Morgunblaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1987 Ragnheiður Þorgríms- dóttír — Minning Fædd 20. janúar 1936 ^ Dáin 8. mars 1987 Að morgni 8. mars lést á Land- spítalanum frænka mín, frú Ragnheiður Þorgrímsdóttir, eftir erfíð veikindi. Ragnheiður eða Ranka eins og við í fjölskyldunni kölluðum hana var fædd 20. janúar 1936. Hún var dóttir hjónanna Áslaugar Guð- mundsdóttur og Þorgríms V. Sigurðssonar, fyrrverandi prófasts á Staðarstað. Ranka gekk menntaveginn. Hún lauk stúdentsprófí frá Menntaskól- anum í Reykjavík og síðar kennara- prófí. Eitt sinn sagði hún mér frá því að sig hefði alltaf langað til að læra guðfræði en á þeim tíma þótti það ekki hagkvæmt nám fyrir konu. Hún kenndi m.a. við ísaksskóla í Reykjavík og flaug nokkur sumur sem flugfreyja hjá Loftleiðum. Þær eru bjartar minningamar frá þeim tíma þegar hún kom heim úr ferðum sínum og gladdi lítil frændsystkini sín með ýmsu góðgæti. Árið 1962 giftist hún Leifí Hall- dórssyni, skipstjóra úr Ólafsvík. Þau eignuðust fjögur böm: Matt- hildi Soffíu; fædd 1962, Þorgrím; fæddur 1963, Steingrím; fæddur 1966, og Úlfhildi Áslaugu; fædd 1972. Það hljóta að hafa verið viðbrigði fyrir heimskonuna að setjast að í litlu sjávarplássi eins og Ólafsvík þar sem allt snerist um fisk, en henni ieið strax vel og líkaði vel við fólkið. Hún tók strax þá stefnu að sitja ekki og bíða og vera hrædd á meðan Leifur stundaði sjóinn. Auðvitað stóð henni ekki alltaf á sama, en Leifur var traustur og farsæll skipstjóri, og svo er ekki _ , hægt að lifa lífinu við eilífan ótta. Þótt Ranka væri búsett í Ólafs- vík fannst henni hún ekki vera að missa af neinu enda hélt hún því fram, að alls staðar væri hægt að lifa menningarlífí, bara ef maður sjáifur vildi. Hver og einn gæti ráð- ið því hvort heimurinn legði veg sinn að heimili sínu. Heimili hennar og fjölskyldunnar á Skiphotli 2 var hlýtt og notalegt og þangað var gott að koma. Yfír tesopa vom málin rædd og þar fengust svör við ýmsum spuming- um. Á slíkum stundum kom í ljós hversu góður hlustandi hún var og bæði hún og Leifur áttu þátt í því að ég fór þaðan léttari í spori. ^ Hún var trúuð kona og úr augum hennar mátti lesa mannlega hlýju, sérstaklega þegar böm vom annars vegar. í hennar augum vom böm manneskjur sem bar að taka tillit til og virða. Samband Rönku við bömin sín var óvenju náið og traust. Undan- farin ár var hún ekki heil heilsu en því miður uppgötvaðist of seint hvers kyns var. Leifur hefur staðið eins og klettur við hlið hennar ásamt bömunum í veikindum henn- ar og eiga þau miklar þakkir skildar. Megi góður Guð styrkja þau á þessum sorgartímum. Og hvað er að hætta að draga andann ann- að en að frelsa hann frá friðlausum ðldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns. (Kahlil Gibran: Spámaðurinn.) Blessuð sé minning hennar. Bryndís Þráinsdóttir „Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinu megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar Drottinn vakir, dagaognæturyfirþér." (S.Kr.P.) í dag kveð ég frænku mína Ragn- heiði Þorgrímsdóttur, Rönku eins og hún var oftast kölluð. Undanfama mánuði barðist hún gegn skæðum sjúkdómi og sýndi þar þrautseigju mikla og æðruleysi. FYegnin um lát hennar fyllti hug- ann bæði af sorg og söknuði, en einnig létti yfír að baráttu hennar væri nú loks lokið. Á lífsleiðinni er fátt meira virði en að kynnast góðu og heiðarlegu fólki, og því þakka ég fyrir að hafa kynnst Rönku og hennar fjölskyldu. Það er stórt skarð sem hún skil- ur eftir sig, skarð sem aldrei verður fyllt, en minningin um hlýja og eiskulega konu mun ávallt lifa. Elsku Leifur og böm, Áslaug frænka og annað skyldfólk, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hanna Eyv. í dag