Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 Minning: Ásgeir Kristjánsson fv. bœjarfulltrúi Hinn 23. október sl. lézt á Húsavík Ásgeir Kristjánsson, sjó- maður og fyrrverandi bæjar- fulltrúi. Við andlát hans er lokið lífshlaupi merks manns, sem á löngu ævistarfi kom mörgu til leiðar og átt hefur verulegan þátt í þróun Húsavíkur úr smáþorpi í blómlegan kaupstað. Ásgeir fæddist á Húsavík 18. desember 1906. Voru foreldrar hans hjónin Kristján Sigurgeirs- son og Þuríður Björnsdóttir. Þau hjón áttu áður synina Björn, Arnór, Kára og Pál, sem allir eru nú látnir, en yngri systkini Ás- geirs eru Bára, búsett á Bíldudal og Þráinn, sem býr á Húsavík. Ásgeir ólst upp á Húsavík við fremur kröpp kjör. Oft var þá þröngt í búi hjá alþýðu manna og mótuðust á uppvaxtarárunum þjóðfélagsskoðanir hans, sem jafnan einkenndust af ríkri samúð með öllum þeim, sem minni mátt- ar eru. Hann var snemma til forystu fallinn og jafnan athafnasamur. M.a. átti hann drjúgan þátt í stofnun karlakórs, sem fljótlega lognaðist út af vegna andláts söngstjórans. Hét kórinn Náttfari og urðu meðlimir hans síðar stofninn í karlakórnum Þrym, sem sr. Friðrik A. Friðriksson hafði forgöngu um að stofna. Einnig gekkst Ásgeir á æskuárun- um fyrir stofnun knattspyrnufé- lags og sitthvað fleira brallaði hann í félagsmálum. Ásgeir hóf snemma sjómennsku og var þá m.a. á vertíðum með bræðrunum Stefáni og Þór Pét- urssonum við 7 lesta mótorbát, Skallagrím, sem þeir bræður áttu. Var báturinn þá gerður út frá Hornafirði á vetrarvertíðum. Einnig sótti hann sjó á litlum opnum bát, sem hann átti og kallaður var „Þversum". Lýsir nafngiftin vel kímnigáfu Ásgeirs og vina hans. Ásgeir hlaut í æsku viðurnefni eins og algengt var í smáþorpum í fyrri tíð. Var hann kallaður Ásgeir „Blöndi" og var nafn hans stundum bara stytt í „Blöndi". Fylgdi það honum alla ævi. Mun viðurnefnið hafa verið dregið af nafni Ásgeirs Blöndals læknis á Húsavík, án þess að þeir hafi verið á nokkurn hátt vanda- bundnir. Á árunum milli 1930 og 1940 hóf Ásgeir samvinnu við Björn bróður sinn um útgerð. Voru þeir upp- haflega með bát fyrir Kaupfélag Þingeyinga, sem þeir keyptu svo af kaupfélaginu. Hét báturinn Þengill og gerðu þeir hann út í nokkur ár. Því næst keyptu þeir vélbátinn Einar Hjartarson og gerðu hann út fram í stríðslok. Sneri Ásgeir sér þá að trillubáta- útgerð og reri á lítilli trillu, sem kölluð var Molotov eftir erlendum manni, sem Ásgeir kenndi þá í brjósti um og varði gjarnan fyrir gagnrýni. Næst hóf hann sam- vinnu um útgerð við Þormóð Kristjánsson og hélst sú samvinna óslitið, þar til fyrir fimm árum, þegar heilsa Ásgeirs tók að bila. Áttu þeir Þormóður fyrst saman vélbátinn Svein Jónsson, en síðar áttu þeir í félagi við Kristján, son Ásgeirs, tvo litla vélbáta sem báru nafnið Grímur. Eins og áður segir hóf Ásgeir snemma afskipti af félagsmálum. Hann var formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Húsavíkur í 10 ár. Hann var kosinn varamaður í hreppsnefnd Húsavíkurhrepps ár- ið 1942 og var síðan ýmist sem aðal- eða varafulltrúi í sveitar- stjórninni í 32 ár. Var hann síðast aðalfulltrúi í bæjarstjórn óslitið í 16 ár eða þar til hann dró sig í hlé árið 1974. Hann kvæntist 26. maí 1928 Sigríði Þórðardóttur frá Húsavík. Eignuðust þau tvo syni, Þá Þórð, sjómann á Húsavík f. 1930 og Kristján, frkvstj. á Húsavík f. 1932. Einnig tóku þau til fósturs bróðurson Sigríðar, Steinþór Þorvaldsson sjómann í Grindavík f. 1932 og ólu hann upp. Sigríður og Ásgeir voru ein- staklega samhent í lífi sínu og var rausnarskap þeirra við brugðið, svo og umhyggja þeirra við ein- stæðinga. Tóku