Morgunblaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR11. JÚLl 1985
3
Atvinnuástandið
betra en tvö
síðustu árin
ATVINNULEYSI var 2 þúsund atvinnuleysísdögum minna í júnímánuöi en í
maímánuði og 4 þúsund atvinnuleysidögum minna en í júní árið 1984.
Samtals voru rúmlega 14 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu öllu í júní,
sem jafngildir því að 660 manns hafi gengið atvinnulausir allan mánuðinn,
sem svarar til 0,5% atvinnuleysis miðað við heildarmannafla á vinnumarkaði.
Þessar tölur koma fram í frétta-
bréfi sem vinnumálaskrifstofa fé-
lagsmálaráðuneytisins hefur látið
frá sér fara. Þar segir ennfremur
að 65% atvinnuleysis í júní hafi
fallið til hjá konum og helmingur
skráðra atvinnuleysisdaga verið á
höfuðborgarsvæðinu. „Af þessu
má ráða að stöðvun stærstu
frystihúsanna í Reykjavík, þar
sem starfsfólk var í launalausu
leyfi í mánuðinum, hafi átt drjúg-
an þátt í því atvinnuleysi sem
skráðist í landinu."
181 þúsund atvinnuleysisdagar
skráðust fyrstu sex mánuði þessa
árs, sem jafngildir þvi að 1400
manns hafi verið atvinnulausir að
meðaltali eða 1,2% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði. Fyrir
sama tímabil 1 fyrra voru skráðir
atvinnuleysisdagar aftur á móti
246 þúsund, sem jafngildir 1900
manns atvinnulausum eða 1,6% af
mannafla á vinnumarkaði.
Atvinnuástand er þannig betra
það sem af er þessu ári heldur en
verið hefur undanfarin tvö ár,
„enda gætir manneklu í ýmsum
starfsgreinum, ekki síst í fisk-
vinnslu. Sú staðreynd, að þrátt
fyrir þetta ástand eru skráðir um
14 þúsund atvinnuleysisdagar, á
að verulega leyti rætur að rekja til
þess að ýmis fiskvinnslufyrirtæki
hafa sett starfsfólk sitt í launa-
laus leyfi vegna skorts á hráefni. í
slíkum tilfellum á fiskvinnslufólk
rétt til atvinnuleysisbóta, ef það
lætur skrá sig hjá vinnumiðlun,
meðan á launalausu leyfi stendur
en hefur á ný störf hjá vinnuveit-
anda þegar leyfi lýkur. Þess er þvl
ekki að vænta að þeir, sem þannig
stendur á um, bæti úr manneklu
hjá öðrum atvinnurekendum,"
segir ennfremur í fréttabréfinu.
Listahátíð efnir til smásagnasamkeppni:
RR^foKOjgJft
VIÐ BJÓÐUM
NÝJAN OG GÓMSÆTAN
BAKSTUR í
GLÆSILEGRI BRAUÐBÚÐ
í HAGKAUP, Skeifunni 15, hefur verið opnuð
glæsileg brauðbúð með fjölbreyttu og
freistandi úrvali af brauði og sætum kökum.
Par má nefna Kleinur og Klasabrauð,
Skonsur og Skeifubrauð, Tebollur og Toska-
stykki, Kaffíbollur og Kósakkabrauð,
Kossa og Kúmenbrauð, Snúða og Snittu-
brauð, er þá aðeins fátt eitt talið.
Nú er lokkandi ilmur í Hagkaup.
1. verðlaun 250
þúsund krónur
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík hefur
ákveðið að gangast fyrir smásagna-
samkeppni á listahátíðarárinu 1986,
með stuðningi Reykjavíkurborgar,
Landsbanka Islands og Seðlabanka
íslands. Tilefnið er að þá á Reykja-
víkurborg 200 ára afmæli, Lands-
bankinn 100 ára afmæli og þá er
einnig eitt hundrað ára afmæli
seðlaútgáfu í landinu.
Verðlaun eru mjög vegleg. 1.
verðlaun eru 250 þúsund krónur, 2.
verðlaun 100 þúsund krónur og 3.
verðlaun 50 þúsund krónur. Skila-
frestur á sögum er til 10. apríl á
næsta ári og gert er ráð fyrir að
úrslit verði tilkynnt við opnun
Listahátíðar 31. maí. Sögurnar
skulu merktar dulnefni, en rétt
nafn höfundar fylgja í lokuðu um-
slagi.
Viðfangsefni sagnanna er
mönnum í sjálfsvald sett að öðru
leyti en því að það skal sótt til
íslensks nútímalífs. Í dómnefnd
samkeppninnar eiga sæti Þórdis
Þorvaldsdóttir, borgarbókavörður,
Stefán Baldursson leikhússtjóri og
Guðbrandur Gíslason, bók-
menntafræðingur.
^,Gert er ráð fyrir að gefa bestu
sögurnar út í bók á 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar 18. ágúst.
Salvör Norðdal, framkvæmda-
stjóri Listahátíðar, sagði að þessi
hugmynd um smásagnasamkeppni
hefði orðið ofan á í stjórn Lista-
hátíðar vegna þess að mjög lítið
hefði verið gert fyrir smásöguna í
samanburði við til að mynda leik-
rit og skáldsögur.
Aflinn á Vestfjarðamiðum:
Uppistaðan
5 ára fiskur
ÞORSKURINN, sem svo vel hefur
veiðst á Vestfjarðamiðum að undan-
förnu, er að uppistöðu 5 ára fiskur,
að sögn Sigfúsar A. Schopka fiski-
fræðings hjá Hafrannsóknastofnun.
Sigfús sagði að það væri í sam-
ræmi við það sem fiskifræðingar
heföu átt von á. 1980-árgangurinn
væri meðalárgangur, en mun betri
en árgangarnir á undan og eftir.
Hann bæri núna uppi veiðina. Sig-
fús sagði að ’83 og ’84 árgangarnir
væru einnig taldir góðir en þeirra
færi ekki að gæta í veiðinni fyrr
en 1987-88.
Olíumalarslitlög á Reykjanesi:
Lægsta tilboð 56 %
af kostnaðaráætlun
HALLDÖR Björnsson verktaki átti
lægsta tilboðið í lagningu annars
áfanga olíumalarslitlaga í Reykja-
ncsumdæmi í sumar. Tilboð hans
var 2.698 þúsund kr„ sem er aðeins
56% af kostnaðaráætlun Vegagerð-
arinnar, en hún var 4.810 þúsund kr.
Þrjú önnur tilboð bárust í
verkið og vöru þau öll yfir kostn-
aðaráætlun, það hæsta 5.666 þús-
und kr„ sem er 18% yfir kostnað-
aráætlun og rúmlega helmingi
hærra en lægsta tilboðið.
HAGKAUP
ÓSA