Morgunblaðið - 03.12.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
19
Kjartan Ólafsson
hættir sem rit-
stjóri Þjóðviljans
„ÉG skil prýðilega sáttur við þetta
starf. Ég er búinn að gegna því í tíu
ár og ég tel það krefjandi starf. Því
hef ég ákveðið að láta tíu ár duga í
þeim stóli,“ sagði Kjartan Ólafsson,
en hann hefur sagt upp starfi sínu
sem ritstjóri Þjóðviljans.
Kjartan sagði að ekkert væri af-
ráðið hvað við tæki hjá honum,
enda væri það hans einkamál.
Hann var þá spurður hvort hann
hygðist einnig hætta afskiptum af
stjórnmálum, — hvort hann ætlaði
kannski ekki að bjóða sig fram til
Alþingis á ný. „Það er aldrei að
vita, ég gef svör við því á réttum
vettvangi, þ.e. í kjördæmisráði á
Vestfjörðum," svaraði hann.
Einar Karl Haraldsson, ritstjóri
Þjóðviljans, var spurður hvort
ákveðið væri með eftirmann
Kjartans. Hann sagði að það eina
sem lægi fyrir í málinu væri að
hann og Arni Bergmann væru
ábyrgir fyrir blaðinu nú.
Olafur Ragnar Grímsson hefur
gegnt ritstjórastörfum í fjarveru
Kjartans Olafssonar síðustu þrjá
mánuði. Samkvæmt heimildum
Mbl. er ekkert ákveðið um fram-
hald starfa hans þar, en hann situr
nú sem varamaður á Alþingi.
Viðmælendur Mbl. úr röðum al-
þýðubandalagsmanna töldu flestir
líklegast að Kjartan væri ekki að
hugleiða að hætta afskiptum af
stjórnmálum, hann ætti áreiðan-
lega eftir að skipa sæti á fram-
boðslista flokksins aftur, eins og
einn viðmælandi blaðsins orðaði
það.
Baldur Kristjánsson ráðinn
prestur Óháða safnaðarins
BALDUR Kristjánsson, guðfræði-
nemi og blaðamaður á Tímanum,
hefur verið ráðinn prestur Óháða
safnaðarins. Baldur lýkur embætt-
isprófi í guðfræði frá Háskóla fs-
lands næsta vor og mun þá hljóta
prestsvígslu. Söfnuðurinn mun nú
venju og lögum samkvæmt fara þess
á leit við kirkjumálaráðuneytið að
Baldur verði staðfestur forstöðu-
maður safnaðarins frá áramótum, að
því er segir í fréttilkynningu frá
stjórn og safnaðarráði Óháða safn-
aðarins.
Jafnframt mun Baldur inna
flest embættisverk af hendi frá
þeim tíma fram að vígslunni, sem
engin lög mæla í gegn, ef söfnuður
óskar eftir því, þótt forstöðu-
maðurinn hafi ekki lokið kandi-
datsprófi né tekið vígslu.
Baldur Kristjánsson er 34 ára,
sonur Svanlaugar Ermenreksdótt-
ur og Kristjáns Benediktssonar,
borgarfulltrúa. Hann lauk BA-
prófi í þjóðfélagsfræði frá Há-
skóla íslands 1975 og hefur síðan
unnið margvísleg störf.
Nýja Philips maxim
er ekki aðeins hrærivél
heldur einnig grænmetiskvörn,
hakkavél og blandari
Philips maxim er frábær hönnun. Með
fáeinum handtökum breytir þú hrærivél-
inni í grænmetishvörn, hakkavél eða
blandara. Allt sem til þarf eru fáeinir
Philips maxim kostar aðeins
5.694 krónur!
Það er leit að ódýrari hrærivél!
fylgihlutir, sem allir eru innifaldir í
verðinu.
Philips maxim fylgir stór skál, þeytari,
hnoðari, lítil skál, grænmetishvörn,
hakkavél, blandari og sleikja.
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
Til hvers er
aö bíða fram
á síðustu
stundu?
delember
Nú er rétti tíminn til þess aö fá sér Ballingslöv innrétt-
ingu á baðherbergiö. Mikiö magn og gott úrval fyrirliggj-
andi. Opiö á laugardögum fram til jóla.
Alnnréttingar sf.
Knarrarvogí 2, Reykjavík. Sími 83230
Jólapappír
Lionsklúbbsins Njarðar
Allra helstu verslunardaga fyrlr jól mun Lionsklúbburinn
Njörður selja jólapappír úr bílum Flugbjörgunarsveit-
anna á Lækjartorgi og viö Kjörgarö.
Börn munu einnig selja jólapappír í hverfum borgarinn-
ar. Takiö vel á móti sölubörnum okkar. Allur ágóöi renn-
ur til líknarmála.
Lionsklúbburinn Njöröur, Reykjavik, óskar öllum lands-
mönnum gleöilegra jóla.