Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 Merkur áíaruci náðist í gær í heilbrÍKðisþjónustu á Suðurnesjum, þe«ar tekin var þar i notkun efri hæð nýbyKKÍntíar við Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs. Bára Kjartansdóttir Einholti 2, Garði, var sú fyrsta sem la^ðist inn á hina nýju deild ok i fyrrinótt fæddi hún myndarlext sveinbarn, 15 merkur og 56 cm. Eiginmaður Báru er Guðni Adolpsson. Á myndinni má sjá Báru með soninn ok hjá standa Kristján SÍKurðsson, sjúkrahússlæknir, ok Hulda Björns- dóttir, ljósmóðir. Ljósm. Mbl. Ásdís. Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins: Taldi stjórnarandstöðu farsælasta sumarið 78 — í innanflokksmálum ber að leita samkomulags til þrautar áður en hrópað er í f jölmiðlum um atkvæðagreiðslu BENEDIKT Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, var eftir kosn- ingarnar 1978 þeirrar skoðunar, að „farsa'last mundi vera“ fyrir þingflokk Alþýðuflokksins að vera í stjórnarandstöðu. í ræðu á hátíðarfundi 39. flokks- þings Alþýðuflokksins í gærkvöldi sagði Benedikt m.a.: „Bæði fyrir og eftir kosningasigurinn 78 var ég persónulega þeirrar skoðunar, og dró enga dul á það í samtölum við menn, þótt varhugavert væri að segja það opinberlega, að far- sælast mundi vera fyrir hinn nýja og unga þingflokk að byrja á því Eyjólfur Sigurðsson, gjaldkeri Alþýðuflokksins: Segir sig úr flokkn- um vegna samstarfsins við Alþýðubandalagið „ÉG hef starfað í Alþýðuflokkn- um síðan ég var 16 ára. En nú hef ég komizt að þeirri niðurstöðu. að ég eigi ekki lengur samleið með Alþýðuflokknum og því þyk- ir mér rétt að tilkynna hér, að ég hef gengið úr Alþýðuflokknum,“ sagði Eyjólfur Sigurðsson. gjald- keri Alþýðuflokksins, i lok ræðu sinnar á 39. flokksþingi Alþýðu- flokksins i gær. Eyjólfur hefur verið gjaldkeri Alþýðuflokksins síðan 1978, 1976—78 var hann formaður framkvæmdastjórnar flokksins og í flokksstjórn og miðstjórn hefur hann setið í 20 ár. Eyjólfur sagði, að þessi ákvörð- un sín ætti ekkert skylt við þær sviptingar, sem nú ættu sér stað í forystumálum Alþýðuflokksins. Hann hefði verið eindreginn and- stæðingur þeirrar ríkisstjórnar, sem Alþýðuflokkurinn hefði geng- ið til í ágúst 1978, og ekki legið á þeirri skoðun sinni, en þá hefðu ýmsir þingmenn, sem sáu ofsjón- um yfir ráðherrastólum, kallað sig flokkssvikara og fleiri ónefnum. „Öllum er kunn sorgarsaga Al- þýðuflokksins síðan og við, sem Þremur mönnum bjargað ÞREMUR mönnum var naumlega bjargað af skurðgröfu. sem komin var í kaf í miklum vatnavöxtum í Fljótsdal í gærdag. Mennirnir fóru á vörubíl og skurðgröfu til að laga veg í Fljótsdal milli Jökulár og Keldnaár. Mjög mikill vöxtur hljóp í árnar, svo mikill að vatnsyfirborðið hækkaði um 20 cm á nokkrum mínútum. Mennirnir lentu í sjálfheldu milli ánna. Brugðu þeir á það ráð að yfirgefa bílinn og fara í gröfuna. Björgunarsveitin á Egilsstöðum var kölluð til hjálpar og fór hún til mannanna á jarðýtu. Þegar komið var á staðinn um áttaleytið var grafan komin í kaf en mennirnir voru á þaki hennar og höfðu þeir bundið sig við gröfuna með köðlum. Komið var með þá til bæja um ellefuleytið í gærkvöldi. Geysimikil úrkoma var í gær og urðu víða skemmdir á vegum á Austurlandi. ekki samþykkjum samstarf við Alþýðubandalagið í neinni mynd, sjáum þess nú öll merki, bæði hjá flokknum