Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989 Bryndís Elín Einars- dóttir - Minning Fædd 1. desember 1971 Dáin 26. desember 1988 Að morgni 27. desember barst mér sú sorgarfrétt símleiðis, að ung frænka mín og nafna hefði látist í bílslysi þá um nóttina. Maður verð- ur algjörlega agndofa og spurning- ar um lífíð og tilveruna dynja yfír. Einmitt nú á þessum árstíma sem við öll tengjum gleði, þökkum hið liðna og óskum farsældar á kom- andi ári, er svo ungt líf snögglega kvatt á braut. Bryndís Elín var fædd 1.12.1971 í Lúxemborg, dóttir hjónanna Ein- ars Ólafssonar og Ingibjargar Jóns- dóttur. Hún var yngst fjögurra systkina, þau eru Jón, Halldóra og Olafur. Ég varð þeirrar hamingju aðnjót- andi að eyða stórum hluta upp- vaxtarára minna með þeim á mynd- arlegu heimili þeirra í Lúxemborg. Mér er minnisstætt hversu sam- heldin ijölskyldan var, þrátt fyrir tíð ferðalög, og hversu mikil rækt var lögð í að ræða hluti og vógu þá skoðanir bama og unglinga engu minna. Bryndís Elín hlaut þar gott veganesti fyrir sjálft lífíð. Hún var einstaklega glaðleg og hispurslaus í framkomu og alltaf tilbúin til að taka að sér þá sem minnimáttar voru, hvort heldur dýr eða menn. Það var villikötturinn sem alla klór- aði en þurfti samt þak yfír höfuðið, hundurinn Píla sem enginn vissi hverrar tegundar var þó nóg efni væri til að kaupa „fínni" hund. Hjá Bryndísi Elínu réðu tilfínn- ingar fremur en sýndarmennska ferðinni. Þegar Bryndís var 11 ára fluttist hún með fjölskyldu sinni til Banda- ríkjanna. Hún var þá altalandi á íslensku, þýzku, frönsku og luxem- borgisku. Mér er það minnisstætt er ég heimsótti þau nýflutt til Bandaríkjanna og mamma hennar sýndi mér ritgerð eftir Bryndísi, sem birst hafði í skólablaðinu öðrum innfæddum til áminningar í móður- málskunnáttu. í Bandaríkjunum eyddi Bryndís ómældum tíma með hesti sínum Blesa sem hún eignað- ist þar. Þann hest varð því miður að fella og tók það Bryndísi einstak- lega sárt. Þegar ég hitti hana í sumar var þó byijað að gróa yfír sárín og hún var farin að venja ferðir sínar aftur í hesthúsið. Hún átti marga vini og var að læra táknmál til að geta tjáð sig betur við heymarlausa vinkonu sína. Þó lífsferill Bryndísar hafí ekki verið langur þá er ég þess fullviss að hún hefur sáð gleðikornum í hjörtu foreldra sinna og systkina sem þau koma til með að búa að um_ ókomin ár. Ég votta þeim mína dýpstu sam- úð. Bryndís Hildur 26. desember 1988 byijaði eins og hver annar dagur, en endaði sorglega: Litla systir mín lenti í bílslysi og lést samstundis._ í dag verður hún jarðsungin á íslandi. Erfítt er að ssetta sig við að fá ekki aftur að sjá hana nema í hug- anum. Mamma, pabbi, eldri bróðir minn og undirrituð fluttumst til Lúxem- borgar 1965. Yngri bróðir minn fæddist þar ijórum árum seinna og Bryndís 1. desember 1971. Við átt- um heima í Lúxemborg til 1983 og var Bryndís, eins og öll böm þar, altalandi á luxemborgísku, þýsku og frönsku auk móðurmáls síns, íslensku. Við fluttum svo til Banda- ríkjanna og þá kunni Bryndís sama og ekkert í ensku, en var nær altal- andi á ensku eftir um þriggja mán- aða dvöl. Bryndís fór í reiðskóla og eignað- ist þar fljótlega marga vini og kunn- ingja. Henni þótti mjög vænt um hesta, og reyndar flest öll dýr, og eyddi miklum tíma í reiðskólanum. Hún hjálpaði til um helgar og fékk stundum auka reiðtíma fyrir. Þegar hún fermdist 1985, var hennar helsta ósk að eignast hest, sem hún og fékk. Það var henni mikil sorg þegar i ljós kom að svæfa þurfti