Morgunblaðið - 03.12.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
17
enginn í þingheimi hafi fipast við
þessa spurningu. Ég held einnig að
þjóðin samhljómi í góðvilja hvar
svo sem við stöndum í trú, trúleysi
eða stjórnmálaskoðunum. Guðrún
Helgadóttir beitir því bragði að
rangtúlka og skrumskæla frum-
varp til laga um tókbasvarnir. Öll-
um má vera ljóst að hér er verið
að beita sér fyrir takmarkaðri
friðun gegn skaðlegri reykmeng-
un. Hvergi er minnst á alfriðun.
Þetta þýðir í raun, að hverjum
sem kýs að reykja er það heimilt.
Hann þarf einungis að velja sér
þann stað og þá stund til verksins
að hann valdi ekki öðrum angri
eða tjóni. Þetta kemur skýlaust
fram í frumvarpinu. Er til of mik-v
ils mælst?
Ég hef orðið var við þá skoðun
að fræðslu um óhollustu reykinga
skuli eingöngu beint til barna og
unglinga. Helst eru það reyk-
ingamenn sem hampa þessari
skoðun. Þeir benda jafnframt
réttilega á að oft sé til lítils að
lesa yfir hausamótum þeirra sem
þegar spúa reyk. Rétt er að börn
og unglingar eru auðmótaðri til
bæði góðs og ills en þeir sem eru
brynjaðir áratuga sinnuleysi. En
þá vaknar spurningin: Hvers á
þetta unga fólk að gjalda? Af
hverju á sífellt að vera að vanda
um við það út af hlutum sem það
gerir ekki en láta þá óáreitta sem
hafa reykingarnar fyrir þeim? Er
ábyrgð þeirra þá engin?
Afstaða Guðrúnar Helgadóttur
einkennist ekki af faglegum rök-
um heldur skoðunum sem byggja
á tilfinningum. Á þeim forsendum
vill hún höfða tii þingheims. Ekki
þekki ég af hvaða forsendum af-
staða Guðrúnar Helgadóttur
mótast. Varla er hún að reka áróð-
ur fyrir auðhringa tóbaksiðnaðar-
ins?
Frumvarp til laga um tóbaks-
varnir er komið fram af nauðsyn.
Skilningur fyrir þessu verður að
vera þingmönnum öllum að leið-
arljósi. Hvaða tilfinningar sem
bærast í brjóstum okkar verðum
við að gera þá kröfu til þeirra að
þeir taki faglega afstöðu, byggða á
þeirri þekkingu sem tiltæk er á
hverjum tíma.
Verði frumvarp að lögum um
reykingavarnir tanndregið og gelt
í umfjöllun þingsins og síðan sam-
þykkt sem lög í líki afskræmds
meinleysingja þá hefur hið háa
Alþingi brugðið af þeirri þróun-
arbraut sem við höfum fetað að
bættu heilbrigði og betra mann-
lífi.
Á aðventu, 1983.
G. Snorri Ingimarsson.
G. Snorri Ingimarsson er doktor í
læknisfræði og krabbameinssér-
fræðingur rið Landspítalann.
Grindavík:
Mikil og góð
vinna í sfld
Grindavík, 30. nóvember.
HÉR í Grindavík hefur verið mikil
og góð atvinna við sfldina enda salt-
að í um 40 þúsund tunnur og talsvert
fryst, og því nægjanleg vinna við
slíkt og fleira fram yfir nýár.
Heimamönnum til hjálpar er
hér talsvert margt aðkomufólks
utan af landi og allir hæst ánægð-
ir.
I síðustu viku kom Hrafn GK 12
með fyrstu loðnuna til Grindavík-
ur, 640 tonn, og er von um meira
þegar aftur gefur til loðnuveið-
anna. Smærri bátar hafa hafið
línuveiðar og þeir smæstu fiskað
best.
Frá hótelinu við Bláa lónið er
það að segja að fullbókað hefur
verið flesta daga í þennan hálfa
mánuð sem liðinn er síðan opnað
var. Fólk er hæstánægt og þakk-
látt fyrir aðstöðuna og aðhlynn-
ingu á staðnum.
Þess vill Þórður hótelstjóri geta
að hlaðborð með allskyns góðgæti
er ávallt um helgar og allir vel-
komnir.
— Guðfinnur
SUMIR VERSLA DÝRT-
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
, í dag
kvnnimrvio
--— glæsilegt úrval af
li/barabðH
sælgæti og
¥¥ .Lambai
Hamborgarahrygg
á AÐEINS KR.
m,00
kflóið
Við erum ekki stærstir
en stærsti þáttur okkar
er persónuleg þjónusta
DrífaSkúladóttir.
Hún er einn starfsmanna okkar sem sér um
heimilistryggingar
og ökutækjatryggingar
og farangurstryggingar
og svo framvegis.
Hafðu samband við Drífu um tryggingu.
Það hefur kosti í för með sér að eiga viðskipti við lítið
tryggingafélag með persónulega þjónustu.
V,BM
Kynning á starfi
Æskulýðsráðs Reykjavíkur
á Kjarvalsstöðum
dagana 3.—11. desember 1983
Dagskrá nú um
opnunarhelgina verður eftirfarandi:
kl. 13.00
kl. 14.00
kl. 15 00
kl 17 00
kl 20 00
kl. 21 00—23 00
kl. 14 00
kl. 14 15
kl. 16 00
kl 20 00—23 00
Laugardagur 3. des.
Safnast saman viö Kjarvalsstaöi. Unglingar
úr skólum og félagsmiðstöðvum koma í
skringifotum
Lúörasveitin Svanur leikur fyrir gesti i anddyri
Varaformaður Æskulýösráös Þórunn Gests-
dóttirflyturávarp
Ávarp unglings Petrea Friðriksdóttir fulltrúi
unglinga í Æskulýðsráði Fteykjavíkur
Borgarstjórinn í Reykjavík Davið Oddsson
opnar sýninguna
Skemmtidagskrá i aðalsal Meðal efnis
verður danssýningar — sminksýning —
leiksýning og Hjalli töfrar gesti. Jóhann
Helgason skemmtir.
Vinsældarlistar félagsmiðstöðva kynntir
..Ragtime" píanóleikur í aðalsal
Skemmtiefni úr félagsmiðstöðvum og
skólum
Sunnudagur 4. des.
Húsiö opnað
Skákmót grunnskólanna 1 —6 bekkur
Tölvukynning
Leiklistarkvold Leikhópar úr félagsmið-
stöðvum og skólum sýna
Mánudagur 5. des.
Húsið opnað
Skákmót grunnskólanna 7—bekkur
Spurningakeppni félagsmiðstoðva
Atriöi úr starfi Æ R Gestur kvoldsins
Leynigestur
Sýningunni er lokað kl 23 00 alla sýningar-
dagana