Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 27 Sex af myndum Salvadors Dalis. Tízkan árið 2000 eins og Salvador Dali sér hana „SCABAL-tízkuhúsið bað Salva- dor Dali, að gera myndir af tizkunni eins og hann sæi hana fyrir sér árið 2000. bessar hug- myndir hanga nú á vegg hér,“ sagði Sævar Karl Ólason, klæð- skeri þegar blaðamaður ra'ddi við hann um sérlega skemmtileg- ar tizkumyndir, sem hanga á vegg i verzluninni að Laugavegi 51. „Raunar bað ég Scabal að lána mér hinar upprunalegu myndir Dalis en hann gerði alls 12 mynd- ir. Þeir gátu ekki komið því við. Þeir sendu mér hins vegar litó- graphíur af myndum Dalis hingað og þær hanga nú á veggjunum hjá mér — tízkan árið 2000 eins og þessi sérstæði listamaður sér hana fyrir sér,“ sagði Sævar Karl ennfremur. íslendingur íormaður nefndar ferðaskrif- stofufólks frá Evrópu UNNUR Kendall (sitjandi til vinstri), forstöðukona skrifstofu Ferðaskrifstofu rikisins í Banda- rikjunum, varformaður nefndar ferðaskrifstofufólks frá Evrópu er fór i heimsókn til Bandarikj- anna nýlega til að glæða áhuga á ferðum til Evrópu á næsta ári. Hér sést hún á formlegum fundi með Maynard Jackson (fyrir miðju) borgarstjóra í Atlanta, Georgíuríki, í ráðhúsinu þar. I ferðinni kom Unnur fram í út- varpi og sjónvarpi og i blaðavið- tölum þar sem hún fræddi frétta- menn um ferðir til íslands og annarra staða í Evrópu. Borgirnar sem farið var til auk Atlanta voru Fíladelfía og Pittsburgh. Stefáns Jóh. minnzt á aðalfundi Varðbergs Á AÐALFUNDI Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, sem haldinn var 29. október, minntist fráfarandi formaður félagsins, Alfreð Þor- steinsson, Stefáns Jóhanns Stef- ánssonar, fyrrum forsætisráð- herra og formanns Alþýðuflokks- ins, en útför hans var gerð sama dag. Félagsmenn vottuðu minn- ingu hins látna virðingu sína með því að rísa á fætur. Jakob V. Hafstein, lögfr.: Laxveiðar i haf inu við Grænland og norður af Færeyjum hef jast frá Færeyjum í dag, 1. nóvember Sú frétt var flutt í hádegisút- varpinu í gær, 31. október að frændur okkar Færeyingar ætl- uðu að hefja laxveiði í stórum stíl í hafinu norður af Færeyj- um. Þessi fregn hefur áreiðan- lega vakið marga hlustendur til umhugsunar um það, hvað ís- lenzk stjórnvöld hafi gert til þess að hindra eða fyrirbyggja þessar veiðar. Eitt merkasta ákvæði í lax- og silungsveiðilöggjöf okkar er bannið við laxveiði í sjó. Laxveiðin í sjó við strendur Noregs um áratugaskeið hefur orðið þess valdandi, að margar af beztu laxveiðiám Noregs hafa verið svo að segja laxlausar um margra ára skeið. Þá er og vitað að verulegt magn af norskum laxi hefur veiðst í hafinu norður af Færeyjum á lóðir Færeyinga og Norðmanna og í net þeirra. Heimildarmaður útvarpsins um þessar veiðar Færeyinga á laxi í hafinu norður af Færeyjum taldi að lítil eða engin hætta stafaði af þessum veiðum fyrir íslenzka laxastofninn, því að á undan- veiðiár í íslenzkum ám um fjölda ára skeið, þrátt fyrir síaukna fiskirækt og seiðaútsetningu á ári hverju í árnar. Hver er orsökin, spyrja menn? Er ekki kominn tími til þess fyrir íslenzk stjórnvöld að banna allar veiðar Færeyinga við strendur íslands, meðan þeir stunda umrædda laxveiði í haf- inu norður af Færeyjum? Aðalatriðið í máli þessu er sú staðreynd, að allur sá lax, sem Færeyingar veiða á þessu haf- svæði, er alinn upp í ám annarra landa, íslands, Noregs, Svíþjóð- ar, Skotlands, Irlands og senni- lega eitthvað í kanadískum ám, en ekki einn einasti í ám í Færeyjum. Það er vægt til orða tekið þó að sagt sé að hér sé um fiskiræktarlegan ránsfeng að ræða. förnum árum hefði aðeins feng- ist einn merktur lax frá íslandi á þessu hafsvæði. Trúi þessu hver sem vill. Ég trúi því ekki. Ég vil í þessu sambandi vekja athygli á því, að síðastliðið sumar var eitt hið lakasta lax- Ég vil skora hér með á öll hlutaðeigandi íslenzk öfl, sem beitt geta