Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 Hægrimenn á Jamaica unnu Kingston. 31. október. — AP. EDWARI) SeaKan vann yfir- burda-sÍKur á sósíalistanum Michael Manley forsætisráðherra f kosninKunum i Jamaica í K»‘r <»K lýsti þvi yfir að hann myndi rétta við efnahan landsins, hreyta stefnunni í utanríkismál- um ok senda sendiherra Kúhu til Ilavana. Aftenposten lögsækir prentara OhIó, 31. ukt. - AP. AFTENPOSTEN útbreiddasta blað NoreKs hefur ákveðið að hefja málssókn KCKn prenturum hlaðsins veKna taps þess sem blaðið hefur orðið fyrir veKna ólöKmætra mótmælaaðKerða þeirra. í viku hafa prentararnir unnið ha-Kt ok neituðu i k»t að hætta þeim aðKerðum. Framkvæmdastjóri hlaðsins, Einar Fr. NaKell-Erichsen sagði í morgunútKáfu Aftenposten í dag að tapið sem blaðið hefði orðið fyrir á þessari viku væri um 200 milljónir íslenskar krónur. Prentararnir eru með þessum aðgerðum sinum að mótmæla því að þeir einir starfsmanna blaðsins fá greitt fimm vikna sumarfrí. Er það skoðun þeirra að aðrir starfs- menn blaðsins sem vinna á vöktum, eigi einnig að fá svo langt sumar- frí. Norska prentarafclagið, norska alþýðusambandið og norska vinnu- veitendasambandið hafa sagt að- gerðir prentaranna ólöglegar og hvatt þá til að taka upp eðlilegan vinnuhraða á ný. Talningu atkvæða var hætt í nótt eftir skotárásir á bækistöðv- ar yfirkjörstjórnar og aðallög- reglustöðina í Kingston. Einn lögreglumaður beið bana og þar með voru að minnsta kosti þrír vegnir á kjördag. Aður en talningu var frestað bentu kosningatölur til þess að flokkur Seaga fengi allt að 51 þingsæti af 60, miðað við 13 í síðustu kosningum, þannig að þingsætatalan nálega fjórfaldast. Flokkur Manleys hafði áður 47 þingsæti. Þúsundir stuðningsmanna Seaga létu fögnuð sinn óspart í ljós og hringdu bjöllum, sem eru tákn Verkamannaflokks hans. Stuðningsmenn flokksins óku um nágrenni aðalstöðvar flokksins og hrópuðu „Eddie, Eddie, Eddie". Elísabet Bretadrottning hefur að undanförnu verið í heimsókn í Mið-Austurlöndum. Er drottningin var stödd í Alsír fór hún í heimsókn á sjúkrahús til fórnarlamba jarðskjálftans í A1 Asham. Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum: Vandamál á báða bóga Frá <)nnu Bjarnadóttur. frcttaritara Mhl. i Waahinfttun, 31. uktóber. RONALD Reagan og Jimmy Carter leggja sig nú alla fram um að auka fylgi sitt fyrir kosningarnar á þriðjudag. Rea- gan mun eyða mestum tíma fram að kosningum í stóru iðnaðarríkjunum, þar sem að atvinnuleysi er mikið og óánægja ríkir með efnahags- stefnu Carters. Carter mun ferð- ast um Suðurríkin og höfða til gamalla kennda í garð Demó- krataflokksins. Carter vann sig- ur í öllum Suðurríkjunum 1976, en hrifning af honum þar hefur dvínað mjög síðan þá, jafnvel þótt hann sé Suðurríkjamaður sjálfur. Vandræðamál komu upp í her- búðum beggja frambjóðendanna á fimmtudag. Richard Allen, helzti ráðgjafi Reagans um utanríkismál, sagði af sér störf- um vegna fréttar í Wall Street Journal fyrr í vikunni um sam- skipti hans við japönsk fyrirtæki þegar hann starfaði fyrir stjórn Richards Nixon. Blaðið sagði, að Allen hefði notað aðstöðu sína til að verða sér úti um viðskipta- sambönd í Japan. Allen hefur neitað áburðinum, en