Morgunblaðið - 03.12.1983, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
11
ífSSkAPAR)
Hollensk hágæðavara
á sérstaklega
hagstæðu verði
ARC358 — Lúxus barskápur
með teak-áferð. 90 lítra. Sérstakt
frystihólf fyrir ísmolagerð.
Verð kr. 8.710,- H. 52,5 cm. B.
52,5 cm. D 60 cm.
AFE523 — Frystiskápur, 140
lítra með sérstökum hraðfrysti.
Verð kr. 14.280,- H. 85 cm. B. 55
cm. D. 60 cm.
ARF805 — Rúmgóöur 310 lítra ísskápur. 2ja dyra meö
65 lítra frystihólfi. Auðveldur að þrífa. Sjálfvirk afþýöing
Verð kr. 16.520,- H. 139 cm. B. 55 cm. D. 58 cm.
Muniö okkar hagstæöu greiöslu-
kjör.
HLJOMBÆR
HLJÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Frystiskápur 270
AFE567 — Frystiskápur 300 lítra.
Tvö aðskilin hraöfrystihólf. Vert
kr. 20.200.-
H. 144 cm. B. 60 cm. D. 64 cm.
Spegilsmálið:
Sakfelldur fyrir guðlast
klám og brot á prentlögum
ÚLFAR Þormóðsson, ábyrgðarmað-
ur Spegilsins, var í gær dæmdur í 16
þúsund króna sekt fyrir brot á 125.
grein hegningarlaganna, sem vernd-
ar trúartilfmningar fólks og rétt til
þess að hafa trú sína í friði.
Greinin er um guðlast hljóðar
svo: „Hver sem opinberlega dregur
dár að eða smánar trúarkenningar
eða guðsdýrkun löglegs trúar-
bragðafélags, sem er hér á landi,
skal sæta sektum eða varðhaldi.
Mál skal ekki höfða nema að fyrir-
lagi saksóknara." Þá var Úlfar
sakfelldur fyrir tvö af þremur
ákæruatriðum um brot á 210.
grein hegningarlaganna, sem
kveður á um klám. Þá var hann
sakfelldur fyrir brot á prentlögun-
um.
Þær síður Spegilsins og Sam-
visku þjóðarinnar, sem þóttu
brjóta í bága við lög, eru gerðar
upptækar en ákæruvaldið krafðist
þess að blöðin í heild sinni yrðu
gerð upptæk.
Ulfari er gert að greiða sakar-
kostnað, krónur 15 þúsund, og
málsvarnarlaun, krónur 15 þús-
und. Jón Abraham Ólafsson kvað
upp dóminn, ásamt meðdómend-
um, séra Bjarna Sigurðssyni og dr.
Eysteini Sigurðssyni. Pétur Guð-
geirsson, fulltrúi ríkissaksóknara,
flutti málið fyrir hönd ákæru-
valdsins. Sigurmar K. Albertsson,
hdl. var verjandi ákærða. Úlfar
Þormóðsson hefur áfrýjað dómin-
um til Hæstaréttar.
Erlendir ferðamenn:
Gjaldeyristekjur voru
655 milljónir árið 1982
Á árinu 1982 voru beinar og
óbeinar gjaldeyristekjur vegna
komu erlendra ferðamanna til
landsins 655,6 milljónir króna,
samkvæmt upplýsingum Seðla-
banka íslands. Sambærilegar
gjaldeyristekjur árið á undan,
framreiknað til verðlags 1982,
voru 569,6 milljónir og nam hækk-
unin á milli ára því 15,1%. Þetta
kemur fram í ársskýrslu Ferða-
málaráðs íslands fyrir árið 1982.
í skýrslunni segir að þessi
hækkun stafi án efa af hækkun
verðlags í landinu en einnig vegna
betri gjaldeyrisskila. Gjaldeyris-
kaupin skiptast þannig i milljón-
um króna: Keypt af eftirtöldum
aðilum: Fríhöfn 34,4, Islenskur
markaður 22,8, ferðaskrifstofur
33,5, hótel 21,3, verslanir 12,8,
bílaleigur 4,1, vegna veiðileyfa 7,4,
aðrir vegna ferðatékka og fl. 174,3
og tekjur flugfélaga af fargjöldum
erlendra ferðamanna 345,0.
Ef þessar gjaldeyristekjur eru
bornar saman við heildarverð-
mæti útflutnings landsmanna
kemur í ljós að gjaldeyristekjur af
erlendum ferðamönnum eru 7,7%
Fáskrúðsfjörður:
Togaraafli
svipaður
milli ára
Fáskrúðsfði, 28. nóv.
AFLI skuttogaranna tveggja,
sem héðan eru gerðir út, hef-
ur verið eins og hér segir frá
áramótum:
Ljósafell hefur aflað 2.936 lest,a
í 34 veiðiferðum, en á sama tíma í
fyrra hafði skipið aflað 2.997 lesta.
Aflaverðmæti nú er 29.485.000 kr.,
en var til samanburðar 15.715.000
kr. í fyrra, eða 88% meira.
n, Hoffell hefur aflað 3.069
lesta, en til samanburðar 3.025
lesta á sama tíma í fyrra. Afl-
averðmæti í ár er 31.448.000 kr., en
var til samanburðar 15.658.000 kr.
í fyrra.
— Albert.
Höfóar til
„fólks í öllum
starfsgreinum!
sem hlutfall af verðmæti vöruút-
flutninga á árinu 1982. Sambæri-
legt hlutfall var á árinu 1981 5,4%.
Auk þessa hefur ríkissjóður marg-
víslegar tekjur af ferðamanna-
þjónustunni. Er áætlað að þær
hafi verið 120 milljónir á árinu
1982.
Ik -
*. &
'Bfr VEIT HVRf> ÞÚ ERT Bt> HOóSH, JÓNRTHN"