Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 5 Fjármálaráðherra ritaði Landsbankanum bréf vegna láns til Flugleiða: Bendir bankanum á að taka allsherjarverð í öUum eignum félagsins FJÁRMÁLARÁÐHERRA ritaði í K»‘r Landshanka tslands hréf, þar sem lýst var þeim vilja rikisstjórnarinnar, að bankinn veitti Flugleiðum lán að þvi marki, sem bankinn telji óhjá- kvæmilegt fyrir fyrirtækið, með- an beðið sé eftir afgreiðslu Al- þinKÍs á frumvarpi um málefni FluKleiða. í nefndu bréfi tekur fjármála- ráðherra jafnframt fram, að ríkis- stjórnin Ket' ekki tekið ábyrgð á láni þessu, meðan frumvarpið hef- ur ekki hlotið afgreiðslu á Álþingi. Þá er á það bent, að óhjákvæmi- legt virðist og eðlilegast, að bank- inn taki fullnægjandi veð fyrir þessari ábyrgð, jafnvel allsherj- arveð í öllum eignum félagsins, sem skipta máli. Jónas H. Haralz, bankastjóri Landsbanka Islands, sagði í sam- tali við Mbl., að nefnt bréf hefði borizt bankanum í gær, en efnið hefði verið borið upp munnlega í fyrradag. Því hefði athugun á málinu staðið yfir í gær og fyrradag og málið yrði afgreitt af bankans hálfu í byrjun næstu viku. Verkamannabústaðir í Reykjavík: Yfir 200 íbúðir af hentar á árinu Helgafell: Afangar gason Bókarkápan. Þeir sem kunnugir eru kvæðinu, geta líklega sagt sér við hvaða erindi myndin á. Við þetta sama tækifæri afhenti Bragi Ásgeirsson Rauða krossin- um að gjöf myndverk, sem hann nefnir „Frelsi handa börnum heims", í tilefni af þeirri söfnun, sem fram hefur farið til styrktar sveltandi börnum í Afríku. Ólafur Mixa, formaður RKÍ, veitti gjöf- inni viðtöku og þakkaði gefandan- um fyrir hönd Rauða krossins en myndin er honum til frjálsrar ráðstöfunar. Ólafur Mixa. form. RKÍ, og Bragi Ásgeirsson, listmálari, fyrir framan myndverkið „Frelsi handa börnum heims“, sem Bragi gaf Rauða krossinum. nVIÐ munum afhenda yfir 200 íbúðir á þessu ári og ég ætla, að það sé mesti fjöldi, sem verið hefur á einu ári hjá verkamanna- bústöðunum.** sagði Eyjólfur K. Sigurjónsson, formaður stjórnar verkamannabústaðanna í Reykjavik i samtali við Mbl. Eyjólfur sagði, að um helgina yrðu afhentar 24 íbúðir í Hóla- hverfi, í tveimur blokkum. Ein- staklingsíbúðir kosta 11,2 milljón- ir króna, tveggja herbergja íbúðir 20,5 milljónir og 3ja herbergja kosta 23,8 milljónir króna og er þá allt frágengið innanhúss og utan. Þá eru í smíðum 60 raðhús, sem auglýst verða til . umsóknar á næstunni og sagði Eyjóffur áætlað verð hvers þeirra 36 milljónir króna. Jarðvinna vegna bygginga verkamannabústaða á Eiðsgranda verður boðin út á næstunni. í þeim áfanga eru 176 íbúðir. Slys um borð í togara SKUTTOGARINN Bjámi Bene- diktsson kom í fyrrakvöld inn með slasaðan mann. Óhappið vildi þannig til að maðurínn var að leysa frá pokanum'er hann féll> niður í móttökuna og maðurinn undir fiskinum, sem í pokanum var. Ókunnugt er um meiðsli, en hann mun þó hafa marízt nokkuð og kenndi til sárinda innvortis. ★ Tízkusýning: sýna af sinni alkunnu snilld glæsilega pelsa frá Pelsin- um og