Morgunblaðið - 16.09.1988, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988
51
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Hvað
sögðu
þeir
eftir
þing
IHF?
Matthías Á. Mathiasen
„Ég var ekki bjartsýnn í byijun,
en á þinginu fann ég hins vegar
fyrir góðum undirtektum og
góðum byr, þrátt fyrir að barátt-
an stæði við frændur okkar Svía.
Á fjölmörgum aukafundum
fyndum við að ekki yrði framhjá
íslandi gengið.
Upphaflega sóttum við um
að halda HM 1994, á fimmtíu
ára afmæii ísienska lýðveldisins,
en síðan var fyrirkomulaginu
breytt hjá IHF. Afmælisárið
stendur frá 17. júní 1994 til 17.
júní 1995, þannig að keppnin
verður á ísiandi á afmælisárinu
eins og um var sótt og það er
mikill sigur.
Margir hafa lagt hönd á plóg-
inn og ég er öllum mjög þakklát-
ur fyrir veittan stuðning. Aðstoð
forseta íslands, Vigdísar Finn-
bogadóttur, hefiir verið ómetan-
leg sem og stuöningur ríkis-
stjómarinnar, sendiherra og
konsúla um heim allan. Þá hafa
nefndarmenn unnið mjög vel.
Stjóm HSÍ undir stjóm Jóns
Hjaltalíns Magnússonar hefur
verið óhemjudugleg og sem
dæmi má neftia að framtakið f
Afríku í sumar skilaði sér hér í
100% stuðningi Afríkuþjóða. En
þetta er ekki aðeins sigur fyrir
okkur, heldur öll Norðurlönd og
norræna samvinnu. Sem ráð-
herra með norræn málefni lagði
ég til í Norðurlandaráði að kom-
ist yrði að samkomulagi í þessu
máli, því styrkur Norðurlanda
felst f samstöðu og samvinnu.
Sú varð á raunin og öðrum hlið-
stæðum þvf heimsmeistara-
keppni verður haidin í Noregi,
Svfþjóð, Danmörku, Finnlandi
og Tslandi á næstu ánim.“
lón HJattalfn Magnússon
„Ég er sáttur við lausnina, sam-
komulagið er gott fyrir alla. Ég
vil taka undir orð formanns
handknattleikssambandsins í
Senegal sem sagðist vona að
leiðtogar þjóða gætu komist að
friðsamlegu samkomulagi rétt
eins og hér hefur verið gert.
Þetta er mikill styrkur fyrir
norræna samvinnu og á þinginu
kom berlega í ljós mikil virðing
fyrir Norðurlöndum, sem ber að
þakka. Matthías Á. Matthíasen
á hrós skilið fyrir vasklega fram-
göngu. Svíar tefldu fram Paul
Högberg fyrrum forseta IHF og
nú heiðursforseta, sem leyni-
vopni, en Matthfas sá við honum
og raeddi strax við menn eftir
að Högberg hafði reynt að fá
þá til að styðja Svía og það
hafði mjög jákvæð áhrif. En við
náðum samkomulagi og öllum
heima og erlendis ber að þakka;
undirbúningsnefndinni, ríkis-
stjóminni, ólympíunefndinni,
ÍSÍ, einstaklingum, fyrirtækjum
og síðast en ekki síst forseta
íslands, Vigdísi Finnbogadótt-
ur.“
Sættir náðust
Morgunblaöíö/Jan Collsioo
Staffan Holmquist, formaður sænska handknattleikssambandsins, og Jón Hjaltalfn Magnússon, formaður HSÍ, takast í hendur á þingi alþjóða handknattleikssam-
bandsins í Seoul í gær, eftir að ákveðið hafði verið að HM '93 yrði haldin í Svíþjóð en HM ’95 á íslandi.
Eitt won réði úrslitum
Svíarfengu HM '93 á hlutkesti en islendingarsáttirvið að halda HM '95
„HVAÐ er að gerast? Á ekki
að bera upp málamiðlunartil-
löguna," sagði Gunnar Þór
Jónsson, lœknir fslenska lands-
liðsins í handknattleik, titrandi
röddu við undirritaðan er mál
málanna, HM '93, vartekið fyr-
ir á þingi alþjóða handknatt-
leikssambandsins, IHF, hór f
Seoul í gœr. Gunnar var, sem
aðrir íslenskir f uiltrúar á þing-
inu yfir sig spenntur, en þegar
betur var að gáð var verið að
rœða um að vísa B-keppni
kvenna 1992 til stjómarl
Fyrir atkvæðagreiðsluna var
ljóst að hveiju stefiidi. íslend-
ingar og Svíar höfðu komist að
samkomulagi eftir langa og stranga
mMM fundi, sem komu f
Steinþór kjöifar harðvítugrar
Guöbjartsson baráttu, þar sem
skrífarirá ótrúlegustu brögð-
um var beitt. Mála-
miðlunin fólst í því að Austur Þjóð-
veijar báru fram tillögu þess efnis,
að ákveðið yrði með mótshald HM
bæði 1993 og 1995. Áður var varp-
að hlutkesti á leynilegum fundi um
hvor þjóðin yrði með fyrri keppn-
ina. Minnsta mynt Suður-Kóreu,
eitt won, var notuð til þess ama
og Svíar hrepptu hnossið, HM ’93,
sem í fyrstu var bitist um, og f slend-
ingar sættu sig við HM ’95.
W
Vlrðlng
Á þinginu kom berlega í ljós
mikil virðing allra fyrir bæði íslend-
ingum og Svíum. „Hjarta mitt var
hjá íslendingum og sigur þeirra var
stór, en báðar þjóðimar og hand-
knattleiksheimurinn geta vel við
unað. Meðferð þingsins á þessu erf-
iða máli var til fyrirmyndar og úr-
slitin enn ein rósin í hnappagat ís-
lendinga og Svía,“ sagði Ivan Snoj,
formaður landsliðsnefndar Júgó-
slavfu, í samtali við Morgunblaðið.
