Morgunblaðið - 11.07.1985, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1985
31
Skáldsagan Grun-
urinn gefin út á ný
ÚT ER komin hjá bókaklúbbnum VERÖLD skáldsagan Grunurinn eftir
Friedrich Diirrenmatt í þýðingu Unnar Eiríksdóttur. Bókin kom fyrst út hjá
Iöunni 1968 en hefur verið ófáanleg um árabil.
í frétt frá bókaklúbbnum segir göngu lagt stund á skriftir. Dúrr-
að Grunurinn sé æsispennandi
saga um viðureign upp á líf og
dauða milli lögreglufulltrúa og
fyrrverandi fangabúðalæknis. „En
meira er þó um vert að hún er
jafnframt góðar bókmenntir.
Frásögnin er svo magnþrungin og
gagntakandi að lesandanum
finnst sem hann lifi sjálfur hroll-
vekjandi veruleika. Þessi bók
höfðar því jafnt til þeirra, er góð-
um bókmenntum unna, og hinna,
sem fyrst og fremst kjósa spenn-
andi lestrarefni."
Friedrich Dúrrenmatt starfaði
framan af sem grafíklistamaður
og teiknari. Rétt upp úr 1940 skrif-
aði hann fyrsta smásagnasafn
sitt. Eftir 1947 hefur hann ein-
enmatt er löngu heimskunnur
fyrir leikrit sín og skáldsögur sem
farið hafa sigurför um heiminn og
hvarvetna vakið mikla athygli og
aðdáun. í ritverkum sínum beitir
hann oft tækni sakamálasögunnar
og er svo einnig gert í bókinni
Grunurinn. Dúrrenmatt er óum-
deilanlega einn virtasti höfundur
samtímans. ____
0'
INNLENT
Doktor Snorri Agnarsson.
Doktor í for-
ritasöfnun
HINN 10. júní síðastliðinn varði
Snorri Agnarsson doktorsritgerð vjð
Rensselaer Polytechnic Institute í
Troy-borg, New York-fylki í Banda-
ríkjunum. Ritgerðin ber heitið
„Packages as Substitutions" og
fjallar um fræðileg atriði í tengslum
við aðgerðir á forritasöfnum.
Snorri Agnarsson fæddist í
Reykjavík 30. desember 1955.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1975 og BS-prófi frá Háskóla ís-
lands í stærðfræði árið 1978, en
hefur síðan stundað nám við RPI
og jafnframt námi unnið hjá skól-
anum m.a. við kennslustörf.
Foreldrar Snorra eru Inga Dóra
Hertervig og Agnar Gústafsson,
hæstaréttarlögmaður. Snorri er
kvæntur Júlíönu S. Guðjónsdótt-
ur, hjúkrunarfræðingi, BS.
Styrkveiting
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrk úr
Menningar- og framfarasjóði
Ludvigs Storr fyrir árið 1985 og
hlaut dr. Gylfi Árnason, dósent
við Háskóla íslands, 155 þúsund
krónur til verkefnisins „Agna-
dreifing í iðustreymi".
Í frétt fra sjóðnum segir að til-
gangur hans sé að stuðla að fram-
förum á sviði jarðefnafræði, bygg-
ingariðnaðar og skipasmíða.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
EKIÐ VAR á yfirgefinn bíl í Hafnar-
firði á laugardag eða laugardags-
kvöld, þar sem hann stóð á bfla-
stæði. Biður rannsóknarlögreglan í
Hafnarfirði þá sem upplýsingar geta
gefið um málið að snúa sér til henn-
ar við fyrsta tækifæri.
Bifreiðin er brún að lit af Su-
baru-gerð og stóð hún við Kletta-
hraunið til móts við hús númer 3 á
laugardaginn er atburðurinn er
talinn hafa átt sér stað. Ekið var á
afturhurð vinstra megin og eru
skemmdir á bifreiðinni talsverðar.
Úr týndist í
Austurstræti
Miðvikudaginn 3. júlí tapaði
sendiboði armbandsúri (kvenúr)
með gylltu armbandi í Austur-
stræti milli kl. 10.30—11.30. Úrið
er af gerðinni Favre Luba. Fund-
arlaunum er heitið. Tekið er við
því í skrifstofu Almenna bókafé-
lagsins í húsi Bókaverslunar Sig-
fúsar Eymundssonar. Síminn þar
er 25544.
ÍJ
11
—K>-----*------O-
Vegna flutninga
10-40%
afsláttur
á innréttingum og flísum til 28. júlí í Ármúla
Opnum 29. júlí í Skútuvogi 4, flísaverslun í glæsilegu hús-
næði með rúmgóðum bílastæðum.
Nýborg;c§i
Ármúla 23, sími 686755.
-----*---------C*----------------O-----------------