lét af störfum fyrir Reagan til að mál þetta spillti ekki fyrir kosn- ingamöguleikum Reagans. Þá fréttist, að Hvíta húsið hefði tafið fyrir rannsókn á málum Billy Carters með því að hindra aðgang að gögnum Cart- ers forseta, en hann lofaði á blaðamannafundi 1. ágúst að leggja rannsókninni allt sitt lið. Hvíta húsið hefur neitað að hafa tafið viljandi fyrir rannsókninni á nokkurn hátt. Einn starfs- manna Carters, Frank Moore, var látinn hætta störfum fyrir Carter á fimmtudag, eftir að hann lét hafa eftir sér í viðtali, að stjórn Carters biði þess, að ayatollah Khomeini í íran létist af krabbameini í endaþarmi og framámenn úr íranska hernum tækju völdin. Ákvörðunar ír- anska þingsins, sem mun hittast á sunnudag, um framtíð banda- rísku gíslanna í Iran er beðið með mikilli eftirvæntingu í Bandaríkjunum, en lausn gísla- málsins gæti komið Carter vel á þriðjudag. Svíar smygla bandarísk- um tölvum til Sovétríkjanna Stokkholmi. 31. okt. — AP. SÆNSKT tölvuíyrirtæki smygl- aði bandariskum tölvueiningum til Sovétríkjanna Kegnum sendi- ráð Sovétmanna i Stokkhólmi, að því er sænska sjónvarpið sagði í daK. Fyrirtækið Datasaab, var með CARTER forseti Bandaríkjanna hefur tilnefnt A.W. Clausen bankastjóra Bank of America sem eftirmann Robert McNam- ara i stöðu bankastjóra Alþjóða- bankans. McNamara hefur verið bankastjóri Alþjóðabankans síð- þessu að bjarga samningi sem það gerði við sovéska loftferðaeftirlit- ið upp á tæpa fjóra milljarða ísl. kr. Tölvueiningarnar voru keyptar til Stokkhólms en sendar þaðan til Moskvu sem sendiráðspóstur, að an árið 1968. Hann lét af störfum 1. júli sl. Clausen er 57 ára frá San Francisco í Bandaríkjunum. Hann á meðal annars sæti í viðskipta- nefnd Bandaríkjanna, í nefnd sem sér um viðskipti Bandaríkjanna og Kína og í stjórn Harvard- háskólans. því er fram kemur í skýrslum sænska iðnaðarráðuneytisins. I fyrstu neitaði ráðuneytið að hafa undir höndum skýrslu um efnið. En síðan sagðist iðnaðarráðherr- ann, Nils G. Asling, vita um þessa skýrslu en hann hefði ekki lesið hana. Datasaan, sem þá hét Stansaab, gerði mikinn samning við sovéska loftferðaeftirlitið snemma árs 1978. Það eina sem hindraði fyrir- tækið í að framfylgja samningn- um var það að Bandaríkja- mönnum er bannað selja vissar tölvueiningar til Sovétríkjanna. Því greip fyrirtækið til þess ráðs að smygla þeim til Sovétríkjanna gegnum Svíþjóð. Veður víða um heim Akureyri 13 alakýjaó Amsterdam 14 heióakírt Aþena 23 heióakírt Berlin 10 heiöakfrt BrUsael 15 heiðakírt Chicago 11 heiöakirt Feneyjar 15 léttakýjaö Frankfurt 10 rigning Færeyjar 10 aiakýjaö Genf 11 akýjaó Helainki 0 heiöakfrt Jerúsalem 10 aólakin Jóhannesarborg 28 heiöakfrt Kaupmannahöfn 7 heiöakfrt Laa Palmaa 23 léttakýjaó Liaaabon 23 heiðakfrt London 12 heiöakirt Loa Angeles 32 heiöakírt Madrid 22 heióakírt Malaga 20 akýjaö Mallorca 22 léttakýjaö Miami 29 akýjað Moakva 10 heiöakírt New York 11 heiðekírt Oaló 1 aólakin Parfa 14 aólakin Reykjavfk 10 rigning Rfó de Janeiro 38 akýjaö Rómaborg 19 akýjaó Stokkhólmur =2 heiöakírt Tel Aviv 24 aólekin Tókýó 19 heiöakfrt Vancouver 12 akýjaö Vínarborg 13 ekýjaó Þetta gerðist 1. nóv. 732 — Karl Martel sigrar Araba í Frakklandi eftir sjö daga orrustu. 