og í verkalýðshreyfing- unni, hvaða afleiðingar það hef- ur,“ sagði Eyjólfur. Mbl. ræddi við Eyjólf eftir ræðu hans, en hann kvaðst aðeins vilja undirstrika það, að reynslan sýndi, að Alþýðuflokkurinn hefði stórtapað á samstarfinu við Al- þýðubandalagið, bæði í stjórnmál- um og verkalýðsmálum, en Al- þýðubandalagið haldið öllu sínu á kostnað Alþýðuflokksins. Að öðru leyti vildi Eyjólfur ekki ræða þessa ákvörðun sína, orsakir hennar og afleiðingar, nánar. Jón H. Guðmundsson gerði einn ræðumanna úrsögn Eyjólfs að umtalsefni. Fór hann lofsamleg- um orðum um störf Eyjólfs fyrir Alþýðuflokkinn og kvaðst vita það, að slík ákvörðun hefði ekki verið tekin átakalaust. Eyjólfur hefði árum saman barizt við þau öfl í flokknum, „sem mér liggur við að segja að séu flokknum fjandsamleg". Vegna þessarara baráttu hefðu „vissar klíkur" í flokknum sparkað í Eyjólf æ ofan í æ. Þessar klíkur hefðu komið fram í fjölmiðlum, þegar viðkvæm mál hefðu verið á döfinni, og þá gefið alls kyns yfirlýsingar, flokknum fjandsamlegar. Sagði Jón, að mikil vá væri fyrir dyrum hjá Alþýðuflokknum vegna starf- semi þessara afla. að vera í stjórnarandstöðu eitt kjörtímabil til þess að nýju fólki gæfist tími til að átta sig á nýjum störfum og flokkurinn gæti lagað sig að nýju fylgi og nýjum aðstæð- um. En það má heita lögmál — eða hluti af kerfi samsteypuríkis- stjórna, að svo miklum sigri fylgir sú kvöð að taka þátt í stjórn, nú rétt eins og 34, 47, 59 og 67.“ „Ég tel, að þetta flokksþing eigi alls ekki að verða uppgjör um liðna tíð, heldur krefjist flokks- hagur, að þingið snúi sér mót framtíðinni og móti stefnu fram um veg,“ sagði Benedikt. Og hann sagði einnig: „Við höfum aukið lýðræðið til muna í öllu starfi Álþýðuflokksins undanfarin ár. En lýðræðið er ekkert leikfang. Það er auðvelt að misnota það og þá verður skammt frá lýðræðinu í stjórnleysi. I innanflokksmálum ber fyrst og fremst að kanna til þrautar leiðir til almenns sam- komulags, áður en hrópað er í lúðra fjölmiðla um atkvæða- greiðslur, því fleiri því betri." Ræðu sinni lauk Benedikt svo: Fargjald S.V.R. 280 krónur FRÁ og með 1. nóvember 1980 verða fargjöld Strætisvagna Reykjavikur sem hér segir: Fargjöld fullorðinna: Einstök fargjöld kr. 280, stór farmiða- spjöld kr. 5.000 24 miðar, lítil farmiðaspjöld: kr. 2.000 8 miðar, farmiðaspjöld aldraðra kr. 2.500 24 miðar. Fargjöld barna: Einstök far- gjöld kr. 70, farmiðaspjöld kr. 1.000 26 miðar. Fréttatilkynninx Irá S.V.R. „Eg treysti þessu þingi mætavel til að kjósa flokknum dugmikla, trausta og ábyrga stjórn, sem muni leiða okkur til aukinna áhrifa og enn meiri sigurs. Ég segi við hina nýju stjórn, sem valin verður á morgun, skip- stjórann og áhöfn hans; Góða ferð, gæfan fylgi ykkur — og aflið nú vel.“ Óku á staur og stungu af FÓLKSBIFREIÐ var ekið harka- lega á ljósastaur á Fríkirkjuvegi við Tjörnina klukkan 6.50 i gærmorgun. Bifreiðin valt og skemmdist mikið, sömuleiðis urðu skemmdir á staurnum. Þegar lögreglan kom á staðinn greip hún í tómt, enginn var í bílnum. Grunur lék á að 2—3 hafi verið í bílnum. Síðdegis í gær náðist í mann nokkurn, sem viður- kenndi að hafa verið í bílnum. Kvaðst hann hafa verið farþegi í bílnum en kunningi hans hefði ekið. Báðir sluppu ómeiddir en grunur leikur á að ökumaðurinn hafi verið ölvaður. Lögbann lagt á ABC í gær