þau oft einstæð- inga, sem þeim voru alls ekki vandabundin, inn á heimilið og veittu þeim skjól í lengri eða skemmri tíma. Gestagangur var jafnan mikill hjá þeim og kær- leiksríkt samband við börnin og. fjölskyldur þeirra. Sigríður lézt í júní sl. og var missir hennar þungbær fyrir Ásgeir. Þau hjón reistu sér íbúðarhús árið 1935, svokallað Ásgeirshús, sem varð heimili þeirra til æviloka. Árið 1966, er ég réðist sem bæjarstjóri til Húsavíkur, kynnt- ist ég Ásgeiri Kristjánssyni og fjölskyldu hans. Ásgeir hafði þá sagt skilið við fyrri samherja sína í bæjarpólitíkinni og borið fram óháðan lista ásamt nokkrum vin- um sínum, þar sem hann var í fyrsta sæti. Listinn fékk 2 bæjar- fulltrúa kjörna. Ásgeir var þá sextugur að aldri og átti sæti í bæjarráði. Með okkur Ásgeiri og fjölskyldum okkar tókst vinátta sem aldrei bar skugga á. Naut ég í samvinnu okkar góðs af þekkingu Ásgeirs á mönnum og málefnum og af langri reynslu hans á sviði sveitarstjórnarmála. Öll lífsstefna hans mótaðist af samúð og um- hyggju fyrir lítilmagnanum. Af- staða hans til mála einkenndist jafnan af þessu og hann var jafnan boðinn og búinn að fórna sér í þágu Hknarmálefna. Hann var líka áhugamaður um fjölmörg mál, sem honum þóttu til fram- fara horfa fyrir byggð sína, land og þjóð. Hann gat verið harður í horn að taka eins og fræg mála- ferli, sem hann sótti sem málsvari sjómanna á Húsavík, bera vott um. En hann gat líka verið réttsýnn og laginn samningamað- ur, þegar svo bar undir. Beitingaskúr „Blönda" varí ára- tugi eins konar lýðháskóli á Húsa- vík. Þangað komu menn til þess að ræða dægurmál og ráða ráðum sínum. Þangað komu ungir dreng- ir og unglingar til þess að nema vísdóm af þeim sem eldri voru og þangað komu þeir sem komnir voru á efri ár og miðluðu af vísdómsforða sínum. Ásgeir leiddi umræðurnar með notalegri kímni. Aldurshámark starfsmanna virt- ist einhvern veginn hafa farið fram hjá Ásgeiri við forstöðu hans á beitingaskúrnum og kynslóðabil hefur hann áreiðanlega aldrei heyrt um. Skúrinn þjónaði í senn sem hluti af útgerðarfyrirtæki, samkomustaður „neðan við bakk- ann“, félagsmálastofnun, stofnun fyrir aldraða og uppeldisstofnun fyrir unglinga. Að leiðarlokum biðjum ég og fjölskulda mín þessum látna sómamanni blessunar Guðs og um leið og við vottum sonum hans og öðrum vandamönnum innilega samúð í sárum harmi. Björn Friðfinnsson í dag er til moldar borinn á Húsavík Ásgeir Kristjánsson, fyrrum bæjarfulltrúi og forystu- maður sjómanna og verkamanna á Húsavík. Þeim fer nú ört fækkandi sem stóðu í eldlínu verkalýðsbarátt- unnar á frumbýlingsárum hennar. Ásgeir var fæddur á Húsavík 18. desember 1906. Hann var sonur hjónanna Kristjáns Sigurgeirs- sonar verkamanns þar og Þuríðar Björnsdóttur. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum í hópi sjö syst- kina. Ásgeir fór snemma að vinna fyrir sér eins og þá var títt. Á sumrin var hann í vist í Garði í Aðaldal, en í Aðaldal liggja ættir hans. En sjómennskan og störf að útgerð varð hans ævistarf. Fram- an af reri hann með þekktum formönnum á Húsavík svo sem Þórði Markússyni er seinna varð tengdafaðir hans. Snemma kynntist Ásgeir bar- áttunni fyrir bættum kjörum al- þýðunnar. Þuríður móðir hans var fyrsti formaður Verkakvennafé- lagsins Vonar á Húsavík. Því er óhætt að segja að Ásgeir, sem og bræður hans og systir, hafi drukk- ið í sig baráttuandann með móð- urmjólkinni. Kristján faðir hans starfaði einnig mikið að verka- lýðsmálum. í afmælisviðtali við Ásgeir 70 ára segir hann frá því að ein af sínum elstu bernsku- minningum væru ferðir hans um þorpið með fundarboð fyrir móður sína. Sér