Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ1987 31 Fjallvegir víða ófærir Erf iðlega gekk með f lug FÆRÐ á vegum spilltíst verulega í gær þegar gekk á með éljum, skafrenningi og hvassviðri. Veðrið hafði einnig áhrif á inn- anlandsflug Flugleiða og gekk brösulega fram eftir degi að halda áætlun. Fyrir hádegi hafði einungis verið flogið til tveggja áfangastaða, á Patreksfjörð og ísafjörð. Hjá vegaeftirlitinu fengust þær upplýsingar að fært væri um vegi á Suður- og Vesturlandi, frá Vík í Mýrdal að Holtavörðuheiði. Skyggni var þó víða slæmt á þess- um leiðum vegna éljagangs og skafrennings og lokaðist vegurinn um Hvalfjörð á tímabili í gærmorg- un. Þar voru hvassir strengir í vindhviðunum við fjörðinn norðan- verðan. Fært var um Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dali en þungfært fyrir vestan Búðardal. Á sunnan- verðum Vestfjörðum var skapleg færð. Þungfært var um norðan- Austurland: Kennsla féll niður vegna veðurs KENNSLA féll niður í skólum á Austfjörðum í gær vegna illviðris, sem þá gekk yfir landið austanvert. Að sögn Guðmundar Magnússon- mlisar fræðslustjóra á Austurlandi, féll kennsla niður í grunnskólunum á Reyðarfirði, Eskifirði og Fáskrúðs- fírði. Á Vopnarfírði var kennsla felld niður fram að hádegi. Kennt var í grunnskólanum á Egilsstöðum en vegna veðurs var sundkennsla felld niður. Guðmundur sagði að þetta væri vesta verður sem komið hefði í vetur á Reyðarfírði. „Það er ekki stætt úti og við sjáum ekki á milli húsa,“ sagði hann. o verða Vestfirði og ófært um Steingrímsfjarðarheiði. Á fjallvegum eins og Holtavörðu- heiði og á vestanverðu Norðurlandi var tæpast ferðaveður að sögn vegaeftirlitsmanna. Sæmileg færð var á vegum á Norð- vesturlandi en austar, milli Skagafjarðar og Siglufjarðar og milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar var illfært vegna veðurs. Sama máli gegndi um Aust- urland og Austfírði en þar gekk á með hvössum éljum og skafrenn- ingi. INNLENT Kalárunnum og toppum Smáfuglar þola stutt áhlaup „ÞETTA er hrikalegt ástand á runnum og toppum í þessari tíð,“ sagði Vilhjálmur Sigtryggsson framkvæmdastjóri Skógræktar- félgas Reykjavíkur þegar hann var spurður um áhrif kuldans á gróður. Á Náttúrufræðistofnun fengust þær upplýsingar að smá- fuglum væri engin hætta búin vegna áhlaupsins enn sem komið Að sögn Vilhjálms er erfítt að segja til um hversu mikill skaði verður á runnagróðri og toppum en brum var aðeins farið að opnast áður en kólna tók i veðri. „Runnar voru næstum algrænir undir hús- veggjum og toppar og sýrenur langt komnar. Eg er hræddur um að lítið blómgist í sumar og má búast við kali á endasprotum," sagði hann. „Því miður er lítið hægt að gera til vamar, en þó bætir nokkuð úr skák að snjór er yfir öllu. Helst er að breiða yfír blómplöntur í görðum en fyrir tré og mnna er ekkert hægt að gera.“ Skógarplöntur em síður í hættu vegna kuldans því víðast hvar var frost enn í jörðu og bmm ekki farið að hreyfa sig. Að sögn Kristins H. Skarphéðins- sonar hjá Náttúmfræðistofnun er smáfuglum engin hætta búin í kuld- akasti sem þessu. „Þeir em ýmsu vanir enda er veðrið ekki óeðlilegt miðað við árstíma," sagði hann. Langir frosta og harðindakaflar geta hinsvegar haft áhrif á fuglalíf- ið. Lægð yfir Norðursjó og hæð yfir Grænlandi dæla heimskautaloftínu yfir ísland eins og kortíð sýnir. Kalt fram á surmudag en dregrir úr vindi KULDAKASTIÐ sem gengur yfir landið þessa daganna má rekja tíl mjög djúprar lægðar yfir Norðursjó samfara sterkri hæð yfir Grænlandi að sögn veðurfræðinga á Veðurstof- unni. Þessu fylgir hörð norðan- átt með köldu lofti beint norðan úr heimskautslöndum suður yfir svæðið milli Jan Mayen og Grænlands. Frost er á bilinu 6 til 10 stig nema á Suð- austurlandi þar er 2ja til 5 stiga frost. Víðast hvar hefur vindur mælst 7 til 9 vindstig en 9 vindstig með 9 stiga frosti jafngilda 33 til 35 stiga frosti í hægviðri. Búist er við að veður gangi niður í dag, fyrst vestanlands en vonsku veður var langt fram eftir degi í gær um norðan og austanvert landið, verst eftir því sem austar dró. Spá veðurstofunnar fram til sunnudags gerir ráð fyrir áfram- haldandi kulda en nokkuð mun draga úr vindi fram til laugar- dags. Þá má búast við að hvessi af norðan á ný, þó ekki eins mikið og í gær. Létta mun til um sunnan og vestanvert landið en él verða á Norðurlandi. Tilefnislaust upphlaup þingmahna Alþýðuflokksins eftir Gunnar