Morgunblaðið - 03.12.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
Ágreiningur um hvernig standa eigi að töku loðnusýna:
Taka á sýni úr löndun
artækjum verksmiðju
Jón M. Baldursson listmálari í vinnustofu sinni.
„Fuglar og fantasía“
Litið inn hjá Jóni M. Baldurssyni myndlistarmanni
„Þetta er önnur sýningin sem ég held hérna í Heiðarásnum. Mér finnst mjög
gott að hafa Gallerí við hendina og það skapar vissa stemmningu að hafa
heimilið, vinnuaðstöðu og sýningarsalinn á sama stað,“ sagði Jón M. Bald-
ursson, listmálari, þegar blaðamaður leit inn til hans í Gallerí Heiðarás. í
Galleríinu, sem er í kjallara hússins að Heiðarási 8 opnar Jón M. sýningu á
verkum sínum í dag.
— segir Jónas Bjarnason, forstöðu-
maður Framleiðslueftirlits sjávarafurða
„ÞAÐ HEFUR verið svolítill hávaði út af þessu máli undanfarið og sjómenn
ýmsir hafa talið að það sé rangt staðið að töku loðnusýna," sagði Jónas
Bjarnason, forstöðumaður Framleiðslueftirlits sjávarafurða, í samtali við
Mbl., en nýlega skrifaði Hilmar Rósmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum, grein, þar sem fram kom gagnrýni á starfshætti Fram-
leiðslueftirlits sjávarafurða, varðandi töku á loðnusýnum.
„Á sýningunni nú eru tvenns
konar málverk. Annars vegar eru
hér á veggjunum landslagsmyndir
og hinsvegar fantasíuverk, eins-
konar dulrænar hugmyndir. Fant-
asíuverkin eru um 40 talsins, en
myndirnar á sýningunni eru alls
60. Uppistaðan í fantasíuverkun-
um eru fuglar og ýmiskonar hug-
leiðingar út frá þeim.
Ég mála verkin nokkuð jafn-
hliða og flest þeirra sem eru á
sýningunni hef ég málað á þessu
ári og því síðasta. Síðan eru tvær,
þrjár eldri myndir. Ég hef málað
frá því ’58, var frístundamálari
Batamerki Karnabæjar
í desember:
99
Áfram mið-
ar í anda
friðar“
KARNABÆR hefur valið batamerki
desembermánaðar og er það „Afram
miðar í anda friðar". Höfundur er
Auður Guðjónsdóttir, Akureyri.
í frétt frá Karnabæ segir um
batamerkið:
„Þær þúsundir bréfa, sem okkur
bárust með tillögum um bata-
merki desembermánaðar, eru
vissulega í anda þess tóns, sem við
vonuðum eftir að heyra.
Meining okkar með batamerkj-
unum var og er að skapa nýjan
tón, tón jákvæðs hugarfars, tón
bjartsýni og uppbyggingar, en um-
fram allt tón þjóðlegrar sam-
heldni í blíðu og stríðu. Við viljum
blása á barlóminn og hvetjum til
sameiginlegrar baráttu við að-
steðjandi vanda smáþjóðar á
hjara veraldar. Með þetta í huga
hitta einkunnarorð Auðar í mark,
því „Áfram miðar í anda friðar".
AFRAM MIÐAR
í ANDA FRIÐAR
des.
BATAMERKl
Sextugsafmæli
SEXTUGUR verður nk. mánudag,
5. desember, Steingrímur Jóhann-
esson, Hrafnhólum 6, Reykjavík,
áður Víghólastíg 8 í Kópavogi.
Hann ætlar að taka á móti gestum
á heimili sonar og tengdadóttur á
morgun, sunnudaginn 4. desem-
ber, að Engjaseli 70, 3. hæð til
hægri, eftir kl. 15.30.
fram til ’71 og byrjaði þá að mála
fyrir alvöru," sagði Jón M. Bald-
ursson að lokum. Sýning hans að
Heiðarási 8 er fjórtánda sýning
hans og verður hún opin fram til
jóla.
„Þetta er mikill misskilningur
hjá Hilmari Rósmundssyni og er
það reyndar mjög einkennilegt því
hann átti sjálfur sæti í yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins.
