Morgunblaðið - 03.12.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
Úr boði borgarstjórnar í Dillonshúsi í Árbæ í gær, Davíð Oddsson borgarstjóri flytur ávarp.
Þá settu Eyjamenn upp höfuðstöðvar í Reykjavík
„ÞEGAR eldgosió í Eyjum átti sér
stað 1973 tók Reykjavíkurborg
mestan þátt bæjarfélaga á landinu,
þátt í vandamáli Eyjamanna þótt
allir styddu við bakið á Vestmann-
eyingum og nú er bæjarstjórn
Vestmannaeyja í heimsókn í boði
Reykjavíkur,“ sagði Davíð Odds-
son borgarstjóri í samtali við Mbl.
í gær, en þá hófst opinber heim-
sókn bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja til Reykjavíkur, en hún stend-
ur fram yfir helgi.
„Vestmanneyingar fluttu sín-
ar höfuðstöðvar til Reykjavíkur
þegar eldgosið skall yfir, settu
upp sitt ráðhús í höfuðborginni,
en nú, tíu árum síðar, er ástæða
til að gleðjast yfir því hve upp-
byggingunni í Eyjum hefur mið-
að áfram eftir þetta hrikalega
áfall, og tíu ára goslokaafmælið
þótti ágætt tilefni til þess að
bæjarstjórnirnar hittust. Það er
einnig sjónarmið Reykjavíkur-
borgar að bæjarstjórnir innan-
lands eigi að hittast meir en gert
hefur verið. Hingað til hafa
borgarfulltrúar aðallega hitt er-
lenda bæjarstjórnaraðila, heima
og heiman, en brotið er blað með
heimsókn bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja til Reykjavíkur og
það hlýtur að
þjóðlífið allt
byggðalandsins
hér á sér stað.“
vera gott fyrir
að fulltrúar
hittist eins og
Fjölbreytt dagskrá hefur verið
skipulögð í tilefni heimsóknar
Vestmanneyinga, en hún hófst í
gær með hádegisverði í Árbæ.
Fundur með Elkem í gær:
MiðaÖi í sam-
komulagsátt
SAMNINGANEFND iðnaðarráðu-
neytisins um stóriðju sat fund í gær,
1. desember, með fulltrúum Elkem
til undirbúnings frekari viðræðum
um aðild japanska fyrirtækisins
Sumitomo að fslenska járblendifé-
laginu. Eitthvað mun hafa miðað í
samkomulagsátt hjá aðilum, en að
sögn eins nefndarmannsins sem
blm. Mbl. ræddi við var ekki tekin
ákvörðun um dagsetningu næsta
fundar. Reiknaði hann með að
næstu vikur færu í útreikninga og
myndu aðilar hafa símasamband og
standa í bréfaskiptum, þar til málin
skýrðust betur.
í fréttatilkynningu frá iðnað-
arráðuneytinu um fundinn í gær
segir: „Aðilar áttu gagnlegar við-
Hryssingslegt
helgarveður
HELGARVEÐRIÐ verður heldur k
legt. Gert er ráð fyrir útsynningi á
SV-landi í dag með allhvössum éljum.
SV-áttin heldur áfram á morgun, spáði
Veðurstofan í gærkvöldi, en verður
hægari og dregur úr éljunum. Hitinn
verður í kringum frostmark.
Á Austurlandi og fyrir norðan verð-
ur bjartara og minni vindur.
ræður og miðaði nokkuð í átt til
samkomulags um sameiginlega af-
stöðu til frekari viðræðna við
Sumitomo, og verður viðræðum
haldið áfram síðar."
Steinullarverksmiðju heimiluö erlend lántaka:
Án þátttöku og ábyrgðar
fjármálaráðuneytisins
— segir fjármálaráöherra
LANGLÁNANEFND heitnilaði í vikunni Steinullarverksmiðj-
unni á Sauöárkróki erlenda lántöku með milligöngu Búnað-
arbanka íslands til greiðslu á innborgun 15% kaupverðs véla
til verksmiðjunnar, en kaupverðið nemur 68,1 millj. kr. I>að
er finnskt fyrirtæki sem framieiðir vélarnar, en það sama
fyrirtæki verður einn af hluthöfum Steinullarverksmiðjunnar
með um 10—12% hlutafjár. Fjármálaráðherra Albert Guð-
mundsson segir, að þessi fyrirgreiðsla langlánanefndar sé
algjörlega án þátttöku fjármálaráðuneytis og án ábyrgðar
fjármálaráðherra.
