Morgunblaðið - 04.04.1979, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1979
Bjarni bjargaði ÍR
ÞAÐ voru aðeins 3 sekúndur til
leiksloka, þegar Bjarni Hákonar-
son ÍR-ingur skaut úr vonlitlu
færi, staðan var þá 26—25 fyrir
Hauka, en jafntefli nægði ÍR-ing-
um til að skjótast upp fyrir HK í
stigatöflunni. Og það var ekki
sökum að spyrja, skot Bjarna
rataði f net Haukanna rétt eins
og öll önnur skot ÍR-inga í leikn-
um sem á annað borð hittu innan
markrammans. Markvarsla
Ilauka var í undirdjúpunum og
það gerði gæfumuninn, ÍR náði
jafntefli ekki síst vegna þess að
Jens varði skot annað slagið,
einkum þó á mikilvægum augna-
blikum. Leiknum lauk 26—26, en
Skotar
sigruðu
ÍSLENDINGAR töpuðu með einu
stigi í landsleik í körfuknattleik í
gærkvöldi fyrir Skotum. Leikur-
inn endaði 75—74 eftir mikla
hörkuviðureign. Stigahæstur ís-
lendinganna var Pétur
Guðmundsson mcð 25 stig, en þeir
Kristinn Jörundsson og Kristján
Ágústsson skoruðu báðir 12 stig.
- þr.
staðan í hálfleik var 16—14 fyrir
ÍR.
Það var lítið, eða réttara sagt
ekkert um varnir hjá báðum liðum
með fáum undantekningum allan
leikinn. Flest skot Hauka höfnuðu
í netinu og öll skot ÍR-inga. Þó var
mikið um óðagot og læti hjá
báðum liðum, sóknir stóðu afar
stutt. IR-ingar virtust þó lengst af
taka leikinn af meiri alvöru en
mótherjarnir og uppskáru þeir
eftir því. Ef frá eru taldar fyrstu
mínútur leiksins, höfðu IR-ingar
yfir allan leikinn fram undir
leikslok. Haukar minnkuðu mun-
inn í fáein skipti niður í eitt mark,
en IR-ingar héldu þeim ávallt frá
sér, þar til í lokin, en þá komust
Haukar yfir með marki Andrésar
Kristjánssonar úr hraðaupp-
hlaupi. Kom markið í kjölfarið á
mörgum mistökum hjá báðum
liðum, leiktöf á Hauka, ruðningur
á ÍR, ótímabær skot o.fl. o.fl.
Þegar Andrés skoraði, voru aðeins
20 sekúndur til leiksloka og von
IR-inga virtist vera brostin, en þá
kom hið óvænta skot Bjarna
Hákonarsonar. ÍR hlaut því 10 stig
í mótinu, HK 9 og þarf Kópavogs-
liðið því að leika tvo aukaleiki við
Þór frá Vestmannaeyjum um
áframhaldandi setu í 1. deild.
Hjá ÍR voru bestir þeir Bjarni
Bessason, Ársæll og Sigurður
Svavarsson, Guðjón átti góða
spretti framan af og Jens var
drjúgur þó að oft hafi hann leikið
mun betur. Andrés Kristjánsson
og Jón Hauksson voru sterkastir
Hauka, en athygli vakti einnig
bærileg frammistaða þjálfarans
Þorgeirs Haraldssonar.
Þeir Björn Kristjánsson og
Hannes Þ. Sigurðsson dæmdu og
voru þeir lélegir, einkum þegar á
leikinn leið og meiri þörf var fyrir
góða dómgæslu.
f STUTTU MÁLI:
Islandsmótiö 1. deild
Haukar - ÍR 26 -26 (14-16).
Mörk liauka: Jón Hauksson 7 (2 vfti).
Andrés 5, Ingimar og Hörður 4 hvor,
Þorgeir 3. Þórir 2 og Júlíus 1 mark.
Mörk ÍR: Bjarni Bessason 8, Guðjón og
Sigurður Svavars 5 hvor, Brynjólfur 3,
Ársæll 3, Bjarni Hákonarsson 2 mörk.
Víti ( vaskinn: Jens varði frá Júlfusi
Pálssyni.
Brottrekstrar: iR-ingarnir Sigurður Gfsla-
son. Guðjón og Bjarni Bessason f 2 mfn.,
Haukarnir Þorgeir og Árni Sverris f 2
mfnútur hvor.