1509 — Málverk Michelangelos í Sixtínsku kapellunni fyrst sýnd opinberlega. 1755 — Jarðskjáiftinn mikli í Lissabon verður 60.000 að bana. 1814 — Vínar-ráðstefnan sett. 1856 — Stríð hefst milli Breta og Persa, sem hertaka Horak. 1914 — Sjóorrustan við Coronel. 1943 — Landganga Bandaríkja- manna á Solomoneyjum. 1945 — Bretar tilkynna að öll verksummerki bendi til þess að Adolf Hitler hafi framið sjálfs- morð. 1950 — Tveir Puertoríkanar reyna að myrða Truman forseta í Blair House, Washington. 1952 — Bandaríkjamenn sprengja fyretu vetnissprengju sína á Eni- wetok á Marshalieyjum. 1963 — Herbylting í Suður- Víetnam og Ngo Dihn Diem ráð- inn af dögum. 1975 — Bardagar milli Kínverja og Indverja á landamærum. 1977 — Mannræningjar sleppa hoilenzka auðmanninum Maurits Caransa úr haldi. Afmæli. Benevenuto Cellini, ít- alskur myndiistarmaður (1500— 1571) — Francis Hutcheson, skozkur heimspekingur (1694— 1746) — Nicholas Boileau, franskt skáld (1636-1711) - Victoria de los Angeles, spænsk óperusöng- kona (1924—). Andlát. 1894 Aiexander III RÚ8sakeisari — 1903 Thomas Mommsen, sagnfræðingur — 1972 Ezra Pound, skáld — 1979 Mamie Eisenhower, forsetafrú. Innlent. 1197 d. Jón Loptsson í Odda — 1255 Sættir Hrafns Oddssonar og Þorgils skarða að Hóiavaði í Vatnsdal — 1258 Þrjá- tíu menn sverja Gizuri jarli og Hákoni konungi trúnaðareiða — 1355 d. Ormr Ásláksson biskup — 1928 Héraðsskóii að Laugarvatni settur — 1928 Hvítárbrúin gamla opnuð — 1930 Gagnfræðaskóli á Akureyri settur — 1930 Kaupfé- lag Árnesinga stofnað — 1939 ísl. sýningunni á Heimssýningunni lýkur - 1940 Háskólabókasafn opnað — 1967 Almannagjá lokað fyrir bílaumferð — 1968 Skipulagi ASÍ breytt. Orð dagsins. Lýðræði er orð, sem allir stjórnmálamenn nota og eng- inn þeirra skilur — George Bern- ard Shaw, írskættaður rithöfund- ur (1856-1950). Eftirmaður Mcnamara Waxhinjcton 31. okt. — AP. Larsen enn efstur Hucnos Aires, 31. okt. — AP. BENT Larscn frá Danmörku vann Miquel Najdorf frá Argcn- tínu ok Kcrði jafntefli við Timm- an frá Hollandi á alþj<>ðlcKa skákmótinu í ArKcntínu i ga-r. Þar mcð jók Larsen cnn á forskot sitt. í gær voru aðeins leiknar bið- skákir. Skák Friðriks Ólafssonar og Brownew frá Bandaríkjunum lauk með jafntefli eftir 41 leik. Önnur úrslit urðu þau að Timman gerði jafntefli við Ljubojevic og Panno en vann Kavalek. Ljubojevic og Giardelli gerðu jafntefli. Þremur skákum var frestað vegna veikinda argentínumannsins Quinteros. Átti hann að tefla við Najdorf, Balashov og Hort. Karpov og Ulf Anderson áttu frí á fimmtu- daginn. Larsen er enn í fyrsta sæti með 8'A vinning en Ljubojevic og Timman eru í öðru til þriðja sæti með 6Vfe vinning. Friðrik Ólafsson er í níunda sæti með 4 vinninga. 10 umferðum er lokið en alls verða tefldar þrettán umferðir. Fékk aðeins 93%. Dar-os-Salaam. 31. uktóbor. — AP. JULIUS Myerere var cndurkos- inn forseti Tanzaniu til næstu fimm ára með 93,6% atkvæða, en hlaut 93,6% i siðustu kosningum, þegar enginn bauð sig fram gcgn honum frekar en nú. Nyerere er 58 ára og hefur verið forseti siðan Tanzanía hlaut sjálfstæði frá Bretum fyrir 18 árum. r ^ ERLENT,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.