Morgunblaðið - 03.12.1983, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
14
Aðventutónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju:
Flutt Bach-kantata og
önnur aðventutónlist
Mótettukór Hallgrímskirkju í
Reykjavík heldur nk. sunnudag sér-
staka aðventutónleika í Kristskirkju
á Landakoti. Ásamt Mótettukórnum
koma fram einsöngvarar og hljóm-
sveit, en stjórnandi er Höröur
Áskelsson, organisti Hallgríms-
kirkju. Höröur greindi nánar frá
tónleikum þessum í rabbi viö Morg-
unblaöiö og var hann fyrst spuröur
hvað aöventutónleikar raunverulega
væru:
— Með aðventutónleikum hefj-
um við undirbúning að komu jól-
anna með aðventutónlist, en ég vil
gera skýran greinarmun á tónlist
tengdri aðventunni og tónlist jól-
anna. Aðventan er tími eftirvænt-
ingarinnar og þá bíða menn þess
sem koma átti og spáð hafði verið
fyrir um.
f FRÉTTATILKYNNINGU frá Gigt-
arfélagi íslands, segir aö fimm kon-
ur, sem ekki eru nafngreindar, hafi
fært félaginu aö gjöf 100.000 krónur.
„Þetta er í þriðja sinn, sem
þessar fimm konur færa Gigtarfé-
lagi fslands slíka stórgjöf. Fjárins
afla þær með því að vinna listræn-
ar jólaskreytingar í tómstundum
og selja þær síðan. Þetta er orðinn
Og hvað er á dagskrá þessara
aðventutónleika kórsins?
— Helsta tónverkið sem við
flytjum er kantata J.S. Bachs nr.
36, „Schwingt freudig euch emp-
or“, og er það frumflutingur henn-
ar hérlendis að því er ég best veit.
Við fáum til liðs við okkur valin-
kunna einsöngvara, þau Sigríði
Gröndal, Elísabet Waage, Garðar
Cortes og Halldór Vilhelmsson.
Hljómsveitina skipa sex fiðluleik-
arar, lágfiðlur, selló, kontrabassi
og sembal og leikið verður á tvö
óbó d’amore, en það er sérstök
gerð óbóa sem Bach notaði mikið
en eru sjaldan notuð nú til dags.
Þeir Kristján Stephensen og Daði
Kolbeinsson munu hafa það erfiða
hlutverk að leika á hljóðfærin,
sem komu til landsins í vikunni.
árviss viðburður og margir sem
bíða eftir að kaupa þessar fallegu
skreytingar.
Þessar þrjár gjafir hafa komið
sér mjög vel við uppbyggingu
Gigtlækningastöðvarinnar og
verður rausn þessara kvenna og
dugnaður lengi í minnum haft hjá
félaginu," segir í fréttatilkynn-
ingu Gigtarfélagsins.
Þau eru í eigu kórs Langholts-
kirkju og Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands og voru þessir aðilar svo
vinsamlegir að lána okkur þau.
Konsertmeistari verður Rut Ing-
ólfsdóttir.
Auk þessara verka flytur Mót-
ettukórinn síðan aðventutónlist.
Fyrst má nefna tvo sálma í út-
setningu Róberts Abrahams
Ottóssonar, þá fjórar gamlar
raddsetningar af sálmi Lúters
„Golobet seist Du Jesu Christ", en
þær eru eftir Johann Walter, einn
af samstarfsmönnum Lúters,
Kaspar Othmayr, Adam Gump-
elzheimer og Bach og spanna því
yfir um 100 ára tímabil. Dr. Jakob
Jónsson frá Hrauni hefur nýlega
þýtt þennan sálm allan sérstak-
lega til þessa flutnings. Þá flytjum
við Magnificat eftir Johann Ecc-
ard og latneska lofgjörðartónlist
eftir Orlando di Lasso, Scarlatti,
Pitoni og Homilius.