Hilmar heldur því fram að við för-
um ekki eftir tilkynningu Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins, en í til-
kynningu ráðsins frá 4. nóvember
1983, stendur orðrétt: „Verð mið-
ast við loðnuna komna í löndun-
artæki verksmiðju." Samkvæmt
þessu teljum við að eigi að taka
sýni úr löndunartækjum verk-
smiðju, en ekki niðri í skipi, eins
og Hilmar Rósmundsson telur,"
sagði Jónas.
„Við getum að sjálfsögðu tekið
sýnin hvar sem er, en við viljum
bara gera hlutina rétt, eins og að-
ilarnir hafa komið sér saman um.
Við breytum ekki okkar vinnuað-
ferðum nema að Verðlagsráð sjáv-
arútvegsins breyti sinni forskrift.
Við erum óháður þjónustuaðili,
sem á að vera á milli aðilanna og
Úti á landsbyggðinni er engin aðstaða til að hjúkra því
fólki, ósjaldan smábörnum, sem hefur brennt sig á
fosfórnum. Aflimun er því oft eina ráðið.
Patricio Fuentes, fulltrúi Mannréttindahreyfingarinn-
ar í El Salvador, ásamt Þráni Hallgrímssyni, fulltrúa
Mannréttindahreyfingarinnar á íslandi, en hann túlk-
aði fyrir Fuentes.
„Ástandið í E1 Salvador
verður æ alvarlegra“
— segir Patricio Fuentes, fulltrúi Mannréttindahreyfingarinnar í landinu
„ÁSTANDIÐ í El Salvador fer versnandi dag frá degi, efnahagslega,
félagslega og hvað almenn mannréttindi varðar. Kúgun lögreglusveit-
anna og stjórnarhersins fer vaxandi og er aukinn fjöldi pólitískra morða
Ijósasta dæmið um það.“
Patricio Fuentes heitir hann,
sem lét þessi orð falla í viðtali
við blaðamann Mbl. en Patricio
er fulltrúi Mannréttindanefndar
E1 Salvador á Norðurlöndum og í
Bretlandi. Mannréttindahreyf-
ingin var stofnuð 1. apríl 1978 og
voru meðal stofnenda hennar
Rómeró, þáverandi erkibiskup í
San Salvador, og Marianella
Garcia-Villas, sem m.a. kom
hingað til lands. Bæði hafa þau
verið ráðin af dögum.
Vaxandi kúgun
Að því er Patricio segir tekur
kúgunin á sig ýmsar myndir en
að þó megi kannski skipta henni
í fjóra flokka. í fyrsta lagi er það
kúgunin gegn konunum. Um og
yfir 90% þeirra kvenna, sem
stjórnarhermenn taka höndum,
eru beitt kynferðislegu ofbeldi,
nauðgað og pyntað. Er þar um að
ræða konur á öllum aldri, jafn-
vel lítil börn. í öðru lagi er það
kúgunin gegn stjórnmálaleiðtog-
um og verkaiýðsleiðtogum. For-
ystumenn stjórnarandstöðunnar
eru ofsóttir á ýmsa lund og sum-
ir talsmenn hennar hafa verið
myrtir. Jafnvel Duarte, formað-
ur Kristilega demókrataflokks-
ins og fyrrum forseti, hefur um
sig vopnaðan lífvörð stuðn-
ingsmanna sinna af ótta við út-
sendara öryggissveitanna eða
dauðasveitanna. Hlutskipti
verkalýðsleiðtoganna er þó sýnu
verra og það má heita regla, að
ef þeir láta í sér heyra þá
„hverfa” þeir og finnast síðan
liðin lík í einhverjum vegar-
skurði.
í þriðja lagi eru menntamenn,
læknar, lögfræðingar og kennar-
ar, en það fólk, sem notið hefur
einhverrar menntunar, er litið
hornauga af ofbeldisöflunum í
landinu. í fjórða og síðasta lagi
er svo kúgunin gegn öllum al-
menningi.
52.000 hafa látið lífið
Borgarastyrjöldin í E1 Salva-
dor gefur kostað 52.000 manns
lífið á fjórum árum og frá upp-
hafi árs 1982 hafa 5000 manns
horfið í landinu. Er sá háttur yf-
irleitt hafður á, að fólk er sótt í
heimahús af mönnum úr örygg-
issveitum stjórnarhersins, lög-
reglusveitunum eða dauðasveit-
unum og síðan finnast líkin ein-
hvers staðar á víðavangi.
