Morgunblaðið - 11.07.1985, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚLl 1985
MCHMílfí
Ma5ur fser aldrei almennilegq
kl/ppingu á Satórnúsi-"
Ekki vLssi ég að mamma þín allt i tilboðsverði, þú verður
væri svona gallhörð útilegu- ómótstæðileg með öllu og
kona? borgar seinna!
HÖGNI HREKKVÍSI
,,'E6 FIMN EKKI <3&RVITEMNURNAR
Au’mar/ •
Sjálfstæðismenn, farið að stjórna!
„Fæddur sjálfstæðismaður“
skrifar:
Með happdrættismiðum, sem
Sjálfstæðisflokkurinn sendi mér
fyrir fáum vikum, bárust tilmæli
frá flokknum, þar sem stuðn-
ingsmenn hans eru beðnir um að
segja í stuttu máli hvað þeim
finnst hafa tekist verst og hvað
best hjá flokknum og jafnframt er
beðið um ábendingar um ný bar-
áttumál.
Kunningi minn, sem ég las svör
mín fyrir, hvatti mig til að senda
þau Velvakanda, ef þau mættu
verða umræðugrundvöllur hjá
okkur „grasrótarfólkinu" í flokkn-
um. Þess vegna sendi ég þér svör
mín til birtingar og fylgja þau hér
á eftir:
Ágæti Sjálfstæðisflokkur.
1. Sjálfstæðisflokkur, stærsti
flokkur landsins, þarf að gera
meira en reyna að fylgjast með
straumi tímans og þvælast inn-
an í pilsfaldi framsóknarmad-
dömunnar — hættulegasta
andstæðingi flokksins!
2. Vér fæddir sjálfstæðismenn
gerum kröfu til forustumanna
flokksins á hverjum tíma, að
þeir stjórni af festu og sýni afl
flokksins við afgreiðslu þýð-
ingarmestu mála þjóðarinnar.
3. Undir stjórnarforustu Fram-
sóknarflokksins með dyggum
stuðningi forustu Sjálfstæðis-
flokksins og kerfiskarla úr báð-
um flokkum, sem skammta
sjálfum sér siðlausar greiðslur
úr sjóði þjóðarbúsins, getur
flokkur allra stétta ekki verið
þekktur fyrir að taka lengur
þátt í þeim dansi sem leiðir til
hróplegs misgengis stéttanna
sem Sjálfstæðisflokknum ber
skylda til að halda í sanngjörnu
jafnvægi. Verði ekki hér breyt-
ing á getur fylgið snögglega
hrunið af flokknum og lítið á
núverandi skoðanakannanir að
stóla.
4. Undirstöðuatvinnuvegir þjóð-
arinnar eru sagðir á heljar-
þröm og landið komið í botn-
lausar skuldir. Er ekki kominn
tmi til fyrir stærsta flokk
landsins, að segja hingað og
ekki lengra í óstjórn með
Framsókn, sem kynt hefur und-
ir milliliðagróða allra sem
greiðan aðgang hafa haft að
fjármagni þjóðarinnar t.d. SÍS
og annarra forréttindahópa.
Ungir sjálfstæðismenn verða að
taka forustuna af gömlum útjösk-
uðum kerfiskörlum, i stjórn lands-
ins, en ekki reyna að stjórna í
skuggaráðuneyti. Það mun ekki
gefast vel. Versta sem flokkurinn
hefur gert var að gefast upp með
framsókn á því að kveða versta
vágest þjóðarinnar, verðbólguna, í
kútinn.
Mjög erfitt að sjá á fljótu bragði
hvað flokkurinn hefur vel gert í
stjórnarsamvinnu við Framsókn-
arflokkinn, flest virðist fara í
handaskolum svo sem:
1. Krónan týnist.
2. Bankakerfið sjúkt.
3. Uppstokkun sjóðakerfis sýnd-
armennska.
4. Flestöll útgerð gjaldþrota.
5. Landbúnaðurinn einnig að
velta um.
6. Verslun og þjónusta mergsjúga
þjóðina.
7. Merglaus — skuldum vafin þjóð
undir stjórn Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknar lifir vart
lengi.
8. Farið að stjórna.
Takk
fyrir
Skonrokk
Mona skrifar:
Mig langar fyrst að þakka um-
sjónarmönnum Skonrokks fyrir
frábæran þátt hinn 21. júní sl.
Hann var pottþéttur frá upphafi
til enda. Strákar haldið áfram á
þessari braut.
Svo vil ég þakka fyrirfram fyrir
beina útsendingu, sem á að verða
13. þ.m. frá sameiginlegum tón-
leikum breskra og bandarískra
poppara. Auðvitað varð ég ösku-
reið þegar ég vissi hve stutt átti að
sýna hér, en ég skil að þetta er
erfitt, því leigan fyrir jarðstöðina
er svo há. En hvernig væri að
virkja okkur unglingana? Ég er
viss um að fjöldinn allur af ungu
fólki væri til í aö leggja eitthvað á
sig til að safna peningum fyrir
leigunni. Til dæmis með hluta-
veltu eða bara einhverju. Það væri
vel þess virði, þó ekki safnaðist
nema fyrir hálftíma. Ég tel að
þetta sé vel framkvæmanlegt.
Vilji er allt sem þarf.
Umsjónarmenn Skonrokks.
Er USA sama og NATO?
Skúli Olafsson skrifar:
Bandaríkjamenn eru nú sem
stendur með nokkurn liðafla á
Keflavíkurflugvelli, þeir eru þar á
vegum NATO og með samþykki fs-
lendinga.
Þar sem Bandaríkjamenn eru
ekki á íslandi sem hernámslið,
geta lög þeirra frá 1904 um flutn-
inga frá USA ekki átt við dvöl
Bandaríkjamanna á tslandi árið
1985 á vegum NATO, og þessi dvöl
Bandaríkjamanna á Islandi er háð
samþykki Islendinga. Islendingar
hafa samþykkt byggingu nokkura
flugskýla á Keflavíkurflugvelli,
sem kostuð eru af NATO og svo
framvegis.
Þjóðerni varnarliðsins á vegum
NATO er ekkert aðalmál, en þó
háð samþykki fslendinga og þar
gætu Kanadamenn eða Hollend-
ingar, svo að einhverjir séu nefnd-
ir, komið í stað Bandaríkjamanna
að öllum ólöstuðum.