kveðjum við elskulega konu sem fallin er frá langt um aldur fram, og enginn mannlegur máttur fékk að gert til hjálpar. Hvíldin var best, úr því sem komið var, eftir þau veikindi sem hún var búin að þola. Það er búið að vera erfiður tími hjá eiginmanni, bömum, móður og öðru skyldfólki, að horfa upp á þessa góðu konu fara halloka fyrir þessum skæða sjúkdómi sem herjar á fólk á öllum aidri. Ragnheiður var sérstakur per- sónuleiki, eins og hún átti kyn til. Hún ólst upp á prestssetri hjá for- eldmm sínum, þeim Áslaugu Guðmundsdóttur frá Bóndhól í Mýrasýslu og séra Þorgrími Sig- urðssyni, fyrst á Grenjaðarstað í Suður-Þingeyjarsýslu og síðar á Staðarstað á Snæfellsnesi, ásamt tveimur eldri systrum, bróður og fósturbróður. Var það sannkallað menningarheimili, enda oft margt um manninn og gestrisnin og góð- vildin í fyrirrúmi. Ragnheiður stundaði nám í Menntaskólanum í Reykjavík og varð stúdent þaðan, og bjó þá á Ægisíðu 62, hjá Önnu móðursystur sinni og hennar góða manni, Ey- vindi Amasyni, og hefur það heimili alla tíð verið miðstöð okkar frænd- fólksins. Síðan giftist hún góðum og hörkuduglegum manni frá Ólafsvík, Leifí Halldórssyni, skipstjóra og útgerðarmanni, og var heimili þeirra þar upp frá því. Þau eignuð- ust Qögur elskuleg böm sem nú eiga um sárt að binda þegar mömmu nýtur ekki lengur við. Elsku Leifur minn og böm, Ás- laug mín, systkini, Anna frænka, tengdafólk og vinir, þetta hefur verið erfiður tími og stórt skarð sem hún skilur eftir sig hjá ykkur og skyldfólkinu, en við munum ávallt minnast hennar fyrir þá persónu sem hún hafði að geyma. Með þessum fátæklegu línum kveð ég frænku mína með virðingu og þökk, en minningin mun lifa björt og hrein. Kæru vinir, innilegar samúðar- kveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Lalla Ragnheiður Þorgrímsdóttir lést í Landspítalanum að morgni 8. mars sl. Ragnheiður fæddist á Grenjaðar- stað í Suður-Þingeyjarsýslu 20. janúar 1936. Hún var yngsta dóttir hjónanna Áslaugar Guðmundsdótt- ur og séra Þorgríms Sigurðssonar og þriðja bam þeirra. Alls urðu systkinin fímm. Þær systumar Ásdís og Soffía, bróðirinn Guð- mundur, sem fæddist nokkmm árum síðar, og seinast bættist í hópinn uppeldisbróðirinn Heiðar Jónsson. Þegar Ranka, eins og hún var oftast kölluð, var átta ára fluttist §ölskyldan að Staðastað á Snæ- fellsnesi og var Ranka jafnan kennd við þann stað. Hún varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík vorið 1955. Veturinn á eftir var hún kennari við Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafírði, þar sem faðir hennar var skólastjóri um tíma. Ranka lauk prófí frá Kennaraskóla íslands árið 1958 og kenndi veturinn á eftir við Eskihlíðarskóla. Árin 1959—1962 var hún svo kennari við Skóla ísaks Jónssonar. Kennarahæfileikamir virtust henni meðfæddir, enda átti hún víst ekki langt að sækja þá. Hinn þekkti skólamaður, Sigurður Þórólfsson, stofnandi og skólastjóri Hvítár- bakkaskóla, var afí hennar og foreldrar hennar höfðu skóla á heimili sínu á Staðastað um langt árabil og var það skólaheimili þekkt fyrir að koma öllum til nokkurs þroska. Séra Þorgrímur var ann- álaður kennarí svo epiið féll ekki langt frá eikinni og reyndar hafa öll systkinin frá Staðastað lagt stund á kennslu. Þegar Ranka sótti um starf í ísaksskóla var það auð- sótt mál því að ísak hafði kennt henni í Kennaraskólanum og vissi vel hvert kennaraefni hún var, enda brást hún ekki vonum hans. Bömin hændust að henni og dáðu hana, „enda var hún bæði yndisleg, falleg og góð“, eins og Helga Magnús- dóttir lýsir Rönku, en þær voru samkennarar í ísaksskóla. Þeir sem þekktu hana best vita að það er ekki ofmælt. Ranka kenndi síðan við Gmnnskólann í Ólafsvík á ámn- um 1966—1985^ með nokkmm