Kfnahernaður
Stjórnarherinn gerir oft mikl-
ar loftárásir á þau svæði, sem
skæruliðar ráða, og hefur reynst
sannur að sök að hafa notað efni,
sem hafa hryllileg áhrif á það
fólk, sem fyrir þeim verður. Er
hér um að ræða hvítan fosfór, í
duft- eða vökvaformi. Þegar
duftið berst á hörund manna
veldur það kvalafullum bruna-
sárum og fosfórinn fljótandi er
ekki síður hættulegur. Honum er
varpað til jarðar í sprengjum og
þegar þær springa dreifist hann
um nokkurt svæði. Ef menn
stíga ofan í hann étur hann sig
inn í fótinn og úti á landsbyggð-
inni þar sem læknisþjónusta er
lítil sem engin er ekki um annað
að ræða en að taka fótinn eða
aðra limi af.
Hernaðarleg lausn ekki til
Þegar Patricio Fuentes var
inntur eftir hugsanlegum lausn-
um á hörmungunum í E1 Salva-
dor sagði hann, að hernaðarleg
lausn væri ekki til, pólitísk lausn
væri eina leiðin. Kvað hann
FMLN, samtök skæruliðahreyf-
inganna, sem berjast gegn
stjórninni, vera fús til samninga
um framtíðarskipan mála og að
þau styddu tilraunir Contadora-
ríkjanna til að koma á friði í
landinu. Það væri því ekki síst
undir ráðamönnum í landinu og
Bandaríkjastjórn komið hvort
um frið semdist.
Eins og fyrr sagði er Patricio
Fuentes fulltrúi Mannréttinda-
nefndarinnar í E1 Salvador á
Norðurlöndum og í Bretlandi og
hefur aðsetur í Stokkhólmi. Blm.
spurði hann hvort Norðurlönd
gætu lagt meira af mörkunum
til að reyna að lina þjáningar
fólks í landi hans og kvaðst hann
ætla það því að sameinuð væru
Norðurlönd áhrifaríkt afl, ekki
síst hjá Sameinuðu þjóðunum.
við breytum ekki sýnatökunni að
kröfu annars hvors aðilans," sagði
Jónas.
„Þetta verkefni er ekki lögbund-
ið verkefni Framleiðslueftirlits
sjávarafurða. Það er því mjög
ómaklegt að ráðast á Framleiðslu-
eftirlit sjávarafurða fyrir að
reyna að starfa að þessu máli ein-
göngu af þjónustulund til þess að
leysa vandamál. Rétta leiðin fyrir
Hilmar Rósmundsson er því sú að
fá verðlagsnefndina til þess að tjá
sig um þetta atriði og að breyta
forskriftinni," sagði Jónas Bjarna-
son.
„Síðasti bærinn
í dalnum“ sýnd-
ur í Bíóbæ
KVIKMYND Óskars Gíslasonar,
Síðasti bærinn í dalnum, verður
sýnd í Bíóbæ í Kópavogi í dag og á
morgun. Tvær sýningar verða hvorn
dag, hin fyrri klukkan 14 og hin síð-
ari klukkan 16.
í fréttatilkynningu frá Bíóbæ er
fólk hvatt til þess að nota tæki-
færið og sjá þessa mynd, sem gerð
var fyrir hartnær 40 árum.
Leiðrétting
ÞAÐ er ranghermt í Morgunblaðinu
í gær, að Matthías Johannessen hafí
lesið úr Ijóðabókum sínum Jörð úr
ægi og Hólmgönguljóðum á hátíð-
arskemmtun stúdenta 1. desember.
Hann las úr Jörð úr ægi, Fagur er
dalur og óbirt Ijóð. Þetta leiðréttist
hér með.
Myndin sýnir konur í Kvenfélagi
Seljasóknar við undirbúning basars-
ins, sem verður á morgun, sunnu-
dag.
Basar í Selja-
sókn á morgun
KVENFÉLAG Seljasóknar heldur
basar sunnudaginn 4. desember í
Ölduselsskóla. Þar verður á boðstól-
um fjöldi muna, sem konur í félag-
inu hafa unnið. Til sölu verður hið
vinsæla laufabrauð og lukkupakkar
fyrir börn.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir, að einnig verði seldar jóla-
skreytingar og kerti, svo og kökur
í úrvali. Heitt kaffi verður á könn-
unni allan daginn, en basarinn
hefst klukkan 15 að lokinni guðs-
þjónustu í ölduselsskóla.
Allur ágóði af basarnum rennur
til byggingar kirkjumiðstöðvar í
Seljahverfi.