samstilltum kröftum og valdi í þessu máli, að berjast nú sameinuð og samstillt til að fá þennan ósóma afnuminn. Jakob V. Hafstein. lögfr. Frádráttarbærir vextir - laganna hljóðan ÁSGEIR Jónsson hjá Skattstjóra- embætti Reykjavíkur hafði sam- band við Mbl. vegna viðtals við hann i blaðinu í gær um reglur sem gilda munu við útreikning skatta fyrir árið 1980 vegna frádráttarbærra vaxta. Sagði hann að viðtalið við hann hefði ekki gefið tæmandi upplýsingar og því væri hætta á rangtúlkun fréttarinnar, einnig hefði fyrir- sögnin ekki gefið rétta mynd. Þessa vegna birtir Mbl. hér á eftir orðréttan e-lið 30. gr. lag- anna, sem segir hvernig staðið skuli að þessum útreikningi: „1. [Vaxtagjöld, afföll og geng- istöp skv. 2. mgr. 51. gr., enda séu gjöld þessi vegna fasteignaveð- skulda til þriggja ára eða lengri tíma sem sannanlega eru notaðir til öflunar íbúðarhúsnæðis til eig- in nota. Sama gildir um vaxta- gjöld vegna annarra skulda sem sannanlega er stofnað til vegna kaupa eða nýbyggingar íbúðar- húsnæðis til eigin nota, en slík ö INNLENT Óskað eftir vitnum vaxtagjöld er þó aðeins heimilt að draga frá tekjum á næstu tveimur skattárum talið frá og með kaup- ári eða á næstu fjórum árum talið frá og með því skattári sem bygging er hafin á. Frádráttur samkvæmt þessum tölulið má aldrei vera hærri en nemur þeirri fjárhæð sem þau vaxtagjöld, er um ræðir í 1. mgr. þessa töluliðs, eru umfram vaxta- tekjur samkvæmt 3.-5. tl. 1. mgr. 8. gr. og aldrei má frádráttur þessi nema hærri fjárhæð en 1.500.000 kr. Hjá hjónum skal þetta hámark vera helmingi hærra.]“ Frá lögreglunni: Vitni vantar að ákeyrslum Slysarannsóknadeild lögregl- unnar í Reykjavík hefur beðið Morgunblaðið að auglýsa eftir vitnum að eftirtöldum ákeyrslum i borginni. Þeir, sem geta veitt upplýsingar um þessi tilteknu mál, eru beðnir að snúa sér til deildarinnar hið fyrsta í síma 10200: Miðvikudaginn 22. 10. sl. var ekið á bifreiðina R-36208 sem er Datsun fólksbifreið rauð að lit austan við hús nr. 7 við Lönguhlíð. Skemmd er á vinstra framaur- bretti og cromhringur við vinstra aðalljósker er skemmdur. Átti sér stað í kringum kl. 13.00. Tjónvald- ur er Daihatsu Charade grá að lit. skemmt á bifr. I skemmdinni er dökkblár litur. Afríkusöfnuninni lýkur 8. nóvember AFRÍKUSÖFNUN Rauða kross Islands lýkur formlega 8. nóv. nk. Nú þegar hafa safnast á annað hundrað millj. kr. og er skipulögð- um söfnunarferðum deildanna um allt land nú að ljúka. Rauði krossinn minnir því á gíróreikning sinn, sem er með númerið 1-20-200. Vopnafjarðarlína: ÞANN 10. júlí 1980 varð árekstur við Iðnaðarmannahúsið milli bifr. R-66565 og Ö-6886. Á staðnum gaf sig fram vitni, kvenmaður, og óskar lögreglan eftir því að vitnið hafi samband. Þriðjudaginn 28. 10. sl. varð árekstur kl. 13.28 á gatnamótum Miklubrautar, Höfðabakka og Vesturlandsvegar, milli bifr. R- 72666, sendiferðabifr. og Y-4725 vörubifr. Ágreiningur er um stöðu umferðarljósa. Óskar lögreglan eftir vitnum ef einhver eru. Þann 23. 10. sl. var ekið á bifreiðina R-18719 sem er Volks- wagen fólksbifr. drapplituð við Verðlistann á Laugalæk. Átti sér stað um kl. 17.00. Skemmd er á vinstra afturaurbretti og er rauð málning í skemmdinni. Föstudaginn 31. 10. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina R-63098 sem er Renault sendibif- reið við Hjólaskautahöllina að Síðumúla. Átti sér stað frá kl. 23.30 þann 30. 10. til kl. 00.15 þann 31. 10. Vinstra afturaurbretti er Kostnaður lægri en áætlað var Heildarkostnaður við Vopna- fjarðarlínu var 1.520 millj. kr. skv. upplýsingum frá Kristni Bald- urssyni hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Þá sagði Kristinn, að upphaflegt áætlað kostnaðarverð, framreiknað til dagsins i dag, hefði verið 1.725 millj. kr. þannig að útkoman væri nokkru lægri en reiknað hefði verið með.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.