Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 48
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Frumvarp flármálaráðherra: Afengi og tóbak hækki þrátt fyrir lög um verðstöðvun ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, lagði í gær frarn frumvarp sem heimilar honum að hækka útsöluverð á áfengi og tóbaki þrátt fyrir lög um verðstöðvun. Þessu átti að ná með breyting- artillögu við bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar sem nú liggja fyrir Alþingi en afgreiðslu þeirra hefiir verið frestað um óákveðin tíma. Frumvarpið fór hraðferð gegnum þrjár umræður í efri deild á innan við klukkutíma í gær en á enn eft- ir að fara í gegnum neðri deild áður en það verður að lögum. í fiárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs muni auk'- -^ast um 450 milljónir króna vegna sérstakra hækkana á áfengi og tó- baki umfram almennar verðlags- hækkanir. Fjármálaráðherra sagði ljóst að þetta markmið næðist ekki nema að heimilt yrði að hækka út- söluverð á þessum vörum sem allra fyrst. Eyjólfur Konráð Jónsson, Sjálf- stæðisflokki, og Guðmundur Agústsson, Borgaraflokki, mynd- uðu minnihluta fjárhags- og við- skiptanefndar í þessu máli og töldu óeðlilegt að ríkið undanskildi sjálft sig verðstöðvun. Lögðu þeir til að frumvarpið yrði fellt. Danfríður Skarphéðinsdóttir sagði þessar hækkanir vera gæfulegri en margar aðrar tekjuöflunarleiðir sem ríkis- stjómin hefði ákveðið og styddi Kvennalistinn þetta frumvarp. Hafiiarfjörður: Hættulegar þrett- ánda sprengjur LÖGREGLAN í Hafnarfirði hef- ur orðið vör við að unglingar þar i bæ búi sjálfir til sprengjur úr pappahólkum og púðri. Sprengj- ur þessar eru öflugar og óttast lögreglan að meiðsli hljótist af notkun þeirra í kvöld, á þrettánd- anum. Ekki hefiir orðið vart við að unglingar í bænum búi til svo- kallaðar rörasprengjur, sem voru nokkuð algengar um Morgunblaðið/Bjarni síðustu áramót, en ollu alvarleg- um slysum. A miðvikudagskvöld var heima- tilbúin sprengja límd við rúðu versl- unar í Hafnarfirði og nægði kraft- urinn í sprengingunni til að bijóta rúðuna. „Lögreglunni tókst ekki að hafa hendur í hári þeirra sem að þessu skemmdarverki stóðu, en hins vegar voru nokkrar slíkar sprengjur teknar af unglingum í bænum," sagði Sveinn Bjömsson, rannsókn- arlögreglumaður. „Sprengjumar gera unglingamir með því að setja púður úr flugeldum í sterka pappa- hólka, vefja þá með límbandi og festa kveik við. Kraftur sprengjunn- ar, sem fest var á rúðuna, var mik- ill og það er skelfilegt til þess að hugsa að hún hefði getað spmngið í höndunum á þeim sem var með hana, eða einhver hefði getað meiðst illa við að fá í sig glerbrot úr rúðunni." Rétt er að hvetja alla til að láta heimatilbúnar sprengjur eiga sig á þrettándanum. Þær geta valdið al- varlegum slysum, eins og sannast hefur undanfarin ár. Þá ættu for- eldrar að kanna hvort böm þeirra hafa slíkar sprengjur undir höndum. Morgunblaðið/Sverrir I rúst- unumá Rétt- arhálsi STAÐURINN þar sem eldurinn kom fyrst upp í húsinu við Réttarháls 2. Fremst á mynd- inni eru leifar kerru sem verið var að rafsjóða og fyrir miðju mynd- arinnar stendur Smári Steingríms- son í hópi rann- sóknarlögreglu- manna, en Smári varð fyrstur elds- ins var. Rann- sóknarlögregla ríkisins hefur nú eldsvoðann til rannsóknar. Komið hefur fram af