Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987
3
Ársþing Félags íslenskra iðnrekenda:
Afkoma heimamarkaðsgreina
var betri en útflutningsgreina
Iðnaðurinn skilaði hagnaði á síðasta ári
Morgunblaðið/RAX
Frá ársþingi Félags íslenskra iðnrekenda í Kristalssal Hótel Loftleiða í gær. Formaður félagins, Víglund-
ur Þorsteinsson, er í ræðustóli.
GJÖRBREYTT atvinnustefna
stjórnmálamanna verður að
koma til vegna þeirrar þróunar
í atvinnumálum íslendinga að
fólki fjölgar sifellt í þjónustu-
greinum en fækkar að sama
skapi í framleiðslugreinum og
því verða framleiðsluatvinnuveg-
irnir að framleiða meira með
færra fólki. Til að gera fyrir-
tækjum kleyft að auka tækni-
væðingu á stuttum tíma verður
að gerbreyta skattlagningu á
fyrirækin þannig að skattar
verði greiddir af gróða fyrir-
tækjanna en ekki af rekstrar-
kostnaði, og um leið er hægt að
lækka launakostnað fyrii-tækj-
anna en um leið að stórhækka
lágmarkslaun þeirra sem vinna
að framleiðslu. Þetta kom fram
í ræðu Víglundar Þorsteinssonar
formanns Félags íslenskra iðn-
rekenda á ársþingi félagsins sem
haldið var í gær.
í ræðu Víglundar kom fram að
iðnaðurinn var rekinn með smá-
vægilegum hagnaði á síðasta ári
en þó of litlum til að tryggja eðlileg-
an vöxt. Útflutningur iðaðarvara
gekk erfiðlega á síðasta ári utan
útflutningur vara til sjávarútvegs.
Víglundur sagði að tvö síðastliðin
ár hefðu einkennst af verulegu mis-
gengi í afkomu iðnfyrirtækja og
heilla greina iðnaðarins. Almennt
hefði afkoma heimamarkaðsgrein-
anna verið betri á síðasta árí en
afkoma útflutningsgreinanna.
Víglundur sagði að útflutningur
iðnaðarvara hefði gengið erfiðlega
á síðasta ári, aðallega vegna lækk-
andi markaðsverðs á áli og járn-
biendi. Einnig hefði tap verið í
ullariðnaði, 7% á árinu. Víglundur
sagði að á þessu ári stefndi í fram-
leiðslu- og söluaukningu á áli og
járnblendi og það væri ótímabært
að afskrifa orkufrekan iðnað sem
kost í atvinnumálum hérlendis, þar
sem stefndi í raforkuskort í heimin-
um á næstu áratugum.
Víglundur sagði að með breyting-
um á skattakjörum fyrirtækjanna
yrði Iagður grundvöllur að þeirri
tæknivæðingu og framleiðniaukn-
ingu sem nauðsynleg væri og
jafnframt gætu fyrirtækin lækkað
núverandi launakostnað til að
standast síharðnandi alþjóðlega
samkeppni. Um leið myndi þessi
stefna leggja grunn að raunlauna-
hækkunum starfsfólks. Ef verka-
lýðshreyfingin væri reiðubúin til að
ganga til samstarfs við atvinnulífið
um heildarbreytingar í skattamál-
um framleiðslugreinanna yrði
lagður grundvöllur að möguleikum
á kjarasamningi til langs tíma sem
kvæði á um umtalsverðar lág-
markslaunahækkanir á næstu 6-8
árum og þannig yrði veruiegur
þrýstingur á framleiðslugreinarnar
að hrinda fram mikilli tæknivæð-
ingu á skömmum tíma.
Albert Guðmundsson iðnaðarráð-
herra flutti ávarp á þinginu. Hann
sagði að þótt nú ríkti eitt mesta
góðæri í sögu þjóðarinnar hefði það
sennilega farið hjá garði ef ekki
hefði komið til fastmótaðar aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar
allrar. Álbert sagði að starfsskilyrði
iðnaðarins væru undirstaða bættra
lífskjara í landinu og því hefði ríkis-
stjórnin lagt áherslu á að bæta þau
skilyrði.
Álbert drap á það helsta ríkis-
stjómin og ráðunejrtin hefðu komið
til leiðar til að bæta samkeppnis-
stöðu iðnaðarins. Albert rakti einnig
gang mála í viðræðum iðnaðarráðu-
neytisins við erlenda aðila um
stóriðju á íslandi, þar á meðal við
Rio Tinto Zink um byggingu kísil-
málmverksmiðju, og viðræður við
álfýrirtæki í nokkrum Evrópulönd-
um um þátttöku í stækkun álversins
í Straumsvík, nú þegar ljóst er að
Alusuisse hefur ekki tök á því. Einn-
ig minntist Albert á verkefni
íslenskra ráðgjafaverkfræðinga við
orkuiðnað í Tíbet og Kenya.
Seinni hluti þingsins fór að mest-
um hluta í umræður um skattamál
á þeim nótum sem Víglundur Þor-
steinsson hafði slegið í opnunar-
ræðu sinni og samþykkti þingið að
lokum ályktun þar sem meðal ann-
ars segir að skattlagning fyrirtækja
þurfi að verða einfaldari og réttlát-
ari en nú er og taka fyrst og fremst
mið af afkomu.
Áður en þing FÍI hófs var aðal-
fundur félagsins haldinn og ný
stjóm kjörin. Aðalstjóm FÍI er skip-
uð Víglundi Þorsteinssyni formanni,
Kristni Bjömssyni, Ágústi Valfells,
Lýð Friðjónssyni, Magnúsi
Tryggvasyni, Antoni Bjamasyni og
Gunnari Svavarssyni. í varastjóm
vom kjömir Öm Hjaltalín og Hilm-
ir Hilmisson.
Sjá ræðu Víglundar Þorsteins-
sonar formanns FÍI á bls. 24
og 25.
Ný lög frá Alþingi:
Fæðingarorlof
verður sex mán-
uðir frá 1990
Frumvarp Ragnhildar Helga-
dóttur um lengingu fæðingaror-
lofs — í fjóra mánuði 1988, fimm
mánuði 1989 og sex mánuði 1990
— var samþykkt sem lög frá Al-
þingi í fyrrinótt.
Fmmvörp um lengingu fæðing-
arorlofs og breytingu á lögum um
almannatryggingar, sem heilbrigð-
isráðherra lagði fram fyrir
skemmstu, sigldu hraðbyri gegn um
þingdeildir og urðu að lögum í fyrri-
nótt. Hin nýju lög kveða á um að
fæðingarorlof lengist í fjóra mánuði
um næstkomandi áramót, í fimm
mánuði í ársbyijun 1989 og sex
mánuði í árslok þess árs.
Fmmvarpið kveður og á um
greiðslu fæðingarstyrkja og fæð-
ingardagpeninga.
Léttir„tweed“-jakkar.. kr. 6790.-
Mjúkar denim buxur... kr. 2790.-
Skyrta.................kr. 1890.-
o.m.fl. nýkomið
Bonaparte
Austurstræti 22