dömufatnaö frá Sonju og herralínuna frá Dixi-Man. A AFMÆLISARINU í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 2. nóvember. í skemmtanalífi Reykvíkinga jafnast ekkert á viö Útsýnarkvöld. Þar fá gestir góöan mat fyrir hagstætt verö og þar er ávallt boöiö upp á beztu skemmtiatriðin. Bingó- og happdrættisvinningar á Útsýnarkvöldum eru ekki af verri endanum — þar gefst möguleiki á aö vinna 3—5 Utsýnarferöir til sólarlanda að verömæti allt aö 2 milljónum króna. Útsýnarkvöld eru því örugg skemmtun, ódýr — en fyrsta flokks. Kl. 19.00 Húsið opnaö. Sala bingóspjalda og afhending ókeypis happdrættismiöa, þar sem m.a. er glæsileg Utsýnarferð í vinning. Kl. 19.30 Veizlan hefst stundvíslega undir léttri og fjörugri tónlist. Gigot D’Agneau Gitronelle — Verö aöeins kr. 7.600.-. Einnig veröur boðiö upp á Sögu Super-borgara Skemmtiatriði: adeins kr■ 3-800- • ★ Á risa sjónvarpsskermi veröa nýjar kvikmyndir frá sumrinu í gangi allt kvöldiö. ítalía, Júgóslavía, Torremolinos, Marbella, Mexico. ★ Meistarakeppni í einstaklinqsdansi 1980: Þátttakendur í Disco- danskeppni Klúbbsins og EMI koma og sýna discodans. Ovænt skemmti atriði! ★ Ungfrú ÚTSYN 1981 - ★ Forkeppni — Þátttak- endur í Ijósmyndafyrirsætu- keppni Utsýnar 1981 valdar úr hópi ★ Dans. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar endurnýjuð af krafti og fjöri ásamt hinum sívinsæla Þorgeiri Ástvaldssyni halda uppi geysi-fjöri til kl.1.00. Munið aö panta borö hjá yfirþjóni í dag eftir kl. 16.00 í símum 20221 oa 25017. k/úhbm alltaf fullt hús og fjör Utsýnarkvöldum Áfangar eftir Jón Helgason komnir út — með myndskreytingum Braga Ásgeirssonar út er komin hjá Ilelgafelli bókin Áfangar. sem er mynd- skreytt útgáfa samnefnds kvæðis Jón Ilelgason. Myndirnar hefur Bragi Ásgeirsson listmálari gert. í tilefni af útgáfunni boðaði Helgafell til blaðamannafundar á Kjarvalsstöðum í gær þar sem bókin var kynnt, en þar stendur nú yfir yfirlitssýning á verkum Braga Ásgeirssonar. Áfangar er þriðja bókin í bóka- flokki Helgafells,. sem nefnist Perlur í máli og myndum. Fyrri bækur eru Tíminn og vatnið, kvæði Steins Steinars, með myndskreytingum Einars Hákon- arsonar listmálara, og Þorpið, kvæði Jóns úr Vör, en þá bók myndskreytti Kjartan Guðjónsson listmálari. Að sögn Böðvars Pét- urssonar hjá Helgafelli er fyrir- hugað að halda áfram á þessari braut þó að enn sé ekki fullljóst hvað næst verður fyrir valinu. Myndirnar í bókinni eru unnar á árunum 1955—57 og sagði Bragi, að þær væru gerðar með krít, blýanti, koli og svolítið í tússi. Kvæðið Áfangar er tólf erindi og ein mynd við hvert en upphaflega gerði Bragi fjórtán myndir við flokkinn og hanga þær allar uppi á sýningunni. Auk bókaflokksins Perlur í máli og myndum hefur Helgafell gefið út önnur merkisrit íslenskra bók- mennta með myndskreytingum eftir valinkunna listamenn. Má þar t.d. nefna Brennu-Njáls sögu, en nú er unnið að endurútgáfu hennar, Laxdælu, Eyrbyggju og Grettissögu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.