G. Schram Þingmenn Alþýðuflokksins gerðu mikið veður út af því í umræðum um þingsköp í fyrradag að fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa flutt þingsályktunartillögu um und- irbúning lífeyrissjóðsréttinda þeirra, sem sinna heimilis- og umönnunar- störfum, þar sem tillaga frá þeim sjálfum um málið lægi fyrir þinginu. Héldu þeir því fram að þetta væru undarleg vinnubrögð og með þessu væri brotið gegn góðum þingsiðum. Þessar fullyrðingar þingmanna Alþýðuflokksins eru ekki á neinum rökum reistar og raunar hin mesta fjarstæða, eins og ég benti á í um- ræðum um málið. Hefðu þeir fremur átt að fagna því að með tillögu sinni lýstu þingmenn Sjálfstæðisflokksins yfír fylgi sínu við það réttlætismál að heimavinnandi fólk fái mann- sæmandi lífeyrisréttindi heldur en skattyrðast út af þeim stuðningi. Með tillögu okkar sjálfstæðis- manna er skapaður breiðari og víðtækari grundvöllur í málinu en áður var og því líklegra að það nái fram að ganga á næsta þingi en ella. Það er vitanlega kjami málsins og því með ólíkindum að fyrir slíkan „Full ástæða er til þess að undirstrika að það er ekkert nýtt að f lutt séu f leiri en eitt mál um sama efni á Alþingi. Nærtækasta dæmið er einmitt það að í þing- byrjun fluttu þingmenn Kvennalistans frum- varp um þetta sama mál — áður en þingmenn Alþýðuf lokksins lögðu fram sína tillögu. Var það frumvarp til laga um lífeyrisréttindi heimavinnandi hús- mæðra, þingskjal nr. 27.“ stuðning og liðsinni við málið skuli ráðist með brigslyrðum að þeim fjór- um þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins sem tillöguna fluttu. Full ástæða er til þess að undir- strika að það er ekkert nýtt að flutt séu fleiri en eitt mál um sama efni á Alþingi. Nærtækasta dæmið er einmitt það að í þingbyijun fluttu þingmenn Kvennalistans frumvarp um þetta sama mál — áður en þing- menn Alþýðuflokksins lögðu fram sína tillögu. Var það frumvarp til laga um lífeyrisréttindi heimavinn- andi húsmæðra, þingskjal nr. 27. í kjölfar þess kom tillaga Al- þýðuflokksmanna um sama efni og er sérstök ástæða til þess að geta þess að í greinargerð hennar var ekki minnst einu orði á þetta fram- tak Kvennalistans. Með því gerðu alþýðuflokksmenn nákvæmlega það sama sem þeir deila nú á þingmenn Sjálfstæðisflokksins fyrir að hafa gert! Fleiri dæmi um þetta er auðvelt að rekja. Snemma á þessu þingi fluttu nokkrir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins frumvarp um umboðsmann Alþingis. Nokkru síðar lagði forsæt- isráðherra fram stjómarfrumvarp sem var í flestum atriðum samhljóða hinu fyrra frumvarpi. Við það gerði enginn athugasemd. Þvert á móti var það málinu tvímælalaust til framdráttar og hefur það nú verið samþykkt sem lög frá Alþingi. Þriðja dæmið má hér einnig nefna. Snemma á þingi í vetur fluttum við, nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins, þingsályktunartillögu um stefnumótun í umhverfismálum. Allnokkru síðar fluttu þingmenn Framsóknarflokks tillögu um um- hverfísmál sem var mjög á sömu lund. Að engum hefur hvarflað að sá tillöguflutningur hafí strítt gegn góðum þingsiðum. Þvert á móti töld- um við það mikilsverðan stuðning við heildarstefnumótun Alþingis á þessu sviði, sem nauðsynlegt er að sem víðtækust samstaða náist um. Þessi dæmi sýna að upphlaup Alþýðuflokksins vegna stuðnings þingmanna Sjálfstæðisflokksins við mál, sem á fyrri þingum hefur verið flutt af Framsóknarflokknum og nú af Kvennalistanum og Alþýðu- flokknum, var fullkomlega ástæðu- laust og ber vott um alvarlegan kosningaskjálfta. Sætir furðu hve langt er hér seilst til að koma höggi á andstæðinga flokksins og ber málstaðnum ekki fagurt vitni. Það sem hér skiptir vitanlega máli er að á þessu þingi náist sem víðtækust samstaða allra flokka um að tryggð verði lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks. Illdeilur um Gunnar G. Schram „eignarrétt" þess máls verða einung- is til þess að spilla fyrir að svo megi verða. Ég vil að lokum geta þess að á fundi félagsmálanefndar sameinaðs þings í dag beitti ég mér fyrir því, sem formaður nefndarinnar, að fullt samkomulag náist um nýjan og breyttan texta að tillögu um réttindi heimavinnandi fólks, með hliðsjón af þeim 3 tillögum sem fluttar hafa verið um málið. Verður það vonandi til að tryggja framgang þess. Höfundur er einn af þingmönnum Sjáifstæðisflokksins íReykjttnes- kjördæmi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.