„Þessi niðurstaða er mikill léttir
fyrir alla, ekki aðeins þingfulltrúa
heldur alla unnendur handknatt-
leiks um heim allan," sagði Ervin
Lanc forseti IHF, við þingheim.
Lófaklapp
Sextíu og þrír fulltrúar höfðu
atkvæðisrétt á þinginu. Sendinefnd-
ir íslendinga og Svía höfðu lagt
nótt við dag að fá aðra fulltrúa á
sitt band, en í viðræðum við marga
þeirra leyndi sér ekki að menn vom
á móti atkvæðagreiðslu — vildu
styéja báða umsækjendur. Eftir
mikið baktjaldamakk var samþykkt
að dr. Hans-Georg Hermann frá
Austur Þýskalandi, formaður út-
breiðslunefndar IHF, bæri upp
málamiðlunartillöguna, sem allir
sættu sig við. Hann færði góð rök
fyrir máli sfnu og ræðunni fögnuðu
fimdarmenn með dynjandi lófa-
klappi. Sextíu og einn fulltrúi af
sextíu og þremur gaf tillögunni
grænt ljós og enn var klappað.
Fimmtíu og níu græn spjöld voru á
lofti er tillagan um að HM ’93 yrði
haldin í Svíþjóð og sextíu studdu
HM á íslandi 1995.
Þakklr
Úrslitunum var ákaft fagnað og
nefndarmenn íslendinga og .Svía
höfðu varla undan að taka á móti
heiilaóskum. Jón Hjaltalín Magnús-
son, formaður HSI, var stuttorður
við þingheim: „Ég þakka ykkur öll-
um hjartanlega fyrir stuðninginn."
Staffan Holmquist, formaður
sænska handknattleikssambands-
ins, sagði að þetta hefði verið
óþægilegt stríð, „þingfulltrúar
sýndu okkur traust, við erum sterk-
ari sameinaðir sem heild og gerum
okkar besta."
Matthías Á. Mathiesen, sam-
gönguráðherra og samstarfsráð-
herra Norðurlanda, átti lokaorðið
og fór vel á því, þar sem starf hans
f þessum undirbúningi var ómetan-
legt, fyrir alla sem hlut áttu að
máli. Enda var ræðu hans vel tekið
og höfðu menn á orði að dýrmætt
væri að hafa slíkan ráðherra, og
það á staðnum.
Matthías Mathiesen:
Velkomin til
íslands 1995
Eftir að þingið hefur samþykkt
hvar heimsmeistarakeppnin
verður haldin 1993 og 1995 þakka
ég öllum hjálpina, sérstaklega dokt-
or Hans-Georg Hermann fyrir frá-
bær aðfararorð," sagði Matthías
Á. Mathiesen í ræðu á IHF-þinginu.
„Ég vil nota tækifærið og bjóða
handboltaheiminum til íslands 1995
og sem ráðherra með norræn mál-
efni býð ég alla velkomna til
Svíþjóðar 1993.
Eg vil þakka öllum skilninginn á
því sem við höfum gert og get sagt
að þið eigið hug minn allan. Eg
fullvissa alla um að undirbúningur-
inn á íslandi verður í alla staði
mjög góður, margar hallir verða til
staðar og eins margir áhorfendur
og mögulegt er,“ sagði Matthías
meðal annars.
Bæði ísland og Svíþjóð
eiga skilið að halda HM
- sagði Austur Þjóðverjinn dr. Hans-Georg Hermann
EINS og fram kemur annars
straðar hór á síðunni bar dr.
Hans Georg Hermann frá
Austur Þýskalandi, formaður
útbreiðslunefndar IHF, upp
málamiðlunartilöguna um
HM ’93og HM ’96ogfara
aðfararorð hans að tillögunni
hér á eftir f lauslegri þýðingu:
Fyrir þinginu liggur að kjósa
um HM ’93, en mikilvægt er
að taka fyrir bæði HM '93 og
HM ’96 í einum pakka. í fyrsta
lagi þá var ákveðið á fundi IHF
í júlf í sumar að breyta fyrirkomu-
láginu varðandi heimsmeistara-
keppnina þannig að hún yrði hald-
in á tveggja ára fresti í stað fjög-
urra eins og verið hefiir. í stað
þess að halda hana árið 1994 var
ákveðið að hún yrði 1993 og síðan
1995. Mótshaldarar í báðum til-
fellum þurfa mikinn undirbúning
og því er gott fyrir alla að ákveða
mótsstaði hér og nú.
í öðru lagi þá bárust tvær
umsóknir um HM ’94, sem nú
hefur verið ákveðið að skipta í tvö
mót. Bæði íslendingar og Svíar
sendu tímanlega inn greinargóðar
umsóknir og báðar þjóðimár eiga
skilið að halda heimsmeistara-
keppni. Starf þeirra og árangur,
skipulagning og staða innan
handknattleiksins, er til fyrir-
myndar. Fyrir alla er mjög erfitt
að kjósa gegn annarri þjóðinni og
því er öllum fyrir bestu að kom-
ast að samkomulagi.
Þvf legg ég til að þingið sam-
þykki málamiðlunartillöguna, en
til þess þarf 2/3 atkvæða. Hún
felur í sér að Svíþjóð fái HM ’93
en ísland haldi HM ’95. Fulltrúar
þeirra eru sammála um þessa
skipan mála og við eigum einnig
að vera á sama máli.“