hléum á milli. í Ólafsvík fékk hún orð fyrir að vera afburða kennari og var hennar sárt saknað þegar hún lét af störfum við skólann vegna heilsubrests. Árið 1962 giftist Ragnheiður Leifí Halldórssyni, skipstjóra og síðar útgerðarmanni í Ölafsvík, miklum dugnaðar- og ágætismanni. Þau vora gefin saman að vorlagi við hátíðlega athöfn í kirkjunni á Staðastað. Brúðkaupsveislan var vegleg og stóð reyndar fram á næsta dag, því margir gestanna komu langt að og gistu á staðnum. Tvennt af því sem sagt var er mér enn í fersku minni. Hið fyrra er, að á leiðinni heim úr kirkju sagði kona ein við mig: „Mér fínnst alltaf að hann séra Þorgrímur gifti svo vel.“ Þessi orð hafa oft rifjast upp fyrir mér síðan, þvi svo sannarlega vom þau Ranka og Leifur „vel gift“ í orðsins fyllstu merkingu. Hitt atvik- ið, sem mér er svo minnisstætt úr brúðkaupinu, er ræða sem Þórður bóndi í Ölkeldu flutti brúðinni til heiðurs. Hann sagðist hafa heyrt stúlku nokkra úr sveitinni segja frétt og síðan hafi hún bætt við: „Ég veit að þetta er satt af því að hún Ranka á Staðastað sagði það.“ Þessa sögu sagði Þórður til marks um það í hvaða áliti.Ranka væri meðal sóknarbamanna, og hann vissi hvað hann var að segja, því jafh orðvör og vönduð manneskja og Ranka var vandfundin. Böm þeirra Leifs em fjögur: Matthildur Soffía, nemandi í Mynd- lista- og handíðaskóla íslands; Þorgrímur, nemandi í útgerðar- tækni í Tækniskóia íslands, og Steingrímur, framhaldsskólanemi, en þau em á aldrinum tut.tugu til tuttugu og fímm ára. Langyngst er Úlfhildur Áslaug, sem var fermd sl. vor. Ranka naut þeirrar ham- ingju að sjá fyrsta bamabamið sitt, litla stúlku, sem fæddist á þrettánd- anum og er dóttir Þorgríms og unnustu hans, Guðlaugar Brynjólfs- dóttur. Ranka lifír áfram í bömun- um sínum efnilegu og afkomendum þeirra. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau Ranka og Leifur í Reykjavík, en síðan fluttu þau vestur í Ólafsvík. Hin seinni ár eftir að bömin fóm í framhaidsnám hafa þau átt annað heimili í Reykjavík. Ranka var skyldurækin og vand- virk við allt sem hún tók sér fyrir hendur og þegar litið er til baka er það næstum ótrúlegt hveiju hún kom í verk á stuttri ævi og þó var hún ekki heil heilsu hin síðari ár. Auk móðurhlutverksins og húsmóð- urstarfanna á erilsömu heimili stundaði hún kennslu sem fyrr seg- ir, og þar að auki tók hún virkan þátt í félagsmálum í Ólafsvík. Hún starfaði mikið í kvenfélaginu og var formaður þess í tvö eða þijú ár og um tíma var hún varaformaður Kvenfélagasambands Snæfells- og Hnappadalssýslu. Um árabil var hún formaður Skógræktarfélags Ólafsvíkur, enda mikil áhugakona um skógrækt. Hún átti sæti í stjóm Tónlistarskólans í Ólafsvík og á ámnum 1974—78 og 1982—86 átti hún sæti í skólanefnd Gmnnskólans í Ólafsvík og var um tíma formaður skólanefndar. Óhætt er að segja að Ranka var bæði elskuð og virt í Ólafsvík. Öll sín störf vann hún af svo hljóðlátri hógværð að fáum var kunnugt um umfang þeirra. Hún lifír áfram í verkum sínum. Við Ranka kynntumst fyrst í Menntaskólanum í Reykjavík, þar sem við vomm bekkjarsystur. Á skólaámnum bjó hún hjá Önnu, móðursystur sinni, og Eyvindi Ámasyni, manni hennar. Við Ranka vomm heimagangar hvor hjá ann- arri og á þetta hlýlega heimili var gott að koma. Alla tíð var einkar kært með þeim frænkum. Gieðin var mikil þegar við urðum stúdentar vorið 1955. Okkur fannst framtíðin blasa við björt og fögur og ævintýrin bíða bak við næsta leiti. Þetta er sam- heldin árgangur sem hittist a.m.k. árlega. Ranka er sú fyrsta af bekkj- arsystmnum, sem hverfur yfir móðuna miklu, en einn bekkjarbróð- ir er látinn. Nú er stórt og óbætan- legt skarð höggvið í okkar hóp. Við stofnuðum saumaklúbb á skólaár- unum nokkrar