hestinn síðastliðið sumar vegna fót- armeins, sem ekki var hægt að lækna. Bryndís naut að lifa lífínu og hitta vini og kunningja. Hún fékk bílpróf 16 ára gömul, eins og leyfí- legt er þar sem við eigum heima, og lagði þá oft af stað snemma á morgana til að sækja vini, sem höfðu ekki bíl og keyrði þá í skól- ann og heim aftur seinna um dag- inn. Hún var vinum sínum bón- greið; hvort sem þurfti að skutla þeim til læknis, hlusta á vandamál þeirra eða hugga. Bryndís var mjög hreinskilin og hikaði ekki við að segja ef henni mislíkað eitthvað, en bað jafnframt fýrirgefningar ef henni fannst hún hafa sært aðra. Hún reyndi að líta á vandamál vina sinna raunsæjum augum, taka á þeim og leysa af skynsemi. Aftur á móti var hún sjálf mjög viðkvæm og stundum óörugg og lokuð og átti erfítt með að opna sig. Hún þurfti mikla hlýju og man ég þegar hún kom stundum til mín, kyssti mig á kinnina og sagði: „Give me a hug.“ (Faðmaðu mig.) Bryndís vann stundum með skólanum: fýrst í blaðasölubúð, svo á dýraspítala, en síðast í bíóinu. Hún söng með í skólakómum og hjálpaði til í skól- anum þegar verið var að setja upp leikrit og söngskemmtanir. Hún las mikið og fór oft á bókasafnið og var hún þar í unglinganefnd, sem ráðlagði bókasafninu með kaup á bókum fyrir unglinga. Bryndís ætl- aði að hefja nám í háskóla næsta haust og hafði áhuga á að taka fýrir ferðamál og jafnvel reið- kennslu. Þegar ég lít til baka, fínnst mér ég hafa misst svo margt úr þessu stutta lífí hennar. Ég fór burt í • skóla þegar Bryndís var rétt að verða 9 ára og hitti hana því aðal- lega í skólafríum. Þegar ég kom heim 20. desember sl. sótti Bryndís mig út á flugvöll. Við eyddum meiri tíma saman þess 6 síðustu daga ævi hennar heldur en við höfðum gert í lengri tíma og er mér það ógleymanlegt. Því miður tekur mað- ur lífið sem sjálfsagt og það vill gleymast hvað það getur endað skyndilega. Mér er minnisstætt hvað prestur- ; inn í heimabæ okkar sagði um dauð- ann við minningarathöfn Bryndísar; „Dauði er ekki slys í lífínu heldur atburður. Hún er enn til þótt ég sjái hana ekki lengur. Og þó ég segi að hún sé farin, þá eru aðrir sem bíða eftir henni, fagna henni og segja: „Hér kemur hún.““ Mér fannst í fýrstu dauði hennar tilgangslaus, en ég vil og reyni að trúa því að þetta hafí allt verið löngu fyrirfram ákveðið, og hafí einhvem, mér enn óskiljanlegan til- gang. Kannski getur hún gert meira gott þar sem hún er núna og ég veit að henni líður vel. Ég sakna návistar hennar, en ég get faðmað hana í huganum, hugsað til henn- ar, talað við hana, því hún er aldrei langt í burtu. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga’ og rauna fri, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. (Sb. 1945. H. Pétursson) Halldóra Að morgni þann 27. desember hringdi bróðir minn og sagði mér að Bryndís Elín væri dáin. Hvers vegna? Ég gat ekkert sagt né gert. Þá kom upp í huga mér setning á almanaki, fyrir árið 1989, er ég hafði nýlega fengið sent frá heimili hennar. Framan á því stóð: „Það eru ljósin, jafnt sem skuggamir í lífí okkar, sem gera líf okkar sterkt og fylla það dýpt.