— Rg.
FH-Fylkir
í KVÖLD kl. 20.30 leika í Hafnar-
firði FH og Fylkir í átta liða
úrslitum í bikarkeppni HSÍ.
Strax að leik loknum verður
dregið í f jögurra liða úrslitin.
Góður árangur hjá
Óskari í kringlunni
FRJÁLSÍÞRÓTTAMAÐURINN Óskar Jakobsson sem stundar nám
við University of Texas í Austin náði góðum árangri í kringlukasti á
frjálsíþróttamóti í Dallas í Texas um helgina. Kastaði óskar þar
kringlunni 60,56 metra sem er þremur metrum lengra en hann hafði
náð bezt í skólakeppnum það sem af er keppnistímabili.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur óskar nú náð sér af
meiðslum sem hann hlaut í baki og háð höfðu honum við æfingar í
nokkrar vikur. Er Óskar bjartsýnn á að bæta árangur sinn frá því um
helgina mjög verulega. Hefur hann að undanförnu lagt mikla áherzlu
á að bæta tækni sina í kringlukastinu.
Þjálfarar Óskars, James Blackwood og Dana LeDuc, segja að það sé
fyrst og fremst tæknin sem Óskar þurfi að bæta þar sem hann hafi
krafta á við beztu kastara. „Þegar Óskar fær tilfinningu fyrir
áhaldinu og íer að þeyta því í stað þess að grýta, þá verður eftir honum
tekið,“ sagði LeDuc í viðtali við Mbl.
Óskar Jakobsson lætur mjög vel af vistinni vestra. Hefur hann
staðið sig vel í skólakeppnum og er einn fárra nemenda skólans sem er
ósigraður í skólakeppnum. Hann hefur náð tilskildum lágmarks-
árangri fyrir þátttöku í meistaramóti bandariskra háskóla er fram fer
í borginni Chanpaign í Illinois-fylki í byrjun júní. _
Valsmenn sigruðu
Þróttara 2—1
VALSMENN sigruðu Þrótt í þriðja leik Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu á Melavellinum í gærkvöldi 2—1, í nokkuð vel leiknum
leik miðað við þungan völl og að keppnistímabilið er rétt að hefjast.
Fyrsta mark leiksins skoraði Guðmundur Þorbjörnsson og var það
fallegt mark, skorað með þrumuskoti. Var staðan í leikhlé 1—0. Strax
í byrjun síðari hálfleiksins bætti Hálfdán Örlygsson öðru marki Vals
við .Þróttarar urðu að leika 10 mest allan síðari hálfleikinn þar sem
Ágústi Haukssyni var vísað af leikvelli fyrir grófan leik. Um miðjan
síðari hálfleik var svo dæmd vítaspyrna á Val og skoraði Daði
Harðarson örugglega úr vítaspyrnunni. Bæði liðin léku af krafti og
virðast leikmenn vera í allgóðri líkamlegri æfingu.
í fyrrakvöld sigruðu KR-ingar Ármann 2—1. —þr-
Valur rétt marði
sigur yfir KR
íslandsmeistarar KR í körfuknattleik: Fremri röð f.v.: Erla Pétursdóttir, Margrét Halldórsdóttir, Emilía
Sigurðardóttir, María Guðnadóttir, Linda Jónsdóttir.
A* Aftari röð f.v.: John Hudson þjáffari. Sólveig Þórhallsson. Björg Kristjánsdóttir, Arndís Sigurgeirsdóttir,
Salína Helgadóttir. Kristjana Hrafnkelsdóttir.
KR-stúlkurnar
sigruðu einnig
KR-ingar gera það ekki enda-
sleppt þessa dagana. Á mánu-
dagskvöldið varð m.fl. kvenna
íslandsmeistari f körfuknattleik
og er það þriðji titillinn sem
körfuknattleiksmenn KR færa
félaginu á rúmri viku. Auk þess
sigraði m.fl. karla í 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik í
þessari sömu viku.
Svo við víkjum aftur að stúlk-
unum þá fór fram á mánudaginn
leikur KR og ÍS í m.fl. kvenna og
var það siðasti leikur mótsins og
með sigri f leiknum tryggði KR
sér íslandsmeistaratitilinn.
