Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989 18 BRUNINN A RETTARHALSI: Loftmynd af brunarústunum á Réttarhálsi 2. Morgunblaðið/Bjami „Þama er um að ræða tvö hús sem byggð voru á mismunandi tíma,“ sagði Gunnar. „Er seinna húsið var byggt var steyptur vegg- ur á milli húsanna, eins og lög gera ráð fyrir. Er við skoðuðum húsin síðast var búið að saga gat á þennan vegg og við gerðum at- hugasemdir við það enda hafði gatið ekki verið gert í samráði við okkur. Ef eldvarnarveggur er rofinn á þennan hátt ber þeim sem gerir slíkt að sækja sérstaklega um leyfi til þess. Það var ekki gert. Mönn- um sem ijúfa þannig eldvarnar- vegg ber þar að auki að sjá sóma sinn í að setja þar upp eldvarnar- hurð.“ Gunnar sagði, að annað atriði sem stuðlað hefði að því að eldur- inn náði að breiðast út var að eld- ELDVARNIR hússins að Réttarhálsi 2 voru ekki í fúllkomnu lagi áður en eldur lagðijþað og sambyggt hús í rúst á miðviku- dag, að því er Gunnar Olafsson hjá Eldvarnaeftirlitinu sagði i samtali við Morgunblaðið í gær. Gunnar sagði, að við síðustu skoðun eftirlitsins um mitt síðasta ár hefði m.a. verið gerð at- hugasemd við að búið var að rjúfa gat á milli húsanna tveggja án þess að setja þar upp eldvarnahurð eins og lög gera ráð fyrir. í gegn um þetta gat m.a. komst eldurinn á milli húsanna tveggja. Þá voru innréttingar húsanna ekki í samræmi við teikningar þær sem lagðar voru fram hjá byggingarfúlltrúa og var ekki um að ræða að gerðir hefðu verið eldtraustir milliveggir í hús- næði Gúmmívinnustofúnnar eins og teikningar kváðu á um. Gunnar lét þess einnig getið að fúlinaðarútekt á eldvörnum hefði aldrei farið frarn á nýrra húsnæðinu eftir að starfsemi þar hófst. varnarveggur milli húsanna tveggja náði ekki alveg upp í þak þeirra og því hafi eldurinn náð að komast þar á milli. Þetta var hins- vegar ekki hægt að sjá við skoðun inn í húsunum. Hinsvegar hefðu þeim sem smíðuðu seinna húsið átt að vera þetta Ijóst. „Þegar seinna húsið er byggt virðist hafa gleymst að gera ráð- stafanir vegna þess að umræddur eldvarnaveggur er ekki útiveggur lengur heldur inniveggur og nær ekki alveg upp í þakið," sagði Gunnar. Réttarháls 2: Brunabóta- matiðer 310 millj- ónirkróna SAMKVÆMT uplýsingum frá Húsatrygginu Reykjavíkur- borgar er brunabótamat hú- sanna tveggja sem brunnu á Réttarhálsi samtals 310 millj- ónir króna. Ólafúr Jónsson einn af matsmönnum Húsa- tryggina segir að þeir hafi ekki fengið að skoða rústimar í gærdag en fái það væntan- lega í dag. Fyrr getur hann ekki tjáð sig um hve mikið tjónið er. Þær 310 milljónir sem hér um ræðir skiptast milli eignaraðila húsanna á eftirfarandi hátt. Brunabótamat húseignar Gúmmívinnustofunnar er sam- tals 159,5 milljónir króna. Hjá J. Þorláksson og Norðmann er það 26,5 milljónir króna. Hjá Ðavíð Atla Oddsyni er það 5,6 milljónir króna. Hjá Blómamið- stöðinni er það 40 milljónir króna. Hjá Kælingu er það 13 milljónir króna. Hjá Rekstrar- vörum er það 28,4 milljónir króna og hjá Bessa sf. er það 36,8 milljónir króna. Innbúið hjá stærsta aðilanum, Gúmmístofunni, er tryggt hjá Brunabótafélaginu. Ingi R. Helgason forstjóri Brunabótafé- lagsins segir að þeir gefi ekki upp tryggingarfjárhæðir hjá við- skiptavinum sínum. Þetta sé hinsvegar endurtryggt ytra. Þegar stórtjón á borð við þetta kemur upp og er greitt af endur- tryggingaraðilanum hefur það í för með sér að afsláttur Bruna- bótarfélagsins minnkar eða hverfur ytra og iðgjöld hækka. Eldvarnir ekki í lagi Eins og sjá má slapp norðaustur horn bygginganna nokkuð vel. Morgunblaiið/Sverrir Enn var unnið að því að slökkva elda í gærdag. Unnið var að því að hreinsa til í gærdag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.