hafi þá oft verið misjafn- lega tekið. Ásgeir fór snemma að stunda útgerð í félagi við bræður sína. Fyrsti báturinn sem ég man eftir að Ásgeir gerði út með Birni bróður sínum var Þengill. Það var mikil happafleyta. Ásgeir sá um vinnuna í landi en Björn og faðir minn voru á sjónum. Ásgeir var ákaflega vinnusamur og hafði mikið vinnuþrek. Hann var sívilj- ugur. Ég man oft eftir honum í löngum aflahrotum á vorin. Þá svaf hann ekki mikið og aldrei skyldi hann láta standa upp á sig. Hann varð snemma bjargálna og þurfti ekki til annarra að sækja, en því var við brugðið hve veitull hann var og hjálpsamur. Á Húsavík hagar svo til að öll starfsemi er að sjónum lýtur fer fram neðan við bakkann, í fjör- unni. Þar var starfsvettvangur Ásgeirs. Hann valdist snemma til forystu af þeim mönnum sem þar störfuðu. Samfélagið fyrir neðan bakkann var sérstæður heimur þar sem málin voru rædd fram og aftur, jafnt bæjarmálin sem út- gerðin, landsmálin sem veðrið. Ásgeir var jafnan landformaður og í beitingaskúrnum voru oft fjörugar umræður og snarpar. Þó Ásgeir væri harður og fylginn sér var hann skapléttur og glettinn. Hann hafði gott lag á því að halda uppi léttu gamni í skúrnum og koma körlunum til. Hann fékk þá til að leysa frá skjóðunni og segja frá ýmsu sem öðrum tókst ekki. Þeir vissu enda hvern hauk þeir áttu í horni þar sem Ásgeir var. Hlátur hans var mjög hrífandi og smitandi. Það var á kreppuárunum sem Ásgeir hóf sinn búskap. Þá var hart í ári og verkamenn og sjómenn fengu ekki mikið í sinn hlut. Höfnin á Húsavík var þá illa varin og ekki hægt um vik að stunda róðra þegar kom fram á + Systir mín, LOVÍSA LUÐVÍK SDÓTTIR, frá Noröfirði, andaðist 29. október á heimili sínu Laugarásvegi 1, Reykjavík. Karl Lúövíksson. + Þökkum af alhug auösýnda samúð við andlát og útför, JÓNS GESTS VIGFUSSONAR, fyrrum sparisjóösgjaldkera, Suóurgötu 5, Hafnarfiröi. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Sólvangs fyrir frábæra umönnun. Aöatandendur. ■ t Dóttir mín og systir okkar. KRISTÍN S. THORLACIUS, lést að Borgarspítalanum 18. október. Jarðarförin hefur fariö fram. Þörarna Erlendsdóttir og dætur. + Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug viö fráfall og útför mæögnanna, MARGRÉTARJÓNSDÓTTUR og EYGLÓARSTEFÁNSDÓTTUR, frá Skuld, Vestmannaeyjum. + Guð blessi ykkur öll. Astvinir hinna látnu. T SIGRÍÐAR MAGNÚSOÓTTUR, Hringbraut 81, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 3. nóvember ki. 13.30. + Ragnheiöur Magnúadóttir, Sigrún Magnúsdóttir. Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu við andlát GUÐBJARGARHELGUJENSDÓTTUR. + Innilegustu þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför GUÐLAUGAR SIGURÐARDÓTTUR, Seljalandsseli. Dagmar Andersen, Ólöf Gissurardóttir, Ragnar Eiríkur Björnsaon, Ragnar F. Guömundsson, Bergljót Sveinsdóttir, Gúataf Guömundsson, Karitas Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki deildar 2, Vífilstaða- spítala. Helgi Jónasson og börn. L + Þökkum innilega samúð við andlát og jaröarför móður okkar og tengdamóður, GUÐRUNAR GUNNARSDÓTTUR, Kirkjuteígi 17, Reykjavík. Svanhildur Svanberg, Bolli A. Ólafsson, Gunnar Svanberg, Kristín Sturludóttir, börn og barnabörn. i Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vináttu við andlát og jarðarför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEiNUNNAR ONNU SÆMUNDSDÓTTUR, Njaröargötu 29. Ragnheiöur Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Hjartarson, Tómas Guðmundsson, Erna Þorsteinsdóttir, Sæmundur Guðmundsson, Guömundur Ingi Guömundsson, Kristín Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.