Langlánanefnd er undir yfir-
stjórn viðskiptaráðuneytis og
heimilaði viðskiptaráðherra lán-
töku þessa til greiðslu hluta kaup-
verðs vélanna. í lánsfjáráætlun
fyrir árið 1984 er gert ráð fyrir 80
millj. kr. lánsfjárheimild til véla-
kaupa Steinullarverksmiðjunnar
og er fyrirgreiðsla Búnaðarbank-
ans og langlánanefndar byggð á
því, að Alþingi samþykki þá
lánsfjárheimild.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra hefur samkvæmt heim-
ildum Mbl. ítrekað reynt að stöðva
að framkvæmdir við Steinullar-
verksmiðju hæfust. Hann hefur
lýst sig andvígan framkvæmdinni
þar sem hún sé ekki arðbær og
framleiðslan áætluð langtum
meiri en markaður sé fyrir. Lög
um verksmiðjuna gera ráð fyrir að
ríkissjóður fjármagni 40% hlut-
afjár, þegar 60% hafa verið tryggð
af öðrum aðilum. Gengið hefur
verið frá hlutafjárloforðum. Sam-
vinnuhreyfingin, þ.e. SÍS og kaup-
félagið á Sauðárkróki, hafa
ábyrgst um 20—25%, finnski aðil-
inn 10—12% og bæjarsjóður Sauð-
árkróks afganginn. Þá hefur ríkis-
sjóður þegar staðið skil á hluta af
sínum greiðslum, var það gert í tíð
fyrri ríkisstjórnar.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra var spurður álits á lána-
fyrirgreiðslu langlánanefndar.
Hann svaraði: „Viðskiptaráðherra
og iðnaðarráðherra hafa hvorugur
rætt þetta við mig. Lántakan er
því heimiluð án nokkurs samráðs
við mig. Ég mun því ekki gera
nokkurn skapaðan hlut fyrr en ég
er búinn að sjá að þeir hafi lagt
fram 60% hlutaféð, sem lögboðið
er. Þá hafa þeir heldur ekki staðið
við lögboðna viðskiptahlið samn-
ingsins. Það hlýtur að vera fár-
ánlegt að ætla að fara að byggja
sex þúsund tonna steinullarverk-
smiðju fyrir markað sem var 610
tonn á síðasta ári. — Þeir hafa
enga ábyrgð lagt fram um að
markaðshliðin sé tryggð."
Varðandi það að í lánsfjáráætl-
un fyrir næsta ár væri gert ráð
fyrir ríkisábyrgð upp á 80 millj.
kr. lántöku til vélakaupanna sagði
Albert: „Sú ábyrgð verður ekki
notuð nema þeir fullnægi ákvæð-
um laganna. Það er fjármálaráð-
herra sem á að gæta hagsmuna
ríkisins. Það verða engar heimild-
ir notaðar fyrir steinull, ef þeir
standa ekki hundrað prósent við
það sem lögin gera ráð fyrir."
Albert kvað þetta ekki einvörð-
ungu eiga við um skil á 60% hluta-
fjár, því ríkissjóður ætti ekki
fremur en aðrir hlutafjáreigendur
að ábyrgjast lán til rekstrar um-
fram hlutafjáreign sína, þ.e. 40%
— hinir yrðu að standa ábyrgir
fyrir 60% lántöku.
Veiðar á amerísk-
um miðum:
Samráös-
fundur á
þriðjudag
FULLTRÚAR utanríkis-
ráðuneytis, sjávarútvegs-
ráðuneytis og Landssam-
bands íslenskra útvegs-
manna munu halda meö
sér fund nk. þriðjudag og
ræða áfram möguleika á
að íslensk fiskiskip stundi
veiðar við strendur Banda-
ríkjanna og Kanada.
Boð bandarískra stjórnvalda
þar um var endurnýjað sl. vor,
þegar ákveðið var að íslend-
ingar skyldu hætta hvalveiðum
í samræmi við ákvörðun Al-
þjóða hvalveiðiráðsins. Menn
hafa séð á því ýmsa annmarka
að hefja veiðar við strendur
N-Ameríku, ekki síst vegna
þess að óljóst er hvaða fiskteg-
undir gæti verið um að ræða og
svo ekki síður hitt, eins og
Kristián Ragnarsson, formað-
ur LIÚ, benti á í samtali við
Mbl. á sínum tíma, að banda-
rísk löggjöf heimilar ekki land-
anir úr skipum, sem smíðuð
eru utan Bandaríkjanna.
