 milljónum
úthlutað úr
kvikmyndasjóði
FYRSTA úthlutun úr kvik-
myndasjóði heíur farið fram, en
sjóðurinn var stofnaður með lög-
um nr. 14/1978 og hafði sjóður-
inn 30 milljónir króna til umráða
að þessu sinni.
Umsóknir bárust frá 19 aðilum
vegna 23 verkefna. Sótt var sam-
tals um styrki að fjárhæð um 130
millj. kr., en áætlaður heildar-
kostnaður við verkefnin er um 430
milljónir króna.
Þessir hlutu styrki:
Ágúst Guðmundsson o.fl. vegna
kvikmyndarinnar „Land og synir",
9 millj. kr.; Gísli Gestsson og
Andrés Indriðason vegna kvik-
myndarinnar „Veiðiferðin" (kvik-
mynd fyrir börn), 5 millj. kr.;
Snorri Þórisson o.fl. vegna kvik-
myndarinnar „Óðal feðranna", 5
millj. kr.; Sigurður Sverrir Pálsson
og Erlendur Sveinsson vegna kvik-
myndarinnar „Átthagar", 3 millj.
kr.; Þorsteinn Jónsson vegna kvik-
myndarinnar „Sjómaður", 2 millj.
kr.; Páll Steingrímsson og Ernst
Kettler vegna kvikmyndar, er hef-
ur Vestmannaeyjar 1873 að sögu-
sviði, 2 millj. kr.; Óli Örn Andreas-
sen og Guðmundur P. Ólafsson
vegna kvikmyndarinnar „í Vestur-
eyjum", 1.5 millj. kr.; Sigurður Örn
Brynjólfsson vegna kvikmyndar-
innar „Þrymskviða" (teiknimynd),
1 millj. kr.; Jón Axel Egilsson
vegna kvikmyndar um fjölskyldu-
líf (handritsstyrkur), 1 millj. kr.
I stjórn kvikmyndasjóðs eru:
Knútur Hallsson formaður, Hinrik
Bjarnason, tilnefndur af Félagi
kvikmyndagerðarmanna, og
Stefán Júlíusson, tilnefndur af
Fræðslumyndasafni ríkisins.
Áslaug Kristinsdóttir
íslandsmeistari í skák
ÁSLAUG Kristinsdóttir TR varð
íslandsmeistari kvenna í skák
1979, en keppni í kvennaflokki er
um það bil að ljúka. Áslaug hlaut
5 vinninga af 6 mögulegum
í 2.-3. sæti eru Ólöf Þráins-
dóttir, fyrrverandi íslandsmeist-
ari og Svana Samúelsdóttir
Reykjavíkurmeistari með 4
vinninga en í 4. sæti er Sigurlaug
R. Friðjónsdóttir með 3% vinning
og eina skák óteflda.
Áslaug er 18 ára gömul og
stundar nám í Menntaskólanum
við Sund.
Þátttakendur í mótinu voru 14
og var teflt í tveimur flokkum. I
B-flokki er Ösp Óskarsdóttir, 13
ára, efst með 4 vinninga og á eina
skák óteflda.
Friða A rnarkle tt
áReykjanesi
Bæjarstjórarnir í Grindavík
og Njarðvík og sveitarstjórinn
í Vatnsleysustrandarhreppi
hafa auglýst í samráði við
viðkomandi landeigendur að
öll efnistaka og önnur
náttúruspjöll í námunda við
Arnarklett, sem er landa-
merkjapunktur í hrauninu
suður af Snorrastaðatjörnum
milli sveitarfélaganna þriggja,
sé bönnuð. Þetta er gert að
ótta við það að þessi klettur
verði eyðilagður, sagði Eiríkur
Alexandersson bæjarstjóri í
Grindavík, en slíkt gerðist
með annan merkilegan landa-
merkjapunkt á þessu svæði,
svokallaða Stapafellsþúfu,
sem stóð uppi á samnefndu
fjalli og var landamerkja-
punktur milli Grindavíkur,
Njarðvíkna og Hafna og einn-
ig jarðanna Staðar og Húsa-
tófta í Grindavík.
Fjármálaráðherra og þjóðhagsstjóri:
Utan til viðræðna við
erlendar lánastofnanir
Mbl. barst í gær eftirfarandi
fréttatilkynning frá fjármála-
ráðuneytinu:
Fjármálaráðherra, Tómas
Árnason, hélt í morgun til
Lundúna, ásamt dr. Jóhannesi
Nordal, seðlabankastjóra, og Jóni
Sigurðssyni, forstjóra Þjóðhags-
stofnunar. Munu þeir næstu daga
eiga viðræður við erlendar lána-
stofnanir.
í fjarveru Tómasar Árnasonar
mun Steingrímur Hermannsson,
dómsmála- og landbúnaðarráð-
herra, gegna störfum fjármálaráð-
herra.
3. apríl 1979,
Fjármálaráðuneytið.
v-V
Sambyggt
útvarp/kassettutæki
Lang
og miðbylgja
Bæði fyrir rafhlöður
eða venjulegan straum.
Verð aðeins kr. 65.320-
PHIUPS
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655
_
Þau fást tilbúin fyrir gluggana, skápana eða hillurnar
Sjálf lagar þú breidd þeirra að hlutverkinu
gengur frá festingum og setur þau upp.
f Margvísleg mynstur og litir
,i ^ SOMBRERO.
Útsölustaðir á
SOMBRERO rúllutjöldum:
BYKO Kópavogi
verslunin Brynja,
Laugavegi 29 Reykjavík.
Z-brautir og Gluggatjöld s.f.,
Ármúla 42, Reykjavík.
Jón Fr. Einarsson versl., Bolungarvík.
L Einar Jóhannsson & Co., Siglufirði.
fc Verslunin Brimnes, Vestmannaeyjum
A, Vers,un'n Dropinn, Keflavík.
§m Verslunin Málmur, Hafnarfirði.
■Bk Og flest kaupfélög landsins.
Heildsölubirgðir
DavíóS.Jónsson
og Co.hf.
SOMBRERO
rúllutjöldin
eru svolítiö sérstök
inaiiÍMii
npS atw>. ■ MnMft