Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989 Braniff kaupir 50 Airbus þotur o g pantar aðrar 50 New York. Reuter. Bandariska flugfélagið Braniff heflir samið um kaup á 50 far- þegaþotum af gerðinni Airbus A320 og tryggt sér forkaupsrétt að 50 til viðbótar, að því er skýrt var frá í gær. Er um samninga að verðmæti 3,5 milljarða dollara, eða jafhvirði 170 milljarða íslenzkra króna, að ræða. Braniff fær fyrstu þotumar af- hentar í sumar og hinar síðustu árið 1995. Þotumar 50, sem félag- ið hefur samið um kaup á, voru ætlaðar Pan American. Það félag hafði keypt 16 þeirra og tryggt sér Ástralía: Höfirung- ar bjarga lífí drengs Sydney. Reuter. HÖFRUNGAR komu ungl- ingsstrák til bjargar með því að stugga fi'á honum há- karli, sem réðst á hann fyrir utan Ballina í Nýja Suður- Wales á þriðjudag. Pilturinn, sem er 17 ára gamall, var að æfa sig á segl- bretti, þegar hákarlinn réðst að honum og beit stórt stykki úr brettinu. Þegar hákarlinn hafði gert aðra atlögu að piltin- um og sært hann illa á kvið, komu nokkrir höfrungar aðvíf- andi og ráku ókindina á braut. Drengnum tókst að synda upp að ströndinni, og að sögn tals- manns sjúkrahússins, sem hann var lagður inn á, er líðan hans góð eftir atvikum. raðnúmer að 34, en vegna fjár- hagserfiðleika hafði Pan Am um skeið reynt að finna aðra kaupend- ur að þotunum. Borgar Braniff Pan Am 115 milljónir dollara fyrir kaup- réttinn, en með þessum samningum fær félagið þoturnar þremur árum fyrr en ella hefði verið unnt. Pan Am var eitt af fyrstu flugfélögunum til að panta A320-þotuna, sem þyk- ir byltingarkennd, einkum vegna notkunar tölvutækni í stjómkerf- um. Sérfræðingar í flugmálum sögðu að með kaupunum fengi Braniff þotur hratt með lágmarkstilkostn- aði. Af þotunum 50 sem það hefur samið um kaup á þarf það ekki að fjármagna nema átta sjálft. Hinar 42 fjármagna Guinnes Peat Aviati- on, írskt fyrirtæki sem kaupir þotur og selur á kaupleigu, Airbus-verk- smiðjumar sjálfar og fyrirtækið Intemational Aero Engines, sem framleiðir hreyfla Braniff-þotn- anna. Þessi fyrirtæki þtjú endur- selja síðan Braniff þotumar á svo- kölluðum kaupleigusamningi, sem felur í sér að leiga, sem flugfélagið borgar, gengur upp í kaupverð þeirra ef það vill eignast þær að ákveðnum leigutíma liðnum. Í flugfiota Braniff eru 53 þotur en William McGee, forstjóri félags- ins, sagði í gær að félagið hygðist auka umsvif sín. Uppbygging fé- lagsins miðaðist við aukið flug til og frá Kansas City í samnefndu ríki og Orlandó á Flórída. Kaupin á Airbus-þotunum væm liður í þess- um áformum. Reuter Menachem Bacharach sýnir blaðamönnum „útvarpssprengj- una“ sem smyglað var framhjá öryggiseftirliti á sex flugvöllum í Vestur-Evrópu í nóvember og desember. Auðvelt átti að vera að sjá eftirlíkinguna af sprengi- efiii, sem komið hafði verið fyrir í útvarpinu. Flugslys í Brasilíu: Fundust við hestaheilsu í skóginum Sao Paulo. Reuter. ÞRÍR Brasiliumenn fúndust heilir á húfi í Amazonhéraði í Brasiliu 32 dögum eftir að flugvél þeirra brotlenti í frumskóginum. Mennimir vom í lítilli flugvél þann 29. nóvember síðastliðinn og var ferðinni heitið til Roraima-héraðsins í norðurhluta Brasilíu þar sem þeir ætluðu að leita eftir gulli. Spurðist ekki til ferða þeirra fyrr en áhöfn þyrlu kom auga á flugvélina 30. des- ember síðastliðinn í skóganjóðri um 80 km frá bænum Barcelos. Skömmu síðar fundust mennimir þrír skammt frá brotlendingarstaðnum. Annar vængur vélarinnar hafði laskast en björgunarmenn sögðu