“ Stíðnislegt bros hennar, jafnt sem gáski lífs hennar, munu seint renna mér út minni. Tilgangur lífsins er ekki sá að harma þá sem fara yfir móðuna miklu, þó ungir séu að árum. Heldur að helga líf okkar, er eftir lifum, gæsku og gleði þeirra er við kveðjum. Vissar enskar ljóðlínur eftir Ro- bert Plant komu einnig upp í huga mér er minna mig á Bryndísi Elínu og hljóða svo á okkar máli: „Það er stúlka, er ég þekki, sem er viss um að allt, sem glóir sé gull. Hún byggir sér stiga til himna. Er hún kemur þar, veit hún, ef hliðin skyldu vera lokuð, mun hún kunna þau lykilorð til að fá þau opnuð. Er við hin göngum, veg lífs okkar, munu skuggamir verða stærri, en sálir okkar. Samhliða okkur mun þá ganga stúlka er við öll þekkjum. Það mun lýsa af henni gullinn logi, sem mun slá birtu á sálir okkar. Alit mun að lokum verða, gylltum loga piýtt. Ef við hlustum nógu vel mun kallið koma til okkar að lokum. Þegar allir verða eitt og eitt mun verða allt.“ (R.P.) Hafi Bryndís Elín þökk fyrir allt. Fyrir hönd svo margra, Ingi frændi „Þegar þú er sorgmæddur, skoð- aðu þá huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín“ (Spámaðurinn). Hún Bryndís vinkona mín er dá- in. Það er erfítt að skilja tilgang lífsins stundum, en þegar jafn ynd- isleg manneskja og hún var er hrif- in burt í blóma lífsins, fínnur maður fyrir því hve vanmáttugur maður er gagnvart því sem er óskiljanlegt. Við Bryndís kynntumst fyrst fyr- ir fjórum og hálfu ári, þegar ég flutti hingað til Bandaríkjanna í sama bæ og hún. Mömmur okkar ákváðu að við skyldum kynnast, og mér var boðið heim til hennar. Bryndís var svo fúl, því mamma hennar neyddi hana til þess að vera heima í stað þess að fara upp í hesthús, sem var hennar líf og yndi, að hún ákvað að aldrei skyldi hún verða vinkona þessarar leiðinlegu Jórunnar. Mér fannst þessi Bryndís algjört merkikerfí, og það gæti nú ekki verið mikið í hana varið. Við hlógum oft að þessu seinna meir. Eins og áður sagði var Bryndís mikil hestamanneskja, og dýravinur yfírleitt. Því miður dó Blesi (eða B.H. eins og hún kallaði hann) nú í sumar. Ég skildi oft ekki hvemig hún nennti að standa í þessu hesta- veseni, rífa sig eldsnemma upp á morgnana um helgar, til að fara út í kalt hesthúsið. En þegar ég sá hana á hestbaki og stoltið skein úr svipnum, þá skildi ég að það var þess virði. Eða þegar hún var að gefa honum gulrætur og rúgbrauð, — það var eins og móðir við bamið sitt. þegar henni leið illa eða var döpur, fór hún upp í hesthús til Blesa síns, og sat hjá honum. Það var eins og hún sagði við mig. Dýrin eru alltaf tilbúin að hlusta á mann, og þau rífast ekki á móti því sem maður segir. Aldrei áður hef ég þekkt nokkum jafn fullan af lífsorku og bjartsýni og hana Bryndísi. Auðvitað átti hún sínar sorgir og döpm stundir, en hún var nær alltaf hress og til í allt. Við hlógum oft að því að við gætum verið stórhættulegar sam- an, tveir bogmenn sem gerðu bara það sem þeim datt í hug, og gleymdu oft að hugsa um afleiðing- amar. Og það var nú margt brallað! Það var umtalað í skólanum, að á mánudagsmorgnum þegar við sátum öll hálfsofandi eftir helgina, var Bryndís alltaf hressust allra. Ég man ég spurði hana einu sinni hvemig í ósköpunum hún gæti allt- af verið svona hress og kát, jafnvel þó hún væri dauðþreytt. Hún hugs- aði sig um og sagði svo: „Veistu, ég er ekkert alltaf hress og kát, en er ekki betra að reyna að vera í góðu skapi og brosa, í staðinn fyrir að velta sér upp úr einhveijum smávægilegum vandmálum. Ef maður reynir að hlæja og vera hress, þá gengur allt svo mikið betur.