Morgunblaðið - 03.12.1983, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1983
33
í öllum meginatriðum er verkun
klórprómazíns og halóperídóls
hliðstæð, en þó er róandi verkun
halóperídóls minni. Halóperídól er
notað gegn geðshræringu, æði,
árásarhneigð og skynvillum, sem
eru samfara bráðri og langvarandi
geðveiki svo sem geðklofa og sál-
sjúkum viðbrögðum, sem stafa af
heilaskemmdum. Halóperídól hef-
ur einnig uppsölustillandi verkun,
en bæði áhrif þess á geðsjúkdóma
og uppsölu eru talin stafa af því,
að lyfið getur komið í veg fyrir
áhrif dópamíns, sem er eitt af
mörgum boðefnum í heila, en boð-
efni stjórna bæði andlegri og lík-
amlegri starfsemi. Breyting á
magni boðefna getur því haft víð-
tæk áhrif.
Haióperídol er venjulega tekið í
inntöku í töfluformi eða dropum.
Það frásogast vel frá meltingar-
göngum og hefur langa verkun
þannig að nægilegt er í mörgum
tilvikum að taka það inn 1—2
sinnum á dag. Ýmsar hjáverkanir
geta fylgt í kjölfar notkunar haló-
perídóls.
Sú helsta er ósjálfráðar hreyf-
ingar, sem lýsa sér sem stífleiki og
skjálfti, en líkist Parkison-sjúk-
dómi og eirðarleysi. Tíðni þessara
hjáverkana er mjög mikil og er
áberandi jafnvel hjá ungum ein-
staklingum, en hægt er að nota lyf
til þess að sniðganga þær. Af öðr-
um hjáverkunum má nefna melt-
ingartruflanir, geðdeyfð, bjúg,
svita, munnþurrk, lágan blóð-
þrýsting, hraðan hjartslátt, höfga,
og truflun á aðlögun augna.
Heilræði vikunnar: Förum
okkur hægt.
Akureyri:
Uppboð og
sýning í
Sjallanum
Akureyri, 1. desember.
LAUGARDAGINN 3. desember nk.
veröur allsérstæð uppákoma í Sjall-
anum á Akureyri, en þar munu Fróði
og Listhúsið standa fyrir sýningu og
uppboði á verkum ýmissa lista-
manna.
Aðaluppistaðan í uppboðinu
verða 30 teikningar eftir Ragnar
Lár, gerðar á árunum 1960 til 1983,
aðallega teikningar úr blöðum og
tímaritum.
Á sýningunni kennir margra
grasa. Þar er m.a. að finna 7 möpp-
ur eftir Ragnar Lár, en þar hefur
hann safnað saman samstæðum
teiknimyndum t.d. af „Láka og líf-
inu“, en Láki var fyrsta íslenska
teiknifígúran, sem birtist reglu-
lega í íslensku blaði.
Höfundar annarra myndverka á
sýningunni eru: Alfreð Flóki,
Bragi Hannesson, Elías B. Hall-
dórsson, Eyjólfur J. Eyfells,
Gunnlaugur Blöndal, Hringur Jó-
hannesson, Jónas Guðmundsson,
Júlíana Sveinsdóttir, Kjarval,
Kristján Guðmundsson, Stein-
grímur Si urðsson, Tryggvi
ðlafsson og V *ýr Pétursson.
Sýningin he. í Mánasal Sjall-
ans klukkan 1., en uppboðið kl.
16.00. GBerg
Viðtalstími
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins veröa til viötals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12.
Er þar tekið viö hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum
og er öllum borgarbúum boöiö að notfæra sér viðtals-
tíma þessa.
Laugardaginn 3. des-
ember verða til viðtals
Ragnar Júlíusson og
Júlíus Hafstein.
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Skipholt 1—50
Úthverfi
Baröavogur
Ingólfsstræti og
Neöstaleiti
Vesturbær
Faxaskjól
Ármúli
Einarsnes
Kópavogur
Bræðratunga
.— :
NÝJA UNDRATÆKIÐ
í ELDHÚSIÐ FRÁ
KENWOOD
Hrærir deig, sker niöur grænmeti, hakkar kjöt, saxar
grænmeti, þeytir rjóma og ótal m.fl.
Mjög auðvelt og fljótlegt er aö hreinsa tækiö eftir
notkun.
„GOURMET" undratækið er knúiö af jafnöruggum
mótor eins og notaöur er í stóra bróðurinn
„Kenwood Chef" og hefur hann þrjár hraðastillingar.
Mótorinn er þeim eiginleikum búinn aö hann slær út
ef tækiö er yfirfyllt.
Komið og kynnist nýja undratækinu
frá Kenwood.
RAFTÆKJADEILD
1933/^^
í TILEFNI
1983
AFMÆLIS
BILASYNING
Laugardag3.des. kl.10-17
Si jnmdag 4. des. kl.13~17
. i. n. ^
Sýnum nú í fyrsta sinn BMW 524 Turbo
diesel, og BMW 300 4 dyra.
Frá Renault sýnum við nýjasta
bílinn, Renault 11.
Ennfremur kynnum við aðrar gerðir
BMW og Renault bifreiða. Lítið við,
skoðið bílana og þiggið kaffi.
Kynning á
pDon ^ ‘'ro i
KRISTINN GUÐNASON HF. k
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633