hálfu Eld- vamaeftirlitsins, að eldvömum hafí ver- ið ábótavant á Rétt- arhálsi 2. Morgun- blaðinu tókst ekki í gær að ná tali af Viðari Halldórssyni framkvæmdastjóra Gúmmívinnustof- unnar vegna þessa. Sjá frásögn, samtöl og myndir á bls. 18 og 19 og samtal við borgar- stjóra á bls. 2. Þrír blóðþegar með- al alnæmissmitaðra 48 íslendingar hafa greinst með mótefiii FJÖRUTÍU og átta íslendingar höfðu greinst með mótefni gegn alnæmi nú um áramótin, þar af nítján á síðasta ári. Með alnæmi, þ.e. sjúkdóminn á lokastigi, hafa greinst tíu, þar af eru fimm látn- ir. Meðal sýktra eru þijár konur sem taldar eru hafa smitast við blóðgjöf og er ein þeirra látin en önnur með alnæmi á lokastigi. væri nær lagi og miðaði hann þá við að forvarnarstarf hafí farið að skila árangri upp úr 1986. Skortur á upplýsingum hamlaði því þó að hægt væri að meta líkindin. Ekki lægju fyrir upplýsingar um stærð áhættuhópa og ýmsa aðra þætti sem máli skiptu. Tillaga um fjölgun í heið- urslaunaflokki listamanna Fulltrúar allra flokka á Alþingi urðu í gær ásáttir um tillögu um skipan heiðurslaunaflokks listamanna. Samkvæmt tillög- unni fiii 17 listamenn heiðurs- laun Alþingis á þessu ári og er það tveimur fleira en í fyrra. Tveir þeirra listamanna sem heiðurslaun hlutu í fyrra létust á árinu, þeir Ólafur Jóhann Sigurðs- son, rithöfundur, og Svavar Guðnason, listmálari, þannig að flórir listamenn hljóta nú heiðurs- laun í fyrsta skipti. Þeir eru: Jó- runn Viðar, Kristján Davíðsson, Þorsteinn Ö. Stephensen og Jak- obína Sigurðardóttir. Aðrir listamenn í heiðurslauna- flokki eru: Ámi Kristjánsson, Finnur Jónsson, Guðmundur Dan- íelsson, Halldór Laxness, Hannes Pétursson, Indriði G. Þorsteins- son, Jóhann Briem, Jón Nordal, Jón úr Vör, María Markan, Matt- hías Johannessen, Stefán íslandi og Valur Gislason. Heiðurslaun listamanna verða 600.000 krónur á mann. Frá þeirri upphæð dregst staðgreiðsla opin- berra gjalda og sé gert ráð fyrir því að menn fullnýti persónufrá- drátt sinn í öðrum störfum koma 373.560 krónur í hlut hvers lista- manns. Heiðurslaun á þessu ári hljóta 17 listamenn og er það fjölgun um tvo frá fyrra ári. Sex greindust með alnæmi á lokastigi á síðasta ári en enginn árið 1987. Karlar sem greinst hafa með mótefni eru fjörutíu og einn en konur sjö. Skipting smitraðra eftir áhættuhópum er þannig að hommar eru þrjátíu og tveir, eitur- lyfjaneytendur átta, einn flokkast bæði sem hommi og eiturlyfjaneyt- andi, blóðþegar eru þrír og gagn- kynhneigðir fjórir, þar af þijár kon- ur. Af þeim fímm sem látist hafa var ein kona en karlmenn fjórir. Að sögn Haraldar Briem, smit- sjúkdómalæknis á Borgarspítalan- um, má áætla að fjöldi þeirra sem hafa veiruna án þess að vita af því liggi á bilinu tvöhundruð og fjörutíu til sexhundruð og fimmtíu manns, en hann sagðist álíta að lægri talan Ýsaná 172 krónur í Hull VERÐ á ísuðum fiski er enn hátt á erlendu mörkuðunum. Ýsa fór I gær upp I 172 krónur kílóið í Hull og ufsi i 110 S Bremer- haven. Verð á þorski hefur hins vegar lækkað. Engey RE seldi í gær 118 tonn, mest karfa, í Bremerhaven. Heild- arverð var 11,7 milljónir, meðalverð 98,67. Það er hæsta meðalverð, sem fengizt hefur í íslenzkum krónum, en í raun nokkrum aurum lægra en verðið sem Hólmanes fékk fyrr í vikunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.