Morgunblaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚLl 1985
15
Nokkrar bækur um
rómönsku Ameríku
Erlendar bækur
Anna Bjarnadóttir
Bandarískum utanríkismálasér-
fræðingum kemur saman um að
skilningsleysi og vanþekking hafi
löngum sett svip sinn á utanrík-
isstefnu Bandaríkjanna gagnvart
rómönsku Ameríku og spillt fyrir
tilætluðum árangri hennar. Oft er
vitnað til orða James Reston,
dálkahöfundar the New York Tim-
es, „Bandaríkin vilja allt fyrir
rómönsku Ameríku gera nema
lesa um hana,“ í þessu sambandi
og einn sérfræðingur varð nýlega
furðulostinn þegar blaðamaður
bað hann að benda á nokkrar góð-
ar bækur um Suður- og Mið-
Ameríku. „Ég verða að hugsa mig
um,“ sagði hann. „Ég er svo sjald-
an beðinn um að muna eftir heil-
um bókurn."
En nú er af nógu að taka. Það
hefur runnið upp fyrir bókaútgef-
endum að vandamál rómönsku
Ameríku verða ekki leyst alveg á
næstunni og áhugi fólks hefur
vaknað á þessum hluta jarðarinn-
ar. í Washington var meðal ann-
ars mælt með bókunum: Nicar-
agua: The Sandinista People’s Rev-
olutin, Speeches by Sandinista Lead-
ers, sem Pathfinder Press gaf út
1985; Small ('ountries, Large Issues,
eftir Mark Falcoff og American
Enterprise Institute gaf út 1984;
og Central America, Anatomy of
Conflict, sem Robert S. Leiken rit-
stýrði og Pergamon Press gaf út
1984 í samvinnu við Carnegie
Endowment for International
Peace.
í bók Mark Falkoffs eru birtar
fimm greinar sem hann hefur
skrifað um samskipti Bandarikj-
anna við Kúbú, Uruguy, E1 Salva-
dor, Nicaragua og Chile. Hann
skýrir hlutina frá sjónarhóli
Bandaríkjamanna, viðurkennir
mistök og bendir á það sem betur
hefði mátt fara, en fellst ekki á að
allt böl í þessum löndum sé
Bandaríkjamönnum um að kenna,
eins og nokkuð algengt er að fólk
geri. Bókin er þunn og vel læsileg.
Það er fróðlegt að líta á málefni
rómönsku Ameríku frá sjónar-
horni Falkoffs þótt skoðanir hans
séu kannski stundum of hægri-
sinnaðar til að vera alveg mark-
tækar.
Gallinn við bók eins og Central
America, Anatomy of Conflict, sem
er safn 15 greina eftir sérfræðinga
í málefnum Mið-Ameríku, er sá að
hún verður fljótt gömul og úrelt.
Marg hefur gerst í Mið-Ameríku
síðan sérfræðingarnir skrifuðu
greinarnar og nokkrar þeirra eru
þannig að þær standast ekki tím-
ans tönn. Það er t.d. ekki sérstakl-
ega áhugavert að lesa um kosn-
ingu d’Aubuissons i E1 Salvador
löngu eftir að Duarte er tekinn
við. En bókin er þó fróðleg og gef-
ur góða hugmynd um erfiðleika
Mið-Ameríku og sýnir fram á að
það verður ekki auðvelt að leysa
þá. Hún fjallar um vanþekkingu
Bandaríkjamanna í Mið-Ameríku
og erfiðleikana sem þessi vanþek-
ing hefur valdið; baráttu sósíal-
isma og „sovétisma" á svæðinu; ef-
nahags- og hernaðarmál; og þróun
stefnumótunar Bandaríkjastjórn-
ar gagnvart Mið-Ameríku. Grein-
arhöfundarnir koma úr ýmsum
áttum og hafa ólíkar skoðanir en
eiga það sameiginlegt að vera vel
að sér um þau málefni.
Breska tímaritið The Economist
fjallaði nýlega um nokkrar nýjar
bækur um rómönsku Ameríku.