Er eitthvað frekar hægt að
segja um Bach-kantötuna, er hún
erfið í flutningi?
— Þetta er mjög krefjandi verk
fyrir alla flytjendur, bæði
hljómsveit og söngvara. Það ligg-
ur mjög hátt og gerir vissulega
miklar kröfuir til flytjenda.
Það er kannski forvitnilegt að
rifja upp hvernig þetta verk er til
orðið. Upphaflega var það samið
sem afmæliskantata, en síðar var
þessi trúarlegi texti settur við
hana. Bach bætti við þremur út-
setningum á sálmalaginu Nú kem-
ur heimsins hjálparráð og felldi
niður tónles (recitativ), sem til-
Konur færa Gigt-
arfélaginu stórgjöf
Mótettukór Hallgrímskirkju á æfíngu í Kristskirkju, þar sem hann heldur
aðventutónleika sína á morgun, sunnudag.
heyrt hafði afmæliskantötunni.
Árið 1731, þegar aðventan nálgað-
ist, vantaði Bach nýtt verk til að
flytja, en þá var hann kantor við
Tómasarkirkjuna. Greip hann þá
til þess ráðs að fá nýjan texta við
þessa afmæliskantötu, en honum
fannst tónlist hennar hæfa vel eft-
irvæntingu aðventunnar. Ekki er
vitað hver sá höfundur var, en
honum hefur tekist snilldarlega
vel að fella textann að uppbygg-
ingu verksins. Þessi breyting und-
irstrikar kannski vel hversu ver-
aldleg og andleg tónlist stóðu ná-
lægt hvor annarri á þessum tím-
um.
Hvað um önnur verkefni kórs-
ins, eru þau mörg framundan?
— í fyrravor héldum við fyrstu
sjálfstæðu tónleikana okkar og við
bjóðum nú til tónleika í annað
sinn. Við höfum vissulega hug á að
halda áfram. Kórinn starfar í
tengslum við Listvinafélag Hall-
grímskirkju og meðal verkefna
hans hefur verið að taka þátt í
helgihaldi í Hallgrímskirkju. Við
gerum t.d. ráð fyrir passíutónleik-
um og síðar öðrum tónleikum
næsta vor og sé horft lengra fram
í tímann er ætlunin að halda til
Þýskalands í tónleikaferð næsta
sumar.
Er þörf fyrir þennan nýlega kór
þegar svo margir kórar eru fyrir?
— Margir undruðust einmitt
þessa bjartsýni mína að stofna
nýjan kór, en ég verð að segja að
ég hef ekki séð eftir því. Það hefur
gengið miklu fljótar fyrir sig og
betur en þeir bjartsýnustu þorðu
að vona að byggja upp þennan kór.
í upphafi var hann skipaður 25
manns, en í haust var fjölgað í 40
og er sú stærð mjög heppileg fyrir
þessa tónlist sem kórinn aðallega
flytur.
Að lokum má minna á að tón-
leikarnir hefjast kl. 17 á morgun,
4. desember, í Kristskirkju,
Landakoti.
Höfum einnig mikið úrval af húsgögnum í barna- og unglingaherbergi
Jólin nálgast
Höfum einnig mikiö úrval annarra húsgagna.
Hornsófar, veggsamstæöur, Ijósar og dökkar,
leöursófasett, borðstofuhúsgögn úr lútaöri furu.
Jólin 1983
Er ekki eitthvað
af þessu á
óskalistanum?
Allt í stíl
Kíktu
Mikiö úrval af hand-
unninni jólavöru
106»
V.N
ISLENSK FRAMLEIDSLA — VÖNDUÐ VARA
í
ILM
MARGAR VIÐARTEGUNDIR — GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
Opiö laugardag kl. 10—16.
Opið sunnudag kl. 14—16.
við um FRÍ HEIMSENDING Á REYKJAVÍKURSVÆÐINU
helgina
Reykjavíkurvegi 68,
Hafnarfiröi. Sími 54343.