Morgunblaðið - 03.12.1983, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
16
Að kveikja þann eld sem
við megnum ekki að slökkva
Hugrenningar í tilefni af umfjöllun Guö-
rúnar Helgadóttur, alþingismanns, um
frumvarp til laga um tóbaksreykingar
- eftir G. Snorra
Ingimarsson
Fáviska og fátækt voru orsakir
almennrar óhollustu og heilsu-
leysis fyrr á tímum. Aukinn skiln-
ingur á gildi heilsusamlegra lífs-
hátta og umhverfis samhliða
bættum efnahag hafa fremur en
annað fært okkur það heilbrigði
sem við nú búum við. Skynsamleg-
ar aðgerðir, oft studdar lagasetn-
ingum, ruddu þessari þróun braut.
Framfarir í læknisfræði eru í
þessu tilviki léttvægari.
Þegar ljóst varð að smitsjúk-
dómar geta borist með rottum og
öðrum meindýrum var ekki gripið
til þess ráðs að temja læknum
færni til að stúta þessum kvikind-
um. Vænlegra þótti að kenna
mönnum umgengni við sorp sitt
heima og heiman og sporna þann-
ig við „meinhollum" félagsskap.
Ekki hefur öllum verið ljúft að
taka upp nýja siði sem í raun voru
skerðing á persónufrelsi. Visst
umstang hefur fylgt því að flytja
sorp langar leiðir eða hætta að
tæma kopp út um glugga. Má vera
að þeim manni hafi stokkið bros
sem fyrstur mælti fyrir frumvarpi
að lögum um bætt hreinlæti. Var
þingheimi skemmt eða horfðu
menn raunsæjum augum á gildi
forvarna við heilsuspillandi
ástandi?
Ræða Guðrúnar Helgadóttur í
neðri deild Alþingis 9. nóvember
sl. og afstaða hennar til frum-
varps til laga um tóbaksvarnir
vakti mig til þeirrar umhugsunar
hvort rottugangur væri að koma
upp í Alþingishúsinu. Alþingistíð-
indi með ræðu þingmannsins
þennan dag auk viðtals í sjónvarpi
G. Snorri Ingimarsson
26. nóvember gefa vissa hugmynd
um skoðanir þingmannsins á
þessu máli. Guðrún Helgadóttir
dregur í efa fullyrðingar um óholl-
ustu tóbaksreykinga. Henni hrýs
hugur við að lögð verði þau bönd á
atferli reykingamanna, sem frum-
varpið gerir ráð fyrri. Þingmaður-
inn vill þó styðja sum atriði frum-
varpsins og þá helst aukna
fræðslu um meinta óhollustu tób-
aksreykinga. Guðrún Helgadóttir
kýs helst að börn og unglingar
verði aðnjótandi slikrar fræðslu.
í greinargerð með frumvarpinu
er fróðlegur kafli um skaðsemi
tóbaksneyslu og jafnframt um
óhollustu af því að dveljast í
reykmettuðu umhverfi. Þar segir
að það sem við vitum um samband
reykinga og sjúkdóma sé einkum
byggt á faraldsfræðilegum rann-
sóknum sem ná til mjög stórra
þjóðfélagshópa; dýratilraunir,
rannsóknir á sjúklingum og rann-
sóknir í líffærafræði, m.a. víðtæk-
ar krufningarannsóknir, hafi
einnig rennt mikilvægum stoðum
undir þær niðurstöður sem fengist
hafa. En það sem þannig er fundið
verður aldrei næg sönnun eða
hvað?
Næg kunnátta er til að valda
fólki „meinhollustu" með þeim
meðulum einum sem verða til við
bruna tóbaks. Sá hængur er á að
getan til að lækna þetta sama fólk
„Afstaða Guðrúnar
Helgadóttur einkennist
ekki af faglegum rökum
heldur skoðunum sem
byggja á tilfinningum. Á
þeim forsendum vill
hún höfða til þingheims.
Ekki þekki ég af hvaða
forsendum afstaða Guð-
rúnar Helgadóttur
mótast. Varla er hún að
reka áróður fyrir auð-
hringa tóbaksiðnaðar-
ins?“
að tilraun lokinni er óviss. Það er
krabbameinið í málinu. Siðferði
meinar okkur að kveikja þann eld
sem við megnum ekki að slökkva.
Af þessum sökum verður aldrei
„fullsönnuð" óhollusta tóbaks-
neyslu. Siðferðiskennd sumra
reykingamanna skákar í þessu
skjóli. Þeir mæna reykblindum
augum á þau rök sem hníga að
skaðsemi tóbaksneyslu. Það er
sýnilegt að með fræðslu og fortöl-
um einum saman miðar okkur
skammt fram á veginn.
Til hvers eru lög, spurði Guðrún
hið háa Alþingi. Eru þau til þess
að láta fólki líða verr? Ég held að
Auk þess verður bílasýning á sama stað kl. 2—5, laugardag og sunnudag.
Hurðaskellur og Stúffur
koma og skemmta krökkunum í sýn-
ingarsal Ingvars Helgasonar hf. í
Rauöagerði. Þaö veröur svaka fjör kl.
3 á sunnudaginn.
Magnús Ólafsson og
Gylffi Ægisson
koma líka og syngja og segja frá-
bæra brandara.
Krakkarnir fá æðislegt súkkulaöi frá
Móna.
Jólasveinahátíð
Hurða.k.llir og Stúfur
Magnút Ólaftton og Gylfi Ægitton
Fullorðnu krakkarnir fá kökur frá Ragnarsbakarn
kaffi eða Grandos te og Grandos
sunnudaginn 4.
Nú eru jólasveinarnir í hreinustu vandræöum. Bensíniö
er oröiö svo dýrt aö þeir eru alveg ákveönir í aö fá sér
bíl sem eyðir helst engu bensíni eins og gömlu góöu
hreindýrin þeirra. En allir bílarnir sem Huröaskellir og
Stúfur eru búnir aö skoöa , eyða bara svakalega miklu
desember kl. 3
bensíni. Allir nema einn, Nissan Micra hjá Ingvari
Helgasyni. Hann eyöir næstum því engu bensíni og svo
er bara endalaust pláss fyrir jólagjafirnar handa öllum
krökkunum.
INGVAR HELGASON Sími 33560
SÝNINGARSALURINN / RAUÐAGERÐI