bekkjarsystur og höfum haldið hópinn allar götur síðan. Þótt fundunum fækkaði eftir að Ranka fluttist til Ólafsvíkur þá breytti það engu um vináttu okkar. Þótt stundum liðu margir mánuðir milli þess að við hittumst var alltaf eins og við hefðum sést daginn áður. Við töluðum um hluti sem skipta máli og mér fannst ég alltaf fara ríkari af hennar fundi. Tvennt einkenndi Rönku öðm fremur, en það var hversu listelsk hún var og trúhneigð. Hún var ein- stakur listunnandi. Ég hef fáa þekkt sem höfðu jafn ríka hæfileika og hún til að njóta lista. Þegar ég sá eftirfarandi ljóð Jómnnar Sör- ensen fannst mér það eiga við hana: þegar líkaminn er ein tindrandi tilfínning er þú lest Ijóðið hlustar á lagið horfir á myndina þá lifir þú Hún lagði sitt sjálfstæða mat á hlutina án þess að skima eftir því sem hinir opinbem gagnrýnendur sögðu. Henni var lagið að greina kjamann frá hisminu. Hún naut þess að skoða málverkasýningar, sækja tónleika, leikhús og ópemr og hún fór þetta ekki fyrir siðasak- ir eða með hálfvelgju heldur full af forvitni og naut þess sem vel var gert á þessum sviðum. Þegar Ranka var flugfreyja sumrin 1959 og 1960 notaði hún tækifærið til að sinna þessum áhugamálum sínum í er- lendum borgum. Svo eftirminnileg varð mér frásögn hennar af Nú- tímaiistasafninu (Museum of Modert Art) í New York, að það var fyrsti staðurinn sem ég skoðaði þegar ég kom til borgarinnar aldar- Qórðungi síðar. Ranka var bók- hneigð og hafði gaman af að velta hlutunum fyrir sér og ræða það sem hún las. Ég man þegar hún sagði mér frá ágætum bókum ísaks Sin- ger. Nokkmm dögum seinna sendi hún mér svo að vestan allan bæk- umar sem hún átti eftir Singer, því hún vildi hjálpa mér til að kynnast honum líka. Þannig var Ranka vin- kona mín. Trúin var mikilvægur þáttur í lífí Rönku og hún sótti styrk í hana. I trúmálum sem öðm var hún yndislega laus við allan ein- strengingsskap. Við töluðum stundum um það sem við áttum eftir ógert; bækumar sem við áttum eftir að lesa og löndin sem okkur langaði að heimsækja, nú þegar bömin vom að komast á legg og hægari ár virtust framundan eftir þeysisprett gegnum lífíð síðasta aldarfjórðunginn. Annir og tíma- skortur em einkenni okkar kynslóð- ar. En svo syrti skyndilega að sl. sumar og framtíðardraumamir hennar urðu að engu. Þegar alvarleg veikindi tóku að heija á Rönku í júlí sl. sýndi hún einstakt æðraleysi og yfir henni var fríður og heiðríkja. Þá kom líka best í ljóst hve vel gift hún var. Athafnamaðurinn Leifur lagði starf sitt gjörsamlega til hliðar til þess að geta sinnt henni sem best. Síðan hefur hann vart vikið frá henni. Hann hefur stutt hana og leitt af einstakri nærfæmi og umhyggju og umvafið hana ástúð sinni. Fjöl- skyldan megnaði með samstöðu sinni og kærleika að veita Rönku birtu og yl í veikindum hennar síðustu mánuðina, þótt skuggi dauðans nálgaðist. Ég kveð vinkonu mína að leiðar- lokum með þakklæti og söknuði. Við fráfall hennar verður mér enn ljósara en áður hve mjög hún hefur auðgað minningar mínar. Leifí, bömunum, Áslaugu, sem og öðmm aðstandendum, sendum við Ingólfur innilegar samúðarkveðjur. Minningin um góða konu mun lifa. t Móöir okkar og tengdamóðir, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Seljavöllum, lést á Hrafnistu i Hafnarfiröi 11. mars sl. Jón R. Sigurjónsson, Ágústá Sigurjónsdóttir, Siguröur E. Marinósson, Ólöf Sigurjónsdóttir, Hákon Heimir Kristjónsson, Ása Sigurjónsdóttir, Axel Nikolaison. t Móðir mín, FJÓLA ÁRNADÓTTIR, Bjarkargötu 5, Patreksfirði, andaðist í Borgarspítalanum föstudaginn 13. mars. Sigurveig Jónsdóttir. t Móöurbróöir okkar, HALLDÓR ÓLAFSSON, andaðist á Reykjalundi 9. mars sl. Systrabörn. Rannveig Jónsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.