Morgunblaðið - 03.12.1983, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
22
Prestur sviptur
frelsi í Rússlandi
Moskvu, 2. desember. AP.
Þúsundir
mótmæla
í Chile
V alparaiso, 2. desember. AP.
ÞÚSUNDIR manna tóku þátt í
mótmælafundum gegn herstjórn-
inni á fimmtudagskvöld og tóku
mjög kröftuglega undir með ein-
um ræðumanninum, sem sagði að
borgarastjórn framtíðarinnar gæti
ekki tekið ábyrgð á erlendum
skuldum, sem herstjórnin hefði
skellt þjóðinni í.
„Það er með öllu óviðeigandi
að öll þjóðin greiði skuldir sem
teknar eru í þágu örfárra út-
valdra," sagði Ricardo Lagos,
hagfræðingur og foringi stjórn-
arandstöðufylkingar, sem kallar
sig lýðræðisbandalagið.
Erlendar skuldir Chile nema
22 milljörðum Bandaríkjadoll-
ara, og skuldar ekkert Suður-
Ameríkuríki jafn mikið ef mið-
að er við höfðatölu íbúa.
Aðstandendur mótmælafund-
arins sögðu 30 þúsund manns
hafa verið viðstadda, en lögregla
áætlaði fjöldann um níu þúsund
og fjölmiðlar í Valparaiso, sem
er hafnarborg við Kyrrahaf,
sagði þá hafa verið 15 þúsund.
LETTNESKUR prestur, einn helzti
forsprakki kaþólikka í Sovétríkjun-
um, hefur verið „sviptur frelsi“ um
ófyrirsjáanlega framtíð, að sögn
TASS-fréttastofunnar, sem sagði
prestinn hafa gerzt sekan um óþjóð-
legt athæfi, en venjulega þýðir sök
af þessu tagi sjö ára fangelsi.
Engin nánari skýring var gefin
á sekt Sigitas Tamkevicius, sem er
4-4 ára, en hann átti náið samstarf
við annan andófsprest í Lettlandi,
Alfonsas Svarikas, sem dæmdur
var í sjö ára fangelsi og þriggja
Varsjá, 2. desember. AP.
JKR/V Popieluszko, prestur í Varsjá,
vék sér undan handtöku í morgun
vegna meintrar misnotkunar trúfrels-
is síns með því aö neita að koma út úr
húsi sínu við hlið Stanislaw Kostka-
kirkjunnar í norðurhluta Varsjár, þar
sem hann er þjónandi prestur.
Tugir lögreglumanna biðu fyrir
utan heimili Popieluszko í nótt, og
10 lögregluþjónar, flestir í borgara-
klæðum, reyndu að birta honum
stefnu eftir birtingu, en um hádegi
hurfu þeir á brott eftir að hafa far-
ið erindisleysu.
Skömmu áður en lögreglumenn-
irnir hurfu af vettvangi tóku um
tvær tylftir miðaldra kvenna og
roskinna sér stöðu í kirkjugarðin-
um til að vernda prest sinn. Sókn-
arbörn og starfsmenn Huta-stál-
verksmiðjunnar risastóru hafa
ákveðið að standa vörð um prest
sinn með varðstöðu við húsið allan
sólarhringinn.
ára útlegð í Síberíu fyrir sams-
konar sök í maí sl.
Báðir voru prestarnir sóttir til
saka í borginni Vilnius. Tamkev-
icius hafði oftlega verið varaður
við af sovézku leynilögreglunni,
KGB, en síðan var hann hnepptur
í varðhald daginn sem Svarikas
hlaut dóm sinn. Báðir prestarnir
voru í hópi stofnenda nefndar,
sem barðist fyrir trúfrelsi kaþól-
ikka í Sovétríkjunum og stofnuð
var eftir páfakjör Jóhannesar Páls
1978.
Starfsmenn Huta-verksmiðjunn-
ar voru mjög virkir stuðningsmenn
óháðu verkalýðsfélaganna pólsku,
Samstöðu, sem bönnuð voru með
herlögum fyrir röskum tveimur ár-
um.
Andófsmaðurinn Jacek Kuron,
sem setið hefur í nær tvö ár á bak
við lás án réttarhalda, sakaði pólsk
yfirvöld um að hafa falsað bréf í
sínu nafni, sem dreift var til vest-
rænna blaða. í bréfinu, sem ekki
birtist í neðanjarðarpressunni
pólsku, var spáð „nýrri öldu verk-
falla og verkamannauppreisnum" í
kjölfar fyrirhugaðra verðhækkana
á nauðsynjum, sem koma eiga til
framkvæmda um áramót. f bréfinu
voru landsmenn hvattir til að fylgja
fyrirmælum neðanjarðarleiðtoga
Samstöðu og hundsa nýju verka-
lýðsfélögin, sem herstjórnin ætlar
að koma í stað Samstöðu.
Pólskur prestur
slapp við handtöku
Frelsinu fegnir
Freddy Heineken (t.v.) og bílstjóri hans, Ab Doderer, spjölluöu viö
fréttamenn við heimili Heinekens í morgun og voru kampakátir og
fegnir að hafa sloppiö úr klóm ræningjanna. Lögreglan bjargaði þeim úr
höndum mannræningja á miðvikudag, en þá höfðu þeir verið tvær vikur
í haldi.
Undirbjuggu byltingu
á Seychelles-eyjum
Pretoríu, S-Afríku, 2. desember. AP.
AÐ SÖGN öryggismálaráðherra landsins hafa lögregluyfirvöld í Pretoríu
handtekið fimm menn, sem grunaðir eru um að hafa ætlað aö standa að
byltingu á Seycheiles-eyjum. A meðal
Bretar og Zimbabwe-búar.
Ekki eru nema tvö ár frá því
byltingartilraun, sem málaliðar
reyndu á eyjunum, var brotin á
bak aftur. Málaliðarnir tóku far-
þegaflugvél traustataki og flýðu á
henni til S-Afríku.
Að sögn ráðherrans virðist bylt-
ingartilraunin eiga rætur sínar að
þeirra fimra, sem handteknir voru eru
rekja til samtaka, sem hafa aðset-
ur í Bretlandi og nefna sig And-
spyrnuhreyfinguna. Ekki vildi
ráðherrann tilgreina hversu
margir af þeim handteknu væru
útlendingar, en einhverjir S-Afr-
íkumenn munu vera innan hóps-
ins.
Gerið jólagjafainnkaupin
ÍIKEA
I ZJ
1
i
Klukka 879,-
L
Fatahengi,
hvítt, svart
1.295,-
Barnastóll 299.
Hillusamstæða 4 559 - Rúmteppi 145x250 cm 1.289.-
Sími pósfcvepslunarep30980
Vinnulampar, 6 litir 399.-
HAGKAUP
Minnistöflur, 3 stærðir
40x40 cm. 149.-
40x60 cm. 189,-
60x100 cm. 399.-
Skeifunni15