Morgunblaðið - 11.07.1985, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1985
41
Minning:
Ásgrímur Ásgeirs-
son yfirstýrimaður
Fæddur 27. mars 1923
Dáinn 5. júlí 1985
f dag, fimmtudaginn 11. júlí, kl.
13.30, verður jarðsunginn frá
Garðakirkju á Álftanesi Ásgrímur
Ásgeirsson yfirstýrimaður hjá
Landhelgisgæslunni, sem varð
bráðkvaddur þann 5. þ.m. Ásgrím-
ur fæddist í Reykjavík 27. mars
1923, sonur hjónanna Ásu Ás-
grímsdóttur frá Reykjavík og
Ásgeirs Sigurðssonar, hins þekkta
og vinsæla skipstjóra á strand-
ferðaskipunum Esju og síðar
Heklu. Asgrími var sjómennskan í
blóð borin og þeirri köllun hlýddi
hann aðeins 13 ára gamall er hann
réðst til föður síns á gömlu Esju.
Það var ekkert sældarlíf að vera á
strandferðaskipunum á þessum
árum, þar sem þau voru svo til
einu samgöngutæki landsmanna
og því komið við á hverri vík og
firði þar sem búið var, með vörur
og farþega. Það þurfti því sam-
heldna áhöfn til að allt færi vel og
halda mætti áætlun. Þarna öðlað-
ist Ásgrímur mikla reynslu í sjó-
mennsku sem kom honum vel á
hans nærri hálfrar alda sió-
mennskuferli. Á Esjunni er Ás-
grímur til 17 ára aldurs og var
meðal annars einn í áhöfn Esju
sem fór hina frægu Petsamó-för
til að sækja fslendinga sem lokast
höfðu inni á Norðurlöndum vegna
stríðsins. Þegar Ásgrímur var 17
ára hóf hann siglingar á amerísk-
um og sænskum skipum, sem hann
var á í 7 ár, og sigldi þá um öll
heimsins höf. Það var oft gaman
að hlusta á Ásgrím segja frá ýms-
um svalviðrisförum sem hann
lenti í á þessum árum, því hann
hafði sérstaka frásagnarhæfileika
blandaða góðlátlegri kímni, sem
kom mönnum til að hlæja dátt.
Þegar Ásgrímur kom aftur heim
til íslands að lokinni 7 ára veru
erlendis ræður hann sig á nýju
Esjuna. Hann fer svo í Stýri-
mannaskólann í Reykjavík og lýk-
ur þaðan prófi 1953. Hann er síðan
á Esju og Heklu til ársins 1957.
Það ár ræðst hann sem stýrimað-
ur til Landhelgisgæslunnar. þar
var hann yfirstýrimaður og af-
leysingarskipherra er kallið mikla
kom að morgni þess 5. júlí sl. Ás-
grímur Ásgeirsson var góður
drengur sem hélt uppi góðum
anda um borð í þeim skipum sem
hann var á. Hann vildi vera
sanngjarn við undirmenn sína og
kom vel fram við þá, en hann gat
líka verið hvassyrtur ef honum
mislíkaði framkoma einhvers.
Hann var hraustmenni fram í
andlátið. Hann fékk slæmt hjarta-
kast fyrir nokkrum árum og var
ekki annað að sjá en hann væri
búinn að ná sér allvel eftir það, að
minnsta kosti gaf hann ekkert eft-
ir hvað vinnuna snerti. 17. júní
1953 var stór stund í lífi Ásgríms
er hann gekk að eiga Ólöfu Helgu
Benónýsdóttur (Benónýssonar
kaupmanns og Halldóru Ben-
ónýs.). Ólöf og Ásgrímur voru
Ólína Þórey Jóns-
dóttir — Minning
Fædd 16. sept. 1932
Dáin 14. júní 1985
Kveðja frá Fram-konum
Við urðum hryggar og hljóðar
þegar okkur barst sú harmafregn
vestan um haf að Ollý væri dáin.
Hún var ein af okkur. Fyrir 30
árum var hún hér heima í blóma
lífsins á meðal okkar, ein fremsta
handknattleikskona Knattspyrnu-
félagsins Fram á sínum tíma, virt
og dáð af öllum sem umgengust
hana.
Innan íþróttafélaganna tengjast
oft bönd vináttu og tryggðaf sem
tími vinnur ógjarnan á þótt árin
líði. Svo er til dæmis um kvenna-
liðið í Fram í handbolta frá þess-
um árum, þar sem voru meðal
margra annara Anny, Didda, Erla
mark og Ollý. Ollý var stjarnan í
liðinu, íturvaxin og glæsileg,
kappsfull, hraust og stjórnsöm.
Minnast Fram-konur margra ynd-
isstunda í leik og félagsstarfi frá
þessum árum, þegar sólskinið og
æskuþrótturinn lögðustu á eitt um
að ná settu marki, efla gengi fé-
lagsins okkar í hvívetna. Þetta
voru ógleymanlegar stundir, sem
geymast í minningunni, og tengj-
ast nú sérstaklega nafni hinnar
látnu.
Því nú er hún horfin úr hópnum
okkar, á bestu þroskaárum lífsins.
Framundan gátu beðið mörg mörg
ár með nýjum sigrum og glæsi-
brag, í faðmi ástríkrar fjölskyldu.
Fram-konur sakna hennar,
minnast hennar sérstaklega um
leið og þær þakka henni ógleym-
anlega samveru.