“ Ég varð hálf hvumsa, en sá svo að hún hafði alveg rétt fyrir sér. Ég held að lífíð yrði léttbærara ef fleiri fylgdu þessum orðum og reyndu að koma auga á skoplegu hliðar tilvemnnar í staðinn fyrir að einblína á það neikvæða. Með þessum fátæklegu orðum vil ég kveðja Bryndísi vinkonu mína; ég vona að hvar sem hún er núna líði henni vel því hún á það svo sannarlegar skilið. Foreldmm Bryndísar, Ingu og Einari, systkin- um hennar, Óla, Halldóm og Jonna, ásamt Sigrúnu og uppáhalds litlu frænku hennar, Irisi, og öðmm aðstandendum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Jórunn Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér sinn síðsta blund. Harmafregn — helfregn. Að kvöldi mánudags 26. desember 1988 verður umferðarslys í Banda- ríkjunum. Og að morgni næsta dags vitum við þá harmafregn hér heima að hún Bryndís Elín, 17 ára elsku- leg dóttir bekkjarsystkiná og góðra og náinna vina, er látin. Við fáum aldrei skilið á hvem hátt örlög okkar allra em skráð. Við vitum það eitt að það er upp- haf — og það er endir. En okkur er það ávallt jafn óbærilegt þegar kallið kemur svo fljótt — svo ótíma- bært. Engin orð fá svo lýst þeim hugsunum sem koma upp á slíkum stundum til að sá harmur og sú sorg sem umlykur allt og alla fái einhveija merkingu í fátæklegum kveðjuorðum. Hún var elskuleg stúlka, lífsglöð og vingjamleg, félagslynd og full af áhuga á öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Hún kom sér vel í sínum hópi, hvort sem var í skólan- um eða í kunningjahóp, meðal vina eða frændfólks. Hún naut lífsins þann tíma sem henni var ætlaður hér. Og hún færði öðmm hamingju og fyllra líf. Bryndís Elín var yngst fjögurra bama þeirra Ingibjargar Jónsdóttur og Einars Ólafssonar. Síðustu 25 árin hefur heimili þeirra verið á erlendri gmnd. Fyrst í Lúxemborg en frá árinu 1983 í Bandaríkjunum. Bryndfs Elín átti því aldrei heima hér á landi en ól sinn stutta aldur í foreldrahúsum erlendis. En nokkr- ar urðu heimsóknimar til íslands enda frændgarðurinn stór og sam- hentur. Ennfremur áttu ófáar heim- sóknir frændfólks og vina á heimili foreldranna, þar sem öll fjölskyldan var einhuga um að taka vinum sínum frá íslandi opnum örmum, stóran þátt í að viðhalda vináttu og frændsemi. Okkar fjölskylda var meðal þeirra sem sóttu þau heim. í þeim heimsóknum var Bryndís yngstu dóttur okkar ómetanlegur féiagi, ótrauð að kynna henni líf sitt á erlendri gmnd og leyfa henni að taka þátt í því með sér meðan á heimsóknum stóð. Þær góðu end- urminningar trúum við að hverfí henni seint úr minni — einnig okkur. Dótturdóttir okkar á 5. ári eign- aðist góðan vin í Bryndísi föðursyst- ir sinni í heimsóknum sínum til „ömmu Ingu og afa Einars í Ameríku". I nokkurra daga fjarveru foreldra sinna þar vestra í Iqolfar slyssins dvaldi hún hjá okkur og reifaði þá oft minningar sínar um samvistir sínar við frænku sína. Af frásögn hennar má meta að samvistir þeirra í sundlauginni á löngum, heitum sumardögum hafí verið óblandnar ánægjustundir. Megi þær minningar lifa og aðrar .varðveitast með henni. Sársauki þessara tímamóta er mikill. En við biðjum góðan Guð að styrkja foreldra og systkini, foð- urömmu, mágkonu og litla frænku í þeirra sorg og söknuði. Margs er að minnast, margt er að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem) Rannveig og Sigurður Tómasson t Faðir okkar, ÞORGEIR JÓNSSON bóndi, Gufunesi, lést 5. janúar á Sólvangi, Hafnarfirði. Börnin. t Eiginmaður minn, PÁLMI FRÍMANNSSON heilsugœslulœknir, Stykkishólmi, lést í Landspítalanum fimmtudaginn 5. janúar. Heiðrún Rútsdóttir. t RAGNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR frá Söndum, Akranesi, Laugavegi 98, Reykjavík, lést aðfaranótt 5. janúar á Borgarspitalanum. Jarðarförin auglýst síðár. Systkini hinnar látnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.