Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 47 Úrvalsdeildin í körfuknattleik UMFN yfir- spilaði Val -VIÐ verðum i haráttunni um Islandsmeistaratitilinn þaö er ljóst, en hvort við verðum í 1.—2. eða 3. sæti vil ég en>ju spá um. Þrátt fyrir að við hofum sigrað Val i kvöld verða þeir með í baráttunni lika. Þeir eijja nefni- le«a eftir að fá sinn Bandarikja- mann“ saKÖi Gunnar Þorvarðar- son UMFN eftir leikinn gegn Val í gærkvöldi. Lið UMFN vann stóran sigur á Val og yfirspilaði þá aÍKjörleKa i siðari hálfleikn- um eftir frekar jafnan fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 48—46 fyrir UMFN. Lið Vals barðist vel í fyrri hálfleik og vörn þeirra var sterk. Og í byrjun síðari hálfleiks- ins jafna Valsmenn metin 48—48, en síðan komu 10 stig í röð frá Danny Shouse og staðan breytist í 58—48. Tveimur mínútum síðar var staðan svo orðin 63—50. Leik- menn UMFN pressuðu leikmenn Vals mjög stíft í síðari hálfleikn- um fram á völlinn, og fyrstu 9 mínútur síðari hálfleiks skoraði Valur aðeins 4 stig. Fyrstu 15 mínútur síðari hálfleiksins skor- aði Valur aðeins 15 stig. Um tíma var staðan orðin 73—50 fyrir Njarðvík. Öruggur sigur aðeins spurning um hversu stór hann yrði. Lið Vals var algjörlega yfir- spilað í síðari hálfleik. Bestu Lið UMFN: Guðsteinn Ingimarsson 7 Gunnar Þorvarðarson 7 Jónas Jóhannesson 7 Jón Viðar Matthiasson 6 Þorsteinn Bjarnason 5 Árni Lárusson 5 Valur Ingimundarson 5 UMFN — Valur 91:74 menn UMFN voru Danny Shouse sem skoraði 38 stig. Þrátt fyrir að hann skori mikið er hann ekki eigingjarn á boltann. Þá temprar hann leikinn á réttum augnablik- um. Gunnar Þorvarðarson átti og góðan leik, sérstaklega í síðari hálfleiknum, Gunnar skoraði 18 stig. Guðsteinn var mjög virkur í spilinu og er dýrmætur liðinu, hann skoraði 11 stig. Jónas skor- aði 9 stig og var sterkur í fráköstum. Valur Ingimundarson skoraði 5 stig, Þorsteinn Bjarna- son 4 stig, Árni Lárusson 4 stig og Jón Viðar 3 stig. Hjá Val bar mest á Ríkharði og Torfa, það er ljóst að án Banda- ríkjamanns á Valur enga mögu- leika á að verja titilinn í ár. Stigahæstu menn Vals voru Kristján Ágústsson 20, Torfi Magnússon 15, Ríkharður Hrafn- kelsson 9, Þórir Magnússon 6, Jóhannes Magnússon 6, Jón Steingrímsson 4, Sigurður Hjör- leifsson 8, Guðmundur Jóhannes- son 2, Gylfi Þorkelsson 2, og Leifur Gústafsson 2. II Halls. Lið VALS: Kristján Ágústsson 7 Torfi Magnússon 7 Rfkharður Ilrafnkelsson 7 Jón Steingrimsson 6 Sigurður Hjörleifsson 5 Leifur Gústafsson 4 Jóhannes Magnússon 5 Gylfi Þorkelsson 4 Guðmundur Jóhannesson 4 Pétur Hjálmarsson markvörður KR ver skot úr horninu. Fimmtitapleikur Fram í röð í Islandsmótinu Stórsigur hjá Atla „ÞETTA var góður leikur af okkar hálfu eftir 30 minútna leik var staðan orðin 5—0, en þrátt fyrir að við pressuðum stíft þá tókst ekki að skora fleiri mörk sagði Atli Eðvaldsson er Mbl. spjallaði við hann i gærkvöldi. Lið Atla Borussia Dortmund sigraði Duisburg á heimavelli 5-1. Nokkrir leikir fóru fram í fyrstu deild vestur-þýzku knattspyrn- unnar í gærkvöldi: FC Bayern 4 — Núrnberg 2 Borussia Mönchengl. 2 — Köln 0 Dortmund 5 — Duisburg 1 Hamburg 2 — Armenia Bielefeld 0 Schalke 04 1 — Munich 1860 0 Leverkusen 1 — Stuttgart 1 Uerdingen 1 — Kaiserlautern 0 Fram tapaði sinum fimmta leik í röð i íslandsmótinu i handknatt- leik i gærkvöldi er liðið tapaði fyrir KR með 26 mörkum gegn 30. Eins og markatalan gefur til kynna var varnarleikur beggja liða mjög bágborinn allan leik- inn svo og markvarslan. Sér i lagi var þó vörn og markvarslan hjá Fram slök. Staðan i hálfleik var 16—15 Fram í hag. Allur fyrri hálfleikurinn var mjög hraður og svo til hver einasta sókn endaði með marki. Enda voru skoruð 31 mörk í fyrri hálfleikn- um. Meira en mark á mínútu. Markvarslan hjá liðunum var ekki til. Markverðir KR vörðu til dæm- is eitt skot allan fyrri hálfleikinn. Markmenn Fram fjögur. Þá var óvenjulegt að sjá KR leika svo slaka vörn. KR—ingar höfðu frumkvæðið lengst af í fyrri hálf- leiknum. En á 16 mínútu náðu Framarar að jafna metin 8—8. Náðu síðan yfirhöndinni og voru marki yfir í hálfleik. KR—ingar komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleiknum og léku þá mun betur en í þeim fyrri. Vörn þeirra og markvarsla lagaðist mikið. Enda tók liðið forystuna í leiknum á fyrstu mínútum hálfleiksins og hélt henni út allan leikinn. Þegar 10 mínútur voru til leiksloka var staðan 23—19 fyrir KR, og átti Fram aldrei neitt svar við leik KR — Fram 30:26 þeirra. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka brugðu leikmenn Fram á það ráð að leika maður á mann og var þá mikill dans stiginn á fjölum hallarinnar. En það bragð Fram dugði skammmt og KR—ingar sigruðu örugglega 30-26. Leikur liðanna var lengst af nokk- uð slakur. Mikill hraði var í leiknum og var sem leikmennirnir réðu lítið við hann. Lið KR var betri aðilinn. Þar lék Alfreð Gísla- son aðalhlutverkið og skoraði hann ellefu mörk í leiknum þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð síðustu 8 mínútur leiksins. Þeir Haukur Ottesen, Haukur Geir- mundsson áttu báðir góðan leik. Jóhannes Stefánsson var sterkur í vörninni. Ekki er gott að dæma um hvað er í raun að hjá liði Fram. í liðinu eru margir góðir handknatt- leiksmenn bæði ungir og leikmenn með mikla reynslu. Leikmenn finna bara engan veginn rétta taktinn. Atli Hilmarsson lék með Fram að nýju eftir meiðsli sem hann hlaut og styrkti hann liðið mikið og átti góðan leik. Þá léku þeir Axel og Björgvin báðir vel. Markvarslan hjá liðinu er mikill höfuðverkur, en þess ber að gæta að varnarleikurinn var heldur ekki sterkur. I stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. Laugardalshöll. KR—Fram 30-26 (15-16). Mörk KR: Alfreð Gíslason 11 3v, Konráð Jónsson 4, Haukur Otte- sen 4, Haukur Geirmundsson 4, Jóhannes Stefánsson 3, Ragnar Hermannsson 2, Björn Pétursson 2. Mörk Fram: Axel Axelsson 7 4v, Björgvin Björgvinsson 6, Atli Hilmarsson 4, Hermann Björns- son 3, Theódór Guðfinnsson 2, Hannes Leifsson 2, Erlendur Her- mannsson 1, og Jón Árni Rúnars- son 1. Misheppnuð vítaköst: Pétur Hjálmarsson KR varði hjá Axel á 45. mínútu og hjá Atla á 53 mínútu. Brottvísun af leikvelli: Erlendi, Axel og Hannesi var vísað út af í 2 mínútur hverjum. Hjá KR var Alfreð og Konráð vísað út af í 2 mín. —ÞR. „Gætum marið sigur i stigakeppninni — segir Ólafur Sigurgeirsson um NM unglinga sem hefst í dag Ágúst Kárason Jón P. Sigmarsson Islenska liðiö á NM í lyftingum „VIÐ HÖFUM aldrei verið sterkari og gætum marið sigur i stigakeppninni. Það yrði ægiiegt áfall fyrir Svia, sem hafa sigraði í þessari keppni siðustu árin,“ sagði Ólafur Sigurgeirsson, formaður Lyftingasambands ís- lands i viðtali fyrir skömmu, en i dag hefst Norðurlandamót ungl- inga i lyftingum i Laugardals- höllinni. Er þetta i fyrsta skiptið sem mót þetta er haldið hérlend- is. Samkvæmt dagskrá, mun borgarstjóri Reykjavikur setja mótið klukkan 14.00 i dag og strax að setningu lokinni hefst keppnin. Heimsmetstilraun Skúla óskarssonar i réttstöðu- lyftu fer fram i hléi klukkan 16.15. Á morgun hefst keppni siðan klukkan 11.00. Sem fyrr segir, telja íslendingar sig eiga nokkra sigurmöguleika á mótinu að þessu sinni, Ólafur hefur enn orðið: „Möguleikar okkar eru'fyrst og fremst í 75 kg, 82,5 kg, 90 kg og yfirþungavigt, þar sem Haraldur Ólafsson, Þorsteinn Leifsson, Guðmundur Helgason og Jón Páll Sigmarsson koma fram fyrir íslands hönd. Þetta er í fyrsta skipti sem við teflum fram fullu liði á þessu móti, nú ætlum við að ná okkur í stig út úr hverjum einasta þyngd- arflokki." Sem fyrr segir, er þetta í fyrsta skiptið sem NM unglinga er haldið á íslandi, en um meiri háttar mót er í raun að ræða. Hvert land sendir 10 keppendur og verða keppendur því 50 í allt. Einn þeirra, Svíinn Rikard Nilson, er sigurvegari frá síðustu HM-keppni. Það er því ljóst að mikil átök verða í Höllinni og hugsanlega metasláttur í bland ... Þorsteinn Leifsson Garðar Gíslason Baldur Borgþórsson Guðmundur Helgason Þorkell Þórisson Viðar Eðvarðsson Haraldur ólafsson • Gylfi Gislason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.