Hún fluttist til Bandaríkjanna á
7. áratugnum, ásamt eiginmanni
sínum Magnúsi Óttari Magnús-
syni lækni og þrem börnum
þeirra, þar sem hún átti glæsilegt
heimili síðan, seinast í Cleveland
við Eirevatn. Þar var unaðsstaður
fjölskyldunnar, og að vísu ótal-
inna Islendinga, sem áttu leið um
og nutu gestrisni fjölskyldunnar í
ríkum mæli. Vísast til ágætra
minningagreina um hina látnu (
Morgunblaðinu 22. júní sl. þar sem
eru nánari upplýsingar um æfi
hennar, ætt og venslafólk.
Fyrir rúmi ári var Ollý síðast á
ferð á íslandi, þá til að fylgja aldr-
aðri móður til grafar. Fram-konur
fengu þá tækifæri til að hitta
hana, hún var enn hin glæsta
stjarna éins og áður, full af lífs-
þrótti. Við fundum að með hverju
ári sem leið tengdist Ollý sterkari
böndum við ísland, enda hlaut hún
fyrst og fremst að vera íslending-
ur og Fram-kona.
Einn dag, á erlendu hausti, lam-
aði örlagavaldur líftaug hennar,
svo hún gat ekki vænst langra
lífdaga meir. Þegar hún kvaddi
var komið yndislegt íslenskt vor,
Fram-konur
SINDRA
samrýnd hjón sem studdu hvort
annað. það var alltaf ánægjulegt
að koma inn á þeirra glæsilega
heimili á Holtsgötu 21 þar sem
gestrisnin réð ríkjum. Þau eignuð-
ust 2 börn, Benóný þyrluflugstjóra
hjá Landhelgisgæslunni, og Ásu
starfsmann hjá ferðaskrifstofunni
Utsýn. Barnabörnin eru 3, Ás-
grímur, Benóný og Óliver, sem öll
voru afar hænd að afa sínum.
Ég og kona mín vottum Ólöfu
Helgu, börnunum og barnabörn-
um svo og öðrum ástvinum okkar
dýpstu samúð og biðjum góðan
Guð að veita þeim styrk í sorgum
þeirra.
Blessuð veri minning Ásgríms
Ásgeirssonar.
Helgi Hallvarðsson
Þegar æviröðull rennur
rökkvar fyrir sjónum þér
hræðstu eigi, hel er fortjald
hinum megin birtan er.
Höndin sem þig hingað leiddi
Himins til þig aftur ber
Drottinn elskar — Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sig. Kr. Pétursson)
Með nokkrum orðum vil ég
kveðja tengdaföður minn, Ásgrím
Ásgeirsson, sem lést 5. júlí sl.
Mjög ung kynntist ég Adda og
tókst strax með okkur sérstæð
vinátta sem einkenndist af
hreinskilni og kímni, sem við
kunnum bæði vel að meta. Addi
var ekki allra en þeir sem unnu
hug hans nutu þess eftirleiðis. Það
skildu ekki allir að undir hrjúfu
yfirborði var barnslega viðkvæm-
ur maður. Ekki grunaði mig þegar
ég kvaddi þennan vin minn fyrir
rúmum 5 vikum, að það væri
hinsta kveðja. Addi lést á flugvell-
inum við heimkomuna, hamingju-
samur eftir yndislegt sumarleyfi á
Spáni með tengdamóður minni,
þannig að ekki tókst. okkur að
fagna honum og bjóða hann vel-
kominn, en ég veit að það hefur
verið gert annars staðar.
Far þú i friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Br.)
Ellý
STALHE
SINDRA STAL
Íþvíliggur
styrkurinn
Það sem steypt er þarf að styrkja
meö stáli — Steypustyrktar stáli.
Steypustyrktarstál er ein af okkar
sérgreinum.
Við geymum stálið í húsi, sem
heldur því hreinu og gljáandi,
þannig verður það þægilegra í
vinnslu og sparartíma. Markmið
okkar er fljót og góð sendingar-
þjónusta.
Notaðu aðeins gott steypustyrktar-
stál, í því liggur styrkurinn.
Borgartúni31 sími27222
NORDSJO
málning
og lökk
í þúsundum lita, útl og innl,
blandaö eftir hinu vlnsæla
TINTORAMA-litakerfl, sem far-
iö hefur sigurför um alla Evr-
ópu. Gæöin þekkja alllr þeir
sem notaö hafa NORDSJÖ-
málningarvörur.
Utsölustaðir
Reykjavík
Málarameistarinn,
Grensásvegi 50, sími 84950.
Litaver,
Grensásvegi 18, sími 82444.
Hafnarfjörður
Lækjarkot sf„ Lækjargötu 32,
sími50449
Grindavík
Haukur Guöjónsson,
málarameistari,
Blómsturvöllum 10,
sími 92—8200.
Keflavík
Birgir Guönason,
málarameistari,
Grófinni 7, sími 92-1950.
Höfn, Hornaf jörður
Málningarþjónustan,
Höfn sf„ Dalbraut 8,
simi 97—8622.
Borgarnes
Einar Ingimundarson,
málarameistari,
Kveldúlfsgötu 27, sími 93-
7159.
Akranes
Litur og Tónn
Selfoss
Fossval, Eyrarvegi 5,
sími 99-1803.
Einkaumboö fyrir fsland:
Þorsteinn Gíslaaon,
heildverslun,
Grensásvegi 50, sími 84950.