það gengi kraftaverki næst að þremenn- ingamir skyldu komast lífs af. Smygluðu „sprengju** gegnum eftirlit á sex flugvöllum í V-Evrópu: Auðvelt að konia fullkomn- um sprengjum í flugvélar Tel Aviv. Reuter. MENACHEM Bacharach, ísraelskur sérfræðingur í flugöryggismál- um, skýrði blaðamönnum frá þvi í gær að starfsmaður fyrirtækis hans hefði smyglað útvarpi, sem útbúið hafði verið sem tíma- sprengja, fram hjá öryggiseftirliti á sex flugvöllum i Vestur-Evr- ópu. Sagðist hann þetta sýna fram á hversu öryggi væri ábótavant á flugvöllum. Franskir sósíalistar: Borgar slj órinn í Mars- eille rekinn úr flokknum Marseille. Reuter. ROBERT VIGOUROUX, borgarsljóri í Marseille, var rekinn úr Sósía- listaflokknum á miðvikudag. Vigouroux hefur verið með uppsteyt við flokksforystuna og er brottrekstur hans tilraun af hálfú hennar til að skapa einingu meðal kjósenda flokksins fyrir borgarstjómar- kosningarnar, sem haldnar verða í marsmánuði næstkomandi. Vigouroux var rekinn, þegar ljóst varð, að hann ætlaði sér að hunsa val flokksins á frambjóðanda til borgarstjóraembættisins fyrir kosn- ingamar og bjóða sig fram sjálfur. Marseille er önnur stærsta borg Frakklands og eitt af öruggustu vígjum Sósíalistaflokksins. Vigouroux segist eftir sem áður ætla að bjóða sig fram til borgar- stjóraembættisins og kveðst líta á sig sem sósíalista hér eftir sem hingað til. Hann var skipaður í borgar- stjóraembættið til bráðabirgða, þegar hinn vinsæli forveri hans, Gaston Deferre, sem var borgar- stjóri í Marseille í 30 ár, lést af völdum hjartaáfalls árið 1986. Michel Pezet, sem flokkurinn valdi sem borgarstjóraefni sitt fyrir kosningamar í mars, var um langt árabil keppinautur Deferre um embættið. Bacharach starfar fyrir ísraelska samgönguráðuneytið og sagðist hafa útbúið „útvarpssprengjuna" samkvæmt gögnum, sem vestur- þýzka lögreglan hefði látið í té, um samskonar sprengju er fundist hefði sl. sumar í fórum Kassems Delkam- oni, eins helzta foringja hryðju- verkasamtaka Palestínumannsins Abu Nidals. Delkamoni er einn þeirra, sem vestrænar leyniþjón- ustur telja að kunni að hafa verið viðriðinn sprenginguna um borð í Pan Am þotunni er fórst 21. desem- ber sl. í Skotlandi. Raunvemlegt sprengiefni var ekki í útvarpssprengjunni, sem starfsstúlka fyrirtækis Bacharachs fór með athugasemdalaust fram hjá öryggiseftirliti á sex flugvöllum í Evrópu í nóvember og desember sl., heldur nákvæm eftirlíking. Bac- harach vildi ekki nefna flugvellina en sagði að „sprengiefnið" hefði átt að koma greinilega í ljós við gegn- umlýsingu útvarpsins. „Það sýnir hversu auðvelt er að koma raun- vemlegri sprengju í gegnum ör- yggiseftirlitið. Oft gæta skoðunar- tækjanna lítt þjálfaðir og illa laun- aðir menn sem er ekki umbunað fyrir árvekni. Þeim hreinlega leiðist í starfí og miklar líkur á að hættu- legir hlutir komist í gegnum skoð- un,‘‘ sagði Bacharach. A blaðamannafundi Bacharachs var einnig sýnd ferðataska, sem í var falin fullkomin plastsprengja. Var kveikjubúnaður hennar svipað- ur því sem talið er að búnaður sprengjunnar, sem grandaði Pan Am þotunni, hafi verið. Athuganir höfðu leitt í ljós að auðvelt var að koma töskunni í gegnum öryggi- skerfi flugvalla. Gagmýndu ísra- elsku öryggisfulltrúamir hversu mikið væri stuðst við gegnumlýs- ingartæki í öryggiskerfi flugvalla. ERLENT BENETTON UTSALAN BYRJAR í DAG enellon Q b enellon SISLEY 012 benelton KRINGLUNNI SKÓLAVÖRÐUSTIG KRINGLUNNI KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.