Það sagði að bókin Distant Neighb-
ors, eftir Alan Riding og Knopf,
New York, gaf út, væri langbesta
nýja bókin um Mexíkó. Riding er
fyrrverndi fréttaritari tímaritsins
og The New York Times og dvald-
ist í 14 ár í Mexíkó. Hann er vel að
sér um landið, siði þess og venjur,
og The Economist telur að bókin
kunni að koma við kaunin á ýms-
um stjórnmála- og menntamann-
inum í Mexíkó.
Rebellion in tbe Veins, eftir Jam-
es Dunkerley í útgáfu Verso Edit-
ions, London, fjallar um Bóliviu.
Hún þykir rekja sögu landsins frá
byltingunni 1952 á hlutlausan og
gagnlegan hátt. Bókin Inevitable
Revolutions, eftir Walter LaFeber
og Norton, New York, gaf út, þykir
ekki eins hlutlaus. LeFeber er í
hópi bandarískra utanríkismála-
sérfræðinga sem telja að allar að-
gerðir Bandaríkjamanna í Mið-
Ameríku hafi verið út í hött og
óafsakanlegar. The Economist er
ekki yfir sig hrifin af bók hans.
The Disappeared, Voices from a
Secret War, eftir John Simpson og
Jana Bennett, í útgáfu Robson
Books, er sögð vera óvenjuleg bók.
Hún fjallar um hugrekki einstakl-
inga sem þorðu að berjast gegn og
tala á móti herforingjastjórninni í
Argentínu á áttunda áratugnum.
Og bókin Latin America and the
World Recession er greinasafn um
skuldasöfnun rómönsku Ameríku
og ástæðurnar fyrir henni. Esper-
anza Duran ritstýrði bókinni og
Royal Instiute of International
Affairs/Cambridge University gaf
hana út.
8LÓMA8ÆKUR MlALft OQ MENNINOAR
OG ÞYKKBLÖÐUNGAR
í glugga og gróðurhús
PettrChapman • Margar«t Martln
Af kaktusum
________Bækur_____________
Jóhanna Kristjónsdóttir
Blómabækur Máls og Menningar:
KAKTUSAR og þykkblöðungar
Höf: Peter Chapman og Margaret
Martin
Álfheiður Kjartansdóttir og Haf-
steinn Hafliðason þýddu og stað-
færðu.
Útg. M&M 1985
MARGIR blómaræktendur hafa
hið mesta yndi af því af safna að
sér sem flestum kaktusum, hvort
sem það stafar af því að margir
standa í þeirri trú að kaktusar
þurfi litla sem enga vökvun elleg-
ar nú þessi gróður höfðar til fólks
í fullri alvöru. Það er raunar afar
merkilegt að fylgjast með kaktus-
um svo fremi maður hafi hugsun
á: stundum spretta fegurstu blóm
fram úr því sem virðast vera
þykkildi og broddar. Þessi blóm
eru einatt litfegurri en gengur og
gerist með stofublóm, kannski er
það líka vegna þess að við þeim er
ekki búist. Nema menn þekki
hegðun kaktusa og þykkblöðunga.
Það er hægt að komast í kynni
við þessar plöntur í bókinni sem
hér um ræðir. 1 læsilegum inn-
gangsorðum er skýrt skilmerki-
lega út margt fróðlegt um kaktusa
og þykkblöðunga og hvemig á að
annast þá. Síðan taka við myndir
og lýsingar af kaktusum, hvorki
meira né minna en 156 tegundum,
fallegar myndir og aðgengilegar
lýsingar, svo að allir áhugamenn
um ræktun kaktusa ættu að fá
töluvert fyrir sinn snúð. Bókin er
ágætlega úr garði gerð af hálfu
útgáfunnar.
Ætlar þú til útlanda I sumar?
Einn íslenskra banka býöur Búnaðarbankinn Visa ferðatékka í
portúgölskum escudos frá Banco Pinto & Sotto Mayor í Portúgal
og ferðatékka í ítölskum lírum frá Banco di Roma.
Við bjóðum einnig:
Visa ferðatékka í Bandaríkjadollurum,
sterlingspundum, frönskum frönkum
og spönskum pesetum.
Ferðatékka í vestur-þýskum mörkum
frá Bank of America og ferðatékka í
Bandaríkjadollurum frá American Express
VISA greiðslukort til afnota innanlands og utan.
Verið velkomin í bankann. Starfsfólk gerir sitt ýtrasta til að
veita skjóta og örugga þjónustu í öllum viðskiptum.
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI
A