KR-stúIkurnar mættu mjög
ákveðnar til leiks og greinilegt
var að ekkert annað en sigur kom
til greina. Leikurinn var þó mjög
jafn framan af og á 14. mínútu
fyrri háifleiks var staðan 14:13,
ÍS í vil, en það sem eftir var af
hálfleiknum voru KR-stúlkurnar
mun ákveðnari og höfðu 7 stiga
. forystu í leikhléi, 25:18.
I upphafi síðari hálfleiks hélst
svipaður munur, en síðan tók KR
mikinn kipp og náði 14 stiga
forystu, 45:31 og var þá greinilegt
hvert stefndi. í lokin tókst
IS-stúlkunum aðeins að rétta hlut
sinn án þess þó að ógna sigri KR.
Lokatölurnar voru 55:48.
KR-liðið lék mjög vel að þessu
sinni, einn besti leikur þess í vetur.
Baráttan í vörninni var góð og
einnig í fráköstunum. Emilía Sig-
urðardóttir !ék að nýju með KR
eftir langa fjarveru vegna meiðsla
og var hún mikill styrkur.
KR-stúlkurnar léku allar vel,
Linda, Sólveig, María Salína og
Kristjana sýndu allar sínar bestu
hliðar.
ÍS-Iiðið hefur í vetur ekki náð að
sýna neitt af því, sem gerði það að
margföldum meisturum í fyrra. í
þessum leik átti IS ekkert svar við
sterkum varnarleik KR og ekki
bætti það úr skák að Guðný
Eiríksdóttir var komin með 4
villur eftir 14 míiíútur. Liðið var
jafnt að þessu sinni og engin
ástæða til að nefna eina fremur en
aðra.
Stigin fyrir KR: Linda 18, María
12, Sólveig 10, Kristjana 8, Salína
4, Björg 2 og Emilía 1.
Stigin fyrir IS: Guðný 13, Anna
Björg og Sigurlaug 8 hvor, Þórunii
7, Hanna og Þórdís 6 hvor. ÁG.
VALUR sigraði KR í 1. deild kvenna 15—14 í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 12—8, Val í vil. Leikur liðanna var
nokkuð hraður og ágætlega leikinn á köflum. Valsstúlkurnar höfðu
ávalt frumkvæðið í leiknum, og höfðu mest allan fyrri hálfleikinn
fjögurra marka forskot.
I síðari hálflciknum var sóknarleikur þeirra hins vegar í molum og
breyttist staðan úr 13—8, í 13—13. Anna Lind hjá KR skoraði þrjú
mörk í röð á skömmum tíma með laglegum skotum. og allt benti til
þess að KR-stúlkurnar myndu sigra. En Valsstúlkurnar voru ekki á að
gefa stigin eftir og Erna sem var best í Valsliðinu tryggði sigurinn
með tveimur fallcgum mörkum í lokinn.
Mörk Vals: Erna 6, Björg 3, Elín 3, Ágústa 2, Oddný 1.
Mörk KR: Hansina 6, Anna 4, Karolina 2, Hjördís 1, Arna 1.
Fimm
með
10 rétta
í 32. leikviku komu fram 5
raðir með 10 réttum og var
vinningur á hverja röð kr.
169.000.- en með 9 rétta voru 66
raðir og vinningur á hverja kr.
5.400,-
Vegna erfiðleikanna, sem snjó-
þyngslin hafa bakað ensku knatt-
spyrnunni. varð að notast við 9
leiki í 2. deild á síðasta seðli, en
aðeins 3 leikir í 1. deild lágu
fyrir, er seðillinn var prentaður.
Þar sem bikarkeppnin er nú
komin á síðasta snúning truflar
hún ekki mcira á laugardögum
það sem eftir er vetrar og verða
því framvegis 11 leikir úr 1. deild
á seðlinum. Felld verður niður
umferðin í páskavikunni hjá
getraununum vegna samgöngu-
tafa og lokunartíma í verzlunum
og afgreiðslustöðum.
Everton
steinlá
Úrslitin í ensku knattspyrn-
unni i gærkvöldi:
I: DEILD.
Arsenal—Coventry 1 — 1
Birmhingham —Ipswich 1 — 1
Bolton —Everton 3—1
Bristol—QPR 2—0
Wolverhampton—Tottcnham
3—9
2. deild.
Oldham—Crystal Palacc 0—0