LÖGBANN var í gær lagt á notkun nafnsins ABC á nýlegt barna- og unglingablað, sem Frjálst framtak hf. gefur út. Lögbannið var lagt á að kröfu ABC hf., auglýsingastofu eftir að hún hafði lagt fram fjögurra milljóna króna tryggingu. Ákvörðun Landsvirkjunar: 50 megawatta skömmtun til 3ja stórra kaupenda FRÁ og með mánaðamótunum Talið er að til enn frekri skömmt- gengur i gildi skömmtun á raf- orku til þriggja stórra orkukaup- enda Landsvjrkjunar. Samtals er að ræða 50 megawatta um skömmtun en skömmtunin i fyrravetur varmest 37 megawött. Magnús L. Sveinsson um vísitöluskerðingaráform ríkisstjórnarinnar: Fordæmi alltaf, grípi ríkis- valdið inn i gerða samninga „ÉG barðist mjög hart gegn visitöluskerðingunni fyrrihluta árs 1978 og þarf ekki annað en vísa i umma'li mín. t.d. 1. mai það ár í því samhandi,“ sagði Magnús L. Sveinsson. formaður Verzlunarmannafélags Reykja- víkur í samtali við Morgunblað- ið í gær. „Ég hefi ekki breytt um skoðun og ég fordæmi það á öllum timum, að ríkisvaldið gripi inn í gerða samninga og ógildi þá. Það er alveg sama. hvaða tími er, verkalýðshreyf- ingin getur ekki annað en fordæmt slíka aðgerð. Ég skipti ekki um skoðun eftir því hvaða rikisstjórn er við völd. og vona, að þannig sé einnig um aðra forystumenn i verkalýðshreyf- ingunni.“ Magnús L. Sveinsson kvaðst ekki hafa heyrt neitt formlegt um vísitöluskerðingaráform rík- isstjórnarinnar, en kvaðst hafa séð haft eftir Tómasi Arnasyni viðskiptaráðherra, að eitthvað væri í bígerð. Magnús sagði: „Ég hef séð haft eftir ráðherrum, að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða fyrir 1. desember næst- komandi með það í huga að skerða vísitöluna. Ef framhald verður á slíkum upplýsingum, er eðlilegt, að launþegasamtökin athugi, hvort ekki sé rétt að taka þetta alvarlega og fá úr því skorið, hvort þetta eru fyrirætl- anir ríkisstjórnarinnar." Að lokum sagði Magnús L. Sveinsson, formaður Verzlun- armannafélags Reykjavíkur: „Ef þetta eru áform af hálfu ríkis- stjórnarinnar, er æskilegast, að þau komi fram sem allra fyrst, þannig að verkalýðshreyfingin viti á hverju hún á von. Það er eðlilegt, að tóm gefist fyrir Alþýðusambandsþing að ræða slík áform, enda er þingið æðsta ráð verkalýðshreyfingarinnar." unar þurfi að koma seinna i vetur. Samkvæmt upplýsingum Hall- dórs Jónatanssonar aðstoðar- framkvæmdastjóra Landsvirkjun- ar verður mesta skömmtunin til járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga eða sem nemur 32 megawöttum. Er það sama afl og þarftil að knýja ofn 2 hjá verk- smiðjunni. Skömmtun til Álvers- ins í Straumsvík nemur 12 mega- wöttum og skömmtun til Áburðar- verksmiðjunnar í Gufunesi nemur 6 megawöttum. Alls er þetta 21% af orkuþörf fyrirtækjanna þriggja, sem er 242 megawött. Halldór Jónatansson sagði að álagið hefði stóraukist frá i fyrra. Gangsetning ofns 2 hjá Járn- blendiverksmiðjunni krefðist 32 megawatta viðbótarorku, stækkun Álversins 20 megawatta og auk þess hefðu Vestfirðir, Skeiðsfoss- kerfið og Vopnafjörður verið tengdir landskerfinu. Halldór sagði að í október hefði mælst mesta álag á Landsvirkjunarkerf- ið hingað til eða 427 megawött. Allar stöðvar Landsvirkjunar gætu framleitt 450 megawött til samans svo sjá mætti, að allar stöðvar væru meira og minna fultnýttar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.