„Það hefur svo sem ekkert
nýtt gerst í þessu," sagði Jón L.
Arnalds, ráðuneytisstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, í
samtali við Mbl., „en málið
verður rætt frekar á fundinum
á þriðjudaginn."
Bliki EA skemmdist í eldi í Dalvíkurhöfn:
Eldur komst í gaskútinn
Mesta mildi að hann sprakk ekki
Dalvík, 2. desember.
í GÆR kom upp eldur í mb. Blika
EA 12, 150 lesta stálbát, þar sem
hann lá vid bryggju á Dalvík. Miklar
skemmdir uröu og var mesta mildi,
aö ekki uröu slys á mönnum.
Það var um kl. 15, að slökkvilið
Dalvíkur var ræst út. Menn voru
Varað við snifffaraldri í
Hafnarfirði og Garðabæ
„AÐ UNDANFORNU hefur boriö
mikið á því, aö börn og ungmenni
neyti ýmissa vímuefna, svo sem
sjóveikitaflna, brennsluspritts og
allskonar lífrænna leysiefna. Aö
gefnu tilefni vilja félagsmálastofn-
anir í Garöabæ og Hafnarfirði
beina þeim eindregnu tilmælum til
lyfsala og kaupmanna á öllu höfuö-
borgarsvæöinu og víöar, aö stööva
sölu á fyrrnefndum efnum til
ungmenna," segir í orðsendingu,
sem Mbl. barst í gær frá þessum
stofnunum. Eru foreldrar þar
hvattir til aö sjá til aö umrædd efni
séu ekki þar sem börn og ungl-
ingar nái til þeirra á heimilum.
„Ég hef verið kvaddur á lög-
reglustöðina í Hafnarfirði, þar
sem hafa verið börn er voru að
sniffa," sagði Bragi Benedikts-
son, félagsmálastjóri í Hafnar-
firði, í samtali við blm. Morgun-
blaðsins um þetta mál í gær. „Þá
var um lím að ræða, sem krakk-
arnir höfðu sprautað í plastpoka
og andað að sér. Börn og ungl-
ingar hafa komið á lögreglu-
stöðvar í mjög slæmu ástandi
eftir þessa neyslu. Við höfum
einnig dæmi um unglinga, sem
hafa etið sjóveikitöflur með gos-
drykkjum — þau hafa byrjað á
sniffi, farið í sjóveikitöflurnar
og síðan aftur í sniffið. Það er þó
nokkuð um þetta," sagði Bragi.
Hann sagði að flestir sniffar-
arnir væru á aldrinum 11—15
ára en einnig væri um eldri
unglinga að ræða — og dæmi
væri um sex ára barn, sem staðið
hefði verið að sniffi. „Við höfum
enn ekki haft fregnir af börnum,
sem orðið hafa fyrir varanlegum
skemmdum vegna sniffs hér í
okkar bæjarfélögum," sagði
Bragi, „og maður vonar að til
þess komi ekki. Mestmegnis eru
þetta ósköp venjulegir ungiingar
en innanum eru mjög erfiðir ein-
staklingar, sem geta haft leið-
andi áhrif á hina.“
að vinna um borð með logskurð-
artæki er eldur hljóp frá skurðar-
tækinu eftir slöngu í gaskút og
skipti það engum togum, að af
varð mikið eldhaf. Fljótt tókst þó
að ráða niðurlögum eldsins. Má
telja mestu mildi, að gaskúturinn
skyldi ekki springa en við það
hefði getað orðið bæði tjón á
mönnum og meiri skemmdir á
skipinu.
Miklar skemmdir urðu af reyk
og sóti, sem fór víða um skipið.
Járn svignaði af hita og tré, sem
nærliggjandi var, brann. Allar
þessar skemmdir urðu ofan dekks.
Mb. Bliki var að búast til rækju-
veiða en nú verður töluverð töf á
því að veiðar skipsins hefjist.
Fréttaritarar.
120 ár frá fæð-
ingu Thors Jensen
í DAG, laugardaginn 3. desember,
eru 120 ár liöin frá fæðingu Thors
Jensen, og minnast afkomendur hans
og ættmenni tímamótanna með því að
koma saman að Hótel Esju til kaffi
drykkju síðdegis. í tilefni afmælisins
kemur einnig út niðjatal Margrétar
Þorbjargar og Thors Jensen, sem
Tómas Hallgrímsson, dóttursonur
þeirra hjóna, hefur tekið saman.