Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 243. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Khadafy flúinn á náðir Rússa? Kairó. 31. október. — AP. EGYPSKA blaðið Al-Gom- houriiya sagði í frétt í dag. að Moammar Khadafy Líbýu- leiðtogi heíði flúið úr höfuð- borginni og hefðist nú við í sovézkri herstöð í eyðimörk- inni. Blaðið bar diplómata fyrir fregninni, en þar sagði, að Kha- dafy ætti „við hættulegar sál- rænar flækjur að stríða og væri vonlaus um bata“. Elaðið sagði, að hvarf Khadafys væri samsæri sovézkra og kúbanskra ráðgjafa hans, til að vernda hann gegn hugsanlegri byltingartilraun eða uppreisn í herjum landsins. Sagði blaðið að sovézkar her- sveitir hefðu umkringt stöðvar Líbýuhers í Tobruk og Oqba- ben-nafe. Orðalagi umdeildra greina verður breytt Varsjá. 31. október. — AP. LEIÐTOGAR frjálsra verkalýðsfélaga og Jozef Pink- owski forsætisráðherra sættust í kvöld á að reyna að breyta orðalagi umdeildra greina um stofnskrá Sam- stöðu, og þar með opna leið til málamiðlunar er afstýrði verkföllum, sem verkalýðsleiðtogarnir höfðu hótað 12. nóvember næstkomandi, ef ekki yrði árangur af fundi þeirra með Pinkowski. Eftir að fundur verkalýðsleið- toganna og Pinkowskis hafði stað- ið frá morgni til kvölds voru enn mörg ágreiningsefni óútkljáð, að sögn eins þátttakanda í fundinum. „En stofnskráin verður umorðuð þannig að báðum líki,“ sagi hann. Borgardómur Varsjár samþykkti stofnskrána fyrir viku, en skaut inn í hana grein þar sem sagði að félögin virtu forsjá kommúnista- flokksins og sósíalískt skipulag. Kröfðust leiðtogar Samstöðu að sú klásúla yrði felld niður og hótuðu verkföllum ella, en nú virðist sem þeir hafi slakað á þeim kröfum, að sögn fréttaskýrenda. Komu aðilar sér saman um að reyna að ná samkomulagi um breytt orðalag fyrir 10. nóvember næstkomandi. Á fundinum féllst Pinkowski á beiðni Walesa og félaga hans um Bakhtiar um stjórn Khomeinis í íran: 95 Endalokin nálgast 66 Mílanó. 31. október. — AP. ANDSPYRNA gegn Khomeini-stjórninni í íran hefur breiðzt út tii nokkurra bæja landsins að sögn Shapour Bakhtiar fyrrverandi forsætisráðherra í viðtali við blaðið „Occhio“ í Mílanó í dag. „Endalok einræðisherrans nálgast“ sagði Bakhtiar. Hann lagði áherzlu á stuðning sinn við íranska hermenn í baráttu þeirra við íraska „innrásarmenn" og skýrði frá því að hann stæði í „sambandi" við íraska embættis- menn „þar sem ég er þess albúinn að gera bandalag við djöfulinn til að bjarga íran og gera Khomeini áhrifalausan." Bakhtiar sagði að stjórnarher- menn hefðu drepið 138 „ættjarðar- vini“ og tekið um 500 til fanga. Æ fleiri tækju upp riffla sína, skamm- byssur og sprengjur og tækju þátt í aðgerðum skæruliða, einkum í bæj- um. Þjóðfylking yrði fljótlega mynduð til að samræma baráttu skæruliðahópa. Ef risaveldin hættu að styðja Khomeini mundi hann „glata völdunum innan sex daga.“ Friðartilraunum var haldið áfram í stríði írana og íraka í dag. Indria Gandhi, forsætisráðherra Indlands, sendi R.D. Sathe utanríkisráðherra sinn til Teheran með orðsendingu til Bani-Sadr forseta, þar sem hún lýsir von sinni um skjótan endi átakanna. Loftvarnaflautum var þeytt í Bagdad um hádegisbil og Irakar sögðu að þeir hefðu „lokið við“ að Þota bíður þess að sækja gísia London. Washinifton, Tchoran, 31. október. AP. ABOLHASSAN Bani-Sadr, forseti írans. heldur á morgun. laugardag. blaðamannafund er verður útvarpað og sjónvarpað og var jafnvel talið í kvöld að hann mundi þá tilkynna að gíslarnir bandarísku yrðu leystir úr haldi gegn ákveðnum skilyrðum, er þingið hefði komið sér saman um, en útvarpið í Teheran skýrði frá þvi í dag, að samkomulag hefði náðst í þinginu um „sanngjarna aðferð“ til lausnar gíslamálsins, og Moyammed Ali Rajai forsætisráðherra lýsti því yfir á útifundi í dagt „að varahlutir yrðu neyddir út úr Bandaríkjamönnum“. en Irana skortir mjög varahluti í hergögn sín til bardaganna við íraka. Talið er, að sú yfirlýsing tals- Imanns bandaríska utanríkisráðu- neytisins í kvöld, að Bandaríkja- stjórn hafi ekki í hyggju að lýsa stuðningi við Reza Pahlavi, son fyrrum Iranskeisrara, er tók sér keisaratign í Egyptalandi í morg- un, þar sem stjórnin viðurkenni úrslit kosninganna í apríl, muni mýkja íranska valdamenn og auð- velda frekar lausn gíslamálsins. Var af hálfu fréttaskýrenda litið á þessa yfirlýsingu sem nánast beina viðurkenningu bandarískra stjórnvalda á stjórn Khomeinis. Frá því var skýrt í dag, að frá því í byrjun vikunnar hefði þota flugfélagsins SAS staðið tilbúin á Arlanda-flugvelli við Stokkhólm til þess að fara með aðeins tveggja klukkustunda fyrirvara til Teher- an og fljúga gíslunum þaðan til. ótilgreinds áfangastaðar í V-Þýzkalandi, þó ekki til Frank- furt, að sögn forstjóra Scanair- flugfélagsins. „Haft var samband við okkur frá umboðsskrifstofu í London fyrir viku síðan, en við vitum ekki hver viðskiptamaðurinn er,“ sagði forstjórinn. Seint í kvöld skýrði einn íransk- ur þingmaður, Assadollah Bayat, frá því í símtali til AP-fréttastof- unnar, að þingmenn skiptust í tvo hópa í afstöðunni til þess hvort láta skyldi þá lausa fyrir eða eftir bandarísku forsetakosningarnar næstkomandi þriðjudag. Þá væri hópur þingmanna sem vildi halda gíslunum þar til að samið hefði verið um vopnahlé í stríði Irana og íraka. „Annars er þetta spurning um tíma, allir vilja leysa málið," sagði þingmaðurinn. Reza Pahlavi, sonur fyrrum íranskeisara, lýsti sig i gær keisara írans við athöfn i Kubbeh-höllinni i Kairó, en fjölskylda hans hefur hafst við i höllinni frá þvi að hún kom til Egyptalands i marz siðastliðnum. í ræðu, sem hinn nýi keisari flutti við þetta tækifæri, hvatti hann alla þjóðrækna írani til að bindast samtökum og binda endi „á martröðina“ sem þjóðin hefur orðið að þola frá þvi að Khomeini erkiklerkur komst til valda. Meðfylgjandi mynd var tekin við athöfnina í Kubbeh-höll í gær. Símamynd-AP. að fá að gefa út eigið fréttablað er koma mun út vikulega, en það verður að lúta opinberri ritskoð- un. Einnig hefði stjórnin lofað að láta af hendi prentvélar er gerðar hefðu verið upptækar, og loks hefði verkalýðsleiðtogunum verið lofað að þeir fengju sérstaka tíma í sjónvarpi. umkringja olíuborgina Abadan og kveikt í oliuleiðslum og olíugeymum í nágrannabænum Khosrowabad. íranar sögðu að Ab'adan hefði orðið fyrir gífurlega harðri stórskotaliðs- árás, en byltingarverðir hefðu af- stýrt nýjum tilraunum íraka til að gera skriðdrekaáhlaup á leiðir inn í borgina úr norðri. Ráðfæringar hófust í Öryggisráði SÞ í kvöld um stríð írana og íraka. Fulltrúar Þriðja heimsins í ráðinu hafa reynt að ná samkomu- lagi um ályktun sem báðir stríðs- aðilar geti sætt sig við. Ef þú giftist... Miinster, 31. október. — AP. UNGUR einhleypur vest- ur-þýskur bóndi auglýsti í dag eftir konuefni og hét því að gefa hinni útvöldu búgarð sinn, sem metinn er á um fimm milljónir marka, eða um einn og hálfan milljarð íslenskra króna. „Ef þú stendur þig vel við búskapinn í eitt ár og samþykkir síðan að giftast mér, færðu búgarðinn að launum," sagði í auglýsing- unni. Talsmaður búnaðarsam- bands Westfalen-Lippe héraðs sagði í dag, að aug- lýsingin væri táknræn fyrir vanda er steðjaði að fjöl- mörgum ungum v-þýzkum bændum í dag; að finna konuefni er væri hæf til að sinna búverkum. Afganir beiðast hælis í Mekka Nýju Dehll, 31. uktóber. — AP. NÓKKUR hundruð aíg- anskra pílagríma í Mekka neita að hverfa aftur til heimalandsins og hafa beiðst hælis í Saudi- Arabíu. að sögn vestrænna diplómata. í þessum hópi eru fjölmargir afganskir embættismenn, en dipló- matarnir sögðust ekki hafa vitneskju um hvort pílagrímarnir fengju land- vist. Diplómatarnir skýrðu einnig frá því, að tveir þriðju allra lækna er verið hefðu í Afganist- an fyrir þremur árum, eða um eitt þúsund læknar, hefðu flúið land, og að um helminguy þeirra 